Morgunblaðið - 08.10.2007, Blaðsíða 21
í byggingameistarann dag eftir
dag, viku eftir viku og mánuð eft-
ir mánuð án þess að nokkuð ger-
ist í átt að betrumbót.
Nú eru góð ráð dýr. Það er bú-
ið að eyða aleigunni í „drauma-
húsið“, sem engan veginn stenst
þær væntingar, sem um var sam-
ið. Hvað er þá til ráða og hver er
réttur kaupandans?
Kröfur um gæði og búnað
Þegar fólk stendur frammi fyrir
húsnæðiskaupum stendur valið
um nýtt eða gamalt. Þegar menn
velja að kaupa nýtt húsnæði um-
fram það, sem er eldra á mark-
aðnum, er sú hugsun gjarnan of-
arlega í kollinum að með því fríi
fólk sig frá viðhaldi, að minnsta
kosti fyrstu árin. Það getur því
verið afskaplega hvimleitt, tíma-
frekt og kostnaðarsamt að lenda í
vanefndum af hálfu verktaka.
Almennt séð telst fasteign göll-
uð ef hún ekki stenst kröfur um
gæði, búnað og annað sem leiðir
af lögum um fasteignaviðskipti og
kaupsamninga. Kaupandi má
m.ö.o. ganga út frá því að eign
hafi bæði þá sérstöku eiginleika
eða notagildi sem um hefur verið
samið auk þess sem hún á að hafa
þá almennu eiginleika og nota-
gildi sem fasteignir af þeirri gerð
og aldri sem um ræðir hafa. Þótt
þessi atriði séu ekki tilgreind í
samningi hefur það ekki þau
réttaráhrif að kaupandi geti ekki
byggt á að þau séu til staðar, ef
forsendur til þess eru taldar vera
fyrir hendi. Litið er til ýmissa at-
riða við mat á því, einkum þess
sem farið hefur á milli samnings-
aðila, sem er í kynningargögnum
um fasteignina, kaupverðsins og
fleira.
„Það er engum vafa undirorpið
að ný hús eiga að vera 100%
gallalaus,“ segir Sigurður Helgi
Guðjónsson, lögfræðingur og for-
maður Húseigendafélagsins og
bætir við að málum vegna galla í
nýbyggingum hafi í fyrsta lagi
fjölgað vegna þess að meira sé
byggt auk þess sem hraði, pressa
og takmarkaður tími sé fylgi-
fiskur óvandaðri verka. Í þessu
samhengi hafi líka verið nefndar
sem skýringar misvandaðar
fjöldaframleiddar húseiningar úr
ýmsum áttum og fákunnátta er-
lendra iðnaðar- og verkamanna í
íslenskum stöðlum, kröfum,
reglum, vinnubrögðum og veð-
urfari.
Vælukjóar og frekjudósir
Lagalegur réttur þeirra, sem
kaupa af aðila, sem byggir og sel-
ur eignir í atvinnuskyni, er mjög
ríkur, og þeir sem kaupa nýtt
húsnæði geta gert miklar kröfur.
„Nýjar eignir eiga vitaskuld að
halda vatni og vindum og vera
óaðfinnanlegar. Lög slá skjald-
borg um lágmarksrétt kaupanda
og leyfa ekki samninga um lakari
rétt.
Oftast er það öllum fyrir bestu
að seljandi bæti úr göllum. Slíka
kröfu á kaupandi ef seljandi hefur
byggt eign. Seljanda ber að fram-
kvæma fullnægjandi úrbætur á
sinn kostnað fljótt og vel. Oft
reynir á heimild kaupanda til að
halda eftir af kaupverðinu og
skuldajafna gallakröfu á móti
kaupsamningsgreiðslum. Þetta er
mikilvægt úrræði, en vand-
meðfarið. Oft mikla kaupendur
réttarstöðu sína og meinta galla
og nota vafasamar og umdeildar
kröfur til að réttlæta stöðvun á
greiðslum og hafa djarftækir
kaupendur farið flatt á því.
Sumir byggingaraðilar mæta
málaleitunum kaupenda vegna
galla með litlum fögnuði. Slíkir
aðilar líta á kaupendur sem væ-
lukjóa og frekjudósir sem tefji og
trufli vinnandi menn á meðan aðr-
ir eru ábyrgir og leysa málin áður
en í óefni er komið.“
Draga frekar taum seljenda
Sigurður segir að þó fasteigna-
sölum beri, lögum samkvæmt, að
vera á hlutlausu svæði milli kaup-
enda og seljenda, sé tilhneiging
þeirra sú að standa öflugri vörð
um hagsmuni seljenda en kaup-
enda þar sem þeir þiggi laun sín
frá seljendum. Fasteignasalar
geti því verið í erfiðri stöðu við að
gæta hagsmuna beggja aðila þeg-
ar þeir eigi mikið undir við-
skiptum eins byggingaraðila.
Viðskipti með húsnæði í smíð-
um eru flóknari og viðsjármeiri
en viðskipti með eldra húsnæði
því þar reynir meira á færni,
staðfestu og árvekni fasteignasala
gagnvart hagsmunum kaupenda.
„Menn kaupa þá og borga gjarn-
an eftir teikningum og hástemmd-
um tölvugerðum glansmyndum af
draumaeigninni, sem í reynd er
óbyggt vonarhús með fögrum lof-
orðalýsingum. Þarna leynast
hættur á hverju horni og þarna er
aðgátar þörf.“
Allir aðilar hagnast á sættum
Að sögn Sigurðar leysast flest
mál áður en að dómsstigi kemur,
en séu málin stál í stál er venjan
sú að kalla til dómskvadda mats-
menn, sem meta „meinta“ galla.
Stundum verða sættir á grund-
velli matsins, en algengara er að
málin haldi áfram fyrir héraðs-
dómstólum. „Réttarstaða kaup-
enda í málum þessum er góð þó
erfitt, dýrt og tafsamt geti verið
að sækja þau. Sé dæmt kaupanda
í vil, á hann rétt á svokölluðum
vanefndaúrræðum í formi skaða-
bóta, afsláttar eða samningsrift-
unar ef um stóra galla er að
ræða.
En verst er þegar saman fara
gallar og slæm fjárhagsstaða
byggingaraðila því ef bygging-
araðilinn siglir í þrot sitja kaup-
endur oft eftir með sárt enni.
Gallamál eru allt í senn, þung,
erfið og dýr og þess vegna er
mjög brýnt að reyna til þrautar
að sætta mál áður en hagsmunir
aðila grafast undir kostnaðinum.
Þegar svo málum loks lýkur eftir
ár og daga tapa yfirleitt báðir að-
ilar fjárhagslega, líka sá sem
stendur upp úr sem hinn glæsti
lögfræðilegi sigurvegari, segir
Sigurður Helgi.
join@mbl.is
100% gallalaus
Í HNOTSKURN
» Gallamálum vegna nýrrafasteigna fer sífellt fjölg-
andi.
» Langflest gallamál leys-ast án þess að koma þurfi
til kasta dómstóla.
» Gera má ríkar kröfur tileiginleika og gæða nýrra
eigna og því geta kaupendur
slíkra eigna átt fullt tilefni til
að athuga réttarstöðu sína
ef eitthvað misjafnt kemur í
ljós.
» Flestir annmarkar koma íljós fljótlega eftir að flutt
er inn og áður en gengið er
frá afsali og lokagreiðslu.
Kaupendur geta þá átt rétt til
að krefjast úrbóta eða haldið
eftir greiðslum, sem nema
tjóni þeirra.
Gallamál eru allt í senn, þung, erfið og dýr og þess
vegna er mjög brýnt að reyna til þrautar að sætta mál áð-
ur en hagsmunir aðila grafast undir kostnaðinum.
daglegt
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 21
Bæna- og helgistundir eru haldnar öll
miðvikudagskvöld, kl. 20.15 í Bahá'í
miðstöðinni, Öldugötu 2, Reykjavík.
Húsið opnað kl. 19.45.
Allir velkomnir.
Bænir og ritningar allra trúarbragða.
Bahá'í samfélagið í Reykjavík
www.bahai.is
Helgistundir
í Bahá'í Miðstöðinni
Grafhýsi Bahá'u'lláh, stofnanda bahá'í
trúarinnar, í Bahjí nálægt borginni
'Akká í Ísrael, er helgasti staður
bahá'ía á jörðinni
WWW.N1.IS
BÍLAMOTTUR
Við eigum fjölbreyttasta úrvalið í aukahlutum fyrir bílinn;
bílamottur, farangursbox, þurrkur, sætisálæði og margt fleira.
N1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 · SÍMI 440 1200
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
þessa flóknu persónuleika, sem
kettir eru.
Þroskaðir menn
Soffía fékk Pílatus í jólagjöf í
fyrra en hafði ekki haldið ketti síð-
an hún fór að búa sökum ofnæmis
hjá börnunum hennar en hún segir
pabba sinn hafa verið mikinn
kattavin. „Ég hefði ekki trúað því
hvað þetta er gaman. Pílatus sefur
í bæli á gólfinu inni hjá okkur
hjónum og svo þegar klukkan
hringir á morgnana hoppar hann
upp á bringuna á mér og býður
mér góðan daginn, og við kelum
pínulítið.“ Hann skilji þó ekki al-
veg í helgunum, hann liggi bíðandi
og gefi frá sér smáskrimt öðru
hverju, tilbúinn að fara á stjá við
minnstu hreyfingu eigandans.
„Hann er bráðgáfaður segi ég allt-
af en börnin mín hálfmótmæla því,
ég segi þau smáafbrýðisöm því
hann er orðinn aðalnúmerið! Svo
eru barnabörnin náttúrlega númer
eitt af mannfólkinu.“
„Maðurinn minn hefur hins veg-
ar fundið skýringuna á því hvers
vegna ég heillast svona af Guð-
mundi gamla. Ég vinn á hjúkr-
unar- og elliheimilinu Hrafnistu og
hann segir að ég heillist af þrosk-
uðum mönnum.“ Reyndar segir
hún kettina sína oft bera á góma í
vinnunni, þegar aðrir tali um
börnin sín. „Ég legg nýjustu afrek
kattanna til málanna. Fólk er að-
eins farið að gera góðlátlegt grín
að því hvað ég tek kattahaldið al-
varlega,“ segir hún og skemmtir
sér greinilega jafn vel og viðhlæj-
endur.
Samskipti Guðmundar og
Pílatusar einkennast nú af því að
sá yngri sækir í þann eldri, sem er
svolítið þreyttur á þessum pöru-
pilti, og veit líka betur. Kannski
mætti túlka kattasamfélagið á
heimili Soffíu eilítið dýpra en góð-
látlegar kattaerjur: Eru úthverfin
að vinna miðbæinn? Soffía hefur
svarið á reiðum höndum: „Já, eða
æskan að vinna ellina.“
BARNSHAFANDI konur sem eru
með mjög lágt kólesteról gætu
verið í meiri hættu á að eignast
fyrirbura, eftir því sem segir á
fréttavef BBC. Nýleg rannsókn
leiddi í ljós tengsl á milli þess að
konur hafi á meðgöngu mjög hátt
kólesteról og aukinnar hættu á
fyrirburafæðingum, sömu áhrif
mjög lágs kólesteróls komu hins
vegar á óvart. Fyrirburafæðingar
auka mjög hættu á ýmsum heilsu-
farsvandamálum barns og því full
ástæða til að rannsaka þessi mál.
Fyrirburar eru líklegri en önnur
börn til að glíma við lungna- og
hjartavandamál, blindu, heyrnar-
leysi og námserfiðleika.
1.000 konur í Suður Karólínu og
nýfædd börn þeirra tóku þátt í
rannsókninni. Í ljós kom að 5%
kvenna með hefðbundið kólester-
ólmagn eignuðust fyrirbura, 12%
kvenna með hæsta kólesterólið og
21% þeirra sem voru með mjög
lágt kólesteról. Einnig kom í ljós
að höfuð barna þeirra kvenna sem
voru með mjög lágt kólester-
ólmagn var minna. Stjórnandi
rannsóknarinnar, dr. Max Muenke
sagði frekari rannsókna þörf til að
staðfesta niðurstöðurnar. Þó megi
fullyrða að eðlilegt magn kólester-
óls hjá konum, bæði fyrir og eftir
fæðingu, skipti miklu fyrir heilsu
barnsins.
Tengsl fyrir-
burafæðinga
og of lágs
kólesteróls
Reuters
Fyrirburar Meiri hætta á að þair
þurfi að glíma við heilsufarsleg
vandamál sem og námserfiðleika.