Morgunblaðið - 28.11.2007, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 332. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Úrvalsvísitala lækkar
Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,44%
í gær og hefur hún ekki verið lægri
síðan 5. janúar. Eins og svo oft áður
á undanförnum vikum voru það FL
Group og Exista sem leiddu
lækkunina, FL Group lækkaði um
5,5% í gær og Exista um 3,8%.
Verðmæti FL Group hefur lækkað
um 91 milljarð króna frá 1. júlí sl. og
verðmæti Exista um 118 milljarða.
» Forsíða
Efst á lífsgæðalista
Samkvæmt þróunarskýrslu SÞ er
Ísland efst á lífsgæðalista af 175
þjóðum en undanfarin sex ár hafa
Norðmenn trónað á toppnum. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utanríkis-
ráðherra segir niðurstöðuna undir-
strika nauðsyn þess að Íslendingar
axli aukna ábyrgð í samfélagi þjóð-
anna. » 2
Skerðingu verði frestað
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur boðið lífeyris-
sjóðunum, sem áforma skerðingu til
um 1.800 öryrkja, að greiða þeim 100
milljónir gegn því að sjóðirnir fresti
skerðingunni um eitt ár. » 2
Hefja viðræður á ný
Ísraelar og Palestínumenn náðu í
gær samkomulagi á ráðstefnu í
Bandaríkjunum um að hefja aftur
friðarviðræður. Þær hafa legið niðri
í sjö ár. Fyrstu viðræðufundirnir
verða 12. desember. » 14
SKOÐANIR»
Staksteinar: Glöggt er gests augað?
Forystugreinar: Dýr lyf og
sjúklingar | Miðausturland
Ljósvakinn: Ógnandi og heillandi
UMRÆÐAN»
Umhverfisráðherrann og
þjóðarhagsmunir
Glæpir gegn konum eru ekki
menningararfleifð
%'
%'
% &
%& % & %&'
4 5(
0!- !
6!, !!,'!")0 % &
%& %& % &'% %& /
72 (
%&&
% % &'% %& %'
89::;<=
(>?<:=@6(AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@(77<D@;
@9<(77<D@;
(E@(77<D@;
(3=((@F<;@7=
G;A;@(7>G?@
(8<
?3<;
6?@6=(3-(=>;:;
Heitast 5 °C | Kaldast -3 °C
Austlæg átt, víða 5-
10 m/s. Slydda norð-
austan- og austanlands,
annars skýjað með
köflum og úrkomulítið. » 10
Undarlegir hlutir
áttu sér stað á Wall
Street á fyrstu mín-
útunum í kjölfar
Challenger-slyssins
árið 1986. » 38
BÓKMENNTIR»
Ótrúleg
atburðarás
TÓNLIST»
Þrennir flottir tónleikar
fara fram í kvöld. » 37
Ný skáldsaga Vals
Gunnarssonar segir
frá feitum, einmana
og ljótum Finna sem
er orðinn þreyttur á
líkama sínum. » 36
BÓKMENNTIR»
Feitur og
þreyttur
KVIKMYNDIR»
Rendition er rétt yfir
meðallagi. » 41
FÓLK»
Ashlee Simpson á
góðan kærasta. » 39
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Fékk ekki að sjá nýfæddan son
2. Britney vill stærri brjóst
3. Konur sniðganga Silfrið
4. Dan aldrei komið til Dalvíkur
„VIÐBRÖGÐ
sumra urðu strax
að þetta væri eitt-
hvað fyrir hvítt
fólk og spurt var
hvort það ætti nú
að fara að syngja
eins og hvíta fólk-
ið … ú ú ú ú a a
a.“ Ze Manel
syngur af innlifun
á höfuðtónum, eins og tíðkast í
„lærðum“ söng Vesturlandabúa – og
svo hlær hann – og hlær. Hann er
höfundur fyrstu afrísku óperunnar,
en hugmyndin að því að tefla saman
afrískri menningu og evrópskri í
óperu kom frá Kláusi Hollands-
prinsi, sem lést árið 2002. Óperan,
Bintou-Ware, var frumsýnd í Amst-
erdam en í haust var hún sýnd í
Chatelet-leikhúsinu í París og hefur
fengið framúrskarandi dóma.
Chatelet-leikhúsið er nú á leið í
heimsreisu með óperuna.
Ze Manel er einn vinsælasti tón-
listarmaður Vestur-Afríku. Árið
1983 var hann gerður útlægur vegna
ádeilu á stjórnvöld í söngvum sínum.
Hann er staddur hér á landi við
plötuupptöku með hljómsveit sinni
Super Mama Djombo. Ze Manel
segir frá óperunni og lífi sínu í tón-
listinni í viðtali við Morgunblaðið í
dag. | Miðopna
„Syngja eins og hvíta fólkið?“
Ze Manel
Höfundur fyrstu
afrísku óperunnar
er hér á landi
SUPER Mama Djombo, sem er hljómsveit frá Gíneu-
Bissá í Vestur-Afríku, heimsótti Hraunvallaskóla í
Hafnarfirði í gærmorgun.
Nemendur grunnskólans og elstu nemendur leikskól-
ans, sem eru alls á fimmta hundraðið, fjölmenntu á sal
og skemmtu sér konunglega við afríska hrynjandi og
framandi tóna sem lýstu upp hauströkkrið í Hafnar-
firði. Guðrún Sturlaugsdóttir aðstoðarskólastjóri sagði
að stemmingin hefði verið mjög góð og börnin tekið
virkan þátt með söng og dansi. Hljómsveitin kenndi
börnunum m.a. lag sem börn í heimalandi hennar
syngja gjarnan.
„Þetta var bara yndislegt,“ sagði Guðrún um tón-
leika afrísku hljómsveitarinnar.
Afrískt fjör í Hraunvallaskóla
Morgunblaðið/Frikki
„VIÐ lýstum því yfir á sínum tíma
að Listasafn Reykjavíkur hefði hug
á að bæta verkinu við safneign
Kjarvals en ef þess væri ekki kostur
að við fengjum færi á að sýna það
almenningi á sýningu í Listasafni
Reykjavíkur. Nú er sú stund runnin
upp og er sannarlega söguleg,“
segir Hafþór Yngvason, forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur, um
verk Jóhannesar Kjarvals, Hvíta-
sunnudag.
Hulunni hefur loks verið svipt af
kaupanda þess, Landsbankanum,
sem lánar það og önnur verk keypt
á árinu til sýningar á Kjarvals-
stöðum sem verður opnuð 2. desem-
ber. Verkið var keypt á uppboði í
Kaupmannahöfn í febrúar og vissi
þá enginn hver hefði keypt það.
Það þykir einstakt fyrir Kjarval,
málað 1918 að því er talið er og
sýnt á fyrstu einkasýningu hans í
janúar 1919. | 15
Landsbankinn
keypti Hvíta-
sunnudag
ALÞJÓÐA ólympíunefndin, IOC,
hefur gefið sterklega í skyn að hand-
knattleikur verði tekinn af dagskrá
ólympíuleika í framtíðinni taki Al-
þjóða handknattleikssambandið,
IHF, ekki til rannsóknar meint
mútu- og spillingarmál sem tengist
úrslitaleik Asíukeppninnar í hand-
knattleik karla í haust. Í honum
vann Kúveit landslið Suður-Kóreu
örugglega þar sem engu virtist lík-
ara en úrslitin hafi verið ákveðin fyr-
irfram.
Suður-Kóreumenn hafa krafist
rannsóknar á leiknum og meintum
greiðslum milli formanns hand-
knattleikssambands Kúveit og for-
seta IHF. Óska þeir eftir að úrslit
leiksins verði felld niður eða þá að
leikurinn verði háður á ný. IHF neit-
ar að taka málið fyrir. Talsmaður
IOC hefur látið hafa eftir sér að
rannsóknar verði krafist því um sé
að ræða atriði sem tengist forkeppni
Ólympíuleika sem heyri undir IOC.
Handknattleiksíþróttin hefur
lengi átt undir högg að sækja innan
IOC og til margra ára hafa verið
uppi háværar raddir þess efnis að
strika eigi greinina út af dagskrá
leikanna. Fyrrgreint mál hefur orðið
til þess að fylgismönnum þeirra
hugmynda hefur vaxið fiskur um
hrygg. | Íþróttir
Spilltur handbolti?
Íþróttin ef til vill tekin af dagskrá ÓL
Reuters
Tekist á Það er hart tekist á utan
vallar sem innan í handboltanum.
KOLBRÚN Halldórsdóttir alþing-
ismaður Vinstri grænna hefur lagt
fram fyrirspurn til heilbrigðisráð-
herra á Alþingi um hvernig sú hefð
hafi mótast að klæða stúlkur í
bleikt og drengi í blátt á fæðingar-
deildum og auðkenna þá með
bláum armböndum og stúlkur með
bleikum. Spyr Kolbrún hvort ráð-
herra telji koma til greina að því
verði breytt þannig að nýfædd börn
séu ekki aðgreind eftir kyni og að
þau verði framvegis kædd í hvítt
„eða aðra kynhlutlausari liti“.
Ekki meira
blátt og bleikt
Morgunblaðið/Jim Smart