Morgunblaðið - 08.10.2007, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
RÚMLEGA milljón Kínverjar yfir-
gáfu heimili sín í gær áður en mann-
skæði fellibylurinn Krosa nálgaðist
suðausturströnd landsins.
Krosa fór yfir Taívan á laugardag
og olli miklu tjóni. Að minnsta kosti
fimm manns týndu lífi, yfir 50
manns slösuðust og eignatjón var
mikið.
Vindhraðinn var allt að 185 km á
klukkustund á laugardag og úrkom-
an mældist meira en metri á sumum
stöðum. Fellibylurinn reif rúmlega
200 tré upp með rótum í Taipei, höf-
uðborg Taívans, rafmagnslaust varð
og samgöngur fóru úr skorðum.
Þegar Krosa kom upp að Fujian-
og Zhejianghéraði í Kína var vind-
hraðinn 126 km á klukkustund.
Flugvöllum var lokað á svæðinu og
ákveðið að leggja niður skólahald í
dag. Áhöfnum skipa var gert að
koma sér til lands í tíma. Vinsælir
ferðamannastaðir voru eins og
draugaborgir og fólki var ráðlagt
að forðast strandsvæðin.
Mikið mannfall í Víetnam
Að minnsta kosti 40 manns fórust
í Víetnam fyrir helgi þegar fellibyl-
urinn Lekima fór yfir miðhluta
landsins og í gær var meira en 20
manns saknað. Um 35.000 hektarar
akra eyðilögðust og var fjárhags-
legt tjón alls metið á um 41 milljón
dollara. Þótt drægi úr fellibylnum
og hann væri skilgreindur sem
stormur varð hann síðan að minnsta
kosti níu manns að bana á Filipps-
eyjum.
Reuters
Björgun Lögregla kemur íbúum í Wenling í Zhejiang-héraði í Kína til
hjálpar áður en mannskæði fellibylurinn Krosa nær til þeirra.
Milljón Kínverjar á flótta
Í GÆR var greint frá því að þorpið
Haskanita í Darfur-héraði í Súdan
hefði verið jafnað við jörðu á laug-
ardag.
Haskanita var í heimsfréttunum
fyrir viku þegar uppreisnarmenn
réðust á friðargæsluliða Afríku-
sambandsins í nágrenninu með
þeim afleiðingum að 10 týndu lífi.
Þá fordæmdi Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, árásina, en þegar hún var
gerð flúðu íbúar þorpsins til nær-
liggjandi bæja.
Eftirlitsmenn á vegum Samein-
uðu þjóðanna sögðu að bærinn
hefði nánast verið lagður í rúst en
nokkrar byggingar stæðu þó uppi.
Á markaðssvæðinu hefði öllu verið
stolið og til þess var tekið að nokkr-
ir íbúar hefðu snúið aftur í leit að
mat og vatni.
Í yfirlýsingu eftirlitsmannanna
var ekki greint frá því hverjir stóðu
að eyðileggingu bæjarins og stjórn-
völd í Súdan, sem stjórnuðu honum,
hafa ekki tjáð sig um atburðinn.
Reuters
Söknuður Margir eiga um sárt að
binda í Darfur vegna átaka.
Þorp jafnað
við jörðu
FIMMTÍU og átta ára breskur karlmaður hefur verið
dæmdur í sex ára fangelsi fyrir grófa fölsun. Þegar
hann var gripinn við iðju sína fundust í fórum hans
seðlar að andvirði tæplega 90 milljónir króna en mað-
urinn og sveit hans höfðu getu til þess að „framleiða“
um tvær milljónir punda á degi hverjum. Hefði nokk-
urra vikna skammtur komist í umferð hefði það getað
valdið miklum skaða í breska hagkerfinu. Einnig fund-
ust í fórum hans ýmiss konar vegabréf, ökuskírteini og
frímerki.
Maðurinn var einnig ákærður fyrir iðju sína í fyrra en slapp vegna
tæknigalla í réttarhöldunum.
Athygli vekur að maðurinn, sem hefði getað orðið stórauðugur á að
falsa fé og selja t.d. eiturlyfjabarónum, virðist engan áhuga hafa á að
verða auðugur, hann virðist frekar hafa verið drifinn áfram af því að
handbragðið væri fallegt.
Hefði getað skaðað hagkerfið
HÓPUR fólks braust inn í Orsey-
safnið í París í fyrrinótt og
skemmdi málverkið „Le pont
d’Argentueil“ eftir franska im-
pressjónistann Claude Monet.
Spellvirki
AÐ minnsta kosti 28 manns týndu
lífi og meira en 70 slösuðust í
árekstri lestar og langferða-
bifreiðar á Kúbu í gær. Þetta er
mesta slys á Kúbu um árabil.
28 týndu lífi
GERT er ráð fyrir að málverkið
„Te Poipoi“ eftir franska listmál-
arann Paul Gauguin fari á 40 til 60
milljónir dollara á uppboði Sothe-
bys í New York í nóvember. Gaugu-
in seldi verkið upphaflega 1895 til
að fjármagna ferð til Tahítí og þar
var hann til æviloka.
Hátt mat
UM 6,2 milljónir gesta tóku þátt í
stærstu bjórhátíð heims, október-
fest í München í Þýskalandi, en
henni lauk í gær. Þetta eru um 300
þúsund færri gestir en í fyrra en
bjórneyslan jókst um 10% á milli
ára og fór í 6,7 milljón lítra.
Um 7.400 manns þurftu á lækn-
ishjálp að halda, margir vegna of
mikillar drykkju, en tæplega 8.000
manns voru í sömu stöðu á hátíðinni
2006. Pylsur runnu niður í ómældu
magni og slátra þurfti 104 nautum
til að seðja hungur gestanna.
Um 15% gesta á 16 daga hátíð-
inni, sem fór nú fram í 174. sinn,
koma erlendis frá. Ítalir eru þar
fremstir í flokki en síðan Banda-
ríkjamenn, Bretar, Kanadamenn,
Ástralar og Austur-Evrópubúar.
Aukin bjórneysla
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
LÖGREGLAN í Kaupmannahöfn
sleppti í gær um 435 manns sem
handteknir voru á laugardag í
tengslum við kröfu um nýtt ung-
dómshús í borginni. Aldrei hafa fleiri
verið handteknir í einni aðgerð í
Kaupmannahöfn og búast má við
ákærum í kjölfarið.
Félagsskapur sem kallar sig G13
stóð fyrir mótmælunum á laugardag.
Félagsmenn hafa leitað að æskulýðs-
húsi í stað þess sem rifið var við
Jagtvej 69 á Norðurbrú, án árang-
urs, og með aðgerðunum kröfðust
þeir þess að fá inni í Grøndalsvænge
11 í norðvesturhluta borgarinnar.
Skipuleggjendur höfðu gefið fyrir-
mæli um að mótmælin færu friðsam-
lega fram en hlutirnir fóru úr bönd-
unum og þurfti lögreglan að beita
táragasi til að ná stjórn á mann-
skapnum, sem lét öllum illum látum.
Að mati lögreglunnar tóku 1.000 til
2.000 manns þátt í mótmælunum en
talsmenn G13 segja að þeir hafi verið
um 4.000.
Aldursforsetinn 69 ára
Talsmaður lögreglunnar sagði að
um alþjóðlega samvinnu mótmæl-
enda hefði verið að ræða. Í hópi
hinna handteknu voru 62 útlending-
ar, meðal annars frá Spáni, Frakk-
landi, Finnlandi, Englandi, Ítalíu,
Lúxemborg, Noregi, Svíþjóð, Hol-
landi, Póllandi, Þýskalandi og Tyrk-
landi. Þjóðverjar voru fjölmennastir
í þessum hópi eða 21, en einnig voru í
honum18 Svíar, átta Finnar og sjö
Norðmenn auk annarra.
Aldursforsetinn í hópi hinna hand-
teknu var rúmlega 69 ára. 100 voru
undir 18 ára, 225 milli 18 og 24 ára og
um 100 milli 25 og 35 ára. Skiptingin
milli karla og kvenna var nokkuð
jöfn.
Ritt Bjerregaard, yfirborgarstjóri
í Kaupmannahöfn, segir á heimasíðu
sinni að hún geri ráð fyrir að hitta
talsmenn G13 í vikunni, þrátt fyrir
að mótmælin hafi ekki farið friðsam-
lega fram. Hún segist gera ráð fyrir
að þeir hafi hug á friðsamlegum við-
ræðum. Mótmælendurnir hafi ekki
farið að lögum og því hafi lögreglan
orðið að taka til sinna ráða.
Mótmælendum sleppt
í Kaupmannahöfn
Aldrei eins margir handteknir í einni aðgerð í Danmörku
Reuters
Átök Lögreglan í Kaupmannahöfn bregst við ólátum mótmælenda.
Í HNOTSKURN
» Byggingin sem hýsti ung-dómshúsið við Jagtvej 69 á
Norðurbrú í Kaupmannahöfn
var seld árið 2000 og eftir að
eigendur höfðu ákveðið að
rífa hana var lokað 1. mars í
ár.
» Miklar óeirðir brutust út ívor og boðuðu talsmenn
mótmælenda átökin um
helgina þegar í ágúst.