Morgunblaðið - 26.11.2007, Qupperneq 40
MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 330. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Dýr þyngdaraukning
Hver aukning meðalþyngdar Ís-
lendinga um eitt stig líkamsþyngd-
arstuðuls (BMI) eykur heilbrigðis-
kostnað þjóðarinnar um hátt í tvo
milljarða á ársgrundvelli. 6-9% af
heilbrigðisútgjöldum á Vestur-
löndum eru tilkomin vegna offitu, að
sögn Tinnu Laufeyjar Ásgeirs-
dóttur, doktors í heilsuhagfræði.
» Forsíða
Töfrafoss alveg horfinn
Völundur Jóhannesson, stofnandi
Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, segir
að Landsvirkjun hafi skrökvað því
að Töfrafoss í Kringilsá myndi að-
eins fara hálfur í kaf þegar mest
væri í lóninu. Líklega sé nú orðið sjö
til átta metra dýpi niður á fossinn.
» Miðopna
Bjargað úr bifreið
Björgunarsveitarmenn brutu hlið-
arrúðu og náðu þannig til eldri
manns sem var í sjálfheldu í bifreið
sinni eftir að hún hafnaði í Höfða-
brekkutjörnum við Vík í Mýrdal í
gær. Maðurinn liggur þungt haldinn
á gjörgæsludeild. » 2
Mynd um Explorer
Þór Jakobsson veðurfræðingur
vinnur nú að heimildamynd um ferð
rannsóknar- og fræðsluskipsins
Explorer hingað til lands og Austur-
Grænlands fyrir rúmu ári. Skipið
sökk sem kunnugt er við Suður-
skautslandið fyrir helgi. » 8
SKOÐANIR »
Staksteinar: Leynifundur?!
Forystugreinar: Samfylkingin á
undanhaldi | Þrengt að Kasparov
Viðhorf: Konfektkassinn
Ljósvaki: Svíþjóð eða Benidorm
UMRÆÐAN»
Mannréttindabrot eiga ekki að líðast
50+ eða 70+
Bíbí á jaðrinum
Draumurinn sem rættist
Jólakaktus og aðrir haustkaktusar
FASTEIGNIR»
Heitast 7°C | Kaldast 2°C
SA 8-13 m/s og víða
rigning, en SV 8-13
vestanlands. Skúrir.
Styttir upp fyrir aust-
an undir kvöld. » 10
Þótt ný plata Birg-
ittu Haukdal sé á
köflum sykursæt og
væmin er um heild-
stætt og gott verk að
ræða. » 33
TÓNLIST»
Fjórar
stjörnur
KVIKMYNDIR»
Bjólfskviða er tæknilegt
afrek. » 35
Þótt ótrúlegt megi
virðast eru heil tíu
ár síðan mynddisk-
urinn kom á markað
og leysti mynd-
bandið af hólmi. » 34
TÆKNI»
Tíminn
líður hratt
TÓNLIST»
Nokia on ice heppnaðist
framar vonum. » 36
FÓLK»
Flugan var á veggjum
um alla borg. » 32
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Vísindamaður sem saknað var …
2. McCartney fékk ekki að lenda
3. Take That í eiturlyfjum
4. Ísland með Hollandi og Noregi
MAGNÚS Geir
Þórðarson, leik-
hússtjóri Leik-
félags Akureyrar,
tilkynnti starfs-
fólki LA í gær,
skv. heimildum
Morgunblaðsins,
að hann sækti um
stöðu leik-
hússtjóra Borg-
arleikhússins.
Starfið var auglýst í gær, umsóknum
þarf að skila fyrir 29. desember og
nýr leikhússtjóri tekur til starfa á
vordögum. Guðjón Pedersen, núver-
andi leikhússtjóri Borgarleikhúss-
ins, hættir í vor eftir átta ár í starfi
en venja er að nýr leikhússtjóri vinni
við hlið þess fráfarandi um skeið.
Magnús Geir hefur stýrt LA í tæp
fjögur ár, félagið hefur átt mikilli
velgengni að fagna á þeim tíma og
aðsókn á sýningar þess margfaldast.
Ráðningarsamningur Magnúsar var
endurnýjaður til þriggja ára um síð-
ustu áramót, en ákvörðun hans nú er
tekin í fullu samráði við stjórn LA,
skv. heimildum blaðsins, og beinlínis
gert ráð fyrir því á sínum tíma að
þessi staða gæti komið upp.
Magnús
sækir um
Magnús Geir
Þórðarson
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÓNEITANLEGA var það nokkuð
óhugnanlegt að vera aleinn í auðn-
inni – í blindbyl,“ segir Judicael
Bruno Arnold Decriem, sem fannst
rétt norðan við Eldgjá í Klappargili
aðfaranótt sunnudags eftir víðtæka
leit björgunarsveita. Bruno hafði þá
beðið eftir björgun í um 55 klukku-
stundir en hann festi bíl sinn síðdeg-
is á fimmtudag. Hann hafði meðferð-
is tvær samlokur og súkkulaði-
stykki.
Bruno var á vegum Raunvísinda-
stofnunar að sækja átta GPS-land-
mælingatæki á svæðinu frá Kirkju-
bæjarklaustri, norður undir Þóris-
vatn og austur að Kálfafelli. Hann
lagði af stað upp úr hádegi á fimmtu-
dag, einn á ferð á Toyota Hilux-
jeppa, og áætlaði að ferðin tæki einn
til tvo daga. Ekkert hafði spurst til
hans um miðjan dag á laugardag og
því ákveðið að hefja leit.
Leitin gekk vel enda veður ágætt,
þótt kalt væri. Sex björgunarsveitir
af svæðinu tóku þátt í leitinni og
höfðu menn farið að sjö GPS-mæli-
tækjum og áttu nokkra kílómetra
eftir að því áttunda þegar jeppi
Brunos fannst. Bruno var töluvert
kaldur en annars ómeiddur, og á fá
orð til að lýsa þeirri stund þegar
hann fannst.
Jeppinn varð olíu- og rafmagns-
laus á föstudag en þá gerði einmitt
aftakaveður á svæðinu. Bruno segir
að svefnpoki sinn hafi þá komið að
góðum notum en þrátt fyrir hann
hafi sér verið afar kalt. Á laugardag
var veðrið skaplegra og fór Bruno í
gönguferð til að leita skjóls. Það
fann hann hins vegar ekki og hafðist
því við í bílnum þar til björgun barst.
55 klukkutíma bið
Festi bílinn síðdegis á fimmtudag og braut verkfæri sín
Var með tvær samlokur og súkkulaðistykki meðferðis
Í HNOTSKURN
»Hvorki talstöð né NMT-símiBrunos virkuðu þannig að
hann gat ekki kallað eftir hjálp.
»Hann reyndi að koma bílnumúr förunum en verkfærin
brotnuðu við átökin. Bíllinn var
blýfastur.
»Ekki tókst að losa bílinn þeg-ar Bruno fannst og er hann
enn í Klappargili.
»Björgunarsveitir mæla ekkimeð að menn fari einir upp á
hálendi um hávetur án þess að
þekkja þar til.
!
"""
"
##
Í TILEFNI af því að í ár eru liðin
200 ár frá fæðingu Jónasar Hall-
grímssonar ákváðu afkomendur
systkina skáldsins að hittast og
minnast systkinanna auk þess að
hitta í leiðinni skyldmenni. Á þriðja
hundrað manns sóttu samkomuna
og í ráði er að taka saman ætt-
arsögu.
Jónas átti þrjú systkin, þau Þor-
stein, Rannveigu og Önnu Mar-
gréti. Afkomendur eru aðeins frá
tveimur þeirra, Þorsteini og Rann-
veigu.
Fjölbreytt dagskrá
Samkoma ættarinnar fór fram í
sal Kennaraháskóla Íslands síðdeg-
is á laugardag og var dagskráin
fjölbreytt. Sungnar voru Vísur Ís-
lendinga og fjögur ungmenni úr
ættinni lásu ljóð eftir Jónas. Páll
Valsson íslenskufræðingur flutti
einnig erindi um þjóðskáldið og
voru sýndar myndir af afkom-
endum Rannveigar og Þorsteins í
þrjá ættliði.
Innfellda ljósmyndin er af systur
Jónasar, Rannveigu Hallgríms-
dóttur (1802-1874), og var tekin ár-
ið 1872. Ekki eru til ljósmyndir af
hinum systkinunum.
Rannveig bjó ásamt manni sínum
á Steinsstöðum, þar sem Jónas átti
sér oft athvarf á milli ferða sinna.
Rannveig er talin hafa verið skáld-
mælt, þótt aðeins hafi varðveist eft-
ir hana nokkrar vísur. Hún var
einnig tónelsk og vitað er til að
langspil hafi verið til á heimilinu,
sem heimilismenn lærðu á, auk þess
sem mikið var sungið.
Steinsstaðir voru í þjóðbraut og
var mikið um að gestir gistu á bæn-
um á ferðum sínum. Rannveig hef-
ur því séð um umsvifamikið heimili.
Afkomendur systkina Jónasar Hallgrímssonar hittust um helgina
Minntust
Jónasar og
systkina
Morgunblaðið/Golli