Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING LEIKRITIÐ Tröllapera er fimmta leikverkið sem leikfélagið Peð- ið setur upp eftir Jón Benjamín. Leikstjóri er Guð- jón Sigvaldason. Tröllapera gerist á heimili Grýlu og Leppa- lúða. Allir eru í hátíðarskapi, enda jólin í nánd og fyrsti jólasveinninn á leið til byggða þá um nóttina. Þó að persónur séu tröllakyns hrjá þær sömu vandamál og okkur hin. Leppalúði laumast til að hringja í sálfræðinginn sinn, Grýla á erfitt með kenjótta krakka, þegar Gili- trutt og Skrápur koma í kvöldmat. Frumsýn- ing verður á Grand Rokki í dag kl. 16. Gilitrutt og Skráp- ur í boði hjá Grýlu Leiklist Leikfélagið Peðið Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is SELLÓLEIKARINN Mstislav Rostropovitsj lést í apríl í vor. Hann var einn mesti listamaður síns tíma og hvarvetna dáður fyrir leik sinn. Hann var einnig frábær hljómsveit- arstjóri og góður píanóleikari. Tríó Reykjavíkur helgar tónleika sína í Hafnarborg á sunnudagskvöld kl. 20 minningu hans. „Andlát hans hafði mjög mikil áhrif á mig, þótt ég þekkti hann ekki per- sónulega,“ segir Gunnar Kvaran, sellóleikari Tríós Reykjavíkur. „Mér fannst það mikil vegamót fyrir tónlist heimsins, þegar hann var allt í einu horfinn af sjónarsviðinu. Ég bauð mjög góðum og yndislegum finnskum sellóleikara út að borða þetta kvöld, hér í Reykjavík. Hann var kominn hingað til að kenna í Listaháskól- anum. Við töluðum um alla heima og geima. Ég spurði hann: „Erkki, er þér kunnugt um að Rostropovitsj er veikur og liggur á sjúkrahúsi í Moskvu?“ Hann hafði ekki hugmynd um þetta, en við fórum að tala um hann, og töluðum lengi. Þá sagði ég við Erkki: „Það hlýtur oft að vera erf- itt að vera svona óstjórnlega frægur maður. Það eina sem ég vona honum til handa er það, að þegar hann fer héðan fari hann sáttur við sjálfan sig, Guð og menn.“ Á þessari stundu var Rostropivitsj að deyja. Ég vissi að hann væri veikur, en vissi ekki hversu veikur. Mér fannst það sér- stakt að hann skyldi deyja á þeim augnablikum þegar við vorum að tala um hann,“ segir Gunnar. Kom hingað fyrst kornungur „Rostropovitsj var yfirþyrmandi sterkur persónuleiki og setti sitt mark á tónlistarlíf Vesturlanda. Hann kom hingað fyrst kornungur maður og alveg óþekktur, og hélt tón- leika með Sinfóníuhljómsveitinni og svo með Páli Ísólfssyni í Dómkirkj- unni. Ég held að þetta hafi verið 1957 eða 8. Hann vakti mikla athygli, því hann var alveg ótrúlegur. Sem ung- lingur eignaðist ég margar plötur með honum. Ég fór til London 1965 og heyrði hann þá spila. Það var alveg einstakt. Hann frumflutti fyrstu svít- una eftir Britten sem samin var fyrir hann, en lék líka verk eftir Dvorák og Prokofijev. Ég held að fólk hafi klappað í korter eftir tónleikana, og það er langur tími. Britten sagði: „Áður en ég heyrði Rostropovitsj spila hafði ég engan áhuga á að semja fyrir sellóið.“ Eftir að Britten heyrði í honum samdi hann þrjú einleiksverk, sellósinfóníuna og sónöturnar fyrir, öll á mjög stuttum tíma.“ Gunnar minnist einnig mannrétt- indabaráttu Rostropovitsj, en hann var gerður útlægur úr Sovétríkj- unum fyrir vináttu sína og stuðning við rithöfundinn Solzhenitsyn. „Mér finnst heimurinn standa í þakkar- skuld við Rostropovitsj, því hann gaf svo mikið af sér; hafði bæði undra- verða hæfileika og ótrúlega ástríðu til að miðla af gáfu sinni, og hann spar- aði hana aldrei.“ Á efnisskrá tón- leikanna eru verk sem Rostropovitsj spilaði oft; eftir Brahms, Rakhman- inov og Sjostakovitsj. Undraverðir hæfileikar Tríó Reykjavíkur minnist Rostropovitsj Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Listamaður Rostropovitsj við kom- una til Keflavíkur 6. júní 1978. STEINUNN Helga Sigurðardóttir opnar sýninguna „að snert- ast í augnablikinu“, á Café Karólínu í dag kl. 14. Listakonan spyr: „Hvað er raunveru- legt? Er lífið í hinum ytra heimi meira raun- verulegt en lífið í hinum innra heimi? Hvort er meira abstrakt, að sitja meðvituð og skrifa þennan texta og hlusta á þvottavélina mala í bakgrunninum, hundarnir mínir hrjóta við tærnar á mér, eða það sem gerist inni í höfðinu á mér.“ Steinunn Helga Sigurðardóttir er menntuð í myndlist og hefur búið í Danmörku frá árinu 1993. Myndlist Að snertast í augnablikinu Verk eftir Steinunni Í DAG verður opnuð sýning í Hallgríms- kirkju á verkum Arn- gunnar Ýrar Gylfadótt- ur. Hún segir: „Í verkunum reyni ég að fást við kjarnann í snertingu okkar við náttúruna. Málverkin mín eiga að tjá blöndu af missi og eftirsjá. Þau eiga að sýna togstreitu milli raunveruleika og tilbúnings, þörfina fyrir eitthvað meira en sjónræna upplifun, einhvers konar galdra. Ég hugsa mér áhorfandann ein- hvers staðar þar sem staðsetning hans og sjón- arhorn orkar tvímælis. Við erum vitni að brot- hættu umhverfi sem heldur okkur samt föngnum.“ Myndlist Land ég sá, verk Arngunnar Ýrar Verk eftir Arngunni Ýr KVENNAKÓR Garða- bæjar heldur árlega að- ventutónleika sína í Digra- neskirkju á mánudags- kvöld, 3. desember, kl. 20, en ekki í kvöld eins og sagt var í tónleikadagbók Jóla- blaðsins sem kom út í gær. Stjórnandi kórsins er Ingi- björg Guðjónsdóttir og píanóleikari er Sólveig Anna Jónsdóttir. Gestir Kvennakórsins verða Kristjana Stefánsdóttir djasssöngkona og Ragnar Örn Emilsson gítar- leikari. Efnisskráin verður fjölbreytt með létt- um jólalögum í bland við þau hátíðlegu. Sjá nánar á vefnum: www.kvennakor.is. Tónlist Kvennakór Garða- bæjar ekki í kvöld Ingibjörg Guðjónsdóttir Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is MÁLÞING verður í Ketilhúsinu á Akureyri í dag í tilefni af fullveldis- deginum. Það eru Háskólinn á Akureyri, Akureyrarbær og Nonna- hús sem standa að dagskránni í sameiningu og er hún tileinkuð Jóni Sveinssyni. Hún kallast „Fullveldi andans - Barnabókahöfundurinn Nonni“ og hefst kl. 11. Flutt verða erindi um Nonna og kl. 13.15 verður sýnd hreyfimynd af honum sem nýlega fannst í Hollandi og er eina kvikmyndin sem til er af þessum kunna rithöfundi og jesúíta- presti, svo vitað sé. Hreyfimynd þessi var sýnd á málþingi um Nonna í Köln í Þýskalandi um síðustu helgi en hefur ekki áður verið sýnd á Ís- landi. Á málþinginu flytur Jón Hjalta- son sagnfræðingur erindi sem hann kallar Börn á Akureyri á 19. öld. Í kjölfarið fylgir Gunnar F. Guð- mundsson sagnfræðingur sem fjallar um „sannindi“ í Nonnabók- unum, en Gunnar vinnur um þessar mundir að ritun ævisögu Nonna. Strax að loknum hádegisverði verður hin nýfundna hreyfimynd eða myndband sýnt, tæplega 10 mínútna langt. Dagný Kristjáns- dóttir fjallar eftir það um Nonna sem barnabókahöfund og Arnar Tryggvason leikur á harmonikku, en á myndbandinu sést m.a. þegar Nonni leikur á harmonikku fyrir börn. Ómetanleg heimild Erindi Einars Kárasonar rithöf- undar ber heitið Nonni í augum les- anda, og við málþingslok, um kl. 15, verður ekið að Íslandsklukkunni á lóð Háskólans á Akureyri. Klukk- unni er jafnan hringt á fullveld- isdaginn. Að þessu sinni hringir Ís- landsklukkunni Haraldur Bessason, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri. Að því loknu syngja börn undir stjórn Björns Þórarinssonar og síðan verður boðið upp á veit- ingar. Vert er að geta þess að bæði dagskráin í Ketilhúsinu og athöfnin við Íslandsklukkuna eru öllum opin og fólk hvatt til þess að mæta. Hreyfimyndin, sem áður er getið og Morgunblaðið sagði fyrst frá fyr- ir rúmri viku, fannst fyrir um það bil þremur vikum. Myndin er svarthvít og hljóðlaus. Brynhildur Péturs- dóttir, Zontakona á Akureyri og safnstjóri Nonnasafnsins, sá upp- tökuna í Köln um síðustu helgi. „Það var ótrúlega gaman að sjá þetta. Ég hef kynnt mér Nonna mjög vel en þarna opnaðist alveg ný vídd. Mynd- in er ómetanleg heimild fyrir ís- lensku þjóðina,“ sagði Brynhildur við Morgunblaðið eftir málþingið í Köln. Það var gömul, hollensk kona sem fann kvikmyndina á heimili sínu en myndin var tekin þegar hún var ung stúlka. Móðir hennar tók mynd- ina á heimili þeirra árið 1942, þegar Nonni var að verða 85 ára og átti tvö ár eftir ólifuð. Í kvikmyndinni sést Nonni ganga út úr klaustrinu í Valkenburg í Hol- landi, þar sem hann bjó á þessum tíma, og síðan er sýnt frá heimsókn hans til fjölskyldunnar. „Hann gengur niður tröppur, með tvo stafi, en grípur síðar harmonikku og leik- ur fyrir börnin,“ sagði Brynhildur. Nonni „lifnar við“ Hreyfimynd af Nonna sýnd á málþingi um hann á Akureyri Við leik og störf Úr hreyfimyndinni sem tekin var 1942. Nonni leikur á harmonikku fyrir börn og situr við skriftir. RITHÖFUNDARNIR Bragi Ólafsson og Kristín Steinsdóttir eru tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs af Íslands hálfu, Bragi fyrir skáldsögu sína Sendiherrann og Kristín fyrir skáldsöguna Á eigin veg- um. Tilnefningarnar voru birtar í hádeginu í gær. Fulltrúar landanna í dómnefndinni hafa tilnefnt 12 verk eftir norræna höfunda. Í ár eru tilnefnd verk frá Færeyjum og samíska mál- svæðinu en engin tilnefning barst frá Grænlandi. Verð- launin eru 350.000 danskar krónur (um 4,2 milljónir ís- lenskra króna). Verðlaunahafinn 2008 verður valinn á fundi dóm- nefndarinnar á 60. þingi Norðurlandaráðs sem haldið verður í Stokkhólmi 29. febrúar. Bragi og Kristín tilnefnd Morgunblaðið/Ómar Skáldin Bragi Ólafsson og Kristín Steinsdóttir hlutu tilnefninguna í gær í Gunnarshúsi við Dyngjuveg. Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs afhent í febrúar Sjá lista yfir tilnefningar á www.norden.org. Jólakaffi Hringsins Árlegt jólakaffi og happdrætti Hringsins verður haldið á Broadway sunnudaginn 2. desember kl. 13:30. Miðasala hefst kl. 13.00. Hringskonur Girnilegt kaffihlaðborð – Glæsilegt happdrætti Að vanda er boðið upp á girnilegt kaffihlaðborð með heimabökuðum brauðum að hætti Hringskvenna. Happdrætti með glæsilegum vinningum og síðast en ekki síst, frábær skemmtiatriði úr ýmsum áttum. Allur ágóði rennur í Barnaspítalasjóð Hringsins sem styrkir veik börn á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.