Morgunblaðið - 09.09.2007, Síða 60
60 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MAREGT bendir til þess að loka-
umferðirnar í landsliðsflokki á Skák-
þingi muni snúast upp í baráttu
þeirra Hannesar Hlífar Stefánsson-
ar og Stefáns Kristjánssonar. Hann
virtist ætla að vinna mótið fremur
auðveldlega með því að ná 1½ vinn-
ings forystu eftir fimm umferðir
mátti bíta í það súra epli að tapa fyrir
Snorra G. Bergssyni í sjöttu umferð
og í sjöundu umferð tapaði hann fyr-
ir Sefáni Kristjánssyni. Skyndilega
voru fjórir skákmenn efstir: Hannes,
Stefán, Þröstur Þórhallsson og títt-
nefndur Snorri, allir með 4½ vinn-
ing.
Í áttundu umferð unnu Hannes og
Stefán örugga sigra en Þröstur og
Snorri gerðu jafntefli. Þröstur gæti
hæglega blandað sér í baráttuna um
sigurinn en Snorri getur ekki samið
stutt jafntefli eins og hann gerði á
móti Lenku Ptacnikovu í 8. umferð. Í
næstsíðustu umferð sem tefld var í
gær mættust Hannes og Þröstur og
Stefán og Snorri.
Staða efstu manna að loknum átta
umferðum:
1.-2. Stefán Kristjánsson og
Hannes Hlífar Stefánsson 5½ v.
3.-4. Þröstur Þórhallsson og
Snorri Bergsson 5 v.
5. Bragi Þorfinnsson 4½ v.
Taflmennskan í þessu móti hefur
verið skemmtileg og lífleg. Það á
einnig við um landsliðsflokk kvenna
þar sem margfaldur Íslandsmeistari
Guðlaug Þorsteinsdóttir á í harðri
baráttu við hina 14 ára gömlu Hall-
gerði Helgu Þorsteinsdóttir. Eftir
sex umferðir voru þær báðar með 5½
vinning og flest sem bendir til þess
að þær deili efsta sætinu. Árangur
Guðlaugar kemur ekki á óvart en
frammistaða Hallgerðar er vitaskuld
frábær. Hún hefur þegar unnið bæði
Hörpu Ingólfsdóttur og Sigurlaugu
Friðþjófsdóttur og hefur teflt af
miklu öryggi. Stöllur hennar af yngri
kynslóðinni hafa einnig staðið sig
vel, t.d. Tinna Kristín Finnbogadótt-
ir úr Borgarfirði sem er í 3.-4. sæti
ásamt Hörpu.
Staða þeirra efstur eftir sjö um-
ferðir:
1.-2. Guðlaug Þorsteinsdóttir og
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 5½ v.
3.-4. Harpa Ingólfsdóttir og
Tinna Kristín Finnbogadóttir 4 v.
Hér á eftir fylgir hinn mikilvægi
sigur Stefáns yfir Hannesi. Ítalski
leikurinn er enn býsna vinsæll þó að
Hannes þurfi ekki að kvarta yfir ár-
angri sínum í þeirri byrjun. Hann
tekur snemma þá ákvörðun að skipta
upp á e3 sem gefur hvítur ýmsa
möguleika á miðborðinu og eftir f-
línunni. Eftir þóf í miðtaflinu þar
sem Stefán hafnar jafntefli nær hann
miklum þrýstingi eftir hornalínunni
h1-a8 og skálínunni a2g8. Eitthvað
verður undan að láta og Stefán knýr
fram sigur með nokkrum hnitmiðuð-
um leikjum:
Skákþing Íslands 2007; 7. umferð:
Stefán Kristjánsson – Hannes
Hlífar Stefánsson
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 4. Bc4 Bc5 4. c3
Rf6 5. d3 a6 6. 0–0 d6 7. Bb3 Ba7 8.
Be3 Bxe3 9. fxe3 0–0 10. Rbd2 d5
11. exd5 Rxd5 12. De2 Be6 13. Re4
h6 14. Rc5 Bc8 15. d4 b6 16. Re4
exd4 17. exd4 Rf4 18. De3 Rg6 19.
Hae1 Ra5 20. Bc2 Rc4 21. De2 Be6
22. Rg3 Rf4 23. De4 Rg6 24. De2 Rf4
25. Df2 Rd6 26. Re5 Rd5 27. Df3 Dc8
28. Dd3 f5 29. Bb3 Db7 30. Rg6 Hfe8
31. Hxe6 Hxe6 32. Rf4 Rxf4 33.
Hxf4 Hae8 34. Rxf5 b5
35. Rxh6+
– og Hannes gafst upp. Eftir
35. … gxh6 kemur 36. Dg6+ og
35. … Kh8 er einfaldast að svara
með 36. Bxe6 o.s.frv.
Heimsmeistaramótið í Mexíkó
hefst á miðvikudag
Heimsmeistaramót FIDE verður
sett í Mexíkóborg miðvikudaginn 12.
september en fyrsta umferðin fer
fram hinn 13. september. Mótinu
lýkur 30. september. Keppendur eru
átta talsins og tefla þeir tvöfalda um-
ferð. Sigurvegari sambærilegs móts
í Morelia fyrir tveim árum, Veselin
Topalov fær ekki þátttökurétt á
þessu mótin en keppendur eru:
Vladimir Kramnik,
Wisvanathan Anand,
Peter Leko,
Alexander Morosevich,
Boris Gelfand,
Levon Aronian,
Alexander Grischuk og
Peter Svidler.
Mikið umstang er í kringum þessa
keppni en alþjóðaskáksambandið
FIDE hefur sett saman reglur sem
eru frábrugðnar þeim sem giltu fyrir
tveim árum. Í stuttu máli er fyrir-
komulagið á þann veg að sigurveg-
arinn í Mexíkóborg verður ótvíræð-
ur heimsmeistari. Ef Kramnik
vinnur ekki mótið fer fram 12 skáka
heimsmeistaraeinvígi að ári milli
hans og hins nýja heimsmeistara.
Jafnhliða mun FIDE standa fyrir
umfangsmikilli heimsbikarkeppni.
Sigurvegarinn í þeirri keppni mun
tefla 12 skáka einvígi við Topalov.
Sigurvegarinn úr því einvígi mun ár-
ið 2009 heyja heimsmeistaraeinvígi
við Kramnik eða þann sem hefur
unnið Kramnik í heimsmeistaraein-
vígi FIDE sem fram fer 2008. Þetta
er óneitanlega nokkuð flókið mál en
FIDE hefur með þessu fyrirkomu-
lag komið að einhverju leyti til móts
við þau sjónarmið að Topalov verði
bætt upp að fá ekki að tefla í Mexíkó.
helol@simnet.is
Helgi Ólafsson
Hannes, Stefán og Hallgerður í eldlínunni
Efsta sæti Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir varð efst. Hér teflir hún við
Sigríði Björgu Helgadóttur.
SKÁK
Skákþing Íslands
28. ágúst-8. september 2007
✝ Friðbjörn Ingv-ar Björnsson
fæddist í Ytri-
Fagradal á Skarðs-
strönd 14. maí 1921.
Hann lést á dvalar-
og hjúkrunarheim-
ilinu Grund mið-
vikudaginn 22.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
hjónin Friðrik
Magnússon, bóndi
og sjómaður frá
Skáldsstöðum í
Reykhólahreppi, A-
Barðastrandarsýslu og Ingibjörg
Björnsdóttir frá Klúku í Miðdal,
Strandasýslu (við Steingríms-
fjörð).
Árið 1943 kvæntist Ingvar Þóru
Helgu Magnúsdóttur, d. 15.11.
1992. Foreldrar hennar voru
Magnús Jónsson, d. 1955, og kona
hans Þórunn Einarsdóttir, d.
1967. Ingvar og Þóra eignuðust
tvö börn, Agnesi, f.
1944, og Björn, f.
1946.
Þau hófu búskap
sinn við Skúlagötu í
Reykjavík en fluttu
síðar að Nóatúni 30,
þar sem þau bjuggu
alla sína búskap-
artíð. Ingvar starf-
aði lengst af sem
ökukennari og sjó-
maður. Einnig
starfaði hann sem
erindreki svo-
nefndrar H-
nefndar, sem annaðist undirbún-
ing umferðarbreytingarinnar hér
á landi, úr vinstri umferð í hægri.
Starfaði hann einnig í eitt ár eftir
breytinguna á vegum Slysavarna-
félags Íslands, sem falið var að
halda áfram því starfi sem þá tók
við.
Útför Ingvars fór fram í kyrr-
þey 3. september.
Genginn er á vit annars heims
góðvinur minn og samstarfsmaður
um margra ára skeið, Ingvar Björns-
son.
Ingvari kynntist ég fyrst á árum
starfa minna hjá Sálarrannsókna-
félagi Íslands, en hann og þálifandi
kona hans, Þóra Magnúsdóttir, voru
með dyggustu félögum okkar þá, og
sýndu félaginu mikla tryggð og um-
hyggju.
Síðar fór ég þess á leit við Ingvar
að hann gengi til liðs við okkur í
stjórn félagsins, sem hann sam-
þykkti, og reyndist það happafengur
fyrir okkur, því ósérhlífnari og ein-
lægari starfsmann en Ingvar var
mun vart að finna fyrir nokkurt fé-
lag.
Hann var afskaplega stundvís og
iðinn í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur, hvort sem um var að ræða
fundarstjórn, aðstoð við starfsfólk
félagsins, viðhald á húsnæði þess, og
margt fleira. Og þá var ekki verið að
hugsa um laun fyrir framlagið, hug-
sjónin réð ferð.
Á þessum tíma fór Ingvar að sinna
ritstörfum fyrst fyrir alvöru, og má
segja að hann hafi nánast verið al-
skapaður í því að koma hugsunum
sínum á blað þó hann tæki ekki að
sinna þeim störfum fyrr en á gamals
aldri.
Á þessum tíma hafði ég með hönd-
um ritstjórn tímaritsins Morguns,
sem var félagsrit Sálarrannsókna-
félags Íslands, og leitaði ég fljótlega
til Ingvars með skrif í þetta rit fé-
lagsins. Það var auðsótt mál og ritaði
hann fjölda greina í það um hug-
sjónamál okkar. Mörg námskeið á
vegum breskra miðla voru haldin hjá
félaginu á þessum árum, og hafði
Ingvar þann sið að taka upp á seg-
ulband alla fræðslu sem fram kom á
námskeiðunum. Skráði hann svo efn-
ið allt eftir bandinu, og fyllti sú
skráning hans orðið nokkrar möpp-
ur. Gríðarleg vinna lá að baki þessu
starfi hans, og var hugsunin sú að
fleiri mættu njóta þessarar fræðslu,
ekki síst þeir sem á eftir kæmu.
Þegar honum varð ljóst, fyrir tæp-
um 3 árum, að að honum sækti erf-
iður sjúkdómur, sem ekki yrði undan
vikist, fór hann strax í að ganga frá
sínum málefnum, og þ. á m. þessum
gögnum sínum, þannig að úr þeim
mætti vinna síðar.
Þegar starfi okkar Ingvars hjá
Sálarrannsóknafélaginu lauk, fyrir
um 15 árum síðan, tók við annað
tímabil í samstarfi okkar, þegar ég
tókst á hendur ritstjórn tímaritsins
Heima er bezt. Þá lá aftur beint við
að leita til hins lipra „penna“ Ingvars
og fá hann til að rita fróðleiksgreinar
um ýmislegt sem á daga hans hafði
drifið. Urðu þær býsna margar
greinarnar sem hann ritaði fyrir
Heima er bezt, um hin margvísleg-
ustu efni, sem munu geymast kom-
andi kynslóðum til upplýsingar og
fræðslu.
Aldrei var nokkur efi í huga Ingv-
ars um framhald jarðneskrar tilveru
og var hann jafnan reiðubúinn að
leggja lið sitt þeirri starfsemi, sem
uppfræddi og liðsinnti fólki í leit
sinni á því sviði. Og nú er hann sjálf-
ur kominn í hóp þeirra sem á undan
voru farnir, og hann var sannfærður
um að látið höfðu vita af sér við ýmis
tækifæri í starfinu að spíritískum
málum og er ekki vafamál að þar hef-
ur orðið bæði vina- og fagnaðarfund-
ur.
Megi honum vel farnast á nýjum
leiðum og hafi hann kæra þökk fyrir
trúmennsku og samfylgd á liðnum
árum í jarðneskum heimi.
Guðjón Baldvinsson.
Ingvar Björnsson
✝ VilhelmínaHansína Oddný
Hjaltalín, eða Mína
eins og hún var allt-
af kölluð, fæddist á
Akureyri 20. janúar
1928. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Garðvangi 31. ágúst
síðastliðinn. Hún
var dóttir hjónanna
Ingileifar Jóns-
dóttur Hjaltalín, f.
7.3. 1904, d. 14.2.
1979 og Jakobs
Gunnars Hjaltalín,
f. 2.7. 1905, d. 25.4. 1976. Systir
sammæðra var Jónína Aðalsteins-
dóttir, f. 1925, d. 1979, og alsystk-
in eru Bjarni Hjaltalín, f. 1930, d.
1996, Fjóla Egedía Hjaltalín, f.
1931, d. 1990, Alfa Hjaltalín, f.
1932, d. 1997, Sigurður Stefán
Jakobson Hjaltalín, f. 1933, Jón
Valdimar Hjaltalín, f. 1936, d.
1966, Alfreð Rúdolf Hjaltalín, f.
1939, og Þóroddur Hjaltalín, f.
1943.
Eiginmaður Vilhelmínu var
Kristinn Danivalsson, f. 30.4.
1932, d. 29.9. 1995. Dóttir hans er
Áslaug Sturlaugsdóttir, f. 1957,
sonur hennar er Daníel Grímsson,
f. 1990. Börn Vilhelmínu eru: 1)
Inga Ragnardóttir, f. 1947, d.
2003, gift Eyjólfi Kristjánssyni,
dætur þeirra eru: a) Guðrún Ög-
mundsdóttir, f. 1969, dóttir henn-
ar er Elísa Líf, f.
2002. b) Ingibjörg
Eyjólfsdóttir, f.
1979, sambýlis-
maður Haraldur
Guðbjörnsson, börn
þeirra eru Aníta
Ósk, f. 1996 og
Andri Snær, f. 2000.
2) Sigursteinn Jóns-
son, f. 1949, dóttir
hans var Heiðbjört
Harpa, f. 1978, d.
1992. 3) Rudolph
Bruun Þórisson, f.
1953, kvæntur Stef-
aníu Björk Bragadóttur, sonur
þeirra er Kristinn Bragi
Rudolphsson, f. 1976, sambýlis-
kona Heba Björk Helgadóttir,
sonur þeirra er Rudolf Helgi, f.
2005. Börn Vilhelmínu og Kristins
eru: 1) Guðmunda, f. 1962, gift
Ómari Ingvarssyni, dætur þeirra
eru Íris, f. 1984, unnusti Orri Haf-
steinsson, Guðrún María, f. 1986,
unnusti Aron Albertsson og Ey-
dís, f. 1991. 2) Ólína, f. 1968, sam-
býlismaður Roger A. Gul-
brandsen, börn Ólínu eru Óskar
Freyr, f. 1992, Hrafnhildur
Freyja, f. 1996 og Una Dögg, f.
1998, Óskarsbörn. Börn Rogers
eru Henriette Hægeland, f. 1987,
Thomas A. Gulbrandsen, f. 1987
og Lisa H. Gulbrandsen, f. 1994.
Útför Vilhelmínu fór fram í
kyrrþey 7. september.
Elsku mamma mín,
nú hefur þú fengið hvíldina. Síð-
astliðin ár hafa ekki verið létt fyrir
þig, vina. En nú ertu komin til pabba,
Ingu, foreldra þinna, systkina og
allra hinna sem þú hefur misst. Ég
veit að þér líður vel núna, en það er
bara svo sárt að kveðja þig.
Í hugann koma ótal minningar, frá
æskuárunum á Framnesveginum,
utanlandsferðunum og árunum sem
við unnum saman, fyrst í Heimi og
síðan Útvegsmiðstöðinni, svo eitt-
hvað sé nefnt. Það voru mörg skop-
leg og skemmtileg atvik sem áttu sér
stað, og það var alltaf svo gaman að
hlusta á þig segja frá.
Því miður missa dætur mínar af
því að þekkja Mínu ömmu, en Óskar
Freyr ömmustrákur man vel eftir
þér og ég og hann munum halda
minningunni um þig og Kidda afa á
lífi.
Elsku mamma, takk fyrir allt.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þ.S.)
Þín,
Ólína Kristinsdóttir (Óla.)
Vilhelmína Hjaltalín
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar