Morgunblaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.11.2007, Blaðsíða 17
|mánudagur|26. 11. 2007| mbl.is daglegtlíf Þ að varð löng þögn í síman- um þegar Hörður Gunn- arsson hringdi í Pál Braga Hólmarsson sl. vetur til að spyrja hvort hann væri til í að koma með sér í það að flytja út og afhenda borgarstjóra Moskvu, Júrí Luzhkov, tvo hesta. „Við fórum í þetta verkefni fyrripart vetrar. Margir sögðu að þetta væri ekki hægt, við næðum ekki að flytja út hestana og allt í þeim dúrnum en það hafðist þrátt fyrir allt með aðstoð góðra manna,“ segir Hörður en af- hending og sýning fór fram í op- inberri heimsókn þáverandi borg- arstjóra Reykjavíkur, Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, til Rússlands. Hörð- ur og Páll Bragi voru einnig í hópi ís- lenskra hestamanna sem héldu ný- lega til Helsinki í Finnlandi til að taka þátt í stórri hestasýningu þar sem íslenski hesturinn vakti feikna- athygli. Loksins nýr markaður Tildrög þessara nýju ævintýra hestsins eru þau að hjónin í Austur- koti í Árnessýslu, Páll Bragi Hólm- arsson og Hugrún Jóhannsdóttir, eru meðeigendur að stærsta Íslands- hestabúgarði í Finnlandi, Kuuman Hevoset, sem Pekka Makinen á stærstan hlut í, og nú hafa kunn ís- lensk fyrirtæki bæst í hópinn, Ármót, Auðsholtshjáleiga og hestavöruversl- unin Baldvin og Þorvaldur sem hefur opnað verslun á búgarðinum. Viðbrögð við „herferð“ hópsins á síðustu misserum hafa ekki látið á sér standa og er Kuuman-búgarð- urinn nú bækistöð vegna markaðs- setningar á íslenska hestinum til Rússlands. Að auki er ætlunin að styrkja áfram stöðu hestsins í Finn- landi, sem hefur að sögn staðið svo- lítið í skugganum af öðrum löndum á Norðurlöndum. „Þetta er markaður sem á eftir að stækka! Við lítum á þetta sem gríð- arlegt tækifæri til að auka verðmæti hestsins okkar sem og aukin at- vinnutækifæri fyrir þjálfara, reið- kennara, ræktendur, reiðtygjafram- leiðendur o.s.frv.,“ segir Páll Bragi. „Rússland er fyrsti nýi markaðurinn sem við Íslendingar herjum á í lang- an tíma en þetta hófst með fimm daga ferð í vor til Pétursborgar þar sem við sýndum fyrir 10-15 þúsund manns á dag. Við fengum styrk frá markaðsnefnd íslenska hestsins og Icelandair stendur að þessu með okkur,“ segir hann. Að sögn Harðar er markmiðið að selja vönduð hross, vel tamin og þjál, og við það bætir Páll Bragi: „Við ætlum ekki að byrja á ódýra hestaleiguhestinum, með fullri virðingu fyrir honum, heldur hesti sem áhugamaður og atvinnu- maður hefur jafngaman af; gæðum í gegn.“ Hann bendir líka á að allur tilkostnaður sé orðinn meiri við hvern hest og því verði greinin að fá sanngjarnt verð fyrir gripinn. Glitnir International Horse Show nefnist sýningin í Helsinki þar sem íslenski hópurinn kom fram sem sýningaratriði á milli keppnisatriða en sýningin er riðlakeppni í hindr- unarstökki og „dressúr“ sem fer um allan heim. Hörður var áhorfandi að þessu sinni: „Ég hef sjaldan heyrt annað eins klapp! Þegar okkar hóp- ur var kominn tíu metra inn á völlinn stóð fólk upp úr sætum og klappaði og það var standandi lófatak í lok sýningar. Það var gríðarlega gaman að vera Íslendingur þarna og horfa á viðtökurnar því þær voru hreint út sagt frábærar!“ Hörður var greini- lega sjálfur hugfanginn. Mikið lagt upp úr hestamennsku í Rússlandi Ekkert er til sparað hjá þeim sem stunda hestamennsku í Rússlandi og er mjög faglega staðið að allri um- gjörð og umhirðu hesta. „Ég hef hvergi í heiminum séð eins mikla og flotta hestamenningu og það er æv- intýri að horfa á þetta,“ segir Hörð- ur. Í kjölfar Moskvuferðarinnar var nokkrum forsvarsmönnum hestabú- garða og hestatímarita boðið á sýn- inguna í Helsinki og þeir urðu að sögn Harðar mjög hrifnir af sýningu íslenska hópsins. Þeir heimsóttu líka búgarðinn í Kuuman til að horfa á kennslusýningu þar sem núverandi og fyrrverandi heimsmeistarar í hestaíþróttum kenndu. Þeir félagar, Hörður og Páll Bragi segja Rússa mikla hestamenn, það byggist á langri hefð og munu Vla- dimír Pútín Rússlandsforseti og eig- inkona hans vera á meðal þeirra sem hafa hug á að nota og kynnast ís- lenska hestinum. Fjölmiðlar víðsvegar um heim hafa gert fyrrgreindum viðburðum mjög góð skil, bæði í sjónvarpi og blöðum. Þrátt fyrir ánægjulegar viðtökur segjast viðmælendur blaðamanns þó fara varlega í að blása þetta upp en alveg sé ljóst að viðbrögðin hafi orðið mun sterkari en hópurinn hafi átt von á. Stefnt sé á nokkrar ferðir á næstunni til Moskvu til að aðstoða með hesta borgarstjórans og þau hafi verið beðin um að halda aftur sýn- ingu í Pétursborg næsta vor. Að sögn Páls Braga er ætlunin að bjóða nokkrum Rússum til Íslands í tengslum við landsmótið á Hellu næsta sumar. „Síðan eiga hestarnir tveir í Moskvu eftir að hjálpa okkur áfram því þeir vöktu mikla athygli en við erum á jörðinni með þetta verk- efni og lítum á það sem lang- tímadæmi. Það sem á undan er gengið er hins vegar ekki lottóvinningur, þetta er ákveðin útrás með hestinn og mikil vinna. Við gerum okkur vonir um að þarna geti skapast markaður fyrir okkar skemmtilega sporthest en við erum ekki að fara inn á þennan mark- að með gæludýraímyndina sem ég tel að hafi verið ákveðið vandamál á ýms- um mörkuðum. Þetta er í raun og veru ekki fyrirhafnarinnar virði nema menn sjái alvöru viðskiptaframtíð því öll markaðssetning og kynning í þess- um geira kostar óhemju fjármagn,“ segir Páll Bragi að síðustu. Eins og poppstjarna Frakkinn Lorenzo, sem er þekktur fyrir að leika listir sínar á hvítum hestum. „Það varð algjört fjölmiðlafár þegar við fengum hann til að prófa íslenska hestinn en hann sagði að allir þyrftu að eignast svona hest!“ segir Páll Bragi Hólmarsson. Páll Bragi Hólmarsson „Við lítum á þetta sem gríðarlegt tækifæri til að auka verðmæti hestsins okkar.“ Herja á Rússlandsmarkað Hörður Gunnarsson „Margir sögðuað þetta væri ekki hægt, við næðum ekki útflutningi með hestana.“ Fulltrúar eins öfl- ugasta sendiherra Ís- lands, íslenska hests- ins, hafa upplifað ný ævintýri í Rússlandi og Finnlandi á árinu. Hörður Gunnarsson og Páll Bragi Hólm- arsson sögðu Þuríði Magnúsínu Björns- dóttur frá áætlunum um frekari landvinn- inga hestsins. Frægð í Finnlandi „Við gerum okkur vonir um að þarna geti skapast markaður fyrir okkar skemmtilega sporthest en við erum ekki að fara inn á þennan markað með gæludýraímyndina sem ég tel að hafi verið ákveðið vandamál.“ thuridur@mbl.is Upp með Vestfirði! Pantanir: 456-8181- jons@snerpa.is Vestfirska forlagið Ráðherra mætir á svæðið "Næstur framámanna á vettvang var Hannibal Valdi- marsson, ráðherra sam- göngumála. Þannig stóð á, að Póstur og sími hafði byggt nýtt hús yfir starf- semi sína á Þingeyri og nú skyldi það tekið í notkun með ráðherravígslu. Fyrst vildi kappinn þó skreppa í heimsókn í Svalvoga. Það hefði hann aldrei getað áður á bíl. Að sögn eins við- mælenda hans hélt hann tæplega vatni af hrifningu. Hannibal drakk kaffi hjá vitavarðarhjónunum í Sval- vogum. Í gestabókina þar á bæ skrifaði hann: Vegurinn er kraftaverk. Og við vígsluna hjá Pósti og síma á Þingeyri daginn eftir ræddi hann um þetta einstaka afrek, sem hann taldi ekki eiga neinn samanburð. Enn fremur sagði hann: Ef svona afreksmenn fá ekki Fálkaorðuna, þá veit ég ekki hver á að fá hana. Ég hitti ráðherrann nokkru seinna og þakkaði honum hlý orð, en sagði að Fálkaorðu kærði ég mig ekki um. Ef ég fengi hins vegar sem svaraði andvirði hennar, þá mundi ég nýta það í vegagerðina. Hann taldi að ég ætti eftir að fá þetta vel borgað." Fæst í bókaverslunum um land allt Verð: 1,700,-kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.