Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 38
Bleikir svanir Svanahjónin para
sig snemma og halda alltaf saman.
„Einn svanur getur verið hættu-
legur fyrir hjónabandið, og bleikir
verða þeir að vera.
V
ið keyptum þetta hús fyr-
ir einu og hálfu ári og
mættumst eiginlega á
miðri leið hér í Fossvog-
inum. Ég er úr Árbæn-
um,“ segir Marta María Jónasdóttir,
rithöfundur og ritstjóri Sirkus. „Eig-
inmaður minn, Jóhannes Ingimund-
arson sjónfræðingur, er af Nesinu.“
Marta María hefði ekki viljað búa í
Árbænum og Jóhannes ekki á Nes-
inu, svo þetta var góð lausn fyrir
bæði.
„Þegar við komum hingað féll ég
strax fyrir panelnum á veggnum.
Þetta er palisander, sem er að verða
útdautt fyrirbæri. Mér finnst hann
óskaplega fallegur. Við breyttum
ekki miklu, skiptum þó um gólfefni,
tókum teppi og settum sísalteppi í
staðinn á stofuna og stigana og flot-
uðum gólfið í borðstofu og eldhúsi.
Eldhúsinnréttingin er sú upp-
runalega en við tókum okkur til og
lökkuðum borðplötur og fækkuðum
svolítið skápum til að létta yfirbragð-
ið. Upprunalegu hlutirnir í húsinu,
hurðir, skápar og handrið, voru allir
mjög vel með farnir og því ekkert
fengið með að býtta þeim út.“
Dæmigert Fossvogshús
Húsið er byggt um 1970 og í hefð-
bundnum stíl húsa í Fossvoginum,
eiginlega á fjórum pöllum. Gengið er
inn í forstofu og þaðan í borðstofu og
eldhús, upp í stofu, niður í svefnhluta
hússins og þrjár tröppur að auki nið-
ur í neðsta hlutann. Þar er m.a.
þvottahús. Hún segir að veðrið sé
hvergi jafngott og í Fossvoginum og í
sólskininu í sumar breyttust íbúar
hússins í hálfgerða múlatta, en fundu
til þess að skítkalt var annars staðar,
t.d. þegar þeir brugðu sér niður í
miðbæ.
Þótt borðstofan sé eiginlega nokk-
urs konar miðpunktur hússins og
kannski ekki sá rólegasti, þá reyndist
hún vinkonunum Mörtu Maríu og
Þóru Sigurðardóttur, vel þekktri sem
Birtu í Stundinni okkar, frábær
vinnustaður í sumar. Þar sátu þær
við borðstofuborðið og lögðu loka-
hönd á bókina sem þær skrifuðu í
sameiningu, Ef þú bara vissir …
Þetta er reyndar önnur bók þeirra.
Árið 2005 kom út Djöflatertan, sem
þær skrifuðu líka saman. Marta
María segir að upphafið að bókinni
hafi verið ótal símafundir, enda býr
Þóra á Bahamaeyjum. Þannig fóru
þær yfir „plottið“ og ræddu málin en
settust svo niður og skrifuðu hvor í
sínu landinu. Verklok fóru fram á
borðstofupallinum í Fossvoginum.
Kaupglöð sögupersóna
Marta María var um tíma ritstjóri
tímaritsins Veggfóðurs svo það ligg-
ur beinast við að spyrja hvort heimili
og húsbúnaður komi við sögu í Ef þú
bara vissir. „Já, svo sannarlega. Bók-
in fjallar um Klöru sem er í 9. bekk
og kemst að því að fjölskyldan býr yf-
ir miklu leyndarmáli. Í framhaldi af
því hrynur veröld hennar. Nafn bók-
arinnar er einmitt vísun í það enda er
plottið krassandi og sannarlega saga
til næsta bæjar. Ástin tvinnast svo
saman við söguþráðinn og Klara ger-
ir allt til að reyna að ná í drauma-
prinsinn Jonna.
Móðir Klöru er viðskiptafræðingur
sem hefur snúið sér að jógafræðum
til að öðlast innri frið. Það er svolítið
erfitt því hún er svo upptekin við að
kaupa bráðnauðsynlegan óþarfa í
lífsstílsverslunum. Heimilið hafði
reyndar átt að vera mjög svo „míni-
malískt“ en vegna kaupgleði húsmóð-
urinnar er það hreinlega að springa
utan af öllu dótinu. Þetta er svolítil
ádeila á það sem er að gerast á svo
mörgum heimilum þar sem fólk
kaupir og kaupir og kaupir. Mamman
er þó ekki alslæm þótt hún sé alltaf
úti að „sjoppa“,“ segir Marta María.
Sjálf hefur hún gaman af að kaupa
hitt og þetta og kannski ber mest á
öllum kertunum sem prýða heimilið.
Í loftunum hanga PH-lampar, þekkt
dönsk hönnun, og í öðrum enda stof-
unnar standa tveir bleikir svanir,
hönnun Arne Jacobsens. „Það er Jó-
hannes sem hefur komið með þessar
skandínavísku áherslur, enda lærði
hann í Danmörku. Fyrst áttum við
bara einn svan en ég sagði honum að
Einfaldað eldhús Litlu hefur verið breytt í eldhúsinu, borðplöturnar
reyndar lakkaðar og skápum fækkað. Nýtt eldhús er efst á óskalista hús-
móðurinnar sem dreymir um að hafa það svart með „glamúrþema“.
Appelsínugulur og bleikur rithöfundur
Appelsínugult Sófinn er í einum af uppáhaldslitum rithöfundarins.
Sterkir litir, skandinav-
ísk hönnun og hlýlegur
viður einkennir heimili
Mörtu Maríu Jónas–
dóttur, rithöfundar og
ritstjóra Sirkuss. Fríða
Björnsdóttir sótti hana
heim í pallaraðhúsið
hennar í Fossvoginum
og komst að því að hús-
freyjan getur verið lið-
tæk með hamarinn.
Sæt saman Helgi litli í fangi móður sinnar. Hann er rúmlega ársgamall og
hressilegur strákur sem eflaust kann vel að meta litadýrðina á heimilinu.
lifun
38 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ