Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 53 Við tóku hraklegir skelfingartímar og um langt skeið var óvíst hvort landi yrði náð á ný. Biturð, beiskja og kali réðu kalli til frambúðar, fjarlægð og fáskiptni mótuðu samskipti fyrrverandi elsk- enda í þrjá áratugi. Tíminn er hæg- virkur græðari og jafnan slakur sáttasemjari. Daginn fyrir hinstu för Dússýar frá Eyjum hittumst við síðast og þá var tillit hennar milt og ljúft og kímnin komin aftur á kreik, bros augna henn- ar ljómaði loks á ný sem á sumar- kvöldi forðum. Vonir um einlæga sátt og samskipti í framtíð vöknuðu og það birti svo notalega til í svipinn, líkt og langur vetur væri loks liðinn. Þíðir ómar liðins sumars hljóðna, bjartar vonir deyja í sviphendingu, dagsbirtan dvín og drungi dökkra vetrarskugga skellur á með ógn- þrunginni harmafregn; Dússý er mjög alvarlega veik og lífslíkur litlar. Hún dó eftir dauðastríð í fáeinar vikur. Huggun hefði það verið að mega kveðja með faðmlagi og kossi en for- lögin gáfu ekki kost á því. Í stað þess reikar bljúgur hugur nú til himinssala í vissu um að þar dvelur blíðlynda ljúflingsstúlkan sátt og sæl með bók í hendi og ljúfa tónlist við eyru. Hafi hún einlæga hjartans þökk fyrir allt fyrr og síðar. Megi eftirlifendum veitast þrek til að horfast í augu við veruleikann og framtíðina án Dússýar. Ljósbjört minning hennar mun lifa okkur og létta för til enda, líkt og bjargföst vissan um betri tíma í ljúfleik vorsins og sætleik sumars að löngum vetri liðnum. Jóhannes Johnsen. Okkar kæra vinkona og samstarfs- maður til margra ára er farin frá okk- ur. Hún Dússý er dáin aðeins 54 ára gömul. Þuríður Helgadóttir, eins og hún hét fullu nafni, lést hinn 20. nóv. sl., eftir stutta en erfiða sjúkralegu. Hún fór til Englands að hitta einkadóttur sína og sitt eina barnabarn, en ferðin tók skjótan enda. Hún veiktist alvar- lega skömmu eftir að hún kom út og lá þar á sjúkrahúsi um fárra vikna skeið. Fárveik var hún svo flutt til Ís- lands, en skömmu fyrir lendingu á Ís- landi, kvaddi hún þennan heim á sinn hógværa hátt. Dússý – Dússý á Herjólfi – eins og hún var einatt kölluð var afar vel gerð manneskja, með eindæmum geðgóð og gott að umgangast hana. Alltaf gefandi og vildi hvers manns vanda leysa, ef hún mögulega gat. Dússý flíkaði sjaldnast sínum hög- um, en var þeim mun oftar tilbúin að hlusta á vanda annarra og koma þar til hjálpar. Við sem vorum svo heppin að fá að kynnast henni eftir margra ára sam- starf hjá Herjólfi hf, vissum hvern mann hún hafði að geyma. Traust, áreiðanleg, samviskusöm og alltaf gott til hennar að leita – alltaf til stað- ar. Fyrir allt þetta viljum við þakka af heilum hug. Við sendum Valla, Ásgerði, Valla Kalla og öðrum aðstandendum henn- ar okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Biðjum góðan Guð að styrkja ykk- ur og leiða í sorginni. Við geymum minningu um góða vinkonu og samstarfsmann – hafði þökk fyrir allt og allt. Magnús á Grundó. Það telst til forréttinda að hafa alist upp sem barn og unglingur á stað sem Vestmannaeyjum, þar sem nátt- úran hrífur mann með sér á vit ótal ævintýra, þar sem sólarlagið og hin sólroðnu ský eru engu lík, þar sem himinn og haf renna saman í eitt, þar sem bergmál mannlífsins endurómar í tígulegum fjallasölum Eyjanna. Inn í þennan heim gengum við okkar bernskuspor árgangurinn sem kenndur er við fæðingarárið okkar 1953. Í þessum fjölmenna hópi Eyja- krakka var Þuríður Helgadóttir – Dússí eins og hún var alltaf kölluð, sem við nú kveðjum allt of fljótt og óvænt eftir stutt en snörp veikindi. Þótt nokkuð langt sé um liðið frá skólaárum okkar í Eyjum þá höfum við skólasystkinin hist reglulega und- anfarin 20 ár. Síðast komum við sam- an nú í maí og áttum yndislega helgi í Eyjum. Mestan hluta starfsævi sinnar vann Dússí á skrifstofu Herjólfs. Það var gott að geta leitað til hennar þeg- ar verið var að skipuleggja árgangs- mótin og sá hún um að tryggja sínu fólki greiða leið með skipinu, alltaf boðin og búin að aðstoða og skipu- leggja hlutina með okkur. Árið 1981 var mikið hamingjuár í lífi Dússíar þegar hún hóf sambúð með skóla- bróður okkar Valdimar Þór Gíslasyni. Dússí og Valli giftu sig árið 1991 og bjuggu allan sinn búskap í Eyjum. Það var notalegt að hitta þau og spjalla þegar hópurinn kom saman og þá voru hljóðfærin gjarnan dregin fram og músík unglingsáranna fékk að njóta sín, enda Valli algjör snill- ingur á gítarinn. Það kvarnast úr hópi okkar skóla- systkinanna því með fráfalli Dússíar eru þau orðin sex sem kvatt hafa þennan heim. Það er sárt að sjá á eftir kærri skólasystur svo skyndilega langt um aldur fram, en sárastur er þó harmur eiginmanns, dóttur og dóttursonar. Við viljum biðja algóðan Guð að blessa minningu Þuríðar Helgadóttur og veita Valla, Ásgerði, Valdimar Karli og öðrum ástvinum styrk í sorg- inni. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Árgangur 1953 úr Eyjum. Mig langar að kveðja Þuríði Helga- dóttur, vinkonu mína og samstarfs- konu til margra ára, með örfáum lín- um og með því þakka vináttu hennar og trygglyndi í minn garð og fjöl- skyldu minnar, alla tíð. Við Dússý, eins og hún var jafnan kölluð, unnum saman á afgreiðslu ms. Herjólfs í tæp 20 ár og get ég fullyrt með sanni að aldrei bar skugga á vináttu okkar og er það ekki síst að þakka jafnlyndi hennar og yfirvegun í samskipum við aðra. Dússy var greind kona og mikl- um mannkostum búin. Hún var hæg- lát en föst fyrir, gat virkað frekar al- varleg en var mikill fjörkálfur á góðri stundu og smitandi hláturinn hennar er ógleymanlegur. En göfugt hjarta- lag, umhyggjan fyrir öðrum, greiða- semin við alla sem henni þótti vænt um er myndin sem fyrst kemur upp í hugann þegar ég horfi til baka. Það var ekki laust við að hún gleymdi sjálfri sér stundum, umhyggjan fyrir fjölskyldu og vinum skipti hana meira máli. Dússý var ekki mikið fyrir breyt- ingar, bjó í Vestmannaeyjum allt frá fæðingu ef undanskilin eru nokkur ár og unni hún eyjunni sinni mjög. Hún vann á Herjólfsafgreiðslu í rúm 30 ár, óháð því hvaða fyrirtæki sá um rekst- urinn. Hún fylgdi alltaf með til nýrra rekstraraðila enda leitun að betri og traustari starfskrafti. Þeir sem notið hafa þjónustu hennar þar í gegnum árin mun örugglega mörgum hverj- um bregða við nú er hennar nýtur ekki lengur við. Leyfi ég mér að halda því fram, alveg að öðru starfsfólki ólöstuðu. Það var með okkur Dússý eins og gjarnan vill verða þegar fólk vinnur hlið við hlið í mörg ár að lífs- hlaup okkar varð á vissan hátt sam- tvinnað. Við tókum þátt í sorgum og gleði hvor hjá annarri og það mynd- uðust sterk vináttubönd og tengsl sem náðu einnig til fjölskyldna okkar. Nú þegar komið er að kveðjustund er hún sársaukafull eins og alltaf er und- ir slíkum kringumstæðum en minn- ingin um góða vinkonu mun áfram lifa með okkur sem eftir erum. Fyrir hönd fjölskyldu minnar vil ég því þakka alúð og vináttu liðinna ára um leið og ég votta Valdimar Þór, Ás- gerði, Valdimar Karli og öðrum ást- vinum hennar mína dýpstu samúð. Megi kær vinkona mín hvíla í friði. Binna Hlöðversdóttir. RÚSSNESKIR skákmenn höfðu mikla yfirburði á heimsmeistaramóti ungmenna sem lauk sl. miðvikudag í Antalya í Tyrklandi. Í 12 flokkum hlutu Rússar 6 gullverðlaun, stúlkur frá Georgíu hirtu gullverðlaun í flokki 14 og 16 ára en Indverjar Kínverjar, Rúmenar og Bandaríkjamenn fengu einn sigurvegara hver þjóð. Stórþjóð- ir skákarinnar eru í dag Rússar, Kín- verjar og Indverjar og Austurblokk- in er sterk hvert sem litið er. Helsta von íslensku keppendanna um verðlaunasæti, Hjörvar Steinn Grétarsson náði sér ekki á strik að þessu sinni, Hann endaði með 5½ vinning af 11 mögulegum í flokki pilta 14 ára og yngri sem er mun lakari ár- angur en á EM í Króatíu á dögunum. Fyrirfram mátti búast við að Hjörvar fengi 7 vinninga eða meira en miklu réði er hann missti unna stöðu niður í tap í næstsíðustu umferð og gerði síð- an jafntefli í lokaumferðinni. Hjörvar átti við lasleika að stríða í fyrstu um- ferðunum og eftir á að hyggja var mótstaktík hans röng, í stað þess að tefla stíft til sigurs í hverri einustu skák og hafna jafntefli þegar engar forsendur voru til þess var skynsam- legra að taka að rólega í byrjun og herða síðan róðurinn á lokasprettin- um. Í flokki 14 ára og yngri tefldi einnig Svanberg Már Pálsson og hlaut hann 5 vinninga. Svanberg tefldi oft hressi- lega og tóku skákir hans oft skemmti- lega stefnu. Nái hann að aga stíl sinn til má búast við góðum framförum. Alls voru íslensku þátttakendurnir níu talsins og tefldu í sjö aldursflokk- um pilta og stúlkna. Sverrir Þor- geirsson sem tefldi í flokki 16 ára og yngri náði bestum árangri hlaut 6 vinninga af 11 mögulegum. Hann var líkt og Hjörvar kominn með allgóða stöðu eftir sex umferðir en þá kom slakur kafli, þrjú töp í röð. Sverrir vann svo tvær síðustu skákir sínar og má vel við frammistöðuna una. Dagur Andri Friðgeirsson tefldi í flokki pilta 12 ára og yngri. Hann vann fjórar skákir með hvítu en var ekki góður með svörtu og endaði með 4½ vinn- ing. Dagur Andri er mikið skák- mannsefni og verður fróðlegt að fylgjast með honum á næstu misser- um. Stúlkur voru að þessu sinni í meiri- hluta innan íslenska hópsins. Hall- gerður Helga Þorsteinsdóttir sem tefldi í flokki 16 ára og yngri á nokkr- ar góðar skákir á mótinu og hækkar á stigum þó að frammistaða hennar sé undir væntingum. Aðrar stóðu sig nokkuð vel, Jóhanna Björg Jóhanns- dóttir fékk 5 vinninga í flokki 14 ára og yngri og Elsa María Þorfinnsdótt- ir hlaut 4½ vinning í flokki 18 ára og eldri. Hrund Hauksdóttir sem tefldi í flokki stúlkna 12 ára og yngri og Hildur Berglind Jóhannsdóttir sem tefldi í flokki 8 ára og yngri hafa aldr- ei teflt í slíku móti áður og eru nú reynslunni ríkari. Hrund hlaut 3 vinninga í síðustu þrem umferðunum og endaði með 4½ vinning. Einn dag þessa móts voru tefldar tvær umferðir og þá unnu Sverrir og Hjörvar báðar skákir sínar. Tafl- mennska Sverris var með besta móti eins og eftirfarandi viðureign sýnir þegar hann leggur andstæðing sinn sem var efri mönnum á styrkleikalist- anum Eftir 23. leik svarts skynjar Sverrir á augnabliki mikilvægi þess að hleypa stöðunni upp, kyrrstaðan er ekki valkostur: HM ungmenna í Tyrklandi: Sverrir Þorgeirsson – Julian Jorz- cik (Þýskaland) Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. c3 Nf6 3. e5 Nd5 4. d4 cxd4 5. Nf3 Nc6 6. cxd4 d6 7. Bc4 Nb6 8. Bb5 a6 9. Bxc6+ bxc6 10. 0-0 Bg4 11. Nbd2 e6 12. De2 d5 13. b3 Bb4 14. De3 0-0 15. a3 Be7 16. a4 Nd7 17. Ba3 Bxa3 18. Hxa3 Db6 19. Hc1 Hfc8 20. Ha2 Hab8 21. Hac2 Bxf3 22. gxf3 a5 23. f4 Hc7 24. f5 exf5 25. e6 Nf6 26. exf7+ Kxf7 27. Nf3 He8 28. Ne5+ Kg8 29. Hxc6 Hxc6 30. Hxc6 Db7 31. Dc3 Ng4 32. f4 Nxe5 33. dxe5 Db4 34. Dxb4 axb4 35. Kf2 g5 36. Ke3 d4+ 37. Kf3 g4+ 38. Ke2 Hd8 39. Kd3 Kg7 40. Hc7+ Kg6 41. Hc6+ Kg7 42. Hf6 h5 43. Hxf5 Kh6 44. e6 He8 45. He5 h4 46. Kxd4 g3 47. hxg3 hxg3 48. He2 Kh5 49. f5 Kg4 50. Ke5 Kf3 51. Hd2 Ke3 52. Hg2 Kf3 53. Hxg3+ – og svartur gafst upp. Eftir 53. … Kxg3 54. f6 verða hvítu frípeðin ekki stöðvuð. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Antalya, Tyrkand HM ungmenna 8-18 ára 17.-28. nóvember 2007 Sverrir með bestan árangur á heimsmeistaramótinu Sveit Hrundar Einarsdóttur vann parakeppnina öðru sinni Íslandsmótið í Parasveitakeppni var haldið síðastliðna helgi með þátt- töku 13 sveita. Íslandsmeistararnir í sveit Hrundar frá því í fyrra héldu fast í titilinn og hömpuðu honum annað árið í röð. Með Hrund Einarsdóttur spiluðu Vilhjálmur Sigurðsson, Dröfn Guðmundsdóttir og Ásgeir Ás- björnsson. Sveitin hlaut samtals 252 stig. Í 2. sæti var sveit Hörpu: Þeir sem spiluðu með Hörpu Fold voru Sveinn Þorvaldsson, Guðrún Jörgensen, sem var aldursforseti mótsins og Guðlaugur Sveinsson. Sveitin fékk 231 stig. Í þriðja sæti voru Akureyringarn- ir Ragnheiður Haraldsdóttir, Gylfi Pálsson, Frímann Stefánsson og Rosmary Shaw með 221 stig. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 27. nóvember var spilað á 17 borðum. Meðalskor var 312. Úrslit urðu þessi í N/S: Sæmundur Björns. – Magnús Halldórss. 401 Bragi Björnss. – Auðunn Guðmss. 365 Bjarnar Ingimarss. – Albert Þorsteinss.364 Ragnar Björnsson – Jóhann Benediktss. 331 A/V Sverrir Jónsson – Skarphéðinn Lýðss. 415 Sverrir Gunnarss. – Kristrún Stefánsd. 364 Ólafur Ingvars. – Sigurberg Elentínuss. 361 Einar Sveinss. – Eyjólfur Ólafsson 344 Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Eftir tvö kvöld í þriggja kvölda tvímenningskeppni hjá Breiðfirðing- um eru þau Bergljót og Björgvin með örugga forustu. Staða efstu para er þessi: Björgvin Kjartanss. - Bergljót Aðalstd. 741 Jón H. Jónsson-Bergljót Gunnarsdóttir 715 Sigþór Haraldsson - Axel Rúdólfss. 711 Þorleifur Þórarinss. - Haraldur Sverriss. 711 Jón Jóhannss. - Birgir Kristjánss. 702 Hæsta skor kvöldsins í Norður/Suður: Jón Jóhannsson - Birgir Kristjánsson. 365 Óskar Sigursson - Hlynur Vigfússon 361 Þorleifur Þórarinss. - Haraldur Sverriss. 353 Austur/Vestur: Jón H. Jónsson - Bergljót Gunnarsd. 393 Sigfús Skúlason - Óli Gíslason 361 Friðrík Jónss. - Jóhannes Guðmannss. 357 Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Gullsmárabrids Spilað var á 9 borðum 29. nóvem- ber. Lokastaðan í N/S Heiður Gestsd. - Dóra Friðleifsd. 198 Elís Kristjánss. - Páll Ólason 195 Jón Jóhannss. - Haukur Guðbjartss. 180 Valdimar Hjartars. - Halldór Jónss. 180 A/V Halldóra Thorodds-Hlaðgerður Snæbjd. 195 Steindór Árnason - Einar Markússon 184 Sigtryggur Ellertss.- Halldór Heiðar 179 Sigurður Björnss.- Jón Hannesson 171 Sigurvegari í haustspilamennsku er Þorsteinn Laufdal,en 5 spilarar skiptu með sér 2.sætinu. Mánudaginn 3.desember hefst svo jólakeppni félagsins,sem stendur yf- ir í 5 spiladaga. Spilað var á 11 borðum 26. nóv- ember og þessi urðu úrslitin í N/S: Þorsteinn Laufdal - Magnús Halldórss.. 215 Ernst Backman - Birgir Ísleifsson 194 Dóra Friðleifsdóttir - Heiður Gestsd. 191 Sigtryggur Ellertss. - Tómas Sigurðss. 184 A/V: Elís Kristjánsson - Páll Ólason 250 Hrafnhildur Skúlad. - Þórður Jörundss. 200 Leifur Kr. Jóhanness. - Guðm. Magnúss. 181 Sigurður Björnsson - Jón Hannesson 174 Skor þeirra Elísar og Páls í A/V er rétt tæplega 75% og gerist ekki hærra hér á landi. Til hamingju með það, félagar. Þekktar kempur í forystu hjá Bridsfélögunum á Suðurnesjum Þeir hafa tekið í spil áður kapp- arnir sem verma efsta sætið í fimm kvölda sveitarokki sem nú stendur yfir hjá félögunum. Þetta eru Karl Einarsson og Birkir Jónsson sem hafa skorið 171 eða nákvæmlega 19 stig úr hverjum leik. Þegar þremur kvöldum af fimm er lokið er staða næstu para: Vignir Sigursveinss. – Úlfar Kristinss. 159 Lilja Guðjónsd. – Guðjón Óskarss. 156 Guðjón Einarss. – Ingvar Guðjónss. 149 Jóhann Benediktss. – Sigurður Albertss. 148 Spilað er á mánudagskvöldum í fé- lagsheimilinu á Mánagrund og hefst spilamennskan kl. 19.15. Parakeppni Sigurvegararnir í parakeppninni annað árið í röð ásamt for- seta BSÍ. Frá vinstri: Þorsteinn Berg, Ásgeir Ásbjörnsson, Dröfn Guð- mundsdóttir, Hrund Einarsdóttir og Vilhjálmur Sigurðsson. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.