Morgunblaðið - 08.10.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 43
Sími 530 1919
www.haskolabio.is
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Stærsta kvikmyndahús landsins
Heima - Sigurrós kl. 6 - 8 - 10
3:10 to Yuma kl. 5:30 - 8 - 10:30
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Astrópía kl. 6 - 8 - 10:10
Sagan sem
mátti ekki
segja.
eeee
- B.B., PANAMA.IS
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.G., Rás 2
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
eeee
- JIS, FILM.IS
eee
- FBL
“TOP 10 CONCEPT
FILMS EVER”
- OBSERVER
Hljómsveitin Sigur Rós hélt í ógleymanlega
tónleikaferð um Ísland sumarið 2006.
Samspil Sigur Rósar, náttúru Íslands og
íslensku þjóðarinnar má finna í þessu
ógleymanlegu meistarastykki Sigur Rósar,
mynd sem enginn má missa af!
eeeee
“HEIMA ER BEST”
- MBL
eeeee
“ALGJÖRLEGA EINSTÖK”
- FBL
eeeee
“VÁ”
- BLAÐIÐ
eeeee
“MEÐ GÆSAHÚÐ AF
HRIFNINGU”
- DV
eeeee
“SIGUR ROS HAVE
REINVENTED THE
ROCK FILM”
- Q
eeee
“SO BEAUTIFUL
ITS HYPNOTIC”
- EMPIRE
HVERSU LANGT MYNDIRU
GANGA FYRIR BESTA VIN ÞINN?
GEGGJUÐ
GRÍNMYND
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 B.i. 10 ára
StarduSt er Mögnuð
ævintýraMynd Stútfull af
göldruM, HúMor og HaSar.
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20 B.i. 12 ára
Miðasala á www.laugarasbio.is
robert de niro og MicHelle pfeiffer
í frábærri Mynd SeM var tekinn upp á
íSlandi og allir ættu að Hafa gaMan af!
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 B.i. 16 ára
Það er löng hefð fyrir því íTékklandi að kveikja í sér.Háskólastúdentinn JanPalach kveikti í sér til þess
að mótmæla innrás sovéskra skrið-
dreka í Prag og Ivan Trojan kveikir
í sjálfum sér og öðrum þegar það er
ljóst að brjálæðislegar áætlanir
hans hafa farið út um þúfur. Þetta
gerir hann í tveimur af þeim þremur
myndum tékkneska leikstjórans
David Ondricek sem sýndar voru á
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Reykjavík. Ondricek er þó snöggur
að neita öllum tengingum við Palach
en segir mér í staðinn frá tökunum.
„Þetta var allt tekið án áhættu-
leikara. Okkur var sagt að við mætt-
um bara taka í eldinum í mesta lagi
eina mínútu en leikararnir sögðu að
þeir myndu bara segja stopp sjálfir
og léku í eina og hálfa mínútu þar
sem þeir spunnu sínar senur í miðju
eldhafinu.“
Einfarar, ein hönd og einn bær
Hinn sérstæði húmor landa Góða
dátans Svejks er til staðar í öllum
myndum Ondricek en sá húmor er
þó orðin rokkaðri allur og jafnvel
sorglegri. Við fengum ekki að sjá
fyrstu leiknu myndina hans, Hvísl
(Septej), en hinar þrjár voru sýndar.
Önnur myndin var Einfarar (Sam-
otári) sem fjallar um kynslóð vin-
margra Pragverja sem eru af-
skaplega einmana. „Hún var skrifuð
sem drama en breyttist í gam-
anmynd á æfingum,“ segir Ondricek
og bætir við: „Með húmor getum við
lifað af.“ Þetta er kynslóðamynd á
ekki ólíkan hátt og American Graf-
fiti og Dazed and Confused og líkt
og þær varð hún útungunarstöð
leikara, en mörg helstu nýstirni
Tékka hófu kvikmyndaferil sinn í
þessari aldamótamynd.
Næst var Ein hönd getur ekki
klappað (Jedna ruka netleská) sem
er líklega næst því að vera hrein-
ræktuð gamanmynd en um leið er
undirtónninn mun myrkari. Leik-
stjórinn nefnir The Big Lebowski
Coen-bræðra sem innblástur en
hrakfallabálkarnir Standa og Ond-
rej ná alla leið aftur til Laurel &
Hardy. Þetta er umdeildasta mynd
Ondricek. „Margir elskuðu hana en
það hötuðu hana líka margir.“
Myndin er á köflum hrein hasar-
mynd um baráttu áðurnefndra hrak-
fallabálka við glæpamenn sem borða
dýrategundir í útrýmingarhættu og
á köflum er óljóst hvort verið sé að
gera grín að grænmetisætum eða
kjötætum, vafi sem Ondricek gerir
lítið til þess að eyða. Þá lenda hrak-
fallabálkarnir í slagtogi með tveim
systrum og faðir þeirra hafði nið-
urlægt aðra þeirra í eigin raunveru-
leikaþætti, en myndin var gerð þeg-
ar vinsældir þeirra voru hvað
mestar. Loks var nýjasta mynd leik-
stjórans, Grandhotel, frumsýnd á
hátíðinni. „Hún gekk töluvert síður í
Tékklandi en hinar. Hins vegar hef-
ur henni gengið miklu betur en þeim
utan landsteinanna.“ Umrætt hótel
er helsta kennileiti borgarinnar
Liberec og uppi í sjónvarpsturn-
inum ofan á hótelinu má sjá bæði til
Póllands og Þýskalands. Aðalper-
sónan Fleischman (Marek Taclík)
virðist þó ólíklegur til þess að kom-
ast þangað þar sem hann virðist
sjúklega hræddur við að yfirgefa
þennan litla smábæ þar sem hann
eyðir tíma sínum í að gera ítarleg
veðurkort. Þar fellur hann líka fyrir
dökkhærðu þjónustustúlkunni Ilju,
rétt eins og Ondricek sjálfur féll fyr-
ir Kláru Issová, leikkonunni sem
túlkar hana en hún varð samferða
honum til Íslands á hátíðina.
Sjóaralíf bíófjölskyldu
En hvar lærði Ondricek að búa til
bíómyndir? „Níutíu prósent af öllu
sem ég kann lærði ég af pabba,“
segir hann en Miroslav faðir hans er
þekktur kvikmyndatökumaður og
hefur meðal annars unnið við marg-
ar myndir Milosar Forman, sem lík-
lega er þekktasti leikstjóri Tékka.
„En ég hef þó búið í Tékkandi allt
mitt líf. Pabbi kom aftur eftir hverja
mynd en stundum tók hann margar
myndir á ári og við sáum hann ekki
nema kannski tvær vikur á ári. En
við vildum ekki flytja, pabbi elskaði
Tékkland. En hann sýndi mér
myndir sem var ómögulegt að sjá í
Tékklandi, myndir leikstjóra á borð
við Milos Forman og Stanley
Kubrick.“
Seinna lærði hann heimild-
armyndagerð í kvikmyndaskólanum
FAMU og hóf ferilinn á að gera
heimildarmynd um Lucie, eina
þekktustu rokkhljómsveit Tékka.
„Ég vissi ekki hvort ég yrði tón-
listarmaður eða leikstjóri, þótt eftir
á að hyggja hafi ég verið mjög léleg-
ur tónlistarmaður. En mig langaði
að gera bíómynd um tónlist og liðs-
menn Lucie voru góðir vinir mínir.
En svo varð ég fyrir hálfgerðum
vonbrigðum með líf tónlistarmanna,
allt ruglið á túrnum – það var ekki
fyrir mig.“ En heimildarmynd-
anámið var góður skóli. „Þar þarf
maður að gera allt, klippa, taka upp
og svo framvegis, ekki bara leik-
stýra.“
Útsýnið frá Tékklandi
Morgunblaðið/Frikki
Leikstjórinn „Með húmor getum við lifað af,“ segir tékkneski leikstjórinn David Ondricek sem gerði Grandhotel.
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is