Morgunblaðið - 09.09.2007, Síða 20

Morgunblaðið - 09.09.2007, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Erlent | Ferill Thompsons er um margt merkilegur og í samræmi við „ameríska drauminn“. Jafnrétti | Launamunur kynjanna er skaðlegur í efnahagslegum skilningi , en reiknað hefur verið út að „kynjabilið“ rýri hagvöxt um marga millj- arða á ári. Knattspyrna | Kasper Peter Schmeichel á ekki langt að sækja fótafimina. Föst í fréttaneti |Má setja spámenn í skoplegan búning? VIKUSPEGILL» Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is Konurnar segja hann riddaralegan íframgöngu allri og innan banda-ríska Repúblikanaflokksins bindamargir vonir við að Fred Thompson geti reynst bjargvætturin á heldur erfiðum tím- um nú þegar hann hefur ákveðið að skrýðast brynjunni og halda á ný út á vígvöll stjórnmál- anna. Sú ákvörðun Thompsons að sækjast eftir útnefningu sem forsetaframbjóðandi repúblik- ana í kosningunum á næsta ári kom nákvæm- lega engum á óvart en skapar að sönnu spennu og jafnvel eftirvæntingu á hægri vængnum í bandarískum stjórnmálum. Er hugsanlegt að fyrir Thompson liggi að feta í fótspor annars vinsæls leikara, Ronalds Reagans, og gerast húsbóndi í Hvíta húsinu? Eða er Repúblikana- flokkurinn höfuðlaus her og svo öldungis rúinn trausti að sigurlíkur frambjóðanda hans hljóta að teljast hverfandi? Thompson hafði mánuðum saman gefið í skyn að hann hygðist gefa kost á sér og raunar hefur framganga hans öll verið við hæfi fram- bjóðanda þó svo hann hafi ekki formlega til- kynnt um framboð sitt fyrr en á miðvikudags- kvöld. Það gerði hann samtímis á Netinu og í sjónvarpsþætti Jay Lenos, sem fylla mun flokk skemmtikrafta vestra. Óvissunni hefur því ver- ið eytt en um leið hefur hún aukist til muna á hægri vængnum. Ómögulegir keppinautar fremur en mannkostir og pólitískir hæfileikar? Thompson nýtur vinsælda, á því er enginn efi, en margir efast um að hann búi yfir þeim eiginleikum sem þörf sé á til að leiða Repúblik- anaflokkinn út úr eyðimörkinni líkt og Reagan gerði forðum. Því er einnig haldið fram að manninn skorti alla dýpt, hann sé klisjukennd- ur og heldur ómerkilegur þótt vissulega geti hann talist þokkalegur leikari. Eigi Thompson möguleika á sigri í forkosningum repúblikana komi sú staða til af því að keppinautar hans séu ómögulegir fremur en mannkostum hans og botnlausum pólitískum hæfileikum. Þessi mynd af Thompson er úr hófi fram ein- földuð og neikvæð. Ferill hans er um margt merkilegur og í prýðilegu samræmi við „amer- íska drauminn“; Thompson fæddist ekki með silfurskeið í munni og getur auðveldlega horfið aftur til uppruna síns og brugðið sér í hlutverk „alþýðumannsins“. Þegar við bætast umtals- verðir leikhæfileikar kann verulega öflugur frambjóðandi að vera kominn fram á sjónar- sviðið. Trúverðugur fulltrúi valdsins Thomspon var öldungadeildarþingmaður fyrir Tennessee-ríki um átta ára skeið (1995- 2003) en í Bandaríkjunum er hann vísast þekkt- astur fyrir leik sinn í vinsælum framhaldsþátt- um er nefnast Lög og regla (e. „Law and Or- der“). Ferill hans í heimi hins tilbúna hófst árið 1985 er hann var fenginn til að leika sjálfan sig í kvikmyndinni Marie. Thompson naut þá mik- illar velgengni sem lögmaður og var myndin byggð á máli einu sem hann flutti og vakið hafði mikla athygli. Hann lék síðan í nokkrum kvik- myndum en 18 árum eftir að hann þreytti frum- raun sína var honum boðið hlutverk saksókn- arans Arthur Branch í framhaldsþættinum vinsæla. Thompson hefur oftar en ekki verið fenginn til að túlka fulltrúa ríkisvaldsins í þeim myndum og þáttum sem hann hefur leikið í; maðurinn þykir fjallmyndarlegur, hann er tveir metrar á hæð og röddin er dimm þótt fjarri fari að hún nái malar-stiginu eftirsótta. Fred Thompson býr yfir sjarma suðurríkjamanns- ins. Lærisveinn Barrys Goldwaters og Howards Bakers Thompson, sem er 65 ára, fæddist í Alabama en ólst upp í nágrannaríkinu Tennessee. Faðir hans vara bílasali og Thompson varð sá fyrsti í fjölskyldunni til að ljúka framhaldsnámi. Með mikilli vinnu og stuðningi tengdaforeldra náði hann að mennta sig á sviði heimspeki og stjórn- málavísinda. Síðar hlaut hann styrk og lauk lagaprófi frá Vanderbilt-háskóla í Tennessee. mjög reynt að höfða til þessara hópa í þeirri óformlegu kosningabaráttu, sem hann hefur háð til þessa, þrátt fyrir að framganga hans í öldungadeildinni gefi til kynna að eindregin íhaldssemi hans sé seinni tíma fyrirbrigði. Líkt og nær allir aðrir frambjóðendur Repúblikana- flokksins styður Thompson stefnu George W. Bush forseta í málefnum Íraks og telur að halda beri úti herliði í landinu þar til sigur hafi unnist. Thompson þarf einnig að freista þess að ná til Reagan-demókratanna svonefndu, fylgis- manna Demókrataflokksins, sem sviku lit þeg- ar Ronald Reagan bauð sig fram og tryggðu sigur hans árið 1980. Kjósendur þessir studdu Reagan er hann var endurkjörinn með fáheyrð- um yfirburðum árið 1984 en draga tók úr stuðn- ingnum er George Bush, faðir núverandi for- seta, fór með sigur af hólmi í kosningunum 1988. Kjósendur þessir sneru baki við Repú- blikanaflokknum í forsetatíð Bills Clintons og stuðningur þeirra við núverandi forseta er eng- inn. Þarna ræðir um mikilvægan hóp fyrir Thompson og bjartsýnustu stuðningsmenn hans telja að hann geti orðið næsti forseti Bandaríkjanna nái hann að laða hópa þessa til fylgis við sig. Kannanir hafa einnig leitt í ljós að allt að tveir af hverjum þremur líklegum kjósendum Repúblikanaflokksins eru óánægðir með þá frambjóðendur sem komnir voru fram áður en Thompson greindi frá ákvörðun sinni. Þetta er gríðarlega hátt hlutfall. (Tveir af hverjum þremur líklegum kjósendum demókrata eru á hinn bóginn ánægðir með frambjóðendur flokksins). Rudolph Giuliani, fyrrum borgar- stjóri New York, sem hefur forustu ef marka má skoðanakannanir, er um margt öflugur frambjóðandi en fullyrða má að hann höfðar lítt til raunverulegra íhaldsmanna og hreyfinga kristinna, sem oftar en ekki ráða úrslitum í for- kosningum Repúblikanaflokksins. Geti Thomp- son sameinað hópa þessa að baki sér hefur hann náð verulegum árangri, sem kann að skila hon- um langt. Um leið leitast hann við að skilja sig frá bandarísku valdastéttinni, sem hann forðum til- heyrði, og skapa þá ímynd að hann teljist til „ut- angarðsmanna“ í þeim efnum. Thomspon verð- ur tíðrætt um bruðlið í Washington og telur að lækka beri skatta um leið og hefta þurfi út- þenslu alríkisstjórnarinnar. Allt eru þetta kunnugleg baráttumál bandarískra hægri manna þótt heldur illa hafi gengið að hrinda sumum þeirra í framkvæmd. Útþensla alrík- isstjórnarinnar hefur t.a.m. verið hamslaus í tíð núverandi forseta; „báknið“ er ekki á burtleið í Bandaríkjunum. Peningarnir mælikvarði á gengi Þess ber þó að geta að ýmsir innvígðir telja Thompson hafa frestað því úr hófi fram að til- kynna um framboð sitt og greina megi merki þess dregið hafi úr áhuganum og eftirvænting- unni á hægri vængnum. Þessu til sanninda- merkis má nefna að Thompson tókst aðeins að safna 3,4, milljónum dala (um 220 milljónum króna) í kosningasjóðinn í júnímánuði. Þetta eru stöðumælapeningar í bandarískum stjórn- málum en stuðningsmenn frambjóðandans kveðast sannfærðir um peningarnir taki nú að streyma í kassann. Þar ræðir um mælikvarða, sem vert er að fylgjast með. Keppinautar Thompson hafa síðustu dagana vakið athygli á þessu og hversu seint framboðið komi fram. Sjálfur blés Thompson á þessa gagnrýni í þætti Jays Lenos og kvaðst engan botn fá í þá rök- semd að fólk, sem á annað borð teldi hann hæf- an til að gegna forsetaembættinu, hlyti að hverfa frá stuðningi við hann sökum þess að hann hefði ekki formlega boðið sig fram fyrr en nú. Þetta snjalla svar sýnir að Thompson hefur lært eitthvað í heimspekitímunum fyrir meira en 40 árum. Alþýðlegur draumaprins Þeim sem þekkja Thompson ber saman um að hann búi yfir verulegum persónutöfrum. Þrátt fyrir auðinn þykir hann alþýðlegur í hátt- um og frægt varð í baráttunni 1994 fyrir öld- ungadeildarkosningarnar er hann lagði jakka- fötunum og Lincoln Continental-glæsibifreiðinni og tók að þeytast um Tennessee á rauðum pallbíl. Það reyndist snjall leikur og tveimur árum síðar var hann endurkjörinn með fáheyrðum yfirburðum (sjá „Í hnotskurn“ hér á síðunni). Thompson, sem hefur tvívegis gengið í hjónaband, hefur löngum notið kvenhylli og segir að hann geti státað sig af mjög viðunandi framgöngu á því sviði er hann var á milli hjóna- banda. „Ég eltist við margar konur og margar þeirra eltust við mig,“ sagði hann einhverju sinni. Kántrí-söngkonan Lorrie Morgan var um skeið í sambandi við Thompson og ber honum vel söguna: „Fred er hinn fullkomni riddari. Hann er maðurinn, sem allar litlar stúlkur dreymir um að giftast, hann opnar fyrir þig dyrnar, kveikir í sígarettunni þinni, hjálpar þér í kápuna og kaupir undursamlegar gjafir. Hann er draumur hverrar konu.“ Á riddarinn og alþýðuhetjan raunhæfa möguleika á að ná settu marki? Ef til vill er ástæða til að spyrja fyrst hvort maðurinn nenni raunverulega að taka þennan slag. Báðum spurningunum er erfitt að svara en horfa ber til þess hvort Thompson nær fljótt verulegu flugi. Takist honum að kynda pólitíska gufuketilinn af krafti á næstu 4-6 vikum kann baráttan á hægri vængnum að taka óvænta stefnu. Draumahlutverk á aðalsviðinu Leikarinn Fred Thompson þarf að bregða sér í hlutverk hins sameinandi leiðtoga íhaldsaflanna í Bandaríkjunum til að eiga möguleika á að verða útnefndur forsetaframbjóðandi repúblikana AP Framboð Fred Thompson skýrir frá ákvörðun sinni í sjónvarsþætti Jays Leno. Keppinautar hans í röðum repúblíkana hófu árásir á Thompson sama kvöld er fram fóru kappræður þeirra. ERLENT» Í HNOTSKURN »Fred Thompson fæddist 19. ágúst1942 í Sheffield í Alabama-ríki. Fað- ir hans var bílasali en móðirin heima- vinnandi. Hann gekk í hjónaband aðeins 17 ára gamall. Fyrsta barn hans og Sarah Lindsay, sonurinn Tony, fæddist sjö mánuðum síðar. Þau eignuðust tvö börn til viðbótar en skildu árið 1985. »Thompson er nú kvæntur hinni 41árs gömlu Jeri Kehn. Þau eiga tvö lítil börn. Jeri Kehn tekur virkan þátt í baráttu eiginmanns síns. Afskipti henn- ar af framboðinu hafa valdið í ólgu í her- búðum Thompsons, aðstoðarmenn hafa tekið poka sína og væna sumir þeirra eiginkonuna um frekju og yfirgang. »Thompson var kjörinn til setu í öld-ungadeild Bandaríkjaþings árið 1994. Sigur Thompsons þótti magnaður enda vann hann upp 20% forskot fram- bjóðanda demókrata og sigraði viðkom- andi með sama mun. Hann var endur- kjörinn 1996. Thompson naut álits sem lögmaður og starfaði einnig um tíma sem saksóknari. Hann hóf af- skipti af stjórnmálum í byrjun áttunda áratug- arins en áhuginn vaknaði eftir að hann hafði les- ið merka bók Barrys Goldwaters „The Conscience of a Conservative“ („Samviska íhaldsmanns“) en höfundurinn var þingmaður frá Arizona og forsetaframbjóðandi Repúblik- anaflokksins í kosningunum árið 1964. Thomp- son komst til nokkurra áhrifa í skjóli lærimeist- ara síns, Howards Bakers, sem þá var öldungadeildarþingmaður og gerðist síðar framkvæmdastjóri Hvíta hússins í forsetatíð Ronalds Reagans. Thompson kom m.a. nærri rannsókn á Watergate-hneykslinu svonefnda, sem kostaði Richard Nixon forsetaembættið og skrifaði síðar bók um reynslu sína á þeim vett- vangi. Umdeildur samanburður við Ronald Reagan Í öldungadeild Bandaríkjaþings reyndist Thompson fylla flokk miðjumanna í röðum repúblikana. Framganga hans þar sætti nokk- urri gagnrýni, sem keppinautar hans keppast nú við að rifja upp. Thompson þótti heldur latur og hafa fátt fram að færa. Aðdáendur hans telja þá gagnrýni ósanngjarna og stundum er vísað til þess að átrúnaðargoð repúblikana, Reagan forseti, hafi ekki beinlínis verið þjakaður af vinnubrjálsemi er hann fór með húsabónda- valdið í Hvíta húsinu. Fleyg urðu þau orð Reag- ans að sagt væri að mikil vinna hefði aldrei orð- ið neinum að fjörtjóni en hann teldi ástæðulaust að taka áhættuna. Samanburðinn við Reagan telja sumir dyggustu aðdáendur forsetans framliðna ganga guðlasti næst. Biðlað til íhaldsmanna og Reagan-demókrata Á síðustu mánuðum hafa skoðanakannanir jafnan leitt í ljós mikið fylgi í röðum repúblik- ana við Thompson þó svo hann hafi fyrst form- lega opinberað framboð sitt í liðinni viku. Víst er að hann höfðar sérstaklega til íhaldsmanna á vettvang félagsmála, hann er t.a.m. andvígur fóstureyðingum og hertri skotvopnalöggjöf (hann telur fjöldamorðið í Tækniháskólanum í Virginíu sanna réttmæti þess að stúdentum verði leyft að bera skotvopn) auk þess sem hann hefur opinberað efasemdir sínar um að losun gróðurhúsalofttegundina sé sú vá sem af er lát- ið. Þessi armur Repúblikanaflokksins er sér- lega mikilvægur á stigi forkosninganna, sem hefjast eftir fjóra mánuði. Thompson hefur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.