Morgunblaðið - 24.10.2007, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 297. DAGUR ÁRSINS 2007
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Afstaðan til innflutnings
mjólkurkúa óbreytt
Einar K. Guðfinnsson landbún-
aðarráðherra segir að afstaða
stjórnvalda til hugsanlegs innflutn-
ings mjólkurkúa af erlendu kyni hafi
ekki breyst og telur þörf á meiri um-
ræðu um málið áður en ákvörðun
verði tekin. „Það hefur engin kú-
vending orðið.“ » 2
Geir á fund páfa
Geir H. Haarde forsætisráðherra
heldur í opinbera heimsókn til Ítalíu
á morgun. Hann hyggst meðal ann-
ars ganga á fund Benedikts XVI.
páfa og ræða við Romano Prodi, for-
sætisráðherra Ítalíu. » 2
Hálf milljón á flótta
Um 1.300 hús hafa orðið skógar-
eldum að bráð í sunnanverðri Kali-
forníu og talið er að 56.000 önnur
hús séu í hættu. Að minnsta kosti
hálfri milljón manna hefur verið sagt
að forða sér að heiman vegna eld-
anna í San Diego-sýslu einni. » 16
SKOÐANIR»
Ljósv: Ávaxtadr. og tómat. frá BBC
Staks: Að eiga samleið – eða ekki-
Forystugreinar: Breiðavík okkar
tíma? | Valdatafl í Peking
UMRÆÐAN»
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Eflum siðferði og manndóm
Á degi Sameinuðu þjóðanna
Áhætta í jarðhitaútrásinni
Léttum byrðarnar
4
4
4 4
4 4
4 4 5 ! &6%(
/
%,
&
7
%%'%
"/ %
4
4 4 4
4
4 4 4 4 . 8
2 (
4 4
4 4 4 4 4 4 9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8%8=EA<
A:=(8%8=EA<
(FA(8%8=EA<
(3>((A'%G=<A8>
H<B<A(8?%H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 9 °C | Kaldast 3 °C
Suðvestan 13-18 m/s
og rigning eða súld
sunnan og vestanlands
en þykknar upp norð-
austan til. » 10
Í Making Waves er
að finna safn greina,
fyrirlestra og rit-
gerða eftir perúska
rithöfundinn Mario
Vargas Llosa. » 38
BÓKMENNTIR»
Samansafn
eftir Llosa
FÓLK »
Leonardo DiCaprio er
laus og liðugur. » 41
Védís Hervör er á
forsíðu iTunes og
komst á samning hjá
fyrirtækinu AWAL,
Artists Without A
Label. » 36
TÓNLIST»
Védís gerir
það gott
AF LISTUM»
Árni Matthíasson gerir
upp Airwaves. » 40
TÓNLIST»
Hara-systur gera það
bara sjálfar. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Drukknuðu við að bjarga börnum
2. Fyrirsæta féll ofan í gat á sviði
3. 82 ára brúður er látin
4. Kidman bætir á sig
Nú færðu Heimilisost í sérmerktum
kílóastykkjum á tilboði í næstu verslun!
20%
Afsláttur HEIMILISOSTUR
á tilboði
TALSVERÐUR viðbúnaður var sett-
ur í gang hjá Lögreglunni á Suður-
nesjum vegna alvarlegs slyss að því
er talið var í Grófinni í Berginu í
Reykjanesbæ. Það var þó minna en
óttast var, sextán ára piltur haf’ði
runnið í skriðu og skrámast. Hann
var einn á ferð og hringdi í félaga sinn
eftir óhappið og hringdi félaginn því í
Neyðarlínuna. Var farið af stað í út-
kallið miðað við grun um að pilturinn
hefði fallið fyrir björg. Svo reyndist
þó ekki, því hann hafði þá runnið í
skriðu og var farinn þegar hjálparlið
kom á vettvang. Sjúkrabíll og læknir
ásamt lögreglu og björgunarsveitar-
flokki voru send á vettvang. Lögregl-
an segir að pilturinn hafi hins vegar
fundist á gangi skammt frá staðnum
og þrátt fyrir að haltra afþakkaði
hann alla aðstoð. Honum var þó ekið á
lögreglustöð og hringt í foreldra hans
til að þeir gætu komið að sækja hann.
Viðbúnaður
vegna pilts sem
rann í skriðu
Ljósmynd/Ellert Grétarsson
KARL og kona um þrítugt voru flutt
á slysadeild seint gærkvöldi eftir bíl-
slys á Kringlumýrarbraut. Ekki virt-
ist þó um alvarleg meiðsl að ræða við
fyrstu sýn.
Lögreglan lokaði Kringlumýrar-
braut á meðan unnið var á vettvangi
slyssins, en ökumaður mun hafa
misst stjórn á fólksbifreið sinni og
velt henni. Slysavettvangurinn var
mjög stór og nam mörg hundruð fer-
metrum en lögregluvarðstjóri sagði
þó ekkert um hvort það benti til
hraðaksturs.
Flutt á slysa-
deild eftir veltu
UNDIRSKRIFTALISTAR með
nöfnum tæplega þrjú þúsund for-
eldra leikskólabarna voru afhentir
formanni leikskólaráðs Reykjavík-
urborgar í gær. Markmiðið var að
vekja athygli á stöðu mála í leik-
skólum borgarinnar en oft þarf að
senda börn heim vegna manneklu
með tilheyrandi röskun á daglegu
lífi þeirra og um leið foreldranna.
Að sögn Ásrúnar Elmarsdóttur,
talsmanns foreldra, var borg-
arstjórn hvött til að halda áfram að
vinna að lausn málsins en meðal
þess sem foreldrar telja mjög mik-
ilvægt er að komið verði á stöð-
ugleika í starfsmannamálum leik-
skólanna. Er gagnrýnt að
undanfarin haust hafi þurft að
bjarga málum innan margra leik-
skóla með því að ráða á síðustu
stundu of marga ófaglærða og
óþjálfaða til starfa.
Að sögn Sigrúnar Elsu Smára-
dóttur, formanns leikskólaráðs hjá
Reykjavíkurborg, er borginni mik-
ilvægt að fá viðbrögð foreldra sem
þessi. Sigrún Elsa bendir á að stór
hluti þeirra tillagna, sem borg-
arstjóri hefur lagt fyrir borgarráð
um aðgerðir í starfsmannamálum
borgarinnar, eigi að nýtast leikskól-
unum. Veruleg kjarabót felist í yf-
irvinnugreiðslum í hádeginu til
starfsmanna, þótt hins vegar muni
þær ekki leysa allan vanda
Þrjú þúsund mótmæla
Foreldrar vekja athygli á starfsmannamálum leikskóla
Morgunblaðið/Eggert
♦♦♦
BANDARÍSKA þungarokkshljómsveitin Skid Row mun
halda tónleika á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll
1. desember næstkomandi.
Hljómsveitin kemur hingað til lands á vegum ís-
lensku rokksveitarinnar Sign sem mun hita upp fyrir
Skid Row á tónleikaferð um Bretlandseyjar í nóvem-
ber. Skid Row var stofnuð árið 1986 og var ein vinsæl-
asta rokksveit heims undir lok níunda áratugarins.
Tónleikar Skid Row hér á landi eru þeir síðustu í
Evróputúr sveitarinnar. | 41
Skid Row kemur
Skid Row Rokka hér á landi hinn 1. desember.