Morgunblaðið - 09.09.2007, Qupperneq 80
SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 252. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 12 °C | Kaldast 6 °C
NV og V 5-10 m/s en
allt að 15 við A-
ströndina. Léttir til sunnan til, ann-
ars skúrir. Hægara og úrkomulítið
síðdegis. » 8
ÞETTA HELST»
Vandræðaseggir í með-
ferð eða miðborgarbann
Lögreglan hefur í hyggju að heim-
sækja þá menn sem valda mestum
vandræðum í miðborginni og bjóða
þeim meðferðarúrræði og aðstoð.
Verði þeir áfram til vandræða
hyggst lögreglan bregðast við með
skýrum hætti, til dæmis setja þá í
miðborgarbann á tilteknum tíma.
»Forsíða
Um 25% launamunur
Ný launakönnun Stéttarfélags í
almannaþjónustu, SFR, sýnir að
meðal félagsmanna í fullu starfi eru
konur að jafnaði með tæplega 25%
lægri heildarlaun en karlar. Árni
Stefán Jónsson, formaður stétt-
arfélagsins, segir að það verði eitt af
stóru áhersluatriðunum í komandi
kjarasamningum að útrýma kyn-
bundnum launamun. »2
Flúðu úr brennandi húsi
Hjónum og fjögurra ára syni
þeirra tókst að forða sér úr brenn-
andi raðhúsi í Njarðvík í fyrrinótt.
Húsið er með öllu óíbúðarhæft. Ekki
er vitað um upptök eldsins en rann-
sókn hófst í gærmorgun. »2
Búast við ákæru
Vinir og ættingjar foreldra Made-
leine McCann, fjögurra ára breskrar
stúlku, sögðust í gær óttast að móðir
hennar yrði ákærð í Portúgal um
helgina fyrir að hafa orðið dóttur
sinni að bana fyrir slysni. Faðir
stúlkunnar hefur einnig fengið rétt-
arstöðu grunaðs manns við rann-
sóknina. »4
SKOÐANIR»
Staksteinar: Menningarlegur sept.
Forystugreinar: Reykjavíkurbréf
Linkind í garð Kína
Ljósvakinn: Boltinn í beinni
UMRÆÐAN»
Atvinnu- og raðauglýsingar
SA býr sig undir kjarasamninga
Á hvaða vegferð er lýðræðið?
Mátturinn fullkomnast í veikleika
Vændi og jafnrétti kynjanna
Til hvers er Framsóknarflokkurinn?
ATVINNA»
KVIKMYNDIR»
Gott veður á frumsýn-
ingu Veðramóta. » 79
Íslenski dansflokk-
urinn frumsýnir
dansleikritin Open
Source og Til nýrra
vídda í Borgarleik-
húsinu. » 74
DANS»
Tvö ný
dansverk
TÓNLIST»
Garðar Thor arftaki
Luciano Pavarotti? » 73
TÓNLIST»
Sérstök fjölmiðlasýning
á Heima. » 77
Saga Bandaríkjanna
rakin á mínútum og
frati lýst á vælandi
indíkrakka. Á meðan
finna hórurnar Guð
og týna aftur. » 76
Umdeild
hljómsveit
TÓNLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Móður Madeleine boðið að játa
2. Svindl með strætókort stóreykst
3. Radcliffe óttaðist holdris
4. Réðst á 15 ára dreng
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
HÆGT verður að dæla etanóli í
fyrsta sinn á bifreiðar á Íslandi hjá
eldsneytisstöð Olís við Álfheima
mánudaginn 17. september nk. Ein
dæla með eldsneytinu E85 verður
tekin í notkun, en Brimborg stendur
að innflutningnum.
Egill Jóhannsson, forstjóri fyr-
irtækisins, er bjartsýnn á framtíð
þessara bíla á Íslandi. „Kosturinn
við etanólið er að það er vökvi og því
er nánast sömu aðferðafræði beitt
við að dreifa því og bensíni,“ segir
Egill. „Það er til dæmis mun flókn-
ara að dreifa vetni og metangasi.“
Etanólframleiðsla úr maís hefur
verið gagnrýnd því við hana hefur
heimsmarkaðsverð á maís hækkað.
Íslenska etanólið er ekki framleitt
úr maís heldur úr því sem til fellur
við skógarhögg í Svíþjóð. | 24
Etanóli
dælt á bíla
Eldsneyti Etanóli dælt á bíl í Svíþjóð.
FLUGMÁLAFÉLAG Íslands, með
Arngrím Jóhannsson í fararbroddi,
minnist þeirra herflugmanna, sem
dvöldust hér á
landi á styrjald-
arárunum, með
því að reisa þeim
minnisvarða í
Fossvogi. Verður
minnisvarðinn af-
hjúpaður á mið-
vikudaginn að
viðstöddum for-
seta Íslands og
hertoganum af
Kent, sem jafn-
framt er verndari Konunglega
breska flughersins.
„Af tilviljun komst ég í samband
við einn af þeim sem höfðu verið
hér á Kaldaðarnesi á árunum 1940
til 1942,“ segir Arngrímur um upp-
haf verkefnisins. „Hann var frá
Kent og eftir smáspjall þegar við
hittumst árið 1999 sagði hann mér
að ennþá væru sextán á lífi úr her-
deild hans, sem hér var. Ég ákvað
að bjóða þeim til Íslands og það
tókst.“ | 30
Útvarða
minnst
Arngrímur
Jóhannsson
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
RÍKISSTJÓRN Íslands hefur sam-
þykkt að tillögu forsætisráðherra að
verja 500 þús. kr. í að samræma mis-
munandi útgáfur þjóðsöngsins og
gera nóturnar aðgengilegar almenn-
ingi að kostnaðarlausu á Netinu fyrir
áramót, m.a. á vef forsætisráðuneyt-
isins. Málið er unnið í samvinnu við
Íslenska tónverkamiðstöð.
Að sögn Sigfríðar Björnsdóttur,
framkvæmdastjóra Íslenskrar tón-
verkamiðstöðvar, er þjóðsöngurinn
nú þegar til í alla vega sex mismun-
andi útsetningum. Þeirra á meðal
eru fjögurra radda kórútsetning
með og án undirleiks, hljómsveitar-
útgáfa, lúðrasveitarútgáfa, kvenna-
kórs- og karlakórsútgáfa. „Þetta er
allt gert á mismunandi tímum í mis-
munandi rithönd. Við munum sjá um
það fyrir forsætisráðuneytið að
semja við þá sem hafa útsett, ef það
eru aðrir en höfundur, og tölvusetja
þetta þannig að þetta sé uppsett með
samræmdum hætti. Síðan verður
tryggt opið og ókeypis aðgengi að
þessum skjölum fyrir hvern sem er.“
Aðspurð segir Sigfríður inni í
myndinni að útbúa einsöngsútgáfu
af þjóðsöngnum með píanóundirleik.
Segir hún að gerð verði rannsókn á
því hvort Sveinbjörn Sveinbjörns-
son, höfundur lagsins, hafi skilið eft-
ir sig meiri píanópart heldur en nú er
fyrir hendi. „Ef ekki, þá þurfum við
að leita heimildar hjá afkomendum
eða rétthafa, sem er forsætisráðu-
neytið, fyrir því að hægt sé að syngja
þjóðsönginn fallega í einsöng.“
Samræma sönginn
Útbúa á einsöngsútgáfu af þjóðsöngnum með píanóundir-
leik Söngurinn til í alla vega sex ólíkum útsetningum
Í HNOTSKURN
»Íslenski þjóðsöngurinn varsaminn í tilefni þjóðhátíð-
arinnar 1874 og fyrst fluttur op-
inberlega við guðsþjónustu í
Dómkirkjunni í Reykjavík 2.
ágúst sama ár.
»Matthías Jochumsson ortiljóðið, Lofsöng, í tilefni Ís-
lands þúsund ára, og Sveinbjörn
Sveinbjörnsson samdi lag við
það.
»Árið 1983 var staðfest meðlögum að lofsöngurinn skyldi
vera þjóðsöngur Íslendinga og
heita Ó, guð vors lands.
»Þjóðsöngurinn er eign ís-lensku þjóðarinnar og fer
forsætisráðuneytið með umráð
yfir útgáfurétti á honum sam-
kvæmt lögum nr. 78/1983.
»Samkvæmt sömu lögum skalekki flytja þjóðsönginn eða
birta í annarri mynd en hinni
upprunalegu gerð.
Fjallkonan Fátt er þjóðlegra en
þjóðsöngur og þjóðbúningur.
HÓPUR sem safnar handa fátækum börnum á Indlandi
er með bás í Kolaportinu um helgina. Það var handa-
gangur í öskjunni þegar kúnnarnir mættu spenntir á
þennan líflega markað í gærmorgun, enda margt á
boðstólum sem hvergi annars staðar er hægt að fá.
Um helgina standa Vinir Kolaportsins fyrir undir-
skriftasöfnun til að mótmæla breytingum sem til stend-
ur að gera á Tollhúsinu. Segir hópurinn að meðan
breytingarnar verði gerðar þurfi hugsanlega að loka
markaðnum í 18 mánuði.
Kaupgleði í Kolaportinu
Safnað handa börnum
Morgunblaðið/Golli
♦♦♦