Morgunblaðið - 26.11.2007, Qupperneq 34
34 MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Dan in Real Life kl. 3:40 - 5:45 - 8 - 10:15
Dan in Real Life kl. 3:40 - 5:45 - 8 - 10:15 LÚXUS
Wedding Daze kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
Balls of Fury kl. 4 - 6 - 8 B.i. 7 ára
Heartbreak Kid kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Lions For Lambs kl. 10 B.i. 12 ára
Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 4 - 6
Dan in Real Life kl. 8 - 10
Rendition kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Wedding Daze kl. 6 B.i. 10 ára
Rogue Assassin kl. 6 B.i. 16 ára
Sími 564 0000Sími 462 3500
Dan in Real Life kl. 5:45 - 8 - 10:15
La Vie en Rose kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Lions For Lambs kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
This is England kl. 6 - 8 - 10 * Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Ve
rð a
ðeins
600 kr
.
Með íslensku tali
- Kauptu bíómiðann á netinu -
THIS IS
ENGLAND
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING
ABOUT MARY"
ÁSTARSORG
Gríðarstór
gamanmynd
með litlum
kúlum!
BORÐTENNISBULL ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
Vönduð frönsk stórmynd,
sem er að fara sigurför um heiminn,
um litskrúðuga ævi Edith Piaf.
LÍF RÓSARINNAR: SAGA EDITH PIAF
Stórskemmtileg rómantísk
gamanmynd um ungan mann sem er
sannfærður um að hann muni aldrei
verða ástfanginn aftur!
Sannkölluð stórmynd
með mögnuðum leikurum.
LJÓN FYRIR LÖMB
eeee
- V.J.V., Topp5.is
eeee
- EmpireDAN Í RAUN OG VERU
Frábær
róman
tísk ga
man-
mynd e
ftir ha
ndrith
öfund
About
a Boy
Eitthvað hefur komið fyrir Dan.
Það er flókið.
Það er óvenjulegt.
Það er fjölskylduvandamál.
Steve Carell úr 40 year Old Virgin
og Evan Almighty leikur ekkill sem
verður ástfanginn af kærastu bróður síns!
S T E V E
C A R E L L
Hvað ef sá sem þú elskar...
Hverfur sporlaust?
eeee
- H.J. Mbl.
eeee
- T.S.K., 24 Stundir
MYNDDISKAR»
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
ÓTRÚLEGT en satt, um þessar
mundir er áratugur liðinn síðan
mynddiskurinn (DVD) kom á mark-
aðinn og varð ómissandi afþreying á
nánast hverju heimili. Það var
haustið 1997 að Warner kynnti til
sögunnar fyrstu útgáfurnar, um 60
titla sem voru valdir að und-
angengnum sex mánaða víðtækum
markaðsprófunum. Um svipað leyti
setti Sony mynddiskaspilara á
markaðinn og kostaði sá fullkomn-
asti um 1.000 dali. Fleiri gerðir
komu smám saman til sögunnar en
verðið hélst hátt til að byrja með.
Þessarar tæknibyltingar var beðið
með mikilli eftirvæntingu, þó birtust
nokkur ljón í veginum. Kvikmynda-
verin voru ekki öll sátt við að breyta
yfir í stafrænu tæknina og stóru
myndbandaleigurnar vildu ekki
hreinsa gömlu myndböndin úr hill-
unum fyrir diskana.
Það leið ekki á löngu uns mark-
aðurinn tók við sér, kostirnir fram
yfir spólurnar voru ótvíræðir. Fyr-
irferðin var miklu minni þannig að
diskarnir spöruðu hvarvetna dýr-
mætt pláss, þeir lækkuðu fram-
leiðslu- og flutningskostnað, svo eitt-
hvað sé nefnt og slitin bönd voru úr
sögunni. Aðalatriðið var stóraukin
myndgæði sem úreltu myndböndin á
skemmri tíma en jafnvel bjartsýn-
ustu framleiðendur höfðu þorað að
vona.
Það er erfitt að meta hversu mikil
áhrif mynddiskurinn hefur haft á
kvikmyndaneyslu almennings. Rétt
eins og við hin eldri reynum að út-
skýra hvernig heimurinn var fyrir
tíma tölvunnar eða netsins eigum við
eftir að leiða yngri kynslóðum í ljós
byltinguna sem varð á 10. áratugn-
um þegar skýr og nettur diskurinn
gerði kvikmyndaunnendum loksins
mögulegt að fara að safna uppá-
haldsverkunum sínum. Ef neyt-
endur bíða þolinmóðir eftir að verðið
lækki þegar frá líður útgáfudegi er
myndasöfnun vel viðráðanleg. Gaml-
ar myndir og sígildar eru að vísu
vandfundnar á markaðnum hér
heima, en mesta furða hvað hefst
upp úr krafsinu ef farið er að leita.
Eins er auðvelt að kaupa myndir á
netinu.
Mynddisk-
urinn 10 ára
Morgunblaðið/Golli
DVD Mynddiskar hafa leyst gömlu myndböndin af hólmi.
AÐ MARGRA dómi er Gallipoli ein
besta mynd ástralska kvikmynda-
vorsins þar sem Weir var fremstur
meðal jafningja. Gallipoli styðst við
sögulega atburði, þátttöku Ástrala í
fyrri heimsstyrjöldinni og fylgist með
tveim vinum sem hleyptu heimdrag-
anum. Archie (Lee), er bráðefnilegur
spretthlaupari sem vinnur frækinn
sigur á Perth-búanum Frank (Gib-
son). Fyrri heimsstyrjöldin er í al-
gleymingi og dreymir unga menn um
að leggja sitt af mörkum til að koma á
friði. Archie er of ungur til að skrá sig
og Frank kann ekki að sitja hest en
báðir komast á vígstöðvarnar þar
sem þeirra bíða ólík örlög.
Gallipoli er í hópi áhrifaríkustu
stríðsádeilna sem gerðar hafa verið
og gjörólík þeim hávaðasömu stríðs-
brellumyndum sem við eigum al-
mennt að venjast. Lágstemmd saga
af vináttu, ævintýraþrá og hetju-
draumum sem eru svo fjarri raun-
veruleikanum þegar á reynir. Weir
notar drjúgan tíma til að lýsa hvernig
vinátta piltanna myndast, glýjunni í
augum þeirra, æv-
intýraheiminum í
þjálfunarbúðunum
í skugga píramíd-
anna í Egypta-
landi. Eins og
hendi sé veifað
tekur alvaran við,
vægðarlaus hern-
aðarátök þar sem
dauðinn vofir yfir og Weir undir-
strikar á áhrifaríkan hátt, ekki síst
með frábærri hljóðrás með verkum
Paganini, Strauss o.fl. Sviðsetningin
á vígvellinum er einföld en hittir beint
í hjartað. Gallipoli er óvenju vitræn
og beinskeytt ádeila og virðing-
arvottur við minningu hermannanna
sem voru leiddir til slátrunar.
Hryllingur stríðs
Sæbjörn Valdimarsson
Gallipoli Ástralía 1981. Sam-myndir 2007.
107 mín. Ísl. texti. Leikstjóri: Peter Weir.
Aðalleikarar: Mel Gibson, Mark Lee,
Bill Kerr.
Stríðsmynd
FYRIRSÖGNIN er dæmigert brot
úr einum söngtextanum og fram-
kallar létt nostalgíukast yfir því
hversu langt er liðið síðan fé-
lagarnir í Monty Python-genginu
léttu okkur lund. Uppákomurnar,
ólýsanlegir fáránleikasketsar, söng-
og dansatriði, og yfir höfuð vitrænn
fíflagangur sem átti engan sinn líka
á sviði og í kvikmyndum. M.P. risu
hæst á sjöunda og áttunda áratugn-
um og er sýningin í Hollywood
Bowl tekin 1981. Háðfuglarnir hver
öðrum betri og myndirnar þeirra
hitta vonandi í mark hjá ungum
áhorfendum í dag. Hvað sem því
líður var löngu tímabært að viðra
verkin á nýjan leik og fyndnin hef-
ur staðist tímans tönn.
„Það er dásamlegt
að vera fábjáni …“
Sæbjörn Valdimarsson
Monty Python Live At The Holly-
wood Bowl Bandaríkin 1982. Sena 2007. Ísl. texti.
77 mín. Öllum leyfð. Leikstjóri: Terry
Hughes og Ian MacNaughton. Aðalleik-
arar: Graham Chapman, John Cleese,
Terry Gilliam, Eric Idle, Terry Jones, Mich-
ael Palin.
Grín
HVAÐ sem mönnum finnst um efn-
istökin er ljóst að Hard Candy
gleymist ekki áhorfandanum í bráð.
Hún fjallar um öfugugga sem eru
því miður mjög í kastljósinu um
þessar mundir, barnaníðinga og út-
smognar, nútímalegar aðferðir
þeirra við að krækja í barnung
fórnarlömb. Hayley (Page), 14 ára
telpa, hittir Jeff (Wilson), sem hún
hefur verið í sambandi við á spjall-
rás í nokkra mánuði. Hvað aldurinn
snertir gæti hann verið faðir henn-
ar en Hayley lætur það ekki aftra
sér frá því að fara með honum heim.
Það kemur í ljós að hún hefur sínar
ástæður, Hayley hyggur á aðgerðir.
Efnið er versta martröð barna-
níðinga og satt
að segja hefur
maður enga sam-
úð með óvæntu
fórnarlambi
myndarinnar.
Best að segja
sem minnst til að
spilla ekki fyrir
þeim sem eiga
eftir að sjá þennan harla óvenjulega
sálfræðitrylli sem myndin breytist í
eftir upphafsatriðið. Barnaníðingar
eru allra afstyrma fyrirlitlegastir
en framvindan þróast í óvænta átt
og verður leikur kattarins að mús-
inni. Hvað sem öðru líður vekur
myndin þarfa athygli á perrum og
aðferðum þeirra. Leikur Page er
með miklum ólíkindum og Wilson
er að festa sig í sessi sem leikari
sem vert er að fylgjast með. Leik-
stjórnin er þétt og misvænt hand-
ritið á fína spretti.
Martröð barnaníðingsins
Sæbjörn Valdimarsson
Hard Candy Bandaríkin 2006. Myndform 2006. Ísl.
texti. 100 mín. Ekki við hæfi yngri en 16
ára. Leikstjóri: David Slade. Aðalleikarar:
Patrick Wilson, Ellen Page, Sandra Oh.
Spenna/Drama