Morgunblaðið - 08.10.2007, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
MIKILVÆGUR FUNDUR
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-flokksins koma saman til mik-ilvægs fundar í dag. Þar má
gera ráð fyrir að þeir ræði og taki
hugsanlega afstöðu til grundvallarat-
riðis í rekstri fyrirtækja í eigu borg-
arinnar, í þessu tilviki Orkuveitu
Reykjavíkur, þ.e. hvort slíkt fyrir-
tæki eigi að takmarka sig við þá þjón-
ustu við borgarbúa sem það var stofn-
að til að inna af hendi eða hvort það
eigi að að taka þátt í áhættufjárfest-
ingum einkaaðila á erlendri grund.
Þetta grundvallaratriði hefur lítið,
sem ekkert verið rætt á opinberum
vettvangi. Bæði Orkuveitan og fleiri
orkufyrirtæki í opinberri eigu hafa í
vaxandi mæli tekið þátt í starfi einka-
aðila á þessu sviði.
Orkuveita Reykjavíkur hefur gerzt
aðili að Reykjavík Energy Invest og
Geysir Green Energy hefur gerzt
hluthafi í Hitaveitu Suðurnesja sem
er myndarlegt fyrirtæki sem hefur
verið í eigu sveitarfélaga.
Eftir því sem þessi mynd hefur orð-
ið skýrari er ljóst að það eru marg-
vísleg og flókin vandamál sem tengj-
ast því að opinber fyrirtæki og
einkafyrirtæki rugli saman reytum
sínum með þessum hætti.
Sameining Reykjavík Energy In-
vest og Geysis Green Energy er að
mati Morgunblaðsins skynsamleg
ráðstöfun og tækifærin til uppbygg-
ingar í öðrum löndum, ekki sízt á sviði
jarðvarma, eru mikil. Það er hins veg-
ar ekki verkefni þjónustufyrirtækja
sveitarfélaga að taka þátt í slíkri
starfsemi. Þeirra hlutverk er að veita
íbúum viðkomandi sveitarfélaga
þjónustu. Til þess voru þau stofnuð.
Ef starfsemi þeirra er orðin svo arð-
bær að peningarnir safnist upp er
ljóst að fyrirtækin eiga þá að lækka
verð á þjónustu sinni til almennings.
Þessi grundvallarmál munu borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ræða
á fundi í dag. Ákvörðun þeirra mun
ekki aðeins hafa áhrif á það hvernig
málefni Orkuveitunnar og Reykjavík
Energy Invest verða afgreidd. Held-
ur má búast við að ákvörðun þeirra
hafi mikil áhrif á stefnumörkun Sjálf-
stæðisflokksins til þessa grundvallar-
atriðis á landsvísu.
Það er eðli lýðræðisins að álitamál
af þessu tagi þarf að ræða á opinber-
um vettvangi áður en ákvarðanir eru
teknar. Það hefur ekki verið gert að
nokkru marki.
Hins vegar má segja með sanni að
lýðræðið virki með sannfærandi
hætti í þessu máli innan borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.
Það er ekki á hverjum degi að al-
mennir borgarfulltrúar þess flokks
rísi upp gegn ákvörðunum borgar-
stjóra Sjálfstæðisflokksins. Það hef-
ur gerzt í þessu máli en jafnframt er
ljóst af samtali sem Morgunblaðið
átti við borgarstjóra og birtist hér í
blaðinu sl. laugardag að hann hefur
verið tilbúinn að breyta um stefnu
þegar honum varð ljós afstaða ann-
arra borgarfulltrúa flokksins.
HERNÁM ÍRAKS
Ímyndið ykkur að Írakar mynduráðast inn í Bandaríkin og íraskur
hermaður kæmi á skriðdreka eftir
götu í Bandaríkjunum, veifaði byss-
unni sinni framan í fólk, hótaði því og
réðist inn í hús og setti þar allt á ann-
an endann. Myndir þú sætta þig við
það? Þess vegna getur enginn Íraki
sætt sig við hernámið. Þetta eru eðli-
leg viðbrögð.“ Þannig farast orð ein-
um af viðmælendunum, sem koma
fram í heimildarmyndinni Meeting
Resistance.
Myndin var ein af þremur myndum
um Írak, sem sýndar voru á Alþjóð-
legri kvikmyndahátíð í Reykjavík,
sem lauk í gær. Höfundar myndar-
innar, Molly Bingham og Steve Conn-
ors, ræddu við fólk, sem tekið hefur
þátt í andspyrnunni gegn hernámi
Bandaríkjanna í Írak. Í henni gefst
tækifæri til að heyra sjónarmið, sem
sjaldan fá að koma fram á Vestur-
löndum. Styrkur myndarinnar er
meðal annars fólginn í að raddir við-
mælendanna ráða för. Þegar horft er
á mynd af þessum toga vakna alltaf
spurningar um það hversu trúverð-
ugir viðmælendur séu, en höfundarn-
ir gerðu sitt besta til að koma í veg
fyrir að reynt yrði að blekkja þá,
meðal annars með því að leita við-
mælenda eftir ólíkum leiðum svo að
þeir gætu ekki borið saman bækur
sínar áður en viðtölin fóru fram.
Margar spurningar vakna um inn-
rásina í Írak þegar horft er á mynd-
ina. Oft er ástandið í Írak rakið til
þeirra mistaka, sem Bandaríkjamenn
gerðu eftir að Saddam Hussein var
steypt af stóli, allt frá því að bregðast
þeirri grundvallarskyldu sinni að
gæta öryggis almennra borgara og
stofnana í landinu og einkum og sér í
lagi höfuðborginni eftir að þeir voru
komnir til valda til pyntinganna í Abu
Ghraib og ákvörðunarinnar um að
leysa upp íraska herinn. Ekkert af
þessu skiptir hins vegar máli hjá við-
mælendum Bingham og Connors.
Þeir hefðu hafið andspyrnu þótt ekk-
ert af þessu hefði gerst.
Einnig vekur athygli áhersla við-
mælendanna á að þeir berjist fyrir
þjóð sína og föðurland. Þeir ítreka að
sjíar og súnníar séu svo tengdir inn-
byrðis að þeir myndu ekki taka þátt í
borgarastríði. Það sé hins vegar í
þágu Bandaríkjamanna að sá fræjum
óeiningar milli þeirra hópa, sem
byggi landið. Þeir leggi áherslu á að
draga mörk milli ólíkra hópa og það
beri einfaldlega vanþekkingu þeirra
á Írak vitni.
Bandaríkjamenn bera ábyrgð á
ástandinu í Írak og máli skiptir
hvernig þeir skilja við. En þeim hefur
áður orðið á í messunni í greiningu á
ástandinu í Írak. Tryggir áframhald-
andi herseta að ástandið versni ekki
eða mun blóðbaðinu linna þegar
Bandaríkjamenn fara? George W.
Bush Bandaríkjaforseti hefur sagt að
kveðji hann herinn heim nú muni
blóðsúthellingarnar hefjast fyrir al-
vöru í landinu. Viðmælendurnir í
myndinni segja að slík bræðravíg
muni ekki fylgja í kjölfarið.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Landsvirkjun stefnir að þvíað hleypa vatni úr Háls-lóni í aðrennslisgöngKárahnjúkavirkjunar til
stöðvarhúss í Fljótsdal eftir hálfan
mánuð og keyra fyrstu vélina á
vatni í síðasta lagi um miðjan nóv-
ember nk. Í upphaflegum áætlunum
var gert ráð fyrir að fyrsta vél af sex
yrði gangsett með vatni í apríl sl.
vor. Þá var hún hins vegar keyrð
upp þurr og álveri Alcoa Fjarðaáls
séð fyrir 100 MW af orku, eins og
um hafði verið samið, til að gang-
setja smám saman fyrstu kerin yfir
fjögurra mánaða tímabil.
Vangaveltur hafa verið uppi um
kostnað Landsvirkjunar vegna tafa,
annars vegar gagnvart Alcoa
Fjarðaáli og hins vegar ítalska verk-
takafyrirtækinu Impregilo, sem
byggt hefur meirihluta Kára-
hnjúkavirkjunar. Leitt hefur verið
getum að því að seinkunin muni
kosta Landsvirkjun milljarða
króna.
Talsmaður Alcoa, Kevin Lowery,
segir fyrirtækið ekkert gefa út á
vangaveltur af þessu tagi. Alcoa
Fjarðaál einbeiti sér nú að álfram-
leiðslunni. Fyrirtækið muni ræða
þessi mál þegar og ef það verði
tímabært.
„Það hefur verið ljóst lengi að
seinkun yrði á orkunni frá Kára-
hnjúkum. Alcoa og Landsvirkjun
hafa stillt saman strengi og reynt að
leysa málin þannig að allir geti
gengið sáttir frá borði“ segir Erna
Indriðadóttir, talsmaður Alcoa
Fjarðaáls.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins ná ákvæði í raforku-
samningi milli Landsvirkjunar og
Alcoa m.a. yfir hugsanlegar tafir á
raforkuafhendingu. Sá samningur
er ekki opinber.
Breytingar á framkvæmdinni
Tafirnar á Kárahnjúkavirkjun
koma til af jarðfræðilegum vanda-
málum á leið eins risabora Impreg-
ilo við gerð 40 km langra aðrennsl-
isganga, sem nú eru tilbúin. Miklar
sprungur og erfitt flöguberg urðu á
leið borsins, sem sat fastur svo vik-
um skipti meðan sprungur voru
steypufylltar. Þá var ákveðið að
styrkja Kárahnjúkastíflu aukalega
vegna hugsanlegra hreyfinga á fyll-
ingunni eða jarðgrunninum.
Sigurður Arnalds hjá Landsvirkj-
un segir kostnaðaráætlun vegna
virkjunarinnar hafa innifalið ófyrir-
séðan kostnað og breytingar meðan
á framkvæmdinni stæði.
„Í okkar virkjunum er litið svo á,
eins og í öðrum framkvæmdum, að
þessi liður sé hluti af heildarkostn-
aðinum, þó hann sé ekki nákvæm-
lega skilgreindur í upphafi og
reynslan sýnir að hann er alltaf not-
aður“ segir Sigurður. „Í okkar verki
við Kárahnjúka hefur hann nánast
allur farið í þessa jarðfræðilegu
þætti, að mestu leyti í formi
greiðslna til Impregilo. Þar með er-
um við nánast búnir að ráðstafa því
sem við höfðum uppi í erminni í
heildaráætlun fyrir verkið.“
Sigurður segir Landsvirkjun ekki
gefa upp einstaka kostnaðarliði í
uppgjörum verktaka, slíkt hafi aldr-
ei verið gert og sama gildi nú. „Þrátt
fyrir þær breytingar sem orðið hafa
í verkinu teljum við að það sé enn
nokkurn veginn innan kostnaðar-
áætlunar og vonum að ekki komi
frekari breytingar í því sem eftir er
að vinna.“
Skeikar ekki miklu
Mjög stór hluti af gerð Kára-
hnjúkavirkjunar eru 73 km af bor-
uðum og sprengdum jarðgöngum.
Segir Sigurður eðlilegt að nærfellt
öll óvissa í verkinu hafi tengst jarð-
gangagerðinni, sem alltaf sé óviss,
sama hvar er í heiminum.
„Kárahnjúkavirkjun hefur mikla
sérstöðu með það hversu neðanjarð-
arvinna er mikil. Við eigum eftir 3
km í Jökulsárgöngum og 2 km á
Hraunum, svo líkurnar á því að
meiri erfiðleikar komi upp eru frem-
ur litlir. Menn eru farnir að
endann á þessu.“
Um seinkun á raforkuafh
frá virkjuninni til álversins
arfirði segir Sigurður að
virkjun hafi staðið við fy
hendingu raforku, allt að
afls, á réttum tíma, þ.e. í
Engar viðræðu
bætur vegna ta
Áætlaðir sjóðir Landsvirkjunar vegna ófyrirsjáanlegs kostnað
Tilbúið Stefnt er að því að
NÝR áfangi Lagarfossvirkjunar
var vígður með viðhöfn á laug-
ardag. Lagði Hilmar Gunnlaugs-
son, stjórnarformaður RARIK,
hornstein að virkjuninni. Lag-
arfossvirkjun hefur nú stækkað
úr 8 MW í rúm 28 MW og orku-
framleiðsla RARIK samstæð-
unnar þannig tvöfaldast.
Með tilkomu Kárahnjúkavirkj-
unar verða vatnaflutningar sem
valda auknu rennsli í Lagarfljóti
árið um kring. Við það hafa skap-
ast aðstæður til stækkunar Lag-
arfossvirkjunar. Jökulárnar Jök-
ulsá á Brú og Jökulsá í Fljótsdal
eru virkjaðar í einni virkjun niður
í Fljótsdal og frárennslinu veitt í
Lagarfljót. Þeir vatnaflutningar
valda auknu rennsli í Lagarfljóti
árið um kring sem talið er að
nemi um 85 m3/sek að meðaltali.
Rennsli í gegnum nýjan hluta
Lagarfossvirkjunar verður um
125 m3/sek við fullt afl og virkar
hún því einnig sem mótvægis-
aðgerð til að draga úr áhrifum
aukins vatnsmagns á hækkun
vatnsborðs í Lagarfljóti. RARIK
og Landsvirkjun munu í vetur
skipuleggja samstarf á milli Kára-
hnjúka- og Lagarfossvirkjunar
vegna stýringar á vatnsmagni eft-
ir farvegi Lagarfljóts.
Stækkun kostaði 3,4 milljarða
Framkvæmdir við stækkun Lag-
arfossvirkjunar hófust vorið 2005
og lauk þeim nú í sumar. Afl
virkjunarinnar hefur nú verið
aukið um 20 MW og horft er til
um 130 GWh orkuaukningar á
ári.
Framkvæmdir fólu í sér stækk-
un stöðvarhúss, dýpkun og
breikkun aðrennslisskurðar,
byggingu nýs inntaks auk
rennslisganga, framleiðslu
uppsetningar á hverfli, ra
öðrum búnaði fyrir nýja v
samstæðu, ásamt lagfærin
vegi að stöðvarhúsi og fær
Stækkun
Lagarfossvirkj-
unar fagnað
Getur nú tekið við aukalegu vatnsmagni
þegar Kárahnjúkavirkjun fer í gang
Samtaka Ný túrbína gang
ur RARIK, Valgerður Sver