Morgunblaðið - 26.11.2007, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞETTA KAST
ÁKVEÐUR
HVORT LIÐIÐ
VINNUR
ANNAÐ HVORT VERÐUR HANN
HETJA EÐA ÉG! ÞAÐ ER
KOMIÐ AÐ ÞVÍ!
...OG ÞAÐ VAR HANN
KALVIN, ÉG
KEYPTI
SULTUFYLLTA
KLEINUHRINGI.
VILTU EKKI
FÁ EINN?
SULTUFYLLTIR KLEINU-
HRINGIR ERU ÓGEÐSLEGIR!
ÞETTA ER EINS OG AÐ
BORÐA STÓRA MJÚKA
PÖDDU... MAÐUR BÍTUR Í
HANN OG FJÓLUBLÁTT GUMS
LEKUR ÚT UM ALLT!
ÞÚ MÁTT
BORÐA
MINN
SVONA FER ÉG
AÐ ÞVÍ AÐ VERA
SVONA GRÖNN
ELSKAN, VILTU AÐ
ÉG SPILI EITTHVAÐ
SÉRSTAKT LAG
FYRIR ÞIG?
FYRST ÞÚ
MINNIST Á
ÞAÐ...
ÞÁ MÁTTU SPILA FYRIR
MIG BRÚÐARMARSINN
ÉG SÉ AÐ DEPILL ER
BÚINN AÐ SETJA
NÝJA FÆRSLU Á
BLOGGIÐ SITT
ADDA HAFÐI RÉTT
FYRIR SÉR! ÞESSI STAÐUR
ER ROSALEGA DÝR
EN ÞAÐ ER EKKI Á HVERJUM DEGI
SEM MAÐUR FER ÚT AÐ BORÐA MEÐ
RÍKUM VINI SÍNUM... VIÐ HÖFUM
ALVEG EFNI Á ÞESSU
EN ÉG VIL EKKI EYÐA
ÖLLU SPARIFÉNU
MÍNU Í MAT
ÞESSI KJÚKLINGA-
RÉTTUR ER
ÁHUGAVERÐUR.
HANN ER SKREYTTUR
MEÐ GULLI!
EF ÉG HEFÐI EKKI VERIÐ Í
MYNDVERINU Í DAG ÞÁ HEFÐI
M.J. KANNSKI DÁIÐ
PETER!
!
ÞÚ BJARGAÐIR LÍFI MÍNU
Í DAG!
TIL HVERS
ANNARS AÐ
EIGA OFUR-
HETJU FYRIR
EIGINMANN
Grettir
VAR ?!
LJ TUR
HUNDUR
GRRR
dagbók|velvakandi
Fríríki á Keflavíkurflugvelli
Ég mótmæli harðlega þeim hug-
myndum um að fylla flugvall-
arsvæðið í Keflavík af ríkisstofn-
unum. Það er enginn metnaður í
þeim hugmyndum.
Flugvallarsvæðið, með öllum þeim
byggingum og aðstöðu sem þar eru,
getur verið grunnurinn að stærstu
viðskiptahugmynd Íslandsögunnar.
Tækifærin felast í því að gera
svæðið að fríríki með skattfrjálsri
verslunarmiðstöð af stærstu gerð.
Einnig heilsuræktarstöð og hvíld-
arstað fyrir metnaðarfulla ein-
staklingasem geta notið dvalar í um-
hverfi sem á engan sinn líka í
Evrópu. Söfn og nátturminjar með
aðgangi að Blá lóninu geta orðið
heimsfræg miðstöð hvíldar og hress-
ingar. Leifsstöð á að koma að þessu
ásamt Reykjanesbæ og nágranna-
sveitarfélugum. Þetta getur verið
lykill Íslendinga að alþjóða-
viðskiptum þar sem flugvallarskýlin
geta verið alþjóðlegar sýning-
arhallir.
Sjálfsagt er að fjármálastofnanir
verði staðsettar á svæðinu sem
dyrnar að útrás Íslendinga. Um-
hverfið þarf að gera aðlaðandi í
kring um íbúðir á svæðinu.
En fyrst og fremst er þetta tæki-
færi, sem ekki má eyðileggja með
því að fylla svæðið af dauðum rík-
isstofnunum.
Árni Björn Guðjónsson
Ráðleysur
Höfum við ,,hrædd þjóð“ efni á að
hafa þingmenn í fullu starfi við að
ræða um hvort ríkið og einstaklingar
eigi að græða á brennivínssölu?
Liggur ekkert nauðsynlegra fyrir?
Jú, það er fundið! Það er orðið
ráðherra. Það er móðgun við þær
konur í því starfi! Geta þær þá ekki
bara kallast ráðleysur, svo sem ut-
anríkisráðleysa?
Ráðalaus
Árssól
Njörður P. Njarðvík, hjartans þakk-
ir fyrir útvarpsþáttinn Árssól á
sunnudagsmorgnum í Ríkisútvarp-
inu. Þú ert afbragð.
Gömul kona austur á Rangárþingi
Taska hvarf úr bíl
Taska hvarf úr bíl laugardags-
kvöldið 17. nóvember þar sem bíllinn
stóð við Freyjugötu. Þetta var svört
taska úr striga, og í henni voru
vatnslitamyndir sem eigandinn hafði
málað sjálfur, penslar, litir, blýant-
ar, listgler og prjónauppskrift. Eig-
andanum eru þessar vatns-
litamyndir afar kærar og væri þeim
afar þakklátur sem gæti skilað þeim.
Ef einhver hefur séð þessa tösku eða
fundið, þá er hann vinsamlegast beð-
inn að skila henni til Guðrúnar
Bjarnadóttur eða hafa samband í
síma 552-9804.
Cartier-armbandsúr tapaðist
Sígilt Cartier-armbandsúr úr stáli
og gull með múrsteinsarmandi tap-
aðist á móts við skúrana á Ægissíðu.
Finnandi er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 899-8306.
Elsa.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Hundtryggur og hundhlýðinn bíður þessi fallegi hundur úti í suddanum
eftir eiganda sínum. Kannski getur hann stytt sér stundir með því að fylgj-
ast með mannlífinu, sem er yfirleitt fjölbreytt í Þingholtunum.
Morgunblaðið/Frikki
Beðið eftir húsbóndanum
FRÉTTIR
KRISTÍN Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, og Sjöfn Sigurgísla-
dóttir, forstjóri Matís, undirrituðu á
föstudag samning um samstarf á
milli stofnananna í þá átt að stórefla
rannsóknir og menntun í matvæla-
fræðum, matvælaverkfræði, líf-
tækni og matvælaöryggi hér á
landi.
Í fréttatilkynningu segir að
markmið samningsins sé m.a. að
efla samkeppnishæfni íslenskra af-
urða og atvinnulífs, að bæta lýð-
heilsu og tryggja matvælaöryggi og
sjálfbæra nýtingu umhverfisins með
rannsóknum, nýsköpun og þjón-
ustu.
Ennfremur er stefnt að því að
fjölga verulega nemendum í grunn-
og framhaldsnámi í áðurnefndum
greinum við Háskóla Íslands.
Viðstaddur undirritunina var
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs-
ráðherra og landbúnaðarráðherra.
Samvinna HÍ og Matís
að eflingu rannsókna
Morgunblaðið/Kristinn