Morgunblaðið - 26.11.2007, Qupperneq 18
fjármál fjölskyldunnar
18 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
M
eðalmánaðartekjur
kvenna reyndust
vera 227 þúsund
krónur en meðal-
tekjur karla reynd-
ust vera 207 þúsund krónur í nýaf-
stöðnum Raunveruleik sem stóð yfir í
fjórar vikur, frá miðjum október fram
í miðjan nóvember.
„Þetta kemur vissulega á óvart því
að launamunur kynjanna í samfélag-
inu hefur algjörlega endurspeglast í
leiknum þar til nú að stelpurnar eru
komnar með hærri laun en strákarnir
sem tengist atvinnuvali. Þrátt fyrir að
stelpur hafi að jafnaði hingað til haft
lægri laun í leiknum en strákar hafa
stelpurnar alltaf raðað sér í efstu sæti
stigakeppninnar enda eru þær al-
mennt samviskusamari og duglegri
en strákarnir. Það verður bara að
segjast eins og er,“ segir Ómar Örn
Magnússon, kennari og höfundur
Raunveruleiksins, sem er gagnvirkur
hermileikur, sem fræðir nemendur
10. bekkjar um neytendamál og
ábyrga meðferð fjármuna. Hvort
launaþróunin verður þessi í raun-
veruleikanum á næstunni skal ósagt
látið. Hins vegar hefur lottómiði vinn-
inginn yfir langvinsælustu vörurnar
þegar kemur að innkaupum ung-
mennanna.
Lífsmáti hefur áhrif á fjármálin
Í upphafi leiks, sem er heilar fjórar
vikur, byrjar leikmaðurinn sem tví-
tugt ungmenni á leið út í lífið eftir
framhaldsskóla. Hver dagur virkar
sem eitt ár í lífi þeirra, en í peninga-
legu tilliti virkar hver dagur sem einn
mánuður. Leikmaður fær ákveðna
byrjunarupphæð á bankareikning, en
líf hans er að öðru leyti óskrifað blað.
Eftir að hafa mótað persónu sína, út-
lit, nafn og ákveðin persónueinkenni
þarf að móta aðstæður hennar, til
dæmis í hvað skal eyða peningunum,
hvað skal borða og hvort sækja skal
um vinnu eða skrá sig í nám. Allt
þetta val er opið á meðan á leiknum
stendur. Raunveruleikurinn er
keppni þar sem þátttakendur kepp-
ast fyrst og fremst við að komast af í
hörðum heimi raunveruleikans,
þekkja og skilja gangverk þjóðlífsins,
ná endum saman, taka réttar ákvarð-
anir, læra af mistökum og þroskast.
Ómar Örn, sem verið hefur kennari
við Hagaskóla undanfarin tíu ár, fékk
hugmynd að leiknum á meðan hann
var sjálfur í fæðingarorlofi fyrir sex
árum. Síðan hefur leikurinn verið í
örri þróun. Landsbanki Íslands hefur
tekið verkefnið upp á sína arma og
býður nú tíundu bekkingum upp á
þessa fjármálafræðslu undir hatti
lífsleiknináms í samstarfi við áhuga-
sama lífsleiknikennara, m.a. til að
svara kalli eftir fjármálafræðslu til
handa ungmennum svo ungt fólk sé
betur í stakk búið til að gera sér grein
fyrir hvaða áhrif ákvarðanir varðandi
lífsstíl og lífsmáta hafa á fjármál
þeirra og tækifæri í lífinu.
Fóta sig í flóknari heimi
„Með leiknum vakti það fyrir mér
að sýna ungmennum hvað foreldrar
þeirra eru að sýsla frá degi til dags, fá
þau til að velta fyrir sér útgjöldum
heimilisins og því af hverju vasapen-
ingurinn er kannski bara fimm
hundruð krónur á mánuði en ekki
fimm þúsund. Á viðbrögðum hef ég
fundið að það kemur krökkunum á
óvart hvað það kostar að borga af
húsnæði og reka heimili.
Beinir og óbeinir skattar eru him-
inháir og það er dýrt að eignast börn.
Auk þess finnst þeim ótrúverðugt að
það geti kostað allt upp í 40 þúsund á
mánuði að fæða sig og fimm þúsund
króna afþreying í formi sjónvarps-
áskriftar er lítil upphæð, en þegar
allri afþreyingunni er safnað saman í
eina tölu, margfaldast hún gjarnan í
hærri tölur,“ segir Ómar og bætir við:
„Börn og ungmenni hafa því miður
ekki mikinn skilning á því hvernig
peningarnir verða til og hvaðan þeir
koma. Það er hins vegar nauðsynlegt
fyrir okkur skólamenn og aðra að búa
næstu kynslóðir undir sífellt flóknara
samfélag svo þær geti fótað sig í
flóknari heimi því áreitið á þau kemur
alls staðar að. Þau þurfa að fá ráðrúm
til að átta sig á því hvernig lífi þau
vilja lifa og hvers konar ákvarðanir
þarf að taka.“
Leikur í litlum vefleiðöngrum
Kennarar allra 10. bekkja á land-
inu fá send notendanöfn og lykilorð.
Morgunblaðið/Frikki
Höfundurinn Í Raunveruleiknum keppast þátttakendur við að komast af í hörðum heimi raunveruleikans með því að skilja gangverk þjóðlífsins, ná end-
um saman, taka réttar ákvarðanir, læra af mistökum og þroskast, segir Ómar Örn Magnússon.
Lottómiðinn langvinsælastur
Margar og misjafnar fyrirspurnir
hafa borist stjórnendum Raunveru-
leiksins frá grunnskólakrökkum í 10.
bekk. Hér eru nokkur sýnishorn.
Mér finnst launin ekki nógu há
miðað við hvað allt er dýrt í leiknum.
Er ekki notaður persónuafsláttur?
Ég er t.d. búin að mennta mig sem
læknir og er búin að vera í skóla í sex
ár og fæ samt bara 325 þúsund kr. á
mánuði. Er það ekki svolítið lítið? Og
svo þegar búið er að reikna skattinn
af því þá á ég bara eftir 223.463 kr.
Ég á tvö börn og maka og fæ frá
þeim minna en kostar að reka þau og
svo þarf ég að borga leigu á húsnæði,
rekstur húsnæðis og mat og margt
fleira, svo ég kem oftast út í mínus.
Af hverju eru launin svona lág?
Það er eitt sem ég skil ekki við
launin mín. Ég er í starfi með 310
þúsund kr. í laun á mánuði, en fæ
bara 214 þúsund kr. útborgað. Af
hverju gerist það?
Er ekki möguleiki á að vinna
hlutastarf með námi? Það er ljóst að
grundvallarþarfir einstaklings míns
fara fram úr því sem peningaeign og
innkoma stendur undir.
Ég er með 310 þúsund kr. í laun á
mánuði, en samt á ég bara 67 kr.
þegar ég er búin að borga alla reikn-
inga og kaupa mat. Getur verið að
það sé rétt?
Hver stjórnar bankanum í leikn-
um? Vextir á hávaxtareikningi, sem
voru 12% fyrir nokkrum dögum, eru
komnir í 8% nú. Þetta er lélegt. Það
er búið að stórlækka vextina. Nú
ætla ég að velja aðra sparnaðarleið
en bindingin er of löng á þeim reikn-
ingum. Þetta þykir mér slakt. Gerist
þetta svona í alvörunni?
Ef maður á venjulegt rúm og fær
sér svo allt í einu maka, þarf maður
þá að kaupa hjónarúm? Ef svo er,
hvernig losnar maður þá við hitt
rúmið? Fær maður eitthvað end-
urgreitt ef líftíminn á rúminu er ekki
nema hálfnaður?
Ef maður eignast barn í raun-
veruleiknum, þarf maður þá að
kaupa barnarúm?
Af hverju hækkar íbúðaverð og
útgjöld vegna íbúða án þess að laun-
in mín hækki?
Hvernig greiði ég inn á yfir-
dráttarheimild svo vaxtagreiðslurn-
ar lækki? Hvað er annars yfir-
dráttarheimild?
Spurningar
kvikna hjá
krökkunum
Í Raunveruleiknum keppast menn um að komast
af í hörðum heimi raunveruleikans með því að taka
réttar ákvarðanir, skilja gangverk þjóðlífsins, ná
endum saman, læra af mistökum og komast til
metorða. Jóhanna Ingvarsdóttir ræddi við Ómar
Örn Magnússon, kennara og höfund leiksins.
Morgunblaðið/Eggert
VERÐUR
á m
MILL
MÆRI