Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 10

Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 10
10 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ eyjarhöfn þar sem hún er ekjuskip. Loks kemst Einar að þeirri nið- urstöðu í skýrslunni að nýsmíðaverð fyrir skip í stað Sæfara sé a.m.k. 500 til 600 milljónir króna á núvirði. Vísar hann í því sambandi til tveggja dæma af sambærilegum ferjum sem afhent- ar voru erlendis á árinu 2003. Í ljósi þessara upplýsinga segir í niðurlagi skýrslu sem starfshópurinn skilaði í febrúar 2004: „Það er samdóma álit starfshóps- ins að nýsmíði hljóti að koma sterk- lega til greina þegar hugað verður að endurnýjun skipakosts í stað núver- andi Sæfara.“ Starfshópurinn vann ekki eiginlega kröfulýsingu/þarfagreiningu enda var það ekki hlutverk hans, heldur var almennt gengið út frá að ný ferja yrði að uppfylla eftirfarandi kröfur:  Rými fyrir a.m.k. 100 farþega.  200 tonna framflutningsgetu.  40 m mesta lengd.  13 til 15 hnúta ganghraða.  Flokkun viðurkennds flokk- unarfélags.  Öryggisstaðal fyrir ferjur sem sigla á opnu hafi, svokallaðar B- siglingaleiðir. Í greinargerð um kaup og end- urnýjun á Grímseyjarferju, sem birt var um miðjan síðasta mánuð, kemst Ríkisendurskoðun að þeirri nið- urstöðu að það hafi verið afar óheppi- legt að ekki hafi verið hrint í fram- kvæmd tillögu nefndarinnar um að skipa starfshóp með fulltrúa heima- manna til að kanna kaup á notaðri eða nýrri ferju. „Líklegt verður að F erjan Sæfari hefur þjónað Grímseyingum og gestum þeirra um árabil og hefur frá árinu 1996 verið rekin af Samskipum hf. samkvæmt samningi við Vegagerðina sem á og styrkir rekstur hennar. Sæfari er í raun vöruflutningaskip en yfir sum- armánuðina er sett á ferjuna farþega- hús sem gerir henni kleift að flytja 92 farþega í hverri ferð. Haustið 2001 var sett reglugerð samgönguráðuneytisins um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum (nr. 666/2001) en viðauki hennar tek- ur að mestu gildi 1. júlí 2009. Í reglu- gerðinni eru innleiddar reglur og kröfur Evrópusambandsins um ör- yggi farþegaskipa, sem gera ýmsar ríkari kröfur en eldri reglur, m.a. varðandi svokallaðan lekastöðugleika (e. damage stability) en þar er átt við stöðugleika skips í sködduðu ástandi. Í óbreyttri mynd uppfyllir Sæfari ekki umræddar kröfur. Í lok apríl 2003 skipaði Sturla Böðvarsson, þáverandi samgöngu- ráðherra, starfshóp til að fjalla um samgöngur til Grímseyjar með þarfir fólks og atvinnulífs í huga, þ.m.t. ferðaþjónustunnar. Hópinn skipuðu aðstoðarvegamálastjóri, staðgengill siglingamálastjóra, oddviti Grímseyj- arhrepps, fulltrúi útgerðarmanna í Grímsey, varaflugmálastjóri, auk for- stöðumanns skipatæknisviðs hjá Samskipum hf. Með hópnum starfaði starfsmaður Siglingastofnunar. Í samræmi við fyrirmæli sín leitaði starfshópurinn til Einars Her- mannssonar, sjálfstætt starfandi, skipaverkfræðings og skilaði hann matsskýrslu í desember 2003, þar sem hann veltir fyrir sér þremur möguleikum í stöðunni að beiðni starfshópsins. Í fyrsta lagi hvort skip sambærilegt við Sæfara sé falt á næstu 3-5 árum. Í öðru lagi hvort hægt sé að breyta Sæfara í þá veru að hann uppfylli kröfurnar í hinum nýju reglum. Og í þriðja lagi hvað það kosti að smíða nýtt skip. Vart raunhæft að breyta Sæfara Í skýrslunni segir Einar að það geti vart talist raunhæft að breyta Sæfara, þar sem það muni kosta a.m.k. 80 milljónir króna, auk þess sem skipið verði nær verðlaust í end- ursölu en miðað var við níu ára rekstrartíma skipsins í breyttri mynd eftir mitt ár 2009, eða til ársins 2018. Sæfari yrði þá fertugur. Verðmæti Sæfara árið 2003 var talið um 50-55 milljónir króna. Við fyrstu eftirgrennslan fann Ein- ar aðeins eitt notað skip á alþjóð- legum skipamarkaði sem hugsanlega gæti fallið að kröfum. Það var dönsk ferja, Holt, sem lagt var árið 2003 eft- ir að ný ferja var tekin í notkun á sigl- ingaleiðinni Grenå – Anholt þar sem skipið þjónaði. Nefnd ferja er smíðuð árið 1981 og því aðeins þremur árum yngri en Sæfari sem Einari og starfs- hópnum þótti gera hana lítt fýsilegan kost. Þá hefði téð ferja kallað á dýrar framkvæmdir í Dalvíkur- og Gríms- telja að skipan slíks hóps hefði stuðl- að að vandaðri undirbúningi en ella. Þannig fór í raun hvorki fram raun- veruleg þarfagreining né kostnaðar- og ábatagreining áður en leit að not- aðri ferju hófst. Með slíkum grein- ingum hefðu kostirnir þrír sem starfshópurinn fjallaði um fengið formlegri og vandaðri umfjöllun,“ segir í greinargerð Ríkisendurskoð- unar. Sumarið 2004 tók málið nýja stefnu þegar írsk ferja, Oileáin Árann, var auglýst til sölu fyrir eina og hálfa milljón sterlingspunda. Einar Her- mannsson hafði spurnir af þessu og virtist á pappírnum a.m.k. að ferja þessi gæti verið vænlegur kostur í stað Sæfara. Með bréfi dagsettu 21. september 2004 vakti hann því at- hygli Vegagerðarinnar á skipakost- inum. Oileáin Árann var smíðað í Bret- landi 1992 fyrir hliðstæðar siglingar og Grímseyjarsiglingar, þ.e. farþega-, ökutækja- og vöruflutninga, frá Galway á vesturströnd Írlands til Ar- ann-eyja sem eru þrjár eyjar fyrir opnu hafi í mynni Galwayflóans. Í bréfinu segir Einar m.a.: „Eins og fram kemur í fylgiskjölum, þá eru verðhugmyndir um skipið £1,5 millj- ónir/ISK 190 milljónir, sem þó er ekki nema þriðjungur af nýsmíðaverði skips í stað „Sæfara“. Fyllsta ástæða er til að ætla að endanlegt kaupverð geti orðið öllu minna, eða u.þ.b. ISK 150 milljónir, eða fjórðungur af fram- angreindu nýsmíðaverði.“ Ennfremur segir Einar í bréf- Morgunblaðið/Sverrir BRUÐL EÐA SPARNAÐUR? Ríkisstjórn Íslands veitti á fundi sínum 12. apríl 2005 heimild til kaupa á írsku ferjunni Oileáin Árann sem koma myndi í stað Grímseyjarferjunnar Sæfara. Áætlað kaup- verð og kostnaður við endurbætur var 150 m.kr. Nú er ljóst að þessi kostnaður verður ekki undir 500 m.kr. Hvað fór úrskeiðis? Í eftirfarandi úttekt á Grímseyjarferjumálinu verður leitast við að varpa ljósi á atburða- rásina og grennslast fyrir um ábyrgð. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Hentugt en í afar slæmu ástandi  NÝ GRÍMSEYJARFERJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.