Morgunblaðið - 24.10.2007, Side 1
FRÉTTASKÝRING
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
FÓLK var í gær hvatt til að hætta að
dansa regndansinn. Þó skilaboðin hafi
verið meira í gríni en alvöru er augljóst
að Frónbúar eru
margir hverjir
orðnir þreyttir á
þeirri miklu úr-
komutíð sem byrj-
aði um miðjan
ágúst og sér ekki
enn fyrir endann
á. Met féllu í
haust, úrkoman í
Reykjavík hefur
ekki orðið meiri í
september síðan
samfelldar mæl-
ingar hófust árið
1920. Þurrir dag-
ar í mánuðinum
voru aðeins fimm.
Þá var sumarið
harla óvenjulegt.
Framan af var
óvenjuþurrt og
bjart veður en um miðjan ágúst skipti
rækilega um veðurlag, þannig að sumar-
úrkoman í heild er sú mesta í Reykjavík
síðan 1984.
Ríkjandi sunnanáttir
sökudólgurinn
Þá hefur úrkoma verið óvenjumikil það
sem af er október, að sögn Trausta Jóns-
sonar veðurfræðings á Veðurstofunni.
Ástæðan eru ríkjandi sunnan- og suðvest-
anáttir. „Það er hrokkið í lægðagang,“
sagði Hrafn Guðmundsson veðurfræð-
ingur um úrkomutíðina. Fram til dagsins
í gær höfðu 135,9 mm mælst í Reykjavík
og aðeins einu sinni hefur úrkoma fyrstu
23 daga mánaðarins orðið meiri. Það var
1936, en þá mældust 149,7 mm sama
tímabil. Ef ekkert rigndi það sem eftir er
mánaðarins lenti hann í 10. sæti yfir úr-
komusama októbermánuði. Mikilli úr-
komu er spáð næstu daga þannig að full-
víst má telja að hann lendi ofar, það þarf
46 mm í viðbót til að hann verði úrkomu-
samastur og 30 mm ef hann á að verða
næsthæstur.
Þá er samanlögð úrkoma í september
og það sem af er október í Reykjavík
mjög mikil eða rétt tæpir 300 mm. Ef
ekki rigndi meir í þessum mánuði lentu
þessir tveir mánuðir saman í þriðja sæti í
úrkomumagni og ekki vantar nema um 25
mm til að fara yfir regnmagnið í septem-
ber og október 1959, en þá mældust sam-
tals 322,1 mm í mánuðunum tveimur.
Veðurspá næstu daga er ekki síður hlý
en úrkomusöm. Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur skrifar á bloggsíðu sína
að með áframhaldandi suðlægum vind-
áttum í næstu viku gæti þessi mánuður
orðið með þeim hlýjustu um allangt skeið
a.m.k. í 20 ár.
Hrokkið
í lægða-
gang
Úrkomumet í hættu
haldi rigningin áfram
Morgunblaðið/Eyþór
Þreytandi? Veður-
stofa Íslands, veður-
spá: Spáð er rigningu
um allt land.
STOFNAÐ 1913 290. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
BULLMÁL
Í RÆÐISMANNSSKRIFSTOFUNNI ER ÞAÐ
LÁTBRAGÐIÐ SEM GILDIR, EKKI TEXTINN >> 17
MANNANAFNANEFND (MNN) hefur úrskurðað að millinafninu
Kjarrval sé hafnað, bæði sem almennu og sem sérstöku millinafni. Að
mati nefndarinnar uppfyllir nafnið Kjarrval þau almennu skilyrði sem
gerð eru til millinafna samkvæmt 6. gr. laga nr. 45/1996. Hins vegar sé
ekki hægt að samþykkja nafnið Kjarrval sem almennt millinafn þar
sem líkindi í framburði við ættarnafnið Kjarval geri það að verkum að
upp geti komið árekstur við það nafn sem notað hefur verið sem ætt-
arnafn og því óheimilt öðrum en þeim sem hafa rétt til nafnsins.
Kvenmannsnöfnin Ellín, Vár, Guja, Júlírós og Gúa uppfylla að mati
MNN ákvæði laga um mannanöfn og hafa verið samþykkt. Nöfnin
skulu því færð í mannanafnaskrá.
Kvenmannsnafninu Christín hefur aftur á móti verið hafnað þar
sem rithátturinn brýtur í bága við íslenskt málkerfi sökum þess að
bókstafurinn c er ekki í íslensku stafrófi.
Kjarrval sem
millinafni hafnað
STÖÐUG aukning hefur verið á
neyslu örvandi vímuefna í hópi
þeirra sem leitað hafa á Sjúkrahús-
ið Vog allt frá árinu 1999, að sögn
Valgerðar Rúnarsdóttur læknis
hjá SÁÁ. Neysla amfetamíns og
kókaíns hefur stigið ár frá ári og
þótt aðeins hafi dregið úr e-töflu-
neyslu frá 2004 til 2006 er stöðug
aukning á neyslu örvandi efna.
E-töflur teljast til örvandi vímu-
efna en lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hefur vísbendingar um að
framboð á þeim sé nú að aukast, að
sögn Karls Steinars Valssonar, yf-
irmanns fíkniefnadeildar lögregl-
unnar. Markhópur e-töflusala er
einkum 16-20 ára ungmenni.
Lögreglan hefur töluverðar
áhyggjur af svonefndum „sala-
partíum“. Þá leigja ungmenni,
markhópur e-töflusala, sali undir
fölsku yfirskini og halda svo eft-
irlitslaus samkvæmi.
„Við erum að fá yfir 700 manns á
ári sem fá greiningu með örvandi
vímuefni,“ sagði Valgerður. „Þessi
aukning í örvandi efnum er fyrst
og fremst í yngsta hópnum, undir
25 ára. Flestir sem nota e-töflur og
koma til okkar eru jafnframt að
nota önnur vímuefni. Þetta unga
fólk er í daglegri kannabisneyslu
og er svo að nota örvandi efni með.
Það getur verið amfetamín, kókaín
eða e-töflur.“
Valgerður sagði e-töflur vera
mjög hættulegt vímuefni, líka í til-
raunaneyslu. „Þetta er gríðarlega
mikið eitur fyrir heilann, hefur
skaðleg áhrif á minnið og annað
sem nauðsynlegt er til að hafa
toppstykkið í góðu lagi.“ | 4
„Gríðarlega mikið
eitur fyrir heilann“
Lögregla varar við vaxandi framboði e-taflna Aukn-
ing örvandi efna mest í yngsta hópnum, segir læknir
Í HNOTSKURN
»Vísbendingar lögregluum aukið framboð e-
taflna er gríðarlegt magn
sem fannst á Fáskrúðsfirði
og e-töflur sem lagt hefur
verið hald á undanfarna tvo
mánuði.
»E-töflur hafa leitt tildauða og hafa sann-
arlega eituráhrif á tauga-
kerfið, að sögn læknis.
Góða skemmtun!
>> 37
HJÖRLEIFUR Kvaran, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur, segir að
enginn annar einstaklingur en
Bjarni Ármannsson sé að kaupa
hlut í REI og að skilmálarnir sem
hann nýtur geti ekki átt við neinn
annan.
Aðspurður um kaup félags
starfsmanna OR á hlut í REI sagði
Hjörleifur að þau kaup væru ófrá-
gengin. Starfsmenn hafi heldur
ekki enn stofnað félag um hlutinn
sem þeir munu kaupa. Hjörleifur
sagði að þær aðstæður sem geti
orðið til þess að Bjarni verði leyst-
ur út úr félaginu geti ekki átt við
um starfsmannafélagið. Samning-
urinn við Bjarna kveður m.a. á um
að hann verði stjórnarformaður
REI næstu þrjú ár. Hjörleifur
sagði að ef OR ákveður að kjósa
ekki Bjarna sem stjórnarformann
þá geti hann krafist þess að verða
leystur út. „Starfsmannafélagið
getur aldrei verið í þeirri stöðu að
vera stjórnarformaður.“ | 6
Skilmálar
eru bundnir
við Bjarna
Morgunblaðið/RAX
Tekið á því Róbert Gunnarsson landsliðsmaður í handknattleik tók vel á því á æfingu liðsins í gær. Snorri Steinn Guðjónsson fylgdist grannt með.
Íslenska landsliðið leikur tvo vináttuleiki gegn Ungverjum um næstu helgi. HSÍ fagnar 50 ára afmæli sínu á þessu ári og vonast forsvarsmenn HSÍ
eftir því að stór hópur fyrrum landsliðsmanna og -kvenna verði á meðal heiðursgesta í leikjunum gegn Ungverjum í Laugardalshöll. | Íþróttir
Æfa stíft