Morgunblaðið - 09.09.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Virðing
Réttlæti
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að efna til allsherjar-
atkvæðagreiðslu í VR við kjör fulltrúa á
ársfund ASÍ og þing LÍV 2007. Kjörnir
verða 74 fulltrúar og 26 fulltrúar til vara á
ársfund ASÍ og 50 fulltrúar og 20 fulltrúar
til vara á þing LÍV.
Framboðslistar ásamt meðmælum 100
fullgildra félagmanna VR þurfa að hafa
borist kjörstjórn á skrifstofu VR, Húsi
verslunarinnar fyrir kl. 12 á hádegi
fimmtudaginn 20. september nk.
Kjörstjórn.
Solla stirða ætti nú að fara að liðkast eftir alla þessa herþjálfun.
VEÐUR
Tuttugu höfundar frá fjórumheimsálfum verða gestir á bók-
menntahátíð í Reykjavík sem hefst
með upplestri í Iðnó í kvöld. Á há-
tíðinni verður áhersla lögð á sam-
spil veraldarsögu, skáldsagna og
ævisagna.
Þetta er mikil og þörf innspýting ííslenskt mannlíf og menning-
arflóru. Á meðal
höfunda í kvöld
verður til dæmis
Ayaan Hirsi Ali,
sem fæddist í
Mogadishu í
Sómalíu árið
1969, leitaði hæl-
is í Hollandi, var
kjörin á þing og
hefur getið sér
orð fyrir mannréttindabaráttu og
gagnrýni á viðhorf til kvenna í ísl-
ömskum samfélögum. Einnig talar
J.M. Coetzee, sem fékk bókmennta-
verðlaun Nóbels árið 2003 og er
eini rithöfundurinn sem tvívegis
hefur hlotið Booker-verðlaunin eft-
irsóttu.
Bókmenntaveislan stendur yfir til15. september. Hálfum mánuði
síðar, 27. september, hefst Al-
þjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, þar sem Íslendingum gefst
tækifæri til að horfa á kvikmyndir,
sem alla jafna rata ekki í íslensk
kvikmyndahús.
Nú verður finnski kvikmyndaleik-stjórinn Aki Kaurismäki gestur
hátíðarinnar og mun veita viðtöku
sérstökum verðlaunum fyrir fram-
úrskarandi listræna kvikmyndasýn,
en hann er meðal annars kunnur
fyrir vegamyndina óborganlegu
Leningrad Cowboys Go America.
Full ástæða er til að hrósa þeimsem víkka sjóndeildarhring Ís-
lendinga með framtaki af þessum
toga. Eini vandinn sem Íslendingar
standa frammi fyrir er hvað þeir
eigi að gera af sér næstu ellefu
mánuði. En svo kemur aftur sept-
ember.
STAKSTEINAR
Menningarlegur september
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
:
*$;<=
!"
#
# !
$
*!
$$
; *!
!"
"
#
$" % $
>2
>! >2
>! >2
#"! &'
(
& )*+ '$&,
$ -
%&
#
'#
!
()
# 6
2
' "
*
+
'#
,
(-
%
.
!
/
0
+&-
;
1
#
!
+"
,
#
(-
!&
#
(
-.'' $// &'$" 0$ +$(
& 1 2
&
22 3'45?4
?*>5@ AB
*C./B>5@ AB
,5D0C).B
2 4
4
2 2 2 2
2
2 2 2 2
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir |
8. september 2007
Fleiri leikskóla
Ég held að það sé alls
ekki í hlutverki borg-
arinnar að stuðla að
frekari einkavæðingu á
leikskólum. Okkar
hlutverk er fyrst og
fremst að reka faglega
leikskóla fyrir borgarbúa og halda
áfram að byggja fleiri leikskóla. En
ekki fækka þeim eins og núverandi
meirihluti hefur nú þegar gert með
því að færa borgarrekinn leikskóla
yfir í einkarekstur.
Meira: bryndisisfold.blog.is
Baldur Sigurðsson | 7. september
Lífið lagt í hættu
Við hjólreiðamenn
komumst ekki hjá að
hugleiða samgöngur á
hverjum degi þar sem
við geysumst milli
borgarhluta, svifléttir
og fljótir í förum, þótt
samgöngukerfið sé alls ekki gert
fyrir okkur. Reyndar eru fáeinir
göngustígar í borginni sem einnig
henta hjólreiðamönnum, en aðallega
verðum við að notast við gangstéttir
og leggja líf okkar í hættu þegar við
þverum umferðarelfur bílanna.
Meira: balsi.blog.is
Gerður Gestsdóttir | 8. september
Ryður brautina
Það eru forseta- og
þingkosningar í Guate-
mala í dag, sunnudag.
Friðarverðlaunahafi
Nóbels, frumbyggja-
konan Rigoberta
Menchú, er í framboði
til forseta, fyrst kvenna og fyrst
frumbyggja. Hún á enga möguleika
á að ná kjöri, fær aðeins um 5% í
könnunum, þótt frumbyggjar séu
nær helmingur landsmanna. En þeir
eru víst jafn miklar karlrembur og
hinir og skiptast auðvitað í hægri og
vinstri líka.
En Rigoberta gerði sér víst aldrei
neinar grillur um að ná kjöri. Hún
segir í viðtali sem ég las við hana í
blaði hér að hún sé að opna leiðina
fyrir aðrar frumbyggjakonur.
„Rigoberta er komin til að vera,“
segir hún, „en ekki ég sjálf, heldur
allir hinir frumbyggjarnir sem til
þessa hafa bara kosið, en munu núna
geta farið í framboð líka.“
Meira: nicaragua.blog.is
Stefán Friðrik Stefánsson |
8. september 2007
Skuggabaldur
minnir á sig
Á þriðjudag eru sex ár
liðin frá hryðjuverka-
árásunum í New York
og Washington. Nú
hefur sá sem lagði
drögin að þeim minnt á
sig enn eina ferðina
eins og grýla sem kemur ófrýnileg
út úr hellinum sínum til að láta aðra
finna fyrir sér og reyna að sýna að
enn sé töggur í skepnunni. Skugga-
baldur virðist þó óvenjusettlegur í
þetta skiptið og ekki jafn herskár og
oft áður, virðist meira vera að tala í
gríni og kerskni um þann óskunda
sem hann gæti mögulega valdið
frekar en nú þegar hefur átt sér
stað.
Það eru að verða þrjú ár liðin frá
því að Osama bin Laden birtist síð-
ast á myndbandi við blálok kosn-
ingabaráttunnar fyrir forsetakosn-
ingarnar í Bandaríkjunum árið 2004
þar sem George W. Bush og John
Kerry áttust við í hnífjafnri baráttu.
Þá hafði hann ekki sést í ár og notaði
tækifærið þá til að senda boðskapinn
út á þeirri stundu sem óákveðnu
kjósendurnir í lykilfylkjunum voru
að taka afstöðu. Margir hafa fullyrt
að tjáning bin Laden á þeirri póli-
tísku ögurstund hafi tryggt Bush
forseta endurkjör á forsetastól, önn-
ur fjögur ár í Hvíta húsinu. Það
verður sennilega um það deilt alla
tíð en orðrómurinn er afgerandi.
Þegar bin Laden lét í sér heyra
fyrir þrem árum gekk hann mjög
langt í orðavali. Þá kom hann reynd-
ar í fyrsta skipti með afdráttarlausa
yfirlýsingu þess efnis að hann hefði
staðið að hryðjuverkunum í Banda-
ríkjunum haustið 2001. Sagðist hann
þá geta útlistað bestu leiðina fyrir
Bandaríkin til að „forðast annað
Manhattan“. Bin Laden sagði þá
einnig að árásin á Bandaríkin hefði
verið nauðsynleg til að endurheimta
frelsi og kenna Bandaríkjamönnum
lexíu, hann hefði unnið að henni allt
frá árinu 1982. Sagði hann þá enn-
fremur að varast skyldi að reita
Araba til reiði. Ávarpið þótti stuðn-
ingstal fyrir hönd Kerrys en það var
ekki beint vel þegið í þeim her-
búðum.
Þetta var þá. Nú er tal hryðju-
verkamannsins lágstemmdara svo
sannarlega. Þrem árum síðar birtist
bin Laden með dökkt skegg en var
með grátt fyrir þrem árum. Það er
ágætt að vita að skuggabaldur sjálf-
ur notar litarefni til að halda sér
ferskum. Hann er fjarri því dauður
eins og margir töldu eftir þriggja
ára fjarveru, enda talar hann um
Sarkozy og Brown – hann er greini-
lega það vel lifandi að vita að Tony
Blair og Jacques Chirac eru farnir
að gera annað.
Meira: stebbifr.blog.is
BLOG.IS