Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á ÁRINU 2007 fagnar Barna- spítali Hringsins 50 ára afmæli. Í tilefni afmælisins var í sumar haldin vegleg veisla fyrir börn og ágætt málþing í haust um starfsemi Barnaspítalans, árang- ur og verkefni framtíðarinnar. Augljóst er að á þeim 50 árum, sem liðin eru frá stofnun Barna- spítala Hringsins, hafa lækn- ingar og umönnun veikra barna tekið miklum framförum. Þegar barnadeild tók fyrst til starfa árið 1957 var það meðal annars með öflugum stuðningi Kvenfélagsins Hringsins. Við flutning spítalans í nýrra hús- næði árið 1965 voru Hring- skonur einnig öflugur bakhjarl spítalans. Spítalinn ber því nafn- ið Barnaspítali Hringsins í þakk- lætis- og virðingarskyni við Hringinn, kvenfélag. Árið 2003 fluttist Barnaspítali Hringsins í núverandi húsnæði. Enn veittu Hringskonur öflugan stuðnings til verksins. Kven- félagið Hringurinn lagði fram verulegar fjárhæðir til bygging- arinnar, auk þess sem þær styrktu Barnaspítalann til um- talsverðra tækjakaupa þegar flutt var í hið nýja hús. Enn voru Hringskonur í broddi fylk- ingar breiðs hóps stuðningsaðila Barnaspítala Hringsins. Þessir stuðningsaðilar eiga allir þátt í árangri Barnaspítalans. Í tilefni af 50 ára afmæli spít- alans afhenti Hringurinn einnig á þessu ári 50 mkr. framlag til aukinna tækjakaupa. Þessu fé hefur nú verið varið til að bæta enn frekar búnað spítalans. Augljóst má vera að Hring- skonur hafa með ótrúlegum dugnaði, kjarki, bjartsýni, fórn- fýsi og velvild unnið að aukinni velferð íslenskra barna frá stofnun kvenfélagsins fyrir rúm- um 100 árum. Þjóðin stendur í þakkarskuld við þessar konur. Á morgun, sunnudaginn 2. desember, er hið árlega Hrings- kaffi haldið í Broadway og hefst það kl. 13.30. Þar munu borð svigna undan dýrindis veitingum Hringskvenna og kökur og kræsingar fram bornar. Sam- hliða veitingum er veglegt happ- drætti með miklum fjölda vinn- inga. Auk þess verða skemmtiatriði. Það er von okkar á Barnaspít- ala Hringsins að landsmenn styðji af krafti við starf Hring- skvenna og mæti á ágætt Hringskaffið. Ásgeir Haraldsson Hringskaffi Höfundur er prófessor í barna- lækningum, forstöðumaður fræða- sviðs Barnaspítala Hringsins. Í NORÐUR-Úganda hefur ríkt stríðsástand í 20 ár og margar fjöl- skyldur hafa mátt þola óbærilega erfiðleika. Um 1,5 milljónir manna búa nú í flótta- mannabúðum sem eru settar upp til verndar þeim sem þar dvelja fyrir árásum skæru- liða. Aðstæður í búð- unum eru gífurlega erfiðar, þær eru sóða- legar, yfirfullar og hreinlætisaðstaða af skornum skammti. Þær hafa líka valdið því að hefðbundin fjöl- skyldubönd rofna. Börn, og þá sér- staklega ungar stúlk- ur, eru þar auðveld bráð fyrir þá sem vilja misnota þær kynferð- islega. Hér er sögð saga einnar þessara stúlkna, Mary. Sagan hefst þegar Mary var 13 ára. Þá var henni nauðgað mörgum sinnum af nokkrum ungmennum þegar hún eitt kvöldið fór út fyrir búðirnar til þess að baða sig í vatni í nágrenninu. Í kjölfar- ið fylltist Mary ör- væntingu og þung- lyndi en þorði ekki að segja neinum frá af ótta við hefndir. Þegar upp komst að Mary átti von á barni var henni kennt um að hún væri ófrísk og hún barin. Vegna fá- tæktar móður hennar naut hún ekki umönnunar hjúkrunarfólks meðan á meðgöngunni stóð. Við fæðingu barnsins kvaldist Mary í þrjá daga áður en eldri kona var kölluð til hjálpar án þess að hafa til þess kunnáttu. Í fæðingunni sköð- uðust æxlunarfæri hennar og blaðra. Hún getur ekki lengur haft stjórn á þvagláti og er höfð að að- hlátri vegna þess að „hún lyktar“. Mary býr í dag í litlum kofa í flóttamannabúðunum ein með barni sínu sem hún á í miklum erf- iðleikum með að hugsa um og fram- fleyta. Framtíð henn- ar, ef einhver, er óljós og hjálp ekki að finna. Til þess að hjálpa stúlkum eins og Mary hafa Félagið alnæm- isbörn og ABC- barnahjálp tekið hönd- um saman við ABC- barnahjálp í Uganda til aðstoðar barn- ungum stúlkum á aldrinum 12 til 16 ára, sem eru þungaðar eða eru með smábörn. Safnað verður fjár- munum til þess að byggja miðstöð í flóttamannabúðunum í Rackoko, þorpi í Pa- der-héraðinu í Norð- ur-Úganda þar sem stúlkurnar fá húsnæði, fæði, læknisaðstoð og fræðslu um umönnun ungbarna. Einnig verða þær aðstoðaðar við að afla sér mennt- unar. Lögð verður áhersla á að styrkja samband þeirra við fjölskyldur sín- ar. Dagheimili verður á staðnum og mun Félag alnæmisbarna safna sérstaklega fyrir því. Áætlaður heildarkostnaður við verkefnið er um 14 milljónir íslenskar krónur og kostnaður við dagheimilið um 2,8 milljónir íslenskra króna. Þeir sem vilja leggja fé til verkefnisins eru beðnir um að hafa samband við Maríu J. Gunnarsdóttur, formann Félags alnæmisbarna, á netfang- inu: mariaj@samorka.is. Vefsíða félagsins er www.hiv-born.is . Fé sem safnast mun renna óskipt til aðstoðarinnar. Saga Mary María J. Gunnarsdóttir og Ingibjörg Guðlaugsdóttir skrifa í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi » Börn og þá sér-staklega ungar stúlkur eru þar auðveld bráð fyrir þá sem vilja misnota þær kynferð- islega. María J. Gunnarsdóttir Höfundar starfa fyrir Félagið alnæmisbörn. Ingibjörg Guðlaugsdóttir ÞAÐ er staðreynd, að trygginga- félögin krefjast þess nú í auknum mæli, að fórnarlömb umferðarslysa og aðrir tjónþolar beini þeim bóta- kröfum til Tryggingastofnunar rík- isins, sem tryggingafélögin hafa tek- ið að sér að greiða, vegna líkamstjóna, sem þessir aðilar hafi beðið. Þannig velta tryggingafélögin því yfir á allan almenning að greiða þær bætur, sem iðgjöld trygginga- félaganna eiga að greiða. Undirritaður lögmaður vísar hér til þriggja mála, sem hann hefur komið að. Í fyrsta málinu gerði fórn- arlamb umferðarslyss (tjónþoli), sem hafi verið metið til 60% varanlegrar örorku, vegna skerðingar á aflahæfi, 19.096.007 króna kröfu á hendur tryggingafélaginu. Tryggingafélagið greiddi fórnarlambinu kröfuna með 1.576.007 krónum (8,3% af kröfunni) og beindi því til fórnarlambsins að krefja Tryggingastofnun ríkisins um eftirstöðvarnar, eða 17.520.000 krón- ur. Í öðru málinu var fórnarlambið metið til 50% varanlegrar örorku og krafði tryggingafélagið um bætur að fjárhæð 15.562.861 krónu. Trygg- ingafélagið greiddi fórnarlambinu í bætur 1.146.322 krónur (7,4% af kröfunni) og beindi því til þess, að krefja Tryggingastofnun ríkisins um 14.416.539 krónur vegna tjónsins. Í þessum tveimur tilvikum höfðu fórn- arlömbin (tjónþolarnir) verið metin til 75% örorku hjá Tryggingastofnun ríkisins vegna þeirra slysa sem málin eru sprottin af. Í þriðja málinu var umbjóðanda mínum, fórnarlambi umferðarslyss, metin 35% varanleg örorka og kref- ur félagið um 15.129.164 krónur í bætur, vegna tjónsins. Trygginga- félagið hefur greitt fórnarlambinu 2.628.965 krónur (17,4% af kröfunni) og beinir því til fórn- arlambsins að krefja Tryggingastofnun rík- isins um eftirstöðv- arnar, 12.500.199 krón- ur. Í þessu tilviki hefur þessi umbjóðandi minn ekki verið metinn af Tryggingastofnun rík- isins. Hefur ekki sótt um bætur þangað og er byrjaður að vinna í hlutastarfi, staðráðinn í því að auka vinnugetu sína og afla sér tekna, án þess að vera bóta- þegi úr sjóðum almenn- ings. Tryggingafélagið byggir hins vegar á, að umbjóðandi minn fengi þessar bætur hjá Tryggingastofnun rík- isins, ef hann krefði um bæturnar þar á bæ og þar við situr. Þannig stuðlar þetta trygg- ingafélag kinn- roðalaust að fjölgun bótaþega almanna- trygginga sér til hag- ræðis og öllum almenn- ingi til tjóns. Í þessum tilvikum byggja trygg- ingafélögin afstöðu sína á 1. ml. 4. mgr. 5. greinar skaðabótalaga er hljóðar svo: „Frá skaðabótakröfu vegna líkamstjóns dragast greiðslur sem tjónþoli fær frá almannatrygg- ingum.“ Hæstiréttur Íslands hefur þegar dæmt í nokkrum slíkum mál- um, þar sem tjónþolar hafa fengið viðurkenndan rétt til bóta, vegna lík- amstjóns frá Tryggingastofnun rík- isins, vegna þess máls sem til úr- lausnar var, og þá fallist á sjónarmið tryggingafélaganna. Í þeim málum hafa atvik hins vegar verið á þann veg, að einungis er dreginn frá umkröfðum bótum á hendur félög- unum um 1/3 hluti kröf- unnar, en ekki um 9/10 hlutar hennar, einsog í ofangreindum tilvikum. Í einu hæstaréttarmáli nr. 471/2005 féllst Hæstiréttur þó ekki á sjónarmið trygginga- félagsins, með þeim rökum, að bætur frá Tryggingastofnun væru ekki aðeins vegna þess tjóns, er tjónþol- inn geri kröfur um og til úrlausnar var. Þannig eru mál þessi atvikabundin og ekki ástæða til að gefast upp og bíða þolinmóður eft- ir lagabreytingu, eins og nokkrir lögmenn, sem starfa á þess sviði, hafa lýst yfir, að þeir geri. Hér þarf að halda uppi baráttunni og sýna fram á, að ofan- greind framkvæmd fái ekki staðist, verði þess- um ólögum ekki breytt í bráð. Það getur heldur ekki verið eðli- legt, að Tryggingastofnun ríkisins láti þetta viðgangast og hið háa Al- þingi, að Tryggingastofnun greiði í síauknum mæli þær bætur, sem tryggingafélög eigi að greiða, sam- kvæmt starfsleyfum sínum og inn- heimtu iðgjalda, en kappkosti þess í stað að skera við nögl þær bætur, sem öldruðum og öryrkjum ber. Hér þarf tafarlaust að bregðast við og er tími til þess kominn, að grátkonur Alþingis, Jóhanna Sig., Steingrímur Jóhann(a) og aðrir þar á bæ, sem segjast bera hag hinna minnimáttar fyrir brjósti, bretti upp ermar og vinni sín húsverk og leið- rétti þessi mál. Hér er um slíkt rétt- lætismál að ræða, að allur þing- heimur hlýtur að bregðast við með jákvæðum hætti. Það gengur vitaskuld ekki að tryggingafélögin í landinu séu stærstu bótaþegar almannatrygg- inga. Tryggingafélögin eru á örorkubótum Tryggingastofnun greiðir í sí- auknum mæli þær bætur, sem tryggingafélög eiga að greiða segir Steingrímur Þormóðsson » Þannig veltatrygginga- félögin því yfir á allan almenning að greiða þær bætur, sem ið- gjöld trygginga- félaganna eiga að greiða. Steingrímur Þormóðsson Höfundur er hrl.                      Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík Bókaðu strax og tryggðu þér lægsta verðið! www.heimsferdir.is Frá kr.18.990 Til Alicante á frábærum kjörum árið 2008 *) Flugsæti báðar leiðir með sköttum, fargjald A (27. ágúst eða 10. september). Takmarkað sætaframboð á þessu verði. Verð getur breyst án fyrirvara. báðar leiðir með sköttum* E N N E M M / S IA / N M 3 0 97 2 Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.