Morgunblaðið - 24.10.2007, Side 40
Tónlistarhátíðin Airwaves, semstóð frá 17. til 21. október sl.,hefur að nokkru á sér blæ
kaupstefnu, enda var til hennar
stofnað með það í hyggju að auka
viðskipti; Flugleiðir vildu skapa há-
tíð sem draga myndi hingað ferða-
menn á annars daufum tíma. Það
féll svo vel að þeirri hugmynd að lið-
sinna íslenskum tónlistarmönnum í
leiðinni; vænlegra þótti að fá hingað
blaðamenn og útsendara plötufyrir-
tækja en senda út hljómsveitir að
spila. Hvort tveggja hefur gengið
eftir og vel það; Airwaves hefur
vaxið svo fiskur um hrygg að hátíð-
in skilar kaupsýslumönnum millj-
ónum og hljómsveitum athygli.
Því hefur verið haldið fram aðAirwaves sé 3-500 milljóna
króna innspýting í miðbæ Reykja-
víkur ár hvert, enda talið að hingað
komi allt að 600 manns að utan til að
fylgjast með og grúi manna kemur í
miðbæinn til að njóta þess sem þar
er í boði.
Spurningunni um hvað tónlist-armennirnir fá fyrir sinn snúð
er erfiðara að svara, enda spila
flestir eða allir íslensku listamenn-
irnir ókeypis á hátíðinni. Víst má
nefna dæmi um hljómsveitir sem
fengið hafa útgáfusamning í kjölfar
Airwaves eða svo mikla fjölmiðlaat-
hygli að fleytt hefur þeim áfram, en
erfitt að meta hversu stóran þátt
Airwaves átti í þeim samningum.
Ég held það velkist þó enginn ívafa um að Airwaves hafi ver-
ið íslensku tónlistarlífi lyftistöng og
aukið grósku, fagmennsku og metn-
að íslenskra hljómsveita. Það er
ómetanlegt að hafa svo veigamikinn
viðburð til að stefna að og ótal dæmi
voru um hljómsveitir sem blómstr-
uðu einmitt á Airwaves að þessu
sinni eftir stífar æfingar og undir-
búning.
Þó vel hafi tekist til að þessu sinniog enn betur en á síðasta ári
þarf hátíð eins og Airwaves samt að
vera í sífelldri endurskoðun og stöð-
ugri þróun. Menn hafa náð því
markmiði að auka hag Icelandair á
haustin og eins að ýta undir frekari
metnað og dug íslenskra tónlistar-
manna.
Uppselt hefur verið á Aiwavesundanfarin þrjú ár og spurn-
ing hvort það gefi ekki svigrúm til
að bæta hana enn frekar hvað varð-
ar aðkomu íslenskra listamanna að
henni. Er ekki lag að styrkja enn
faglegan þátt hátíðarinnar, að að-
stoða þær hljómsveitir sem þátt
taka í hátíðinni við að ná eyrum
málsmetandi manna í útgáfuheim-
inum og eins að ná meiri umfjöllun í
erlendum fjölmiðlum?
Af Airwaves 2007 er annars þaðað segja að meira var um atriði
utan dagskrár en áður, sem veit
vonandi á gott, og þeir sem nennu
höfðu til gátu séð býsna mörg af for-
vitnilegustu atriðum hátíðarinnar á
tónleikum víða um bæ, í 12 Tónum,
Máli og menningu, Poppi, Rokki &
rósum og Smekkleysu, Skífunni á
Laugavegi og í Norræna húsinu.
Meira að segja var hægt að hefja
daginn með rokki og beikoni á Prik-
inu, ef sá gállinn var á mönnum, og
víst að það er ógleymanlegt að
hlusta á Rass á Prikinu kl. 10 á
föstudagsmorgni.
Dagskráin í Norræna húsinu varmetnaðarfull og margt
skemmtilegt að sjá og heyra. Þar er
líka svigrúm til að vera með fag-
legri dagskrá á næstu hátíð, hugs-
anlega fyrirlestra eða tilheyrandi.
Ekki sá ég margar af erlendusveitunum, en þó nóg til að sjá
að !!! er almögnuð tónleikasveit,
Plants & Animals frábærlega for-
vitnileg og Buck 65 ævintýralega
góður, en hann sá ég tvisvar og
Plants & Animals reyndar þrisvar.
Af þeim tæplega sextíu íslenskuhljómsveitum sem ég sá spila
vöktu mesta athygli mína Hjaltalín,
sem blómstraði í Listasafninu, We
Made God, sem var ótrúlega kraft-
mikil á Gauknum, Skakkamanage,
sem átti tvöfaldan stjörnuleik á
Nasa, FM Belfast, sem ég sá fjórum
sinnum spila þessa Airwaves-daga,
Mugison, sem Sammi lýsti svo:
„þetta var eins og að vera nauðgað
af nashyrningi“, hin fjölmenna og
fjölhæfa Retro Stefson, múm, sem
átti frábæran leik í Listasafninu, og
svo Dr. Spock, sem sýndi að öfgar
göfga – viðlíka geggjun hefur ekki
sést á sviði.
Aðrar íslenskar hljómsveitir semstóðu sig afburðavel: Perla,
For a Minor Reflection, Soundspell,
Benni Hemm Hemm, Bloodgroup,
Ghostigital, Kimono, Jónas Sigurðs-
son, My Summer as a Salvation Sol-
dier, Ólöf Arnalds, Sprengjuhöllin
og æringjarnir í 1985!
Ómetanleg tónlistarhátíð
AF LISTUM
Árni Matthíasson
»Uppselt hefur verið áAirwaves undanfarin
þrjú ár og spurning
hvort það gefi ekki svig-
rúm til að bæta hana enn
frekar hvað varðar að-
komu íslenskra lista-
manna að henni.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Mögnuð We Made God rokkaði á Gauknum og vakti athygli pistlahöfunds sem þótti hún með betri íslenskum böndum á hátíðinni.
Fjölhæf Retro Stefson spilaði oft og víða á Airwaves 2007.
40 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ ÁLFABAKKA
HEARTBREAK KID kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
HEARTBREAK KID kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára DIGITAL
STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10.ára
NO RESERVATIONS kl. 8 LEYFÐ
SUPERBAD kl. 10:30 B.i.12.ára
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:30 B.i.12.ára
BRATZ kl. 5:30 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 5:30 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ
- J.I.S., FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU...
VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING ABOUT MARY"
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK