Morgunblaðið - 24.10.2007, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
NÁGRANNAR parhússins við Heiðaþing
2-4 í Kópavogi kærðu framkvæmdir til
skipulagsnefndar Kópavogsbæjar og úr-
skurðanefndar skipulags- og bygginga-
mála vegna breytinga á deiliskipulagi, en
málinu var vísað frá þar sem ekki hafði
verið greint frá því í Stjórnartíðindum.
Framkvæmdir hafa legið niðri vegna máls-
ins og hefjast á ný þegar það hefur verið
afgreitt í kerfinu.
Mistök í kerfinu
Geir Marelsson, lögmaður hjá Kópa-
vogsbæ, segir að gerð hafi verið óveruleg
breyting á deiliskipulagi þar sem heimilað
hafi verið að eigendur á Heiðaþingi 2-4
fengju að nýta sér rými í kjallara sem
íbúðarrými. Framkvæmdir hafi hafist en
láðst hafi að birta leyfðar breytingar í
Stjórnartíðindum sem skylt sé að gera
samkvæmt lögum.
Að sögn Geirs hófust framkvæmdir í vor
eftir að eigendum var veitt leyfi til að nýta
kjallararýmið. Engar útlitsbreytingar hafi
verið gerðar og samkvæmt gögnum máls-
ins verði ekki farið upp fyrir hæðarkvóta.
Verið sé að vinna að málinu en meðan á
afgreiðslu stendur liggi byggingafram-
kvæmdir niðri.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stöðvun Framkvæmdir hófust í vor en
þær hafa legið niðri vegna málsins.
Framkvæmd-
ir stöðvaðar
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ÍBÚAR við Vesturgötu telja að
borgaryfirvöld séu að brjóta lög
með gerð landfyllingar við Ána-
naust. Þeir krefjast ógildingar á
framkvæmdaleyfi og stöðvunar
framkvæmda.
Húsfélagið Vesturgötu 69-75 í
Reykjavík hefur í bréfi til skipu-
lagsráðs Reykjavíkurborgar og
úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingamála kært landfyllingu
við Ánanaust. „Við teljum að þetta
sé ólöglegt,“ segir Einar Árnason,
íbúi á svæðinu og nefndarmaður
vegna málsins, um landfyllinguna.
Hann segir að þáverandi borgar-
stjóra og allri borgarstjórn hafi
verið send bréf en aðeins hafi bor-
ist svar frá aðstoðarsviðstjóra
framkvæmdasviðs borgarinnar og
það ekki fyrr en ýtt hafi verið á að
fá svar. Í svarinu sé vísað til þess
að í framkvæmdaáætlun aðal-
skipulags sé gert ráð fyrir upp-
byggingu á blandaðri byggð á fyll-
ingum framundan Eiðsgranda og
Ánanaustum á árunum eftir 2012.
Með skírskotun til laga um mat á
umhverfisáhrifum sé fyrirhuguð
landfylling ekki háð slíku mati.
Einar segir að í skipulaginu
2001 vegna áranna eftir 2012 sé
talað um 35 hektara landfyllingu á
umræddu svæði, en borgin telji að
hún geti byrjað strax þar sem að-
eins sé um 3,5 hektara að ræða og
því þurfi ekki umhverfismat. Hins
vegar sé þetta hluti af stærri
framkvæmd sem eigi ekki að fara
í fyrr en 2012. Í aðalskipulaginu
komi skýrt fram að „við gerð
heildarskipulags af landfyllingu
verður stærð hennar og afmörkun
endurskoðuð í samráði við íbúa á
nærliggjandi svæði og Seltjarnar-
neskaupstað. Áður en fram-
kvæmdir hefjast við gerð landfyll-
ingar mun fara fram mat á
umhverfisáhrifum framkvæmdar-
innar“.
„Við teljum að landfyllingin sé
hluti af þessari framkvæmd og
þar af leiðandi þurfi hún að fara í
mat á umhverfisáhrifum og
grenndarkynningu eins og talað
sé um,“ segir Gísli. Hann bætir
við að fyrirspurn hafi verið send
til Skipulagsstofnunar þess efnis
hvort eitthvað væri að frétta af
málinu frá því erindið hafi verið
sent í lok september. Svar hafi
ekki borist. Í gærmorgun hafi ver-
ið rætt við úrskurðarnefndina og
fram hafi komið að erindið hafi
verið sent til borgaryfirvalda eins
og vera beri þegar krafist sé
stöðvunar framkvæmda. Veittur
hafi verið frestur til að svara og
fresturinn sé liðinn en ekki hafi
enn borist svar.
Einar segir að verið sé að skoða
hvort ekki sé rétt að krefjast end-
urupptöku málsins á grundvelli
24. gr. stjórnsýslulaga þar sem af-
greiðsla bæði skipulagsráðs og
borgarráðs virðist hafa verið
byggð á ófullnægjandi eða röng-
um upplýsingum um málsatvik.
Segja borgaryfirvöld brjóta lög
Íbúar við Vesturgötu mótmæla harðlega landfyllingu út frá Ánanaustum
Mótmæli Íbúar við Vesturgötu 69-75 segja að landfylling við Ánanaust standist ekki lög og mótmæla henni.
Í HNOTSKURN
» Borgarráð samþykkti12. júlí 2007 ósk fram-
kvæmdasviðs um fram-
kvæmdaleyfi til landfyll-
ingar út frá Ánanaustum
með efni sem kemur úr
grunni bílastæðahúss á svæði
við Geirsgötu.
» Fyllingin getur orðið alltað þrír hektarar og fram-
kvæmdaleyfið var samþykkt
á grunni gildandi að-
alskipulags, samkvæmt bók-
un fulltrúa meirihlutans.
FYRSTA skóflustungan að 900 fer-
metra verslunar- og verkstæðishúsi
Vélavers hf. á Lækjarvöllum 1 í
Hörgárbyggð var tekin um síðustu
helgi. Byggingin mun rísa á næstu
mánuðum að því er fram kemur á
heimasíðu sveitarfélagsins.
Það var Pétur Guðmundarson,
stjórnarformaður fyrirtækisins,
sem tók fyrstu skóflustunguna með
stórri gröfu. Í máli Magnúsar Ing-
þórssonar framkvæmdastjóra kom
fram að húsið yrði tekið í notkun í
vor.
Fjölmenni var viðstatt athöfnina
enda um töluverð tíðindi í sveitarfé-
laginu að ræða. Nokkrum atvinnu-
lóðum til viðbótar hefur verið út-
hlutað á svæðinu og gert er ráð
fyrir að strax á næsta ári muni rísa
fleiri byggingar við þá sem Vélaver
hyggst reisa. Helgi B. Steinsson,
oddviti Hörgárbyggðar, var meðal
þeirra sem tóku nokkrar skóflu-
stungur í viðbót við þær sem Pétur
tók, segir á heimasíðunni.
Framkvæmdir
hafnar við lóðir
í Hörgárbyggð
AKUREYRI
FYRIRLESTRARÖÐIN um glæpa-
sögur heldur áfram í Amts-
bókasafninu í dag kl. 17.15. Yf-
irskriftin á þessum þriðja
fyrirlestri Kristínar Árnadóttur um
glæpasögur mun vera: Lög-
reglusagan. Þeir höfundar sem
m.a. verða teknir fyrir eru: Drag-
net, Lawrence V. Treat, Hillary
Waugh, Ed McBain, Sjöwall og
Wahlöö, Henning Mankell, Anne
Holt, Jo Nesbø, Ian Rankin, P.D.
James, Colin Dexter, Ruth Rendell,
Michael Connelly, Andrea Camill-
eri og Boris Akúnin.
Kristín fjallar um
lögreglusögur í
Amtsbókasafninu ANNA Gunnarsdóttir, textílhönn-
uður á Akureyri, er einn 30 er-
lendra listamanna sem valdir voru
úr 500 manna hópi alls staðar að úr
heiminum til að taka þátt í stærstu
skúlptúrasýningu í heimi sem hald-
in er á Bondi-ströndinni í Sydney í
Ástralíu í þessari viku.
Samhliða úti-sýningunni er hald-
in sýningin Sculpture Inside og þar
á Anna þrjú verk sem valin voru inn
á þá sýningu. Öll verkin eru unnin
úr þæfðri íslenskri ull og formuð og
hert eins og kuðungar í laginu.
Anna notar gull og silfurvíravirki í
verkin sem tengingu við íslenska
þjóðbúninginn.
Á meðan Anna dvelur í Ástralíu
verður hún einnig með fyrirlestur
og námskeið fyrir krakka í þæfingu
á íslenskri ull.
Anna rekur vinnustofuna og gall-
eríið Svartfugl og hvítspóa ásamt
Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur graf-
íklistamanni í Brekkugötu 3 á Ak-
ureyri.
Anna er menntaður sjúkraliði og
vann sem slíkur á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri í nokkur ár. Hún
fór svo á hönnunar- og textílbraut
Verkmenntaskólans á Akureyri og
í kjölfarið bætti hún við sig ári í
Danmörku þar sem hún sérmennt-
aði sig í ullarþæfingu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Heiður Anna Gunnarsdóttir, textílhönnuður á Akureyri, er nú í Ástralíu
þar sem hún sýnir verk sín á stærstu skúlptúrasýningu sem haldin er í
Anna einn 30 er-
lendra listamanna
á sýningu í Ástralíu
Á FUNDI formanna aðildarfélaga
Fimleikasambandsins (FSÍ) með
stjórn og framkvæmdastjóra um
síðustu helgi var bókuð ósk for-
ráðamanna Fimleikafélags Akur-
eyrar um að Íslandsmótið í áhalda-
fimleikum færi fram í nýju
fimleikahúsi við Giljaskóla á Ak-
ureyri árið 2010 og var hugmynd-
inni vel tekið.
Í frétt á heimasíðu Fimleika-
félagsins segir að formleg beiðni
um að halda Íslandsmótið verði
tekin fyrir á stjórnarfundi FSÍ
fljótlega. „Það verður þá í fyrsta
skiptið sem Íslandsmót í áhalda-
fimleikum fer fram annarstaðar en
á höfuðborgarsvæðinu.“
Greint er frá því að á Landsmóti
ungmennafélaganna sem haldið
verður á Akureyri í júlí 2009 verði
keppt í hópfimleikum. „Það er því
afar mikilvægt að bæjaryfirvöld
fari að spýta í lófana og hefja upp-
byggingu fimleikahúss hið allra
fyrsta, svo að samhliða landsmóti í
frjálsum bjóðum við upp á fyrsta
flokks aðstöðu fyrir keppni í hóp-
fimleikum. Það verður ekki nóg að
státa einvörðungu af flottum
frjálsíþróttavelli fyrir Landsmótið,
við Akureyringar verðum að gera
þetta „grand“ á öllum sviðum eins
og okkur er í lófa lagið að gera,
það er löngu tímabært að rífa okk-
ur upp og hætta að bera okkur
saman við höfuðborgina og svæðið
þar í kring. Við einfaldlega gerum
hlutina betur hér, og erum stolt af
því. Á Landsmótinu gefst þá einn-
ig tækifæri á að prufukeyra hús-
næðið fyrir Íslandsmótið í áhalda-
fimleikum sem fara mun fram hér
á Akureyri í mars árið 2010,“ segir
í fréttinni á heimasíðu Fimleika-
félags Akureyrar.
Segja mikilvægt að
hraða fimleikahúsi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fimleikar Giljaskóli í Glerárhverfi;
fimleikahúsið á að rísa þar.
MIKIL aðsókn hefur verið að sýn-
ingum Leikfélags Akureyrar síðustu
misseri. Nýverið kom fimm þúsund-
asti gesturinn á leikritið Óvita, eins
og greint var frá hér í blaðinu en
þegar hafa verið seldir níu þúsund
miðar á sýninguna. Ekkert lát virðist
á velgengni LA því strax er orðið
uppselt á fyrstu 16 sýningarnar á
Ökutímum, en það leikrit verður
frumsýnt 2. nóvember næstkomandi.
Höfundur Ökutíma er Paula Vogel
og með helstu hlutverk fara Þröstur
Leó Gunnarsson, Kristín Þóra Har-
aldsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson,
Hallgrímur Ólafsson og Þrúður Vil-
hjálmsdóttir.
Tónlistarkonan Lay Low hefur
samið tónlist fyrir verkið og flytur
sjálf í sýningunni.
Ökutímar þegar vinsælir