Morgunblaðið - 24.10.2007, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
LÖGREGLUFORINGINN Alan Banks er
einkar geðfelld söguhetja sem sannast best á
velgengni bókaraðarinnar sem segir frá æv-
intýrum hans í Jórvíkurskíri. Friend of the
Devil er sautjánda bókin
í þeim flokki, en sú
fyrsta, Gallows View,
kom út fyrir tveimur ára-
tugum.
Alan Banks er lög-
regluforingi í smábænum
Eastvale, Austurdal, og
hefur búið þar allt frá því
hann gafst upp á lífinu
sem lögreglumaður í
Lundúnum. Í fyrstu bókinni er hann fjöl-
skyldumaður, en hjónabandið fer í hundana
á endanum og eftir það á hann í ástarsam-
bandi við ýmsar konur sem endast mislengi,
sum í nokkrar bækur en önnur bara eina.
Með tímanum hefur Banks orðið innhverf-
ari og alvarlegri og um leið forvitnilegri. Það
getur verið erfitt að halda persónu á lífi svo
lengi, en Robinson tekst það bærilega.
Í Friend of the Devil koma við sögu nokkr-
ar persónur sem áður hafa sést í bókum um
Banks, en ekki er þó rétt að líta á hana sem
beint framhald; bækurnar eru allar sjálf-
stæðar á sinn hátt.
Bókin hefst þar sem kona í hjólastól er
myrt og Annie Cabbot, lögreglufulltrúi og
fyrrverandi samstarfskona Banks, er kölluð
til. Hún kemst snemma að því að fórn-
arlambið átti sér heldur ókræsilega fortíð
sem flækir málið til muna. Um líkt leyti er
svo unglingsstúlku nauðgað og hún myrt í
Eastvale þar sem Banks fer með rannsókn-
ina.
Fléttan er í fínu lagi í bókinni, skemmti-
lega snúin, en fullfyrirsjáanleg í lokin. Hugs-
anlega er maður farinn að þekkja Banks of
vel, eða réttara sagt stílbrögð Robinsons, en
þetta er fínn krimmi.
Dráp í
Austurdal
Friend of the Devil eftir Peter Robinson. Hodder
& Stoughton gefur út 2007. 424 síðna kilja.
Árni Matthíasson
BÆKUR» METSÖLULISTAR»
1. World Without End – Ken Fol-
lett
2. Playing for Pizza – John Gris-
ham
3. The Choice – Nicholas Sparks
4. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
5. Dark of the Moon – John Sand-
ford
6. You’ve Been Warned – James
Patterson & Howard Roughan
7. Bridge of Sighs – Richard Russo
8. Run – Ann Patchett.
9. Shoot Him If He Runs – Stuart
Woods
10. The Orc King – R. A. Salvatore
New York Times
1. The Gathering – Anne Enright
2. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
3. The Ghost – Robert Harris
4. On Chesil Beach – Ian McEwan
5. World without End – Ken
Follett
6. The Kite Runner – Khaled
Hosseini
7. The Mission Song – John Le
Carre
8. One Good Turn – Kate Atkinson
9. A Spot of Bother – Mark
Haddon
10. The Uncommon Reader – Alan
Bennett
Waterstone’s
1. A Thousand Splendid Suns –
Khaled Hosseini
2. Wintersmith – Terry Pratchett
3. Cross – James Patterson
4. Killer Dreams – Iris Johansen
5. Sword of God – Chris Kuzneski
6. Is This Supposed to Be Funny? –
Hugleikur Dagsson
7. The Secret – Rhonda Byrne
8. Play Dirty – Sandra Brown
9. Like the Flowing River – Paulo
Coelho
10. Stardust – Neil Gaiman
Eymundsson
Eftir Höskuld Ólafsson
hoskuldur@mbl.is
SAMKVÆMT Gegni (samskrá íslenskra bóka-
safna) hefur aðeins ein skáldsaga eftir perúska rit-
höfundinn Mario Vargas Llosa verið þýdd á ís-
lensku. Það hlýtur að þykja undarlegt í ljósi þess að
Llosa hefur um langt skeið verið
höfuðskáld Perú og skipar sér
nú á bekk með Marques, Bor-
ges, Rivera og Paz sem einn
merkasti rithöfundur Róm-
önsku-Ameríku. En þó nafn
Llosa hljómi kunnuglega í eyr-
um margra sem fylgjast með
bókmenntum (þá líklega í sam-
hengi við glóðaraugu sem Llosa
veitti Gabriel Garcia Marques
um árið) eru þeir eflaust færri
hér á landi sem hafa lesið í einni
af 16 skáldsögum rithöfundarins sem einnig þykir
afar flinkur ritgerðasmiður, blaðamaður og list-
gagnrýnandi.
Samfélagsrýnir
Í bókinni Making Waves sem kom út árið 1996 er
að finna safn greina, fyrirlestra og ritgerða sem
Llosa hefur skrifað á sínum ferli og veitir bókin
nokkuð góða sýn inn í þau margvíslegu málefni sem
Llosa hefur tekið á í skáldverkum sínum. Sem
dæmi má nefna innblásna lýsingu á knattleikni
Maradona sem Llosa fylgdist með af aðdáun á HM
á Spáni árið 1982, grein um óumflýjanlega spillingu
kúbversku byltingarinnar, frásögn af heimsókn til
spænska kvikmyndagerðarmannsins og súrreal-
istans Luis Bunuel, greiningu á bandarísku sam-
félagi með tilliti til John Wayne Bobbitt málsins og
hrikalega frásögn af morði á sjö perúskum blaða-
mönnum sem voru teknir í misgripum fyrir liðs-
menn Sendero Luminoso – herskárra samtaka ma-
óista sem héldu stórum hluta Perú í
skelfingargreipum í rúman áratug, undir lok síð-
ustu aldar.
Bókmenntarýnir
Fyrir áhugmenn um bókmenntir er þó fróðlegast
að lesa greiningu Llosa á nokkrum helstu rithöf-
undum vestrænna bókmennta sem hann varpar oftar
en ekki nýju ljósi á. Eina grein frá 1988 er til að
mynda að finna um nýjasta Nóbelsverðlaunahafann
Doris Lessing og skáldverkið The Golden Notebook
sem Llosa segir að svipi nokkuð til skáldsögu Simone
de Beauvoir Les Mandarins en sé þó mun betur skrif-
uð og djúpviturri í skilningi sínum á árunum eftir síð-
ari heimsstyrjöld. Í annarri ritgerð tekst Llosa á við
smásagnasafn James Joyce, Dubliners og fullyrðir
þvert á hefðbundna skoðun manna að „The Dead“ sé
ekki besta saga bókarinnar. Á öðrum stað finnur
hann hliðstæðu á milli samfélags perúskra frum-
byggja og samfélags Yoknapatawpha-sýslu í skáld-
verkum Williams Faulkner og enn annars staðar er
að finna stórskemmtileg bréf til rithöfundanna Salm-
ans Rushdie og Gunthers Grass.
Alls 46 greinar og ritgerðir á hátt í 400 blaðsíðum
sem synd væri að fara á mis við þrátt fyrir lítinn
áhuga íslenskra þýðenda á höfundinum.
Forvitnilegar bækur: Making Waves
Llosa hittir aftur í mark
Goð „Maradona varð að goðsögn vegna hæfileika
hans á vellinum en ekki síður vegna þess að nafn
hans og útlit er einstakt,“ segir Mario Vargas Llosa.
Mario Vargas
Llosa
dpa
SÍ
ÐU
ST
U
SÝ
N.
Verð aðeins300 kr.
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
DÓMSDAGUR
DJÖFULSINS!
FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR
EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS!
eee
Dóri DNA - DV
Frá gaurnum sem færði okkur The
40 Year Old Virgin og Knocked Up
Brjálæðislega fyndin mynd!!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR
ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
3 MEISTARAVERK FRUMSÝND
eeee
- Anna Sveinbjarnardóttir,
Morgunblaðiðð
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson,
Morgunblaðið
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
Bölvun eða blessun ?
Sofðu einu sinni hjá Chuck
og næsti maður sem þú
hittir er ást lífs þíns. KVIKMYND EFTIR ALEXANDR SOKUROV
KVIKMYND EFTIR FATIH AKIN
Toppmyndin á Íslandi í dag!
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU...
VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING ABOUT MARY"
Las Vegas er horfin...
Jörðin er næst!
Þriðji hlutinn í framtíðartryllinum
með Millu Jovovich í toppformi!
Fór beint á toppinn í USA!
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Resident Evil kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 3:45
The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr.
Heartbreak Kid kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 6 - 8 B.i. 14 ára
The Kingdom kl. 6 - 10 B.i. 16 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Resident Evil kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
4 Months Enskur texti kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
The Edge of Heaven Enskur texti kl. 5:40 - 8 B.i. 12 ára
Alexandra Enskur texti kl. 6 B.i. 14 ára
Halloween kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Shoot´em Up kl. 10:20 B.i. 14 ára
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
- Dóri DNA, DV- T.S.K., Blaðið - H.J., MBL
- J.I.S., FILM.IS- LIB, Topp5.is
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ ÓVIN SEM
ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ DEYJA?
eee
- T.S.K., Blaðið
Hasar og adrenalín flæði
frá upphafi til enda
Ver
ð aðeins
600 kr.
TOPPMYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG