Morgunblaðið - 24.10.2007, Page 14

Morgunblaðið - 24.10.2007, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... ● HLUTABRÉFIN í kauphöll OMX á Ís- landi hækkuðu flest hver í gær í verði, líkt og víðar á mörkuðum heims. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,48% og endaði í 8.209 stigum. Bréf Eik banka hins færeyska hækk- uðu mest, eða um 1,9%, bréf Lands- bankans um 1,14%, Össurar um tæpt 1%, Atorku um 0,9%, Existu um 0,76% og bréf Kaupþings fóru upp um 0,63%. Bréf 365 lækkuðu mest, eða um 1,56%, bréf Flögu Group um 1,4%, Marels um 0,5% og svipuð lækkun varð á bréfum Eimskips og Bakka- varar, eða um tæpt 0,5%. Bréfin í íslensku kauphöllinni upp ● EINHLIÐA upptaka evru hér á landi er tæknilega fram- kvæmanleg, en póli- tísk sjónarmið gætu hins vegar komið í veg fyrir hana, að mati Ásgeirs Jóns- sonar, forstöðumanns greining- ardeildar Kaupþings, en hann fjallaði um málið á fundi með frétta- mönnum í gær. Sagði hann að einhliða upptaka evru gerði kröfu um að íslenskar fjár- málastofnanir hefðu sama aðgang að lausafé á evrópska myntsvæðinu og því íslenska og verði að geta feng- ið fjármagn á evrópskum milli- bankamarkaði. Með aukinni útrás bankanna verði einhliða upptaka auðveldari og fýsilegri. Sagði hann hins vegar að óráðlegt væri að taka evruna upp við núver- andi aðstæður. Einhliða upptaka evru framkvæmanleg ● UMSVIF íslenskra fjármálafyr- irtækja á erlendum vettvangi hafa aukist um helming á tveimur ár- um, samkvæmt yfirliti frá Fjármála- eftirlitinu, FME. Hafa eftirlitinu borist tilkynningar um 56 starfs- einingar í 21 landi í dag en í lok árs 2005 voru starfsstöðvarnar 26 í 12 löndum. Fleiri erlendar starfs- stöðvar eru sagðar í burðarliðnum. Segir í yfirliti FME að samkvæmt hálfsársuppgjörum viðskiptabank- anna séu um 54% tekna þeirra af erlendum uppruna, samanborið við 45% í lok síðasta árs. Vegna auk- inna umsvifa fyrirtækjanna erlend- is hefur FME mótað sérstaka stefnu um starfsemi sína í al- þjóðlegu umhverfi, m.a.í eftirliti og útgáfu leyfa. Stóraukin umsvif bankanna erlendis ● BYR sparisjóður hefur gert hlut- höfum Verðbréfaþjónustu sparisjóð- anna, VSP, tilboð um kaup á rekstri félagsins og samþykkti hluthafa- fundur VSP að taka tilboðinu. Hefur VSP verið í eigu sparisjóðanna, að SPRON undanskildum. Kaupverðið er í tilkynningu til kauphallarinnar sagt trúnaðarmál. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppnis- og Fjármálaeftirlits og munu starfsmenn Byrs og VSP hafa samband við viðskiptavini VSP á næstunni. Að sögn Magnúsar Æg- is Magnússonar, sparisjóðsstjóra Byrs, munu starfsmenn VSP, um tíu talsins, halda störfum sínum. Mark- miðið með kaupunum sé að styrkja grunnstoðir Byrs og bæta verð- bréfaþjónustu við starfsemina. Hluthafar VSP sam- þykkja tilboð Byrs ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið Moody’s staðfesti í gær lánshæfis- einkunn Landsbankans. Fyrir fjár- hagslegan styrk fær bankinn ein- kunnina C og langtímaeinkunn bankans er Aa3. Horfur eru að mati fyrirtækisins stöðugar. Í skýrslu Moody’s segir að eink- unnin endurspegli styrka stöðu bankans á innlendum bankamarkaði og árangursríka stækkun bankans með ytri vexti utan landsteinanna. Aukin landfræðileg dreifing hafi dregið úr líkunum á áfalli vegna efnahagslegs misvægis í hinu ein- angraða íslenska hagkerfi. Þá ýti sterk arðsemi, gott eiginfjárhlutfall og góðar eignir undir fjárhagslegan styrk bankans. Í skýrslunni segir jafnframt að eigi einkunn bankans að hækka þurfi hann meðal annars að draga úr lánaáhættu sinni og áhættusækni og minnka hlutfall tekna sem gætu flökt. Einkunn Lands- bankans staðfest Morgunblaðið/Brynjar Gauti Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is KURR mun nú vera meðal starfs- manna Icebank en samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins var tilkynnt á starfsmannafundi í síðustu viku að almennum starfsmönnum byðist ekki að kaupa hlutabréf í bankanum fyrir skráningu hans á hlutabréfa- markað sem stefnt er á að fari fram á næsta ári. Að sögn heimilda Morg- unblaðsins var látið að því liggja þeg- ar framtíðarsýn bankans, og nýtt nafn hans, var kynnt í nóvember í fyrra að allir starfsmenn fengju for- kaupsrétt. Á starfsmannafundinum kom hins vegar fram að aðeins yf- irstjórnendur hans fengju að kaupa hlut auk tveggja eigenda Behrens fyrirtækjaráðgjafar sem Icebank keypti í síðustu viku. Finnur Sveinbjörnsson, banka- stjóri Icebank, staðfestir í samtali við Morgunblaðið að umræddur starfsmannafundur hafi farið fram en segir það rangt að starfsmönnum bankans hafi nokkurn tíma verið lof- að forkaupsrétti. „Það hefur verið sagt að starfsfólki muni gefast kost- ur á að kaupa í bankanum og ég veit ekki betur en við það verði staðið.“ Finnur segir að þær breytingar sem urðu á eignarhaldi bankans í síð- ustu viku, þegar Spron og Byr seldu hlut sinn í honum og aðrir sparisjóðir juku sinn hlut, auk þess sem stjórn- endateymi bankans, helstu eigendur Behrens og utanaðkomandi fjárfest- ar bættust við hlutahafahópinn, hafi verið fyrsta skrefið í átt að því að opna eignarhald bankans. Kurr innan Icebank  Starfsmenn fá ekki kauprétt fyrir skráningu hlutabréfa Finnur Sveinbjörnsson Kaupþing spáir skammvinnu og grunnu vaxtalækkunarferli TÖLUVERT mun hægja á hagkerfinu á þessu og næsta ári, þar sem nú hillir undir lok stóriðjufram- kvæmda og hægja tekur á einkaneyslu, að því er kemur fram í Hagspá Kaupþings fyrir árin 2007- 2010. Þó er gert ráð fyrir áframhaldandi hagvexti á næstu árum, drifnum af útflutningi og opinber- um framkvæmdum. Bankinn gerir ekki ráð fyrir því að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist fyrr en í upphafi árs 2010 og gerir hann ráð fyrir skammvinnu og grunnu vaxtalækkunarferli þar sem stýrivextir fari ekki undir 8,5%. Greiningardeild spáir um 5% verðbólgu á þessu ári og 3,9% á því næsta og að Seðlabankinn nái ekki markmiði sínu um 2,5% verðbólgu fyrr en 2010. Eins og staðan er nú virðist óvissan í spánni á næstu tveim árum vera mest upp á við – til vax- andi efnahagsumsvifa og meiri verðbólgu. Vinnu- markaður sé mjög þaninn, kjarasamningar lausir, töluvert af stórum byggingaframkvæmdum í píp- unum og mikið svigrúm til aukinna ríkisútgjalda. „Í það heila tekið benda spár okkar til þess að lítið svigrúm gefist til vaxtalækkana af hálfu Seðlabankans á næstunni,“ segir í Hagspánni. „Ef svo fer fram sem horfir hvað varðar aukningu rík- isútgjalda, nýja stóriðju og aukna atvinnuvega- fjárfestingu verður ekki séð annað en að stýrivext- ir Seðlabankans haldist áfram fremur háir út spátímabilið eða fram til 2010.“ Að mati Greiningardeildar Kaupþings mun Seðlabankinn, á vaxtaákvörðunarfundi bankans hinn 1. nóvember nk., tilkynna um frestun vaxta- lækkunarferlisins fram í maí. Í HNOTSKURN » Kaupþing spáir því að fram að áramót-um verði sveiflur miklar á hlutabréfa- markaði og að Úrvalsvísitalan endi í 8.500 stigum. son, forstjóri OMX, bauð félagið velkomið í kauphöllina, hið þrítug- asta á aðalmarkað OMX Nordic Exchange á þessu ári. Þórður sagði það fagnaðarefni að fá SPRON inn í kauphöllina, sparisjóðurinn bættist við kraft- mikla flóru fjármálafyrirtækja á ís- lenska markaðnum og ánægjulegt væri að sjá hvað fjármálafyrirtækin hefðu dafnað vel. Greiningardeildir bankanna telja bréf SPRON hátt verðlögð í sam- anburði við stóru viðskiptabank- ana, tekjusamsetning þeirra sé heil- brigðari og arðsemin hærri. VIÐSKIPTI með hlutabréf Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, í kauphöll OMX á Íslandi voru lífleg fyrsta skráningardaginn í gær, eða í 310 færslum. Fyrsta hálftímann námu viðskiptin hálfum milljarði króna og þegar deginum lauk höfðu þau numið um einum milljarði króna. Upphafsgengi bréfanna var 18,9 en endaði í 16,7. Miðað við það er markaðsvirði SPRON nú ríflega 83 milljarðar króna. Hlutafé er fimm milljarðar. Guðmundur Hauksson spari- sjóðsstjóri hringdi opnunarbjöllu markaðarins og Þórður Friðjóns- Verðmæti SPRON um 83 milljarðar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Opnun Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri hringir markaðsbjöllu kaup- hallarinnar og Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX, fagnar tímamótunum.            ! ""#                                                                                        ! "# $!$$%$ !%#$#"! %!!#!!## $% !#%!!% %  %% # ! "%"# $##"% !$"% !## %%#%" #%  %%### %  ## % !!## ###  %" "!%### & "&!# !!&#" %"&## %&" %&# % & # &## &%# $&# &!! #&"# %&" &  &## $"&## & %&## "&" ##&## %%&"#  & # !%#&## &%# &## !!&# %"&%# %&$# %&%" % &# %#&## &# $&" &# #"&"# %&" &  %!&## $&## &! %%&"# "&! #&"#  &# $&## !#&## %&## &" '()   $ % " "! $   "# "# " "      "   !#  *       %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %%#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## %!#%## #%## %!#%## #%## %%%## %!#%## #%## #%##       +  , -. /  ), -. 01 -. '2, -. ,   -. .03 .45  67 , -. 8   -. 2   5   -. 3 / 9 '(9. -. :3-. ; -.    ! "-. +. 7-. + 7< 3<=' 0 /  ', -. '> :/ 67 7, -. ?-. @A-(-. <BC@ : 3 )  -. D  )  -.     ! E :+3 3E  /, -. 3 ( -. C?F" C?F#     G G C?F$ %/F      G G * HI @       G G ' 0 *+F      G G C?F&" C?F#      G G MARKAÐIR tóku víðast hvar við sér í gær, eftir snarpa lækkun í kauphöllunum á mánudag. Ástæður voru m.a. jákvæð uppgjör stórra fyrirtækja á borð við Apple og AT&T, orðrómur um samruna bíla- fyrirtækja í Evrópu og möguleg kaup kínverska verðbréfafyrirtæk- isins Citic Securities í Bear Stearns. Hlutabréf í kauphöllum á Norð- urlöndunum hækkuðu að jafnaði um 2% og í Hong Kong hækkaði hlutabréfavísitalan um 3,5%, sem er mesta hækkun á einum degi í þrjár vikur. Lítilsháttar hækkun varð í Japan, London og Þýskalandi. Dow Jones-vísitalan í Bandaríkj- unum hækkaði um 0,8% og Nasdaq fór upp um 1,6%. Markaðir tóku við sér

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.