Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 68

Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 68
68 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Kalvin & Hobbes SJÁÐU HOBBES. ÞÚ MÁTT EKKI SNERTA BOLTANN MEÐ HÖNDUNUM EN ÞÚ MÁTT SNERTA HANN MEÐ ÖLLUM ÖÐRUM LÍKAMSHLUTUM ER EKKI SÁRT AÐ NOTA ANDLITIÐ? ÁI, ÞETTA VAR EKKI ÞAÐ SEM ÉG ÆTLAÐI AÐ GERA! JAFNVEL HÖFÐINU Kalvin & Hobbes SEGJUM SEM SVO AÐ STRÁKUR Í SKÓLANUM MÍNUM MYNDI UPPNEFNA MIG ÆTTI ÉG AÐ SPARKA Í PUNGINN Á HONUM? NEI, OFBELDI LEYSIR ENGAN VANDA EN EF VIÐ GEFUM OKKUR ÞAÐ AÐ ÉG HAFI SPARKAÐ Í HANN? Kalvin & Hobbes ÉG ÆTLA AÐ LÁTA MÉR VAXA SKEGG SÍTT OG MIKIÐ SKEGG EINS OG GAURARNIR Í ZZ TOP JÁ, KALVIN MINN, GERÐU ÞAÐ ÉG HÉLT AÐ HÚN MYNDI VERÐA PIRRUÐ Risaeðlugrín © DUPUIS BLA BLA... BLABLABLA BLA BLABLA... ANSANS! VIÐ KOMUMST EKKI LENGRA VIÐ VERÐUM AÐ SNÚA VIÐ, OG ÞAÐ EFTIR 3JA TÍMA GÖNGU HLJÓÐ! VIÐ SEM VORUM ALVEG AÐ KOMA SÉRÐU ANNAN MÖGULEIKA? HLJÓÐ SEGI ÉG! ÉG ER AÐREYNA AÐ HUGSA HÉRNA! ÉG ER VISS UM AÐ HANN FINNUR LAUSN Á VANDANUM VEGNA ÞESS AÐ HANN ER SVO GÁFAÐUR ÉG FANN LAUSNINA!! HVAÐ SAGÐI ÉG? MEIRI HÖRKU Í ÞETTA STRÁKAR! ÞIÐ VERÐIÐ AÐ FARA AÐ HREYFA YKKUR OFTAR, ÞETTA ER AUMKUNARVERT! dagbók|velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is … mætti kalla þessa mynd sem tekin var við Tjörnina á dögunum. Er það kólnandi veðurfar sem gerir líf andanna eilítið erfiðara og lætur þær halda á sér hita með því að setja höfuð undir væng? Stokköndin er að mestu leyti staðfugl á Íslandi, sennilega útbreiddasta öndin á láglendi. Morgunblaðið/Frikki Endur eftir endilöngu … Námsmenn á hungurmörkunum ÞEIR sem vilja taka lán hjá LÍN fá ekki lánið fyrr en þeir hafa sýnt námsárangur. Til að fá fullt lán hjá LÍN þarf að skila fullu námi, þ.e. heilli önn. Flestir sækja því um bankalán til að brúa bilið fram að út- greiðslu námsláns. Bankar lána námsmönnum hins vegar gegn láns- loforði frá LÍN, sem fæst að upp- fylltum ýmsum skilyrðum. Margir freistast því til að taka bankalán til að brúa bilið og greiða það síðan þegar lánið frá LÍN kemur til út- borgunar. Bankar lána náms- mönnum 95% af framfærslunni sem LÍN er búinn að reikna út. LÍN lánar hins vegar ekki nema umsækjandi nái lágmarksárangri. Þeir, sem verða fyrir því óláni að ná ekki fullum árangri fá því ekkert lán hjá LÍN. Þeir sitja þá uppi með bankalán sem þarf að greiða. Það getur orðið til þess að námsmenn hrökklast úr skóla til að vinna fyrir neysluláninu. LÍN lánar einnig til bókakaupa. Lánið fæst hins vegar ekki afgreitt fyrr en búið er að taka próf úr bók- unum sem lánið er ætlað í. Þess vegna taka margir einnig lán hjá bönkum fyrir bókunum, en bankinn lánar gegn lánsloforði frá LÍN. Bankalánið er hins vegar dýrara en námsmannalánið. Þegar bókalánið kemur til útborgunar dekkar það ekki bankalánið. Þeir, sem eru í fullu námi, hafa iðulega ekki tök á að vinna nema þrjá mánuði á ári. Skerðing vegna launa er 14%. Því gætu margir freistast til þess að verða sér úti um „svarta“ vinnu með skólanum. Námsmönnum er reiknuð lág- marksframfærsla en hluti af þeirri framfærslu getur farið í að borga bankanum mismuninn á milli þess- ara tveggja lánategunda, auk þess sem tekjutengingin skerðir fram- færsluupphæðina. Nú má kannski hugsa sér að þessi tilhögun LÍN sé til að þess að óprúttnir aðilar geti ekki svindlað á kerfinu, þ.e. tekið námslán með hag- stæðum vöxtum og greiðslum, en stundi svo ekkert nám. En þetta bitnar óneitanlega á hinum sem þurfa raunverulega á þessari fyr- irgreiðslu að halda. Kerfið þyrfti hins vegar að vera þannig að „meðalnámsmaður“ fái til útborgunar þá upphæð sem kemst næst útreiknaðri lágmarks- framfærslu. Öðruvísi gengur þetta reikningsdæmi ekki upp. Námsmaður. Lokamót sumarbrids 15. september Lokamót Sumarbrids verður hald- ið laugardaginn 15. sept. nk. Spilaður verður Monrad-tvímenn- ingur, 11x 4 spil. Silfurstig í boði og verðlaun fyrir þrjú efstu pörin. Veitt verða verðlaun fyrir brons- stigahæstu spilara sumarsins, hæsta yngri spilarann og stigahæstu kon- una. Spilað er í Síðumúla 37 og hefst spilamennska kl. 11. Skráning er hafin í síma 587-9360 og á bridge@bridge.is Sumarbrids verður alla næstu viku og lýkur föstudaginn 14. sept- ember. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, fimmtud. 6. sept. Spilað var á 10 borðum. Árangur N-S: Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 285 Albert Þorsteinss. – Hilmar Valdimarss. 255 Jón Lárusson – Örn Sigfússon 238 Árangur A-V: Þröstur Sveinsson – Bjarni Ásmunds 319 Björn E. Péturss. – Ragnar Björnsson 286 Helgi Hallgrímss. – Jón Hallgrímss. 240 Meðalskor 216 stig. Gullsmárabrids Spilað var 6. sept sl. og urðu úrslit þessi í N/S: Eysteinn Einarss. – Jón Stefánsson 223 Magnús Halldórss. – Þorsteinn Laufdal 213 Karl Gunnarss. – Guðm. Pálsson 180 Sigurður Björnss. – Viðar Jónsson 179 A/V Leifur K. Jóhannes. – Guðm. Magnúss. 204 Einar Markúss. – Steindór Árnason 181 Elís Kristjánss. – Páll Ólason 178 Halldór Jónss. – Einar Kristjánss. 177 Meðalskor var 168. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.