Morgunblaðið - 26.11.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 23
MINNINGAR
✝ Elsa Halldórs-dóttir fæddist á
Akureyri hinn 3.
nóvember 1932.
Hún lést á Öldrun-
arheimilinu Hlíð
þriðjudaginn 13.
nóvember síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Hall-
dór Jónsson tré-
smiður og Elísabet
Jónsdóttir sauma-
kona. Elsa átti einn
hálfbróður, Ingólf
Reinald Halldórs-
son, hann var kvæntur Jónínu
Ragnheiði Björnsdóttur. Þau eru
bæði látin.
Elsa giftist hinn 12. janúar
1952 Pálma Karlssyni, f. 9. jan-
úar 1922, d. 25. júlí 2004. Börn
þeirra eru: 1) Birgir, f. 1950, f.k.
Magnea Steingrímsdóttir, þau
eiga tvö börn, s.k. Sigurbjörg
Sigfúsdóttir, þau eiga tvö börn.
2) Elísabet, f. 1952, maki Pétur
Péturson, látinn, þau eiga þrjár
dætur, sambýlis-
maður Ketill
Tryggvason. 3)
Ásta, f. 1953, fv.
maki Jón Gestsson,
þau eiga tvö börn.
4) Hjördís, f. 1955,
maki Pétur Har-
aldsson, þau eiga
tvö börn. 5) Elsa, f.
1958, maki Val-
mundur Einarsson
og eiga þau fjögur
börn. 6) Hreinn, f.
1959, maki Þórunn
Sigurðardóttir, þau
eiga þrjú börn. 7) Jón, f. 1960,
maki Kolbrún Jónasdóttir, þau
eiga þrjú börn. 8) Viðar, f. 1963,
maki Kamilla Hansen, þau eiga
þrjú börn.
Elsa bjó alla sína ævi á Akur-
eyri. Hún stundaði nám við Gagn-
fræðaskólann á Akureyri og lauk
þaðan prófi 1949.
Elsa verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
útförin klukkan 13.30.
Ó, elsku mamma.
Það er með miklum harmi í hjört-
um sem við skrifum þessi fátæklegu
orð.
Nú hefur þú kvatt okkur líka og
ert komin til pabba sem þú saknaðir
svo mikið – hans sem var stóra ástin
þín.
Þið hafið verið kölluð burtu til
starfa á æðra tilverustig, þar sem ást
og kærleikur ráða ríkjum.
Við erum þess alveg fullviss, að
þar hefur hann beðið þín. Vegna
þeirra miklu mannkosta sem þú
bjóst yfir, vinnusemi þinnar og
þrautseigju, en ekki síður vegna
hlýju þinnar og ástúðar, svo fátt eitt
sé talið.
Elsku mamma, þú hafðir svo stórt
hjarta, varst svo yndislega mikil per-
sóna og þú elskaðir okkur öll út af líf-
inu. Þú tókst á við hlutina og gerðir
allt það besta sem hægt var til að
láta hlutina ganga upp. Þvílík hetja.
Þú máttir ekkert bágt sjá, þá leið þér
ekki vel en varst glöðust allra ef eitt-
hvað gekk vel hjá einhverju okkar.
Og húmorinn, hann var til staðar allt
til hinstu stundar, þú gantaðist við
allt og alla, nánast hvernig sem þér
leið, svo eftir var tekið. Það gladdi
okkur öll.
Já, elsku mamma, það voru sko
forréttindi að fá að vera börnin ykk-
ar, þið voruð stórkostlegir foreldrar,
sameinuð og sterk.
Við vitum að þér líður vel núna og
þjáningum þínum er lokið. Það er
huggun okkar í sárum hjörtum.
En skarðið sem fyrir var hefur
stækkað mikið hjá okkur systkinun-
um, það verður aldrei fyllt og eftir
stendur stór, hryggur hópur að-
standenda, sem allir elskuðu þig af
einlægni en sakna þín jafnframt
óendanlega mikið.
Elsku hjartans mamma, við þökk-
um þér fyrir allt og megir þú ganga á
Drottins vegum, þar til við hittumst
á ný …
Stórbrotin og sterk kona er fallinn
frá.
Elsku aðstandendur; við biðjum
guð almáttugan að umvefja ykkur
með kærleika sínum á þessum erfiðu
stundum. Með ástarkveðju,
stóri barnahópurinn.
Elsa Halldórsdóttir
Eftir langan liðinn dag
ljúf er hvíld á kvöldin
og síðasta sólarlag
þá svefninn tekur völdin.
(J.B.)
Nú hefur gangverk lífsklukku
merks stórbónda í Flóa slegið sinn
síðasta slátt, manns sem var borinn
og barnfæddur Árnesingur. Hann
var sonur hjónanna Elínar Stein-
dórsdóttur Briem og Árna Árnason-
ar. Guðmundur átti alls níu systkini
og eru 3 þeirra á lífi. Bræðurnir
Ólafur og Guðmundur tóku við
búinu eftir lát föður síns en Jóhann
vann bæði á búinu og til sjós. Vorið
1948 gerðist margt skemmtilegt. Ég
var heima, unglingur með „blakt-
andi eyru“ eins og vera ber og voru
bræðurnir þá heima með mömmu í
búskapnum. Það hafði verið stríð og
allt snerist um það. Þá bauðst ung-
um Þjóðverjum að koma til Íslands
og vinna við landbúnaðarstörf.
Þannig vildi það til að Ilse kom í
Flóann. Ilse hét fullu nafni Ilse Wil-
helmine Friderike Kristine Wall-
man. Foreldrar hennar voru Otto
Guðmundur Árnason
og Ilse W. Árnason
✝ GuðmundurÁrnason fædd-
ist 27. ágúst 1916
og lést 27. október
síðastliðinn. Hann
var lagður til
hinstu hvílu við
hlið konu sinnar í
Hraungerðiskirkju
2. nóvember sl. en
kona hans lést 10.
júní árið 2003.
Wallman skipstjóri og Elsa Wall-
man. Isle var elst þriggja systra,
yngri voru Helga og Hildegard.
Faðir Ilse var skipstjóri á lysti-
snekkju og ráku hann og Elsa
strandkörfuleigu. Þetta voru hand-
unnar körfur sem hún og dæturnar
fléttuðu og saumuðu sessurnar á.
Allt var heimaunnið og leigt við
ströndina í Travemünde í Þýska-
landi.
Ilse fæddist 13.2. 1922 í Trave-
münde en á 27. aldursári varð hún
ekkja með litla tveggja ára stúlku,
Angeliku. Ilse var ung og falleg
stúlka með svart, fallegt hár og brún
augu og samsvaraði sér vel, eins og
sést á myndinni. Á hátindi lífsins var
hún tilbúin að takast á við nýtt líf.
Angelika litla kom með togara til Ís-
lands um haustið. Guðmundur og
Ilse felldu hugi saman og giftu sig
26.11. 1949. Guðmundur gekk Ange-
liku í föðurstað, hún býr nú í Kópa-
vogi. Guðmundur og Ilse eignuðust
þrjá drengi, Árna Oddgeir, Magnús
Guðmann og Steinþór.
Guðmundur var vel meðalmaður á
hæð, dökkhærður með fallegan lið í
hári. Hann var vel lesinn og stál-
minnugur og glettni gat skinið úr
fallegu bláu augunum og þá kom
gjarnan vísa. Áhugamálin voru, fyr-
ir utan að eiga góða hesta, hvítar fal-
legar kindur, og íþróttir, en á yngri
árum fór hann m.a. í íþróttaskóla.
Eitt það stórfenglegasta sem Guð-
mundur hefur framkvæmt var það
afrek að bora eftir heitu vatni í landi
Oddgeirshóla. Það var stór stund
þegar heita vatnið fór að renna í
flesta bæi í sveitinni og jafnvel víð-
ar. Guðmundur smíðaði sínar skeif-
ur sjálfur og þótti léleg járning ef
þurfti að laga undir í afréttarferð.
Uni ég vel um æskudaga
að eiga kind og góðan hest.
Ennþá gleður hjörð í haga.
Hvíta kindin sýnu mest.
(G.Á.)
Hjónin bjuggu í húsinu sem þau
byggðu á Oddgeirshólum II af mikl-
um myndarskap og þar var mikil
gestrisni. Síðustu tvö árin sem Ilse
lifði þurfti hún að dvelja að Ljós-
heimum á Selfossi en þráði alltaf að
fara heim til „Guma sín“. Hinn 10.
júní árið 2003 lét hún aftur augun
eftir 54 ára Íslandsdvöl og lagði af
stað í nýja langferð. Guðmundur var
heima, hugsaði vel um verðlauna-
kindurnar og hrútana sína, gesti og
gangandi. Hann lést 27.10. 2007 og
er ég þess fullviss að heimkoman til
Ilse hefur verið yndisleg.
Ég leyfi mér að þakka þeim hjón-
um fyrir börnin mín, Hauk og Sig-
rúnu, sem dvöldu hjá þeim í mörg
sumur. Veri Ilse og Guðmundur
kært kvödd og Guði á hendur falin.
Hafi þau þökk fyrir allt og allt.
Jónína Björnsdóttir
frá Oddgeirshólum.
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN J. ÞORKELSSON
vélstjóri,
áður búsettur
í Boðahlein 5,
Garðabæ,
lést á Hrafnistu miðvikudaginn 21. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju miðviku-
daginn 28. nóvember kl. 15.00.
Kristján E. Kristjánsson, Áslaug Gísladóttir,
Brynhildur Kristjánsdóttir, Stefán Sigurðsson,
Auður Kristjánsdóttir, Roger Olofsson,
Alfa Kristjánsdóttir, Sigmar Þormar,
Bárður Halldórsson,
Grétar Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona, móðir, systir og frænka,
MARGRÉT ÁMUNDADÓTTIR,
Minna Núpi,
Gnúpverjahreppi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudag-
inn 22. nóvember.
Kristján Helgi Guðmundsson,
Ámundi Kristjánsson,
Guðbjörg Ámundadóttir,
Herdís og fjölskylda,
Guðrún og fjölskylda.
✝
Okkar ástkæri sonur, bróðir og barnabarn,
TÓMAS INGI INGVARSSON,
Miðtúni 19,
Hornafirði,
sem lést föstudaginn 16. nóvember verður jarð-
sunginn frá Hafnarkirkju miðvikudaginn 28. nóvem-
ber kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktar-
félag krabbameinssjúkra barna í síma 588 7555.
Heiður Sigurðardóttir, Ingvar Ágústsson,
Óskar Þór Ingvarsson,
Auðbjörn Atli Ingvarsson,
Auðbjörg Þorsteinsdóttir, Sigurður Guðjónsson
Erna Þorkelsdóttir, Ágúst Guðmundsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞÓRARINN KJARTANSSON
forstjóri Bláfugls,
Mýrarási 15,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 17. nóvember, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn
26. nóvember kl. 13.00.
Þem sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á að láta hjálpar-
og björgunarsveitir, Hjartavernd, Reykjalund eða aðrar hjálparstofnanir
njóta þess.
Guðbjörg A. Skúladóttir,
Kjartan Þórarinsson,
Skúli Þórarinsson.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HALLDÓR B. ÓLASON,
rafvélavirki,
Framnesvegi 62,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum, Fossvogi, þriðjudaginn
20. nóvember, verður jarðsunginn frá Neskirkju
þriðjudaginn 27. nóvember kl. 13.00.
Hulda Heiðrún Eyjólfsdóttir,
Valgerður Halldórsdóttir, Helgi H. Steingrímsson,
Sigríður Halldórsdóttir, Gylfi Þorkelsson,
Óli F. Halldórsson, María Björk Daðadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.