Morgunblaðið - 24.10.2007, Blaðsíða 36
Aldrei grunaði mig
að fyrsta plata
Sprengjuhallarinnar
yrði svona góð … 39
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ gerðum þetta bara sjálfar, við vorum ekki
með neinn plötusamning eða neitt þannig,“ segir
Rakel Magnúsdóttir sem ásamt systur sinni, Hildi
Magnúsdóttur, skipar Hara-dúettinn frá Hvera-
gerði. Þær systur sendu nýverið frá sér sína
fyrstu plötu, en eins og margir eflaust muna slógu
þær í gegn í X-factor keppninni síðastliðinn vetur.
Þrátt fyrir að hafa hafnað í öðru sæti í keppninni
ákváðu þær systur strax að gefa út plötu. „Við
höfum nefnilega mikið verið að syngja og
skemmta og okkur fannst ofsalega leiðinlegt að
eiga ekkert efni sjálfar, heldur vera alltaf að
herma eftir öðrum. Okkur fannst að ef við ætl-
uðum að gera þetta af einhverri alvöru ættum við
að reyna að koma með efni frá okkur sjálfum.“
Aðspurð segir Rakel fremur einfalda skýringu
á nafni nýju plötunnar, Bara. „Þegar við erum
kynntar er oft sagt „þetta er bara Hara“, og okk-
ur fannst það passa, stutt og laggott og svolítið í
stíl við plötuna,“ segir hún, en nafnið Hara er hins
vegar samsett úr nafni þeirra systra. „Hildur
hugsaði þetta þannig að þegar við verðum komnar
á erlendan markað mun nafnið passa við Hildur
and Rachel,“ segir hún og hlær. „Svo eru margir
búnir að gera grín að því að þetta tengist Hvera-
gerði, sem heiti núna Haragerði.“
Ádeila og grín
Rakel segir mjög fjölbreytta tónlist að finna á
nýju plötunni. „Þetta er allt frá því að vera diskó
yfir í popp, rokk og meira að segja smávegis
kántrí. Þetta er bara bland í poka,“ segir hún, en
meðal þeirra sem fengnir voru til að semja lög og
texta eru Eiríkur Hauksson, Jónsi í Svörtum föt-
um og Gummi Jóns Sálverji, auk þess sem Rakel
og Hildur eiga eitt lag sjálfar. Þá vekur athygli að
Bergur Ebbi Benediktsson úr Sprengjuhöllinni
semur texta við lag Vignis Snæs Vigfússonar, og
er ekki laust við svolitla þjóðfélagsádeilu í þeim
texta. „Það er texti sem sker sig mjög mikið frá
öllum hinum textunum. Okkur finnst hann
skemmtilegur og við gátum hlegið að honum, en
fólk hefur strax komið og spurt hvað við séum að
spá því þetta sé svo mikil ádeila á þennan og hinn.
En við erum ekkert að gera grín að neinum nema
sjálfum okkur. Það er skrítið hvernig allt er orðið
á Íslandi, og ef við megum ekki syngja um þetta,
af hverju má Sprengjuhöllin gera það?“
Rakel segir að flestir ættu að geta haft gaman
af nýju plötunni. „Við erum rétt að byrja og bara
að prófa okkur áfram. Ég held að þetta sé
skemmtilegt prufuverkefni, en við eigum eftir að
komast að því hvað virkar best og hvað fólk vill
heyra þegar við förum að fylgja plötunni eftir.“
Þess má loks geta að Hara-systur verða með út-
gáfupartí í kjallara Skífunnar við Laugaveg
fimmtudaginn 1. nóvember.
„Þetta er bara Hara“
Morgunblaðið/Frikki
Hara Rakel og Hildur sendu nýverið frá sér sína fyrstu plötu sem inniheldur tónlist sem er allt frá því að vera diskó yfir í popp, rokk og smávegis kántrí.
Hara-systur hafa sent frá sér sína fyrstu plötu sem heitir einfaldlega Bara
Feigelson sendi útsendara sinn á
tónleika Védísar á Airwaves á laug-
ardaginn, og í kjölfarið var skrifað
undir samninginn.
„Þetta er hænuskref, maður er
ekkert að komast alls staðar inn.
En það er heilmikil hjálp í þessu því
nú þarf ég kannski ekki að vera
eins og ég hef verið að undanförnu,
á útopnu að senda tölvupósta og
reyna að kynna þetta eitthvað.
Þannig að þetta er hið besta mál.“
A Beautiful Life – Recovery Proj-
ect er væntanleg í verslanir hér á
landi innan tveggja vikna, en platan
er nú þegar fáanleg á tonlist.is og
grapewire.is.
Beautiful Life – Recovery Project,
kemur út á iTunes um allan heim 4.
desember næstkomandi. „Ég gæti
alveg skráð mig á iTunes og komist
þannig inn í gagnabankann. Ég veit
um íslenska tónlistarmenn sem
hafa gert það. En það er ekki þar
með sagt að maður sé sýnilegur, og
að fólk viti af manni. Það er það
sem AWAL ýtir undir,“ útskýrir
Védís, en um er að ræða svipaðan
samning og hljómsveitin Bloodgro-
up gerði fyrir skömmu.
Á fimmtudaginn var hitti Védís
Denzyl Feigelson, forsvarsmann
AWAL, og gaf honum eintak af A
Beautiful Life – Recovery Project.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„AÐ því er ég best veit er þetta
mjög sniðugt fyrirtæki sem heldur
utan um listamenn og kemur þeim
áleiðis í gegnum iTunes og fleiri
netveitur,“ segir Védís Hervör
Árnadóttir söngkona sem komst
nýverið á samning hjá fyrirtækinu
AWAL, Artists Without A Lebel.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að koma
sjálfstæðum tónlistarmönnum á
framfæri í gegnum iTunes og aðrar
netveitur með tilheyrandi kynning-
arherferðum. Þetta þýðir meðal
annars að nýjasta plata Védísar, A
Védís á forsíðu iTunes
Díva Ný plata Védísar verður til sölu á iTunes frá og með 4. desember.
Skrifaði undir samning við Artists Without A Lebel
Það er nóg um að vera hjá kemp-
unni Einari Bárðarsyni um þessar
mundir, ekki er nóg með að hann sé
fluttur til London heldur var op-
inberunarbók hans, Öll trixin í bók-
inni, að fara í prentun. Auk þess
kemur fyrsta plata strákabandsins
Lúxor út í næstu viku og von er á
safnplötu með Nylon. Á henni verð-
ur að finna fjórtán vinsælustu lög
stúlknanna í gegnum tíðina og tvö
splunkuný.
Safnplata með Nylon
Á meðan er-
lendir blaða-
menn, tónlist-
arfíklar og
upprennandi al-
heimsrokks-
tjörnur þeyttust
um króka og
kima miðbæjarins í leit að rokki og
meira rokki var David Andrew Si-
tek, gítar- og hljómborðsleikari TV
on the Radio, staddur á hálendi Ís-
lands við eilítið hljóðlátara hugð-
arefni. Sitek, sem hefur um langt
skeið stundað ljósmyndun, kom sér-
staklega hingað til lands til að
mynda náttúru Íslands.
Gítarleikari valdi há-
lendið fram yfir rokk
Vegna mikillar eftirspurnar hef-
ur fjórum aukasýningum á leik-
verkinu Pabbanum nú verið bætt
við í Íslensku óperunni. Verkið hef-
ur verið sýnt um allt land að und-
anförnu og hefur verið uppselt á
síðustu 22 sýningar, auk þess sem
uppselt er á næstu sex sýningar í
Óperunni, að því er fram kemur á
pabbinn.is. Aukasýningarnar verða
7. og 8. nóvember og 7. og 8. desem-
ber. Allar nánari upplýsingar má
finna á pabbinn.is.
Uppselt á 28 sýningar
Pabbans um allt land