Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkju- málaráðherra og Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs, skrif- uðu í gær undir samkomulag um samstarf Íslands og Noregs um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrla í Þjóðmenning- arhúsinu. Miðað er við að Ísland kaupi þrjár nýjar björgunarþyrlur og Noregur tíu til tólf þyrlur. Stefnt er að því að þær verði afhentar á ár- unum 2011-2014. Samvinnu ríkjanna er ætlað að leiða til fjárhagslegs ávinnings og ýmiss konar hagræðis, bæði við inn- kaup og rekstur þyrlanna. Skiptir þar mestu viðhaldsþjónusta og þjálfun flugmanna og flugvirkja. Fjórar björgunarþyrlur Ríkisstjórn Íslands veitti dóms- málaráðherra umboð til að rita und- ir samkomulagið við Norðmenn á fundi sínum 16. nóvember síðastlið- inn. Er það í samræmi við áður samþykktar tillögur dóms- og kirkjumálaráðherra um eflingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar sem gera ráð fyrir því að í sveitinni verði fjórar björgunarþyrlur, það er þrjár stórar björgunarþyrlur auk einnar minni þyrlu. Með þessu á björgunargeta að lágmarki að vera sú að unnt verði að sinna leit og björgun með þyrlu á landi og innan 200 sjómílna efna- hagslögsögu Íslands við erfiðar veð- uraðstæður og bjarga mönnum um borð í þyrlu á þeim ystu mörkum. Jafnframt er stefnt að því að öryggi þyrluáhafna verði eins vel tryggt og kostur er og að ávallt verði þyrla í viðbragðsstöðu þegar önnur fer í lengri ferðir frá ströndu. Endanlegt kaupverð nýrra og fullkominna björgunarþyrla ræðst bæði af kröfum sem til þeirra verða gerðar og samkeppni milli framleið- enda. Gera má ráð fyrir að kaup- verð hverrar björgunarþyrlu er full- nægir framangreindum skilyrðum geti verið um 2 milljarðar íslenskra króna. Þá má gera ráð fyrir var- anlegri hækkun rekstrarkostnaðar Landhelgisgæslunnar vegna aukins mannafla. Við framkvæmd samkomulags ríkjanna tveggja verður gætt gild- andi reglna um opinber innkaup hér á landi og á Evrópska efnahags- svæðinu. Samráð hefur verið haft við Ríkiskaup, fjármálaráðuneytið og Landhelgisgæslu Íslands. Í sam- vinnu við þá aðila verður beitt að- ferðum verkefnastjórnunar við und- irbúning, skipulagningu og stjórnun þyrluverkefnisins af hálfu íslenskra stjórnvalda. Þar til nýju þyrlurnar verða af- hentar Íslendingum leigir Land- helgisgæsla Íslands Eurocopter Su- per Puma- og/eða Dauphin-þyrlur til leitar- og björgunarflugs, svip- aðar þeim sem Landhelgisgæslan hefur rekið undanfarna rúma tvo áratugi. Þrjár nýjar björgunarþyrlur eru væntanlegar til Íslands Ísland og Noregur hafa samið um kaup og rekstur á nýjum lang- drægum björgunar- þyrlum og verða þyrl- urnar afhentar á árunum 2011-2014. Morgunblaðið/Sverrir Samvinna Björn Bjarnason og Knut Storberget dómsmálaráðherrar við undirritun samkomulagsins í Þjóðmenn- ingarhúsinu í gær. Norðmenn kaupa tíu til tólf björgunarþyrlur samkvæmt því og Íslendingar þrjár. JÓN Gunnar Ott- ósson, forstjóri Náttúrufræði- stofnunar Ís- lands, var í vik- unni kosinn forseti Bernar- samningsins á að- ildarríkjafundi samningsins í Strassborg í Frakklandi. Bernarsamningurinn fjallar um verndun villtra plantna, dýra og lífs- væða í Evrópu og er einn af grund- vallarsamningum Evrópu á sviði um- hverfisverndar. Tæplega fimmtíu ríki Evrópu og Norður-Afríku eru aðilar að samningnum. Forseti Bernarsamningsins stýrir starfsemi hans og aðildarríkjafundum. Jón Gunnar var varaforseti samningsins í þrjú ár en er nú fyrsti Íslending- urinn sem kosinn er forseti hans. Markmið Bernarsamningsins er að stuðla að fjölþjóðlegri samvinnu til að vernda evrópskar tegundir villtra plantna og dýra og lífsvæði þeirra, einkum þær tegundir og lífs- væði sem fjölþjóðlega samvinnu þarf til að vernda. Jón kjörinn í forsæti Jón Gunnar Ottósson Stýrir starfsemi Bernarsamningsins RÁÐGERT er að Vestmannaeyja- ferjan Herjólfur fari í slipp í tvo sóla- hringa í næstu viku vegna bilaðrar pakkningar við skrúfuás. Eftir komu Herjólfs til Þorláks- hafnar á hádegi næsta þriðjudag heldur hann áfram til Hafnarfjarðar þar sem hann verður tekinn í slipp. Að öllu óbreyttu verður Herjólfur farinn að sigla eftir áætlun frá Þor- lákshöfn á hádegi á föstudag. Hægt verður að koma vöru frá Reykjavík til Vestmannaeyjum með M/S Sel- fossi. Varan þarf að vera komin á af- greiðslu Eimskips fyrir klukkan 16 miðvikudaginn 5. desember. Herjólfur í slipp í næstu viku ♦♦♦ AÐ MATI Björns Bjarnasonar er gildi samningsins við Norðmenn marg- þætt. „Í fyrsta lagi er samningsbundið milli dómsmálaráðuneytanna að vinna saman að kaupum á þyrlum – þær verða 13 til 15 í stað þriggja fyrir okkur, sem ætti að stuðla að betra verði. Í öðru lagi tryggir samkomulagið náið samráð og samstarf um gerð útboðs, yfirferð á tilboðum og gerð samninga og styttir allt undirbúningsferli hér á landi, þar sem Norðmenn hafa um nokkurt skeið unnið að undirbúningi þyrlukaupa en það var ekki fyrr en á síðasta ári, sem ríkisstjórn Íslands stóð frammi fyrir nýjum kröf- um í þessu efni. Í þriðja lagi leggur samningurinn grunn að samstarfi um þjálfun áhafna, viðhald og varahlutaeign. Í fjórða lagi tryggir samning- urinn betur en nokkru sinni fyrr, að báðar þjóðir geti brugðist við vegna leitar og björgunar með samhæfðum og samræmdum hætti.“ Tryggir náið samráð SKIPTIFARÞEGAR á Keflavíkur- flugvelli fá tækifæri til að upplifa landið á eftirminnilegan hátt, þótt þeir fari aldrei út úr flugstöðinni, með því að fylgjast með kynningu á nýju landkynningarsvæði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE). Kristján L. Möller samgönguráðherra og Jón Gunnarsson, formaður stjórnar FLE, opnuðu svæðið við athöfn í fyrrakvöld. Landkynningarsvæðið er við bið- salinn í suðurbyggingu flugstöðvar- innar, í Gjánni svonefndu. Höskuld- ur Ásgeirsson, fráfarandi forstjóri FLE, sagði að vonast væri til að kynningin myndi kveikja áhuga far- þeganna á landinu þannig að þeir kæmu aftur til að líta landið eigin augum. Verkefnið er unnið í samvinnu við landkynningarverkefnið Iceland Naturally. Kynningarmyndbandið er sýnt á 6,6 metra breiðum glerskjá, einum af stærstu skjám landsins. Það er um sjö mínútna langt. Sjálfstæð tilvist Dagurinn í gær var síðasti dagur Höskuldar í starfi forstjóra FLE. Hann er að taka við störfum sem for- stjóri Nýsis hf. Elín Árnadóttir tek- ur við starfi forstjóra FLE ohf. „Það stendur upp úr að hafa tryggt þessu félagi sjálfstæða tilvist en það var áður nánast í gjörgæslu vegna rekstrarvandamála,“ sagði Höskuldur. „Það tókst að snúa við rekstrinum og það er grundvöllur þeirra miklu framkvæmda við stækkun flugstöðvarinnar sem ráð- ist var í.“ Í síðustu viku var tekinn í notkun glerskáli við norðurhlið flugstöðvar- innar, 2.300 fermetra svæði á tveim- ur hæðum. Meðal þjónustu sem er að finna er söluskrifstofa Icelandair, nýtt kaffihús Kaffitárs og af- greiðslur bílaleigna. Nýtt rými í kjallara norðurskála hefur verið inn- réttað að hluta til sem aðstaða fyrir starfsfólk en þar er einnig að finna salernisaðstöðu fyrir farþega. Fram- kvæmdunum lýkur í mars með lokafrágangi á bættri aðstöðu fyrir komufarþega, meðal annars tösku- sal, nýjum salernum og fríhöfn. Skiptifarþegar geta upp- lifað landið í flugstöðinni Sérstakt landkynningarmyndband sýnt á risastórum skjá Ljósmynd/Víkurfréttir Opnun Jón Gunnarsson aðstoðar Kristján L. Möller við formlega opnun. Grímsey | Friðfinnur K. Daníels- son, bormaður frá Akureyri, tók að sér fyrir Grímseyjarhrepp það spennandi verk að bora eftir heitu vatni í landi Efri-Sandvíkur. Þetta er fyrst og fremst rannsóknarhola sagði Friðfinnur sem hefur unnið við boranir frá árinu 1976, víðs vegar um Ísland og líka erlendis. Friðfinnur á og rekur fyrirtækin Alvar ehf. sem sér um boranir og Varmavélar sem vinna að orkuúr- lausnum. Borinn sem Friðfinnur flutti með sér hingað kallar hann því skemmtilega nafni „Máni“. Nafnið varð til eitt ískalt vetrar- kvöld þegar verið var að bora inni í Eyjafirði, tunglið var fullt og lýsti upp landið. Friðfinnur trúir því að finna megi heitt vatn hér – hugs- anlega sjóblandað. Ef ekki er gerð tilraunaborun sagði Friðfinnur, eru Grímseyingar áfram háðir dýrri olíu og rafmagni. Því „svelt- ur sitjandi kráka en fljúgandi fær“, sagði hinn hressi bormaður Friðfinnur K. Daníelsson að lok- um. Morgunblaðið/Helga Mattína Bormenn Bjarni Magnússon, hreppstjóri í Grímsey, og Friðfinnur K. Daní- elsson bormaður kampakátir við borinn Mána í landi Efri-Sandvíkur. Byrjað að bora eftir heitu vatni í Grímsey
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.