Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 31 AKUREYRI Selfoss | Þórarinn Ingólfsson að- stoðarskólameistari og Örlygur Karlsson, alþjóðafulltrúi Fjölbrauta- skóla Suðurlands (FSu) á Selfossi, eru nýkomnir heim úr ferð til Beij- ing í Kína. Þar var undirritaður samningur milli framhaldsskóla í Beijing og FSu um gagnkvæm nem- endaskipti á haustönn 2008. Gert er ráð fyrir að 15 nemendur og tveir kennarar frá Kína komi í vikuheimsókn í FSu í byrjun október og samsvarandi hópur frá FSu fari utan um miðjan október. Að sögn Örlygs voru móttökurnar í Beijing einstaklega góðar og ljóst að sam- starfsskólinn leggur mikinn metnað í þessi samskipti. Myndin var tekin þegar Örlygur skrifaði undir, Þór- arinn fylgist með. Á móti þeim sitja Long JunLi aðstoðarskólameistari, Li Chia Ling alþjóðafulltrúi, Shi Baihe skólameistari. FSu í sam- starf í Kína ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | Jóhanna Haraldsdóttir frá Haga í Gnúpverjahreppi er listakona af Guðs náð. Síðustu tvo áratugina hefur hún unnið við smíðar á ýmsum leikföngum og húsdýrum sem vakið hafa athygli. Eftir að hún flutti á Selfoss árið 2001 kom hún sér upp vinnuaðstöðu í bílskúrnum við íbúðarhús sitt þar sem hún býr til leikföngin. Inni í íbúðinni er síðan sérstakt herbergi þar sem afraksturinn úr bíl- skúrnum er til sýnis og sölu. Jóhanna hefur sjaldan eða aldrei haft eins mikið að gera og núna enda styttist í jólin og margir kaupa jólagjafirnar hjá henni. Meðal vinsælustu leikfanganna eru traktorar og dúkkurúm. Dúkkurúmin merkir hún ef fólk vill og saumar innan í þau. Hún hefur ekki tölu á fjölda þeirra leikfanga sem hún hefur smíðað. Auk þess að vinna öll leikföngin í höndunum rennir hún penna og ýmsa aðra nytjahluti úr tré. Sækist eftir sjaldgæfum viði Jóhanna segir að fólk sé duglegt að láta sig vita þegar það fellir sjaldgæf tré í garðinum hjá sér eins og gullregn og reynivið og hvetur hún fólk til að halda áfram að láta sig vita séu garðeigendur að grisja í görðunum hjá sér. Hlutir Jóhönnu eru seldir í Ull- arselinu á Hvanneyri í Borgarfirði, gömlu Þingborg í Flóahreppi og á heimili hennar í Grashaga 1a á Sel- fossi. Smíðar vöggur og traktora í bílskúrnum Völundur Dúkkuvöggurnar eru svo vinsælar að Jóhanna hefur ekki tölu á fjöldanum. Hún merkir vöggurnar og saumar inn í þær sé þess óskað. Mikið að gera hjá listakonunni Selfoss | Konur í Kvenfélagi Sel- fosskirkju komu saman á dög- unum eins og þær gera alltaf fyrir jólin og bök- uðu 700 laufa- brauðskökur. Laufabrauðið verður selt í fjáröflunarskyni eftir aðventu- tónleika í kirkjunni 9. desember. Laufabrauðskökunum verður pakkað í tvær misstórar pakkningar og seldar þannig. Kvenfélag kirkj- unnar hefur verið starfrækt frá 1966 og í dag eru félagsmenn 24. Mæðg- urnar Guðbjörg Ólafsdóttir og Sigríð- ur Björnsdóttir taka þátt í laufa- brauðsbakstrinum á hverju ári. Þær sjást að störfum í eldhúsi Selfoss- kirkju. Steikja laufabrauð BÆJARRÁÐ Árborgar og Hvera- gerðis hafa samþykkt niðurstöðu starfshóps sem unnið hefur að mál- efnum Suðurlandsvegar. Gert er ráð fyrir að tvöfaldur Suðurlandsvegur, milli Kamba og Selfoss, verði sem næst núverandi vegstæði. Starfshópur fulltrúa bæjarstjórna Ölfuss, Hveragerðis, Árborgar og Vegagerðarinnar hefur unnið að málefnum Suðurlandsvegar. Fund- argerð með niðurstöðunni hefur ver- ið lögð fyrir bæjarfélögin og sam- þykkt í bæjarráðum Hveragerðis og Árborgar, að því er fram kemur á heimasíðum sveitarfélaganna. Í samþykkt bæjarráðs Hvera- gerðis er þessum áfanga fagnað og stjórnvöld hvött til að hraða undir- búningi svo hefja megi framkvæmd- ir hið fyrsta. Samþykkja sama vegstæði ♦♦♦ Margir eru komnir með vatn í munn- inn af tilhlökkun vegna rjúpunnar á aðfangadagskvöld. Sumir sjá fyrir sér þunnt veski. Einn félagi minn skýtur sjálfur ofan í fjölskylduna en hefur lítið veitt; sá eina í síðustu gönguferð, hún birtist skyndilega mjög nálægt en hann náði skoti, og eftir lá hálfur vængur! Bringan í tætlum. Kannski verður bara rjúpnapaté hjá honum …    Þegar upphæðir til skálda- eða rit- höfundasetra í fjárlagafrumvarpinu eru skoðaðar kemur í ljós að í pen- ingum talið eru höfundar misjafnt metnir. Sérstaklega er hlutur norð- lensku stórskáldanna rýr. Í millj- ónum króna talið er listinn svona: Halldór Laxness 31,7; Snorri Sturlu- son 16,1; Þórbergur Þórðarson 15,5; Gunnar Gunnarsson 14,7; Jónas Hallgrímsson 4,5 og Jón Sveinsson 1,8.    Líf og fjör verður væntanlega við Ráðhústorgið í dag; í fyrsta lagi verður opnuð þar ný kirkjumiðstöð, Kirkjubær, kl. 16, með stuttri bless- unarathöfn. Ljósmyndasýningin „Hjálparstarf í Darfúr skilar ár- angri“ verður opnuð en Paul Jeffrey tók myndirnar. Athöfnin er til kl. 19.    Kveikt verður á jólatrénu sem vina- bærinn Randers í Danmörku færir Akureyringum að gjöf kl. 17.40. At- höfnin hefst kl. 17. Lúðrasveit Ak- ureyrar leikur létt lög og Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Sendiherra Dana á Íslandi, Leif Mogens Reiman, og Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri flytja ávörp.    Opið hús verður hjá Landsbankan- um við Ráðhústorgið kl. 16-17 fyrir athöfnina við jólatréð; skemmtiatriði og veitingar í boði.    Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er í dag og af því tilefni verður gengið með kyndla og fána frá Ráðhústorgi kl. 18 og að Akureyrarkirkju, þar sem verður stutt athöfn.    Eyþór Ingi Jónsson verður aftur á ferðinni í kvöld; leikur þá á orgel og stjórnar sönghópnum Hymnodiu á tónleikjum í Akureyrarkirkju kl. 20. Þar koma og fram fiðluleikararnir Lára Sóley Jóhannsdóttir og Marcin Lazarz, og Ásdís Arnardóttir sem leikur á selló.    Haraldur Bessason, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri, hring- ir Íslandsklukkunni á lóð HA í dag kl. 15.30. Henni er jafnan hringt á fullveldisdaginn. Haraldur er bú- settur í Kanada, en er á Akureyri m.a. til að kynna nýja bók sína, Dag- stund á Fort Garry, sem hann les einmitt úr á Amtsbókasafninu kl. 17.15 á mánudaginn.    Heimspekikaffihús á Bláu könnunni á sunnudögum hefur verið geysilega vel sótt. Félag áhugafólks um heim- speki á Akureyri hefur staðið fyrir uppákomunum í samstarfi við fé- lagsvísinda- og lagadeild HA. Á morgun kl. 11-12 verður síðasta slíka samkoman og er Sólveig Anna Bóas- dóttir gestur að þessu sinni.    Hundrað ára gamalt, friðað og sögu- frægt hús við Hafnarstræti 19 fær nýtt hlutverk í dag. Þar hefur verið sláturhús, heildsala og birgða- geymsla, auk þess sem herinn notaði það undir geymslu í heimsstyrjöld- inni. Nú opna nokkrar ungar konur snyrtistofu í húsinu.    Sýning útskriftarnema við listnáms- braut VMA verður í Deiglunni í dag og á morgun kl. 14-18.    Akureyrarbær hefur náð sam- komulagi við eigendur Svefns og heilsu um útgáfu byggingarleyfis vegna framkvæmda við stækkun verslunarmiðstöðvarinnar Gler- ártorgs og vinnan því hafin á ný. Leyfið var fellt úr gildi í vikunni og vinna stöðvuð vegna deilna um eign- arréttindi á hluta lóðarinnar.    Alþjóðadagur fatlaðra er á mánu- daginn og af því tilefni verður Ljósahátíð á Ráðhústorgi þann dag kl. 17-19. Kveikt verður á kertum, sungin jólalög og boðið upp á kakó og piparkökur.    Myndlistarkonur láta ekki sitt eftir liggja; í dag og á morgun verður opið á loftinu í Gránufélagsgötu 48, þar sem Margrét Jónsdóttir er með leir- kverkstæði sitt. Nokkrar listakonur verða þar með ýmsa muni til sölu kl. 13-18 og reyndar allar helgar fram að jólum. Þá verður jólamarkaður með norðlenskri hönnun opinn í GalleriBOX í Listagilinu kl. 12-18 og Sigurveig Sigurðardóttir býður upp á kaffi og vöfflur í Laufásgötu 3 frá kl. 13 til 18 þar sem hún verður með vinnustofusýningu.    Tónleikar verða í Glerárkirkju í dag kl. 15 til styrktar mæðrastyrks- nefnd, þar sem fram kemur Kvenna- kór Akureyrar, undir stjórn Arnórs Vilbergssonar, ásamt Gospelkór Ak- ureyrar. Stjórnandi hans er Rannvá Olsen. Einnig syngja börn úr Brekkuskóla undir stjórn Arnórs.    Hópur nemenda í 6. til 10. bekk Brekkuskóla frumsýnir á morgun jólasöngleikinn Kraftaverk á Betle- hemsstræti. Leikstjóri er Guðjón Davíð Karlsson, ein helsta skraut- fjöður Leikfélags Akureyrar, og tón- listarstjóri er Arnór B. Vilbergsson. Vert er að geta þess að hér er ekki um að ræða hefðbundna skólasýn- ingu, því hún er öllum opin og sýnt verður daglega út næstu viku.    Mikill áhugi er á tónleikum Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands með stórsöngvaranum Garðari Thór Cortes í íþróttahöllinni um næstu helgi. Eftir því sem næst verður komist er nærri því orðið uppselt.    Sýningin Þú ert nú meiri jólasveinn- inn verður frumsýnd í Rýminu á morgun kl. 14.30. Um er að ræða uppsetningu Smilbliks með aðstoð og í samstarfi við LA. Að sögn birtist þar leikarinn, tenórinn, trúðurinn, heimsmaðurinn og eineltisbarnið Stúfur eins og við höfum aldrei séð hann áður. Af rjúpu, skáldum og jóla- hinu og þessu Haraldur Bessason Nonni – Jón Stefán Sveinsson Sólveig Anna Bóasdóttir Stúfur Grýlu- og Leppalúðason Guðjón Davíð Karlsson Eyþór Ingi Jónsson Sigrún Björk Jakobsdóttir Margrét Jónsdóttir ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Hveragerði | Hveragerðisbær hefur ákveðið að kaupa Ullarþvottastöðina í Dynskógum 17. Var það samþykkt samhljóða í bæjarráði. Fram kemur á vef bæjarins að þetta eru mestu kaup sem bærinn hefur ráðist í. Kaupverð er 95,5 millj- ónir kr. Ístex rak í húsinu ullar- þvottastöð en undanfarin ár hefur verið þar geymsluhótel. Húsnæði ullar- þvottastöðvar keypt ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.