Morgunblaðið - 08.10.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 274. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
ÞAU VORU ÞAR
FLUGAN STAKK HARALD OG SIGRÍÐI
OG MARGA AÐRA UM HELGINA >> 40
Verum saman í vetur!
>> 41
Leikhúsin í landinu
ÁÆTLAÐIR sjóðir Landsvirkjunar vegna ófyrirsjáanlegs
kostnaðar við Kárahnjúkavirkjun eru nánast uppurnir en
miklar tafir hafa orðið á framkvæmdinni, aðallega af jarð-
fræðilegum ástæðum. Stefnt er að því að fyrsta vélin verði
keyrð á vatni um miðjan nóvember í síðasta lagi, hálfu ári á
eftir áætlun. Ekki liggur fyrir hvort Alcoa muni krefja
Landsvirkjun um bætur vegna tafarinnar og segir talsmaður
félagsins að slík mál verði rædd þegar og ef það verður
tímabært.
Áætlanir verktakafyrirtækisins Bechtel um byggingu ál-
versins á Reyðarfirði hafa staðist þrátt fyrir tafirnar við
Kárahnjúka og er stefnt að því að síðustu starfsmenn fyr-
irtækisins hér á landi hverfi úr landi fyrir jól. Um eitt þús-
und starfar nú hjá Bechtel við álversbygginguna. Hvað
mannaráðningar í álverið varðar er aðeins eftir að ráða í
um 30 störf. | MiðopnaMorgunblaðið/RAX
Tafir hafa nán-
ast tæmt sjóði
Síðustu starfsmenn Bechtel hér
á landi hverfa úr landi fyrir jólin
FRÉTTASKÝRING
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
SNARPAR deilur hafa verið í borgarstjórnar-
flokki Sjálfstæðisflokksins undanfarna daga
vegna aðildar Orkuveitu Reykjavíkur að sam-
einingu Reykjavík Energy Invest (REI) og
Geysir Green Energy, en REI er dótturfyrir-
tæki Orkuveitunnar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og
stjórnarmaður í Orkuveitunni var einangraður
í afstöðu sinni innan borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins en hann hefur verið fylgj-
andi sameiningu. Vilhjálmur hefur verið harð-
lega gagnrýndur fyrir að keyra sameininguna í
gegn og virða algjörlega að vettugi vilja meiri-
hlutans í borgarstjórnarflokknum.
Mikill skjálfti hefur verið í borgarstjórnar-
flokknum af þessum sökum og hefur hann hist
reglulega á fundum án Vilhjálms. Samkvæmt
öðrum heimildum Morgunblaðsins komu hjá
einhverjum upp hugmyndir um að slíta sam-
starfinu við Framsóknarflokkinn og mynda
nýjan meirihluta með Vinstri grænum. „Það
átti að vaða yfir okkur.“
Nú er hins vegar stefnt að því að ná sam-
komulagi á fundi borgarstjórnarflokksins, sem
haldinn verður kl. 12 í dag í Ráðhúsi Reykja-
víkur, og verður blaðamannafundur í kjölfarið.
Líkleg niðurstaða fundar borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna í dag er sú að Orku-
veita Reykjavíkur eigi að draga sig út úr
rekstri REI með því að selja sinn hlut. Nefnt
hefur verið fjölbreytt eignarhald. Ekki er þó
hægt að bjóða almenningi að kaupa hlut í félag-
inu fyrr en það er komið á markað, en í því
sambandi hefur verið horft til þriggja ára.
„Þess verður freistað að ljúka málinu á þann
hátt að Orkuveitan selji sig út úr þessu og láta
eins og þetta hafi aldrei gerst.“
Upphaf deilnanna má rekja til þess að borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks voru boðaðir til „skyndifundar“ um mál-
efni Orkuveitunnar í stöðvarstjórahúsinu í
Elliðaárdalnum á þriðjudagskvöld og vissu að-
eins Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Björn Ingi
Hrafnsson fundarefnið. Þar voru fulltrúar ann-
arra sveitarfélaga sem sæti eiga í stjórn Orku-
veitunnar, Borgarbyggðar og Akraness. Þá
var þar Haukur Leósson, stjórnarformaður
Orkuveitunnar og stjórnarmaður í REI, og
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI.
Eins og fundinum er lýst fyrir blaðamanni
var fólk boðið velkomið og síðan brugðið upp
glæru þar sem stóð: „Samruni REI við Geysi
Green Energy.“ Einn borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins kemst svo að orði: „Þetta var
það fyrsta sem við sáum um málið. Við höfðum
ekki haft af því minnsta veður.“
Átti að vaða yfir okkur
Á einum tímapunkti hugmyndir um nýjan meirihluta með Vinstri grænum Búist við sáttum í dag
á fundi í Ráðhúsinu og sölu á hlut Orkuveitunnar Borgarstjórinn var einangraður í afstöðu sinni
Hanna BirnaGísli Marteinn Jórunn Júlíus Vífill Kjartan Þorbjörg Helga
Samstaða Sex borgarfulltrúar stóðu saman gegn útrásaráformum Orkuveitunnar sem
borgarstjórinn vildi keyra í gegn og funduðu með forystu flokksins án hans.
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri liggur lífshættulega
særður á gjörgæsludeild Landspítala eftir líkamsárás.
Lögregla hefur handtekið karlmann á fertugsaldri vegna
málsins og í dag ræðst hvort farið verður fram á gæslu-
varðhald yfir honum. Lögregla tjáir sig ekki um tildrög
árásarinnar að svo stöddu.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning á
öðrum tímanum í gær þess efnis að maður væri alvarlega
slasaður í íbúð við Hringbraut í Reykjavík. Hann var
meðvitundarlaus þegar sjúkraliðar komu á vettvang og
með mikla áverka á höfði. Samkvæmt upplýsingum frá
lækni á gjörgæsludeild er manninum haldið sofandi í
öndunarvél.
Að sögn lögreglu eru báðir mennirnir svonefndir góð-
kunningjar lögreglu, þ.e. eiga að baki töluvert langan
sakarferil.
Í lífshættu eftir líkamsárás
Morgunblaðið/Júlíus
Íbúðin Rannsóknarlögreglumaður tæknideildar lög-
reglunnar að störfum á vettvangi líkamsárásarinnar.
Fréttaskýringin heldur áfram á bls. 2