Morgunblaðið - 08.10.2007, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 2007 25
ð sjá fyrir
hendingu
s í Reyð-
ð Lands-
yrstu af-
100 MW
apríl sl.
„Það dugði viðskiptavini okkar fram
á mitt sumar í það sem hann var að
gera. Við komum inn núna seint á
haustmánuðum og því er það þessi
milliafhending í sumar sem hefur
dregist. Við verðum komnir með
virkjunina í fullan rekstur um ára-
mót í staðinn fyrir október og lítum
þannig á að ekki skeiki mjög miklu
miðað við hversu langt og flókið
verkið er.“ Hann minnir jafnframt á
að í samhengi við orkusölusamning
til fjörutíu ára séu tveir til þrír mán-
uðir ekki langur tími. Þá séu ákvæði
í raforkusamningi milli Landsvirkj-
unar og Alcoa sem nái yfir þessi
mál. Landsvirkjun og Alcoa Fjarða-
ál séu ekki að ræða kostnað heldur
að vinna sameiginlega að því að
koma mannvirkjunum í gang.
„Menn munu einfaldlega fara yfir
málin þegar heildarstaðan liggur
fyrir. Aðilarnir eru í samstarfi um
uppkeyrslu beggja mannvirkja, sem
tekur tíma að gangsetja hvort um
sig, með það að markmiði að koma
þessu í fullan rekstur eins hratt og
hægt er. Að koma öllum vélum í
gang um áramót í staðinn fyrir októ-
ber teljum við ekki að sé mikið mið-
að við fimm ára verktíma“ segir Sig-
urður Arnalds.
ur uppi um skaða-
afa á orkuafhendingu
ðar við Kárahnjúkavirkjun nánast uppurnir vegna örðugleika í borverki og stíflustyrkingar
Morgunblaðið/RAX
ð hleypa vatni úr Hálslóni í aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar til stöðvarhúss í Fljótsdal eftir hálfan mánuð. Horft yfir Hálslón, allar þrjár stíflurnar sjást.
k að-
u og
afal og
véla-
ngu á
rslu
vegar á bráðabirgðabrú vegna
framkvæmda við inntak svo fátt
eitt sé nefnt.
Fyrir Landsvirkjun lét RARIK
einnig lækka klapparhaft ofan
flóðgáttanna í Lagarfljóti og
rýmka flóðfarveg neðan þeirra.
Það er hluti mótvægisaðgerða
vegna Kárahnjúkavirkjunar.
Kostnaður við stækkun Lag-
arfossvirkjunar nemur um 3,4
milljörðum króna. Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen hf. og Raf-
teikning hf. voru hönnuðir og
ráðgjafar RARIK varðandi und-
irbúning og framkvæmdir.
Eldri hluti virkjunarinnar var
hannaður af VST á sínum tíma.
Boðið var til móttöku í Vala-
skjálf á Egilsstöðum eftir að
vígsluathöfninni lauk við Lag-
arfoss á laugardag og var hún
einnig í tilefni 60 ára afmælis
RARIK á þessu ári.
Aukið rennsli Í vígsluathöfn á laugardaginn var stækkun virkjunar-
innar fagnað en hún er nú rúm 28 MW í stað 8 MW.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
gsett í vígslu stækkaðrar Lagarfossvirkjunar. Hilmar Gunnlaugsson, stjórnarformað-
rrisdóttir og Ólöf Nordal alþingismenn gangsettu vélina í iðrum Lagarfossstöðvar.
BYGGINGU álvers Alcoa Fjarða-
áls á Reyðarfirði verður brátt lokið
og fara síðustu starfsmenn
Bechtel, sem byggir álverið, úr
landi fyrir jól. Framkvæmdir
standast tímaáætlun Bechtel og
þrátt fyrir nokkra seinkun á fram-
kvæmdum við Kárahnjúkavirkjun
hefur fyrirtækið haldið sínu striki í
álversbyggingunni en Alcoa tekið
verksmiðjuna nokkru hægar í
notkun en ráð var fyrir gert. Að-
eins er eftir að ráða tæplega 30
manns til starfa í álverinu.
Undirbúningur og hönnun ál-
versins hófst í júlí 2003, byggingar-
framkvæmdir hófust vorið 2005 og
þeim lýkur senn. Verið er að klára
framkvæmdir í kerskálum álvers-
ins, byggingu allra 336 keranna er
lokið og búið að skila Alcoa um það
bil helmingi af steypuskála. Þannig
er nánast aðeins frágangur eftir og
samkvæmt upplýsingum frá
Bechtel telst nú um 97% heildar-
framkvæmdarinnar lokið.
Seint í vetur verða starfs-
mannabúðir Bechtel rifnar og flutt-
ar úr landi með vori og næsta sum-
ar á að ganga frá lóðinni umhverfis
álverið.
Um eitt þúsund manns starfa nú
hjá Bectel við álversbygginguna en
voru 2.200 talsins í vor þegar mest
lét. Reiknað er með að rúmlega
hundrað starfsmenn fari utan á
viku næstu vikurnar og verði allir
farnir fyrir jól. Flestir starfsmanna
Bechtel hafa verið frá Póllandi.
Byggingarkostnaður við álverið
nemur um 1.295 milljörðum Banda-
ríkjadala og segir Bechtel um
þriðjung hans falla til á Íslandi.
Helmingur starfsmanna býr
á Reyðarfirði og Egilsstöðum
Aðeins er eftir að manna tæplega
30 störf í álverinu á Reyðarfirði og
verður ráðið í þau mjög fljótlega.
Störfin eru alls um 400 talsins. Um
29% starfsmanna búa á Reyð-
arfirði, 21% á Egilsstöðum, 16% á
Norðfirði, 14% á Eskifirði, innan
við 10% á Fáskrúðsfirði og rösk-
lega 5% starfsmanna búa á Stöðv-
arfirði.
Erna Indriðadóttir, upplýsinga-
fulltrúi Alcoa Fjarðaáls, segir að
allir sem ráðnir hafa verið í störf
hjá fyrirtækinu séu íslenskumæl-
andi og næstum allir Íslendingar.
„Við höfum ekki neitað fólki um
störf hér, sem hefur búið á Íslandi
árum saman og er íslenskumæl-
andi, en það eru fáir. Konur eru
32% þeirra sem búið er að ráða og
46% starfsmanna okkar hafa flutt
inn á svæðið. 54% starfsmanna eru
af Austurlandi. Upphaflega var því
spáð að um helmingur starfsmanna
yrði heimamenn, en hinn helming-
urinn kæmi annars staðar frá af
landinu. Þetta virðist ætla að verða
mjög nálægt því sem búist var við,“
segir Erna.
Fleiri koma að
gangsetningu
Verktakafyrirtæki sem sjá um við-
hald og varahlutamál fyrir Alcoa
Fjarðaál eru með talsvert af er-
lendu fólki á sínum snærum við
vinnu innan álversins. Þeir munu
útvega aukamannskap frá Póllandi,
allt að 100 manns, meðan á gang-
setningu álversins stendur, en hún
krefst meira vinnuafls en verður að
jafnaði. Þá eru um sjötíu sérfræð-
ingar Alcoa frá Kanada á svæðinu
vegna gangsetningarinnar. „Þeir
eru okkur til aðstoðar, þar sem
fæstir starfsmanna okkar hafa áð-
ur unnið í álveri,“ segir Erna.
Þetta sé hins vegar tímabundið og
reiknað með að fólkið fari aftur til
síns heima þegar álverið er komið í
fullan gang og starfsmenn Fjarða-
áls orðnir fullþjálfaðir í sínum
störfum.
Starfsmenn
Bechtel
hverfa úr
landi fyrir jól
Aðeins eftir að ráða
í 30 störf hjá Alcoa