Morgunblaðið - 08.10.2007, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Björn Ingi Hrafnsson, borgar-fulltrúi Framsóknarflokks,
sagði í samtali við Ríkisútvarpið sl.
föstudag að verðmæti Reykjavík
Energy Invest mundi tvö- til þre-
faldast á næsta tveimur og hálfu ári
og 16 milljarða hlutur Orkuveit-
unnar verða 40 milljarðar.
Þar sem borg-arfulltrúinn
á sæti í stjórn
Reykjavík
Energy Invest er
auðvitað tekið
eftir þessum orð-
um.
Á hverju bygg-ist svona mat? Eru til útreikn-
ingar og gögn sem geta verið rök-
stuðningur fyrir þessu mati
borgarfulltrúans?
Þegar kjörinn fulltrúi fólksins íReykjavík viðhefur ummæli af
þessu tagi er eðlilegt að spurt sé
hvað liggi að baki þessum orðum.
Er það ekki rétt skilið að hið sam-einaða útrásarfyrirtæki ætli á
hlutabréfamarkað að fáum árum
liðnum?
Er strax byrjað að tala verð hluta-bréfanna upp? Er borgar-
fulltrúinn að taka þátt í því?
Á þessari stundu er fyrst og
fremst um áform að ræða en ekki
veruleika. Núverandi starfsemi
þessara tveggja fyrirtækja stendur
ekki undir tölum af þessu tagi.
Sú var tíðin að fyrirtæki voruverðmetin á grundvelli svo-
nefndra væntinga. Varð ekki eitt-
hvað lítið úr þeirri reikningsaðferð
þegar ákveðin bóla sprakk?
Vonandi gengur orkuútrásin velen hún má ekki einkennast af
andrúmsloftinu meðal gullgrafara
fyrir meira en heilli öld!
STAKSTEINAR
Björn Ingi
Hrafnsson
Tími gullgrafaranna?
FRÉTTIR
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
"
#
:
*$;< $$
!
" "
#
$
%&
*!
$$; *!
% & ' $ $& $ (
=2
=! =2
=! =2
%' # $) #*+$, #-
!-
=
'
( )*%$ +( , " -
"
( . ,
/
0
' %&*%0 +( " 2
(
#
62
'
)*%$ +
"
1
!
1
( "
1
(
"
3
%
%& ./ $ $00 # $ $1 $) #*
3'45 >4
>*=5? @A
*B./A=5? @A
,5C0B ).A
3
3
!2 2 !2!
2 2 2 !2 2 2 2!
2 2 2 2 2 3
3
3
3
3
3
3!
3
3
3
3
3
3
3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Edda Jóhannsdóttir | 7. október 2007
… útförin mín
var sorgleg
Við fórum svo Gríms-
nesið heim og landið
skartaði sínu fegursta.
Ég varð hálfmeyr í feg-
urðinni allri og þegar
ég var búin að keyra
mömmu heim var spil-
að lag í útvarpinu sem mér fannst
allt í einu að myndi passa svo vel í
útförina mína. Ég fékk kökk í háls-
inn við tilhugsunina og svo var ég
skyndilega stödd í kistunni á leið út
úr kirkjunni …
Meira: madamhex.blog.is
Ómar Ragnarsson | 7. október 2007
Hve langt nær
bloggfrelsið?
Ragnar Axelsson ljós-
myndari hefur orðið
fyrir miklu ónæði og
legið undir ámæli á
marga lund fyrir
bloggfærslur sem birst
hafa undir nafninu
Raxi þótt bloggarinn heiti alls ekki
nafni sem tengist þessu bloggnafni
hans.
Með slíku „gríni“ er skapaður
misskilningur, leiðindi og vandræði í
nafni frelsisins …
Meira: omarragnarsson.blog.is
Birkir Jón Jónsson | 7. október 2007
Eftirminnilegt afmæli
Í dag var haldið upp á
50 ára afmæli Félags
ungra framsókn-
armanna í Keflavík.
Það var ekki amalegt
að eyða deginum í
þeim félagsskap! 80-90
manns voru í veislunni, þar af þó-
nokkur hluti af þeim sem stofnuðu
til félagsins á sínum tíma. Margar
merkar ræður voru fluttar á þessum
merku tímamótum, margar mjög
eftirminnilegar. …
Takk fyrir mig.
Meira: birkir.blog.is
Andrés Magnússon | 7. október 2007
Er dauðasynd að
ræða um stóra
Orkuveitumálið?
Sigurður Viktor Úlf-
arsson gerði at-
hugasemd við síðustu
færslu hjá mér, sem
kallaði á svör af minni
hálfu. Þau eru hins
vegar þannig vaxin, að
mér fannst ástæða til þess að svara
þeim í færslu, fremur en í at-
hugasemdunum einum. … Fyrri
færsla mín byggðist ekki á dauða-
syndinni öfund enda er auðsæld mín
og örlæti legíó. …
Grundvallaratriði málsins snúast
hins vegar um tvennt: hlutverk fyr-
irtækisins og eignarhald. …
Meginvandi Orkuveitunnar er sá
að eigendurnir eru alltof fjarlægir
eign sinni. Stjórnendur og starfs-
menn OR virðast líta á fyrirtækið
sem góss, en eigendurna í besta falli
sem greiðendur. Pólitískir stjórn-
endur, sem eiga að vera fulltrúar
eigendanna, hafa svo smitast af
þessu viðhorfi, eins og best sést á því
hvernig Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri einangraði sig (og vin
sinn Hauk Leósson) í stjórn OR frá
öðrum borgarfulltrúum. Þó þeir
Haukur sætu í þeirra friði í stjórn
OR fannst honum hann ekki þurfa
að ræða málefni fyrirtækisins við þá.
Það býður hættunni heim.
Því fannst mér það sjálfsögð og
eðlileg tillaga að nefna þennan kost,
að gefa eigendum OR kost á for-
kaupsrétti í REI fyrir skráningu …
Kaupréttarumræðan finnst mér út-
úrdúr en hugsanlegur kaupréttur
eigendanna er nátengdur aðal-
atriðum þess. …
Mikilvægast og brýnast er að
fjalla um grundvallarmálin: hlutverk
og eignarhald fyrirtækja á vegum
hins opinbera, ekki síst einok-
unarfyrirtækis eins og Orkuveit-
unnar, sem er rekið í skjóli útsvars-
greiðenda en virðist ekki þurfa að
standa þeim nein reikningsskil, lýtur
sérstökum lögmálum um framboð og
eftirspurn, en er undanþegið al-
mennum reglum stjórnsýsluréttar,
bæði hvað varðar reglur um máls-
meðferð og launa- og starfskjör. Það
er nú vandinn í hnotskurn, að þar
vantar ábyrgð í samræmi við völd,
auð og athafnafrelsi. Úr því verður
að bæta.
Meira: andres.blog.is
BLOG.IS
FJÖLBREYTT skemmtidagskrá var í Perlunni í gær-
dag í tilefni af alþjóðageðheilbrigðisdeginum sem er
nk. miðvikudag. Raunar hófst dagskráin í Nauthólsvík
í gærmorgun þegar hið árlega geðhlaup fór fram. Með-
al þess sem var á dagskrá í Perlunni má nefna Regn-
bogakórinn og djasstríóið Tríóto.
Morgunblaðið/Sverrir
Geðheilbrigði í fyrirrúmi
MALBIKSSLIT orsakar meirihluta
svifryksmengunar í Reykjavík, en
fjórðungur hennar á uppruna sinn í
jarðvegi. Að sögn Þorsteins Jóhanns-
sonar, sem flutti fyrirlestur til meist-
araprófs í umhverfisfræði við Há-
skóla Íslands sl. föstudag, gætu
markvissar aðgerðir dregið úr þess-
ari mengun. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá umhverfissviði
Reykjavíkurborgar, sem styrkti
framkvæmd rannsóknarinnar.
Færri nagladekk, betri niður-
föll, dekkjaþvottur og úðun
Að mati Þorsteins myndi fækkun
nagladekkja hafa ótvíræð áhrif.
Fræðileg hámarksminnkun á meng-
un, við helmingsfækkun nagladekkja,
sé um 30% en líklega yrði hún þó í
raun og veru minni. Langar niður-
fallsristar við akbrautir gætu einnig
skipt máli, til að auðvelda hreinsun
gatna þar sem ryk safnast fyrir við
kantsteina. Þorsteinn sýndi fram á í
rannsókn sinni að meginhluti svifryks
úr jarðvegi kemur af byggingasvæð-
um, niðurrifi bygginga, órykbundn-
um vegaslóðum og ýmiss konar fram-
kvæmdum, fremur en úr jarðvegs-
eyðingu á hálendinu. Til að stemma
stigu við því mætti efla dekkjaþvott á
jarðvegsflutningabílum og vatnsúð-
um við niðurrif húsa. Einnig talaði
Þorsteinn um forvarnir gegn svif-
ryksmengun, sem helst geta falist í
eflingu almenningssamgangna,
göngu- og hjólreiðastíga og fyrir-
byggjandi aðgerðum eins og úðun
gatna með magnesíumklóríðblöndu
snemma á hugsanlegum mengunar-
dögum, þegar þurrt er og kalt í veðri.
Markvissar aðgerðir
geta dregið úr svifryki
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
FRÉTTIR