Morgunblaðið - 26.11.2007, Page 13

Morgunblaðið - 26.11.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 13 ERLENT Upp með Vestfirði! Pantanir: 456-8181- jons@snerpa.is Vestfirska forlagið Sturla Jónsson frá Súgandafirði "Þing Fjórðungssambands- ins nutu ekki virðingar allra fremur en önnur þing. Eitt sinn sem oftar er þingið var haldið í Bjarkarlundi, sem jafnframt var greiðasölu- staður, gerðist eftirfarandi: Stór maður vexti, nokkuð við skál, spurði hverjir hinir prúðbúnu menn væru er sátu þar í hliðarsal. Honum var tjáð að það væru fulltrúar á Fjórðungsþingi. "Ég þarf að tala við þá andskota," sagði hann og stefndi þar að. Sturlu for- manni var gert viðvart og fylgdust menn grannt með til hvaða ráða yrði nú gripið. Sturla gekk á móti manninum, hvessti á hann augun og hellti yfir hann af brennandi mælsku Haukadalsfrönsku, sem var verslunarþula á frönsku, kennd við Haukadal í Dýrafirði. Hinum stóra manni varð svo um þetta að hann tók ofan derhúfuna, hneigði sig og fór út. Þessa sögu sagði mér Jón Á. Jóhannsson sem þá var skattstjóri á Ísafirði. Hann, sem fleiri fundar- menn, höfðu mjög gaman af þessu atviki." (Ólafur Þ. Þórðarson alþingismaður) Verð: 3,980,-kr. Fæst í bókaverslunum um land allt Lahore. AFP, AP. | Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra Pak- istans, kom til landsins í gær og var ákaft fagnað af stuðningsfólki sínu. Hann hefur verið í útlegð frá því að Pervez Musharraf, núverandi for- seti, steypti honum af stóli fyrir átta árum. Sharif reyndi í septem- ber að komast til Pakistans en var stöðvaður á flugvellinum og vél hans snúið við. Hann vísaði á bug sögusögnum í gær um að í þetta sinn hefði hann samið fyrirfram við Musharraf um heimförina. Mörg þúsund æstra aðdáenda Sharifs ruddust í gegnum girðingar lögreglunnar við flugvöllinn í La- hore og báru Sahrif og bróður hans á herðum sínum. Musharraf sagði flokk sinn myndu taka þátt í þing- kosningum sem áformaðar eru 8. janúar og „niður- lægja“ stjórn- málamenn sem styddu ritskoð- un. „Ég hef ekki gert neinn samn- ing við Mushar- raf hershöfð- ingja, mun aldrei gera samning við Musharraf hershöfðingja,“ sagði Sharif. Skömmu eftir að flugvél hans lenti sagði hann í símaviðtali að hann væri kominn til að sinna skyldum sínum og gera sitt til að leysa þjóðina undan einræði. Neyðarlög Musharrafs ríkja enn í landinu og hundruð stuðnings- manna Sharifs voru handtekin áður en hann kom. Sharif ákaft fagnað við heimkomuna til Pakistans Nawaz Sharif BEIN síðasta keisara Rúss- lands, Nikulásar annars og fjöl- skyldu hans, fundust í skógi við borgina Jeka- terínbúrg árið 1991 en bolsévik- ar myrtu fólkið árið 1918. Bein tveggja barna hans fundust hins vegar ekki og varð þetta til að ýta undir gamlar sögu- sagnir um að einhverjir hefðu sloppið. Einkum hafa verið lífseig- ar sögur um að Anastasía, ein dætr- anna, hafi komist lífs af og m.a. gerð vinsæl kvikmynd um konu, Önnu Anderson, sem sagðist vera Anastasía. Rannsóknir hafa síðar afsannað sögu hennar. Áhugamenn um málið í Jekater- ínbúrg rannsökuðu vitnisburð mannsins sem stýrði aftökunni og sáu að hann hafði látið grafa tvö líkin „skammt frá“. Fundust nýlega beinaleifar um 70 metra frá hinum staðnum, leifar sem talið er að geti verið af Alexei og Maríu systur hans. Er þess nú beðið að staðfest verði með DNA-rannsókn að svo sé. Bein keisara- barnanna fundin? SÝRLENDINGAR sögðust í gær myndu sækja ráðstefnu, sem hefst á þriðjudag í Annapolis í Bandaríkj- unum, um möguleika á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Fayssal Mek- dad aðstoðarutanríkisráðherra mun fara fyrir sendinefndinni. Sýrlendingar með LEIÐTOGAR uppreisnarmanna í Darfur-héraði í Súdan segja kín- verska friðargæsluhermenn, sem komnir eru til héraðsins, ekki vel- komna. Kína styðji stjórn Súdans og litið verði á hermennina sem liðsmenn hennar. Kínverja burt DANSKI þjóðarflokkurinn, DF, lætur í það skína að hann vilji sam- starf við jafnaðarmenn í stað hægri flokkanna og hafa leiðtogar flokk- anna þegar ræðst við. DF segir margt líkt með velferðarstefnu flokkanna tveggja. Brosa til vinstri KARLAR sem hafa í sér skallagen verða enn fyrr sköllóttir ef þeir reykja, að sögn vísindamanna við Ríkisháskóla Taívans sem stóðu fyrir rannsókn á 740 asískum körl- um, 40-91 árs. Því meira sem reykt er þeim mun meiri eru líkurnar. Reykja á sig skalla LÖGREGLA í Moskvu og Pétursborg réðst í gær og á laugardag á útifundi stjórnarandstæðinga og handtók allt að 200 manns, að sögn mótmælenda. Einn þeirra var andófsmaðurinn Garrí Kasparov (fyrir miðju), fyrr- um heimsmeistari í skák. Hann var dæmdur í fimm daga fangelsi í Moskvu. AP Andófsmenn fangelsaðir í Rússlandi VÍSINDAMENN í Bretlandi og Þýskalandi hafa varpað fram þeirri hugmynd að leggja mætti allt að 8.000 kílómetra langt kerfi af há- spennulínum er næði frá Síberíu um Egyptaland og Marokkó alla leið til Íslands, segir í grein á vefsíðu breska dagblaðsins The Independ- ent on Sunday í gær. Yrði orka fyrir kerfið úr endurnýjanlegum lindum, einkum frá vindmyllum. Losun kol- díoxíðs í Evrópu myndi minnka um fjórðung. Meira en þúsund milljónir manna í um 50 löndum myndu njóta orkunn- ar, segir í blaðinu og koldíoxíðlosun sem stafar af rafmagnsframleiðslu í Evrópu myndi þurrkast út. Undir- staðan yrði háspennulínur af svo- nefndri HVDC-gerð sem eru þrisvar sinnum afkastameiri en hefðbundn- ar háspennulínur. Verð á kílóvattstund er sagt munu verða samkeppnishæft. Kerfið myndi kosta um 80 milljarða dollara, nær fimm þúsund milljarða ísl. króna og er þá ekki talinn með kostnaðurinn við sjálfar vindmyll- urnar. En þess er getið að Evrópu- sambandið hafi áætlað að kosta muni um 15 þúsund milljarða dollara að minnka koldíoxíðlosun í aðildarríkj- unum um 20% fyrir 2020. Helsti ókostur við vindorku er hve óstöðug hún er. En með því að nota sam- tengdar myllur á svo stóru svæði er hægt að tryggja stöðugleikann, þótt logn sé á einum stað getur blásið hraustlega á öðrum. Nokkrar ríkis- stjórnir eru sagðar hafa sýnt hug- myndinni áhuga, þó ekki breska stjórnin, að sögn dr. Georgs Czischs, orkusérfræðings við Kassel-háskóla í Þýskalandi. „Við ráðum yfir tækni til að reisa slíkt ofurkerfi innan þriggja til fimm ára. Við verðum ein- faldlega að leggja áherslu á þessa miklu langtímaáætlun.“ Háspennulínur frá Síberíu um Afríku til Íslands? Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ÁSTRALSKIR fjölmiðlar segja að straumhvörf hafi orðið í stjórn- málum landsins með sigri Verka- mannaflokksins í kosningunum á laugardag. Allt bendir til þess að Kevin Rudd, verðandi forsætisráð- herra, hreppi traustan meirihluta, 18-30 sæti en flokkur hans bætti við sig um 6% fylgi. Rudd hyggst kalla heim ástralska hermenn frá Írak og undirrita Kyoto-sáttmálann. Rudd styður þó eindregið þátttöku Ástrala í hern- aðinum í Afganistan. Hann leggur áherslu á að náin samskipti við Bandaríkin séu brýnt hagsmunamál fyrir þjóðina en ljóst þykir að meiri stirðleiki verði í þeim en í tíð How- ards sem var dyggur stuðnings- maður George W. Bush forseta. Hægriflokkur Johns Howards forsætisráðherra, er nefnist Frjáls- lyndi flokkurinn, er í sárum eftir ósigurinn en Howard hefur hætt af- gamall og missti þingsæti sitt í kosn- ingunum eftir að hafa haldið því í 33 ár samfleytt. Howard lagði til að við flokknum tæki Peter Costello fjármálaráð- herra, sem lengi hefur verið talinn vera arftakinn. Alexander Downer utanríkisráðherra og fleiri áhrifa- menn hvöttu menn til að fylkja sér að baki Costello en hann lýsti því hins vegar óvænt yfir fáeinum stundum síðar að hann myndi ekki sækjast eftir embættinu. Straumhvörf í Ástralíu með sigri Rudds AP Kát Kevin Rudd, næsti forsætisráðherra Ástralíu, fagnar sigri í borginni Brisbane á laugardag, með honum er eiginkonan, Therese Rein. Í HNOTSKURN »Er búið var að telja 78% at-kvæða í gær var Verka- mannaflokkur Kevins Rudds með um 53,3% en hægra- bandalag Johns Howards með 46.7%. Talið var að meirihluti Rudds í fulltrúadeild þingsins yrði 18-30 sæti. skiptum af stjórnmálum eftir að hafa verið við völd í 11 ár. Hann er 68 ára Hægrimenn í sárum eftir tapið og óvíst hver tekur við leiðtogaemb- ætti af Howard

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.