Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 24

Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 24
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is E tanól verður í fyrsta sinn til sölu hérlendis á dælu hjá á elds- neytisstöð Olís við Álfheima mánudag- inn 17. september. Dælan er á vegum Brimborgar en fyrirtækið stendur nú fyrir tilraunaverkefni varðandi notkun etanóls á bifreið- ar á Íslandi. Eldsneytið sem um ræðir heitir E85 og verða fluttir inn 2.000 lítrar í fyrstu umferð. Brimborg en nú þegar búin að flytja inn tvær bifreiðar sem ganga fyrir þessu eldsneyti, þriggja dyra sportbílinn Volvo C30 og fjölskyldubifreiðina Ford C- Max. „Við byrjuðum að vinna í verk- efninu í nóvember 2006 en þá var engin vitneskja að ráði til í landinu um etanól. Við sendum fyrirspurn til Alþingis og þá kom í ljós að ekki hafði farið fram nein umræða um málið,“ segir Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar og forsprakki verkefnisins, en fyr- irtækið sendi ítrekun til Alþingis í mars á þessu ári. Brimborg fór í kjölfarið að afla sér nánari upplýsinga og komst að því að nágrannalandið Svíþjóð, land sem Íslendingar miða sig við á mörgum sviðum, er komið langt í notkun etanóls á bifreiðar. Svíar byrjuðu að prófa sig áfram með etanól upp úr aldamótunum, að sögn Egils. „Boltinn rúllar mjög hratt hjá þeim og strax árin 2004-5 seldu þeir 2.000 etanólbíla á mánuði. Núna er talan komin upp í 3.000- 3.500 bíla á mánuði en alls eru 70.000 etanólbílar á götum Sví- þjóðar. Að sama skapi hefur et- anóldælum fjölgað mjög hratt en núna eru þær komnar í tæplega þúsund,“ segir hann. Eggið og hænan „Hér hefur vandinn auðvitað fal- ist í því hvar eigi að byrja. Hvort kom á undan, eggið eða hænan? Það vantar bæði bíla og eldsneyti og það þarf að byggja upp mark- aðinn,“ segir Egill en Brimborg leitaði eftir samvinnu við olíufélög- in. Skeljungur og Olís skoðuðu málið, bæði tæknilegar hliðar og dreifingaratriði. Niðurstaðan varð sú að Brimborg flytur inn 2.000 lítra en Olís ætlar að sjá um sölu með því að skipta út einni venju- legri dælu í etanóldælu. Stöðin í Álfheimum er stærsta eldsneyt- isstöðin hjá Olís og er hún jafn- framt mjög vel staðsett, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. „Við kaupum etanólið en þeir eru sérfræðingarnir í því að dreifa eldsneyti.“ Egill segir að það hafi þurft að gera einhverjar breyt- ingar vegna þessa en ekki veru- legar. „Kosturinn við etanólið er að það er vökvi og því er nánast sömu aðferðafræðinni beitt við að dreifa því eins og bensíni. Það er til dæmis mun flóknara að dreifa vetni og metangasi.“ Hugað að upprunanum Nafnið E85 gefur til kynna að eldsneytið sé blanda en það er 85% etanól og 15% bensín. Er þetta sama blanda og notuð er á etanólbíla í Svíþjóð og Bandaríkj- unum. Í Brasilíu, þar sem notkun etanólbíla er mest í heiminum, er notað E100, eða 100% etanól. Ástæðan fyrir því að E85 er notað hér er loftslagið en blandan virkar betur í kaldari löndum. Uppruni eldsneytisins var mik- ilvægur í augum Egils. Etanól- framleiðsla úr maís hefur verið gagnrýnd því við hana hefur heimsverð á maís hækkað, sem hefur bitnað á fólki í fátækum heimshlutum þar sem kornteg- undin er hluti grunnfæðu. Íslenska etanólið er því ekki framleitt úr maís heldur er það ættað frá Sví- þjóð. „Eldsneytið er framleitt úr því sem til fellur við skógarhögg. Svíar eru stórþjóð í skógarhöggi og þar fellur til mikill lífmassi sem var áður ónýttur.“ Hann segir að etanóleldsneyti teljist vera 97-98% umhverfisvænt. „Umframorka frá orkuverum er notuð til framleiðslunnar. Síðan fer út um pústið allt að því 80% minni koltvísýringslosun en frá sambærilegum bensínvélum.“ Engar takmarkanir Eftir því sem Egill hefur kynnt sér etanólið og etanólbifreiðar bet- ur verður hann sannfærðari um að þetta eigi eftir að höfða til Íslend- inga. „Bílarnir sem við völdum til kynningar sýna að í þessu felast engar takmarkanir,“ segir hann en valdir kúnnar fá að prófa bílana í fyrstu. „Annar kostur er að bíla- framleiðendur þurfa aðeins að breyta hefðbundnum bensínbíl sáralítið til að hann geti einnig gengið fyrir etanóli,“ segir hann og bendir á að til dæmis felist meiri takmarkanir í notkun raf- magnsbifreiða og metangasbílar hafi sér gastank sem taki af far- angursrými og því séu slíkir bílar oft síðri kostur fyrir hinn almenna borgara. Bílarnir tveir sem Brimborg hefur nú þegar flutt inn eru svo- kallaðar „flexifuel“-bifreiðar. Það þýðir að líka er hægt að taka venjulegt bensín á bílinn. „Þetta er lykilatriði í upphafi, til þess að það sé auðveldara að innleiða þessa bíla á Íslandi. Í Svíþjóð byrjaði þetta líka bara með einni dælu.“ Enn er mörgum spurningum ósvarað varðandi etanólið og et- anólbifreiðar en svörin eiga eftir að skipta sköpum um framtíð slíkra bifreiða hérlendis. „Verðið verður að vera samkeppnishæft til að hinn almenni neytandi, sem ekki er sjálfur tilbúinn að eyða hundruðum þúsunda út af um- hverfinu, kaupi bílinn,“ segir Egill en hann vonast eftir því að vöru- gjöld verði felld niður á þessa bíla líkt og metangasbíla. „Við sendum fyrirspurn til tollstjóra fyrir hálf- um mánuði. Við vonumst eftir svari í mánuðinum, hugsanlega fyrir opnun dælunnar. Nið- urstaðan skiptir gríðarlegu máli um fjölda etanólbíla sem við get- um hugsað okkur að flytja inn.“ Etanólið þarf að vera ódýrara Etanólbílar teljast visthæfir bílar í Svíþjóð og geta eigendur þeirra lagt ókeypis í stæði í Stokk- hólmi og Gautaborg, að sögn Eg- ils. Í einhverjum tilfellum þurfa þó eigendur bifreiðanna að sýna kvittanir því til sönnunar að þeir noti etanól í miklum mæli á bílinn í stað bensíns. Samkvæmt skil- greiningu Reykjavíkurborgar teld- ust etanólbílarnir ekki visthæfir; Bara spurning um tíma Morgunblaðið/Ómar Sportbíllinn Annar etanólbílanna er af gerðinni Volvo C30 og er glæsilegur á að líta. Hægt er að skoða bílinn í sal- arkynnum Brimborgar við Bíldshöfða en fyrirtækið stendur fyrir etanóltilraunaverkefninu. Forsprakkinn Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar, við annan etanólbílinn, Ford C-Max. Bílar sem ganga fyrir endurnýjanlegum orku- gjöfum sjást æ oftar á götunum. Nokkrir etanólbílar hafa verið fluttir til landsins og eftir viku verður etanóleldsneyti í fyrsta skipti til sölu á dælu hérlendis. » „Annar kostur er að bílaframleið- endur þurfa aðeins að breyta hefð- bundum bensínbíl sáralítið til að hann geti einnig gengið fyrir etanóli.“ Í HNOTSKURN »Fyrsta etanóldælan á Íslandiverður opnuð mánudaginn 17. september hjá Olís í Álf- heimum. »Tveir etanólbílar eru til hér-lendis. »Eldsneytið heitir E85 og er85% etanól og 15% bensín. »Fluttir verða inn 2.000 lítraraf E85 á vegum Brimborgar til að byrja með. »Maís er ekki notaður viðframleiðslu eldsneytisins en etanólið, sem notað verður hér- lendis, er frá Svíþjóð og framleitt úr efni sem til fellur í skóg- arhöggi. daglegtlíf |sunnudagur|9. 9. 2007| mbl.is David Lightfoot hefur sett fram byltingarkenndar hugmyndir um þróun tungumála og mál- töku barna. » 28 tungumál Arngrímur Jóhannsson, flug- stjóri, hefur lagt ómælda vinnu í að halda sögu flugs á Íslandi á lofti. » 30 flugsaga Bók Jung Chang og Johns Hal- lidays geymir harkalega gagn- rýni á Maó formann og valdatíð hans. » 32 maó Alla 20. öldina var miðbær Reykjavíkur aðalstaðurinn þar sem kynin gátu komist í tæri hvort við annað. » 36 hefðir Í kvikmyndinni Veðramót eru mál barna, sem tekin voru af heimilum sínum og sett á upp- tökuheimili, í brennidepli. » 26 kvikmyndir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.