Morgunblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 65
ÞAÐ ber fátt jafn mikinn vott um
fegurð og margbreytileika manns-
líkamans og þunguð kona og bæti
maður í spilið heimsfrægri söng- eða
leikkonu er útkoman skotheld. Það
er í það minnsta mat bandarískra
tímarita sem hafa notast við þessa
formúlu með ábatavænum hætti, að
því er manni skilst. Mikla athygli
vakti á sínum tíma þegar leikkonan
Demi Moore sat fyrir á forsíðu Van-
ity Fair og ekki var öll sú athygli já-
kvæð. Harpers Bazaar fylgdi í spor
Vanity Fair nokkrum árum síðar og
birti mynd af söngkonunni Britney
Spears, kasóléttri í ekki ósvipaðri
stellingu. Nú síðast má sjá Christinu
Aguilera á forsíðu Marie Claire og
án efa mun sú mynd verða til þess að
blaðið renni út eins og heitar lumm-
ur – eða er þetta ekki orðið svolítið
lummulegt allt?
Óléttar
stjörnur
á forsíðum
Associated Press
Stoltir kráareigendur Logi Helgason, Arnar Þór Gíslason, Ingvar Svendsen og Hermann Svendsen.
Ensk krá
í Austurstræti
Morgunblaðið/Kristinn
NÝ krá, The English Pub, var opnuð í Austurstræti á fimmtudags-
kvöldið á þeim stað þar sem veitingastaðurinn Deco var áður til húsa.
Eins og nafnið gefur til kynna eru innréttingar staðarins í breskum stíl
og er það hugmyndin að menn upplifi dæmigerða enska kráarstemningu
eins og hún gerist best. Eigendur The English Pub eru engir nýgræð-
ingar í veitingarekstri en þeir hafa áður komið að rekstri; Victors við
Ingólfstorg, Olivers, Barsins, Q-bars og Thorvaldsen. Meðal þess sem
prýðir veggi staðarins er stærðarinnar mynd af Einari Vilhjálmssyni í
miðju spjótkasti en svo skemmtilega vildi til að við opnunin átti Einar
leið hjá. Hann var gripinn inn á staðinn og var svo að vonum upp með
sér þegar hann sá myndina á veggnum. Fjöldi fólks sótti opnunina á
fimmtudagskvöldið og ekki annað að sjá en menn væru ánægðir með
nýja staðinn.
Óvænt ánægja Einar Vilhjálmsson spjótkastari ásamt Arnari Þór Gíslasyni,
einum eigenda Staðarins. Mynd af Einari prýðir staðinn eins og sjá má.
TÓNLIST
Geisladiskur
Rúnar Júlíusson og Schola
Cantorum – Jólaóður
HELG hljómlist er Rúnari Júl-
íussyni ekki ókunn og er orðin hon-
um æ kærari í seinni tíð. Slíka tón-
list var m.a. að finna á
hljóðversplötu hans frá 2005, Blæ-
brigði lífsins, og platan sem kom út
árið á undan, Trúbrotin 13, var
lögð að fullu und-
ir trúarlega tón-
list.
Þessa jólaplötu
vinnur hann með
Schola Cantorum-
kórnum og svo
einvalaliði hljóð-
færaleikara undir styrkri stjórn
Þóris Baldurssonar. Útkoman er í
senn hátíðleg og heimilisleg en
andi þessara platna sem koma frá
Geimsteinsútgáfunni er auðvitað al-
gerlega einstakur. Ég sé alltaf
Rúnna fyrir mér á morgunsloppn-
um, rölta niður í hljóðver eftir
morgunkaffið til að taka upp með
vinum og fjölskyldu. Hippísk hug-
sýn einhvern veginn.
Þetta styrkjandi látleysi sem ein-
kennir plötur Rúnars er hér í unn-
vörpum og rennslið er einkar ljúft.
Orgelleikur Þóris gæðir lögin hlýju
og að heyra Rúnar syngja ljær lög-
unum meiri – og annars konar –
vigt en ella. Prýðilegasta jólaplata.
Arnar Eggert Thoroddsen
Hátíðlegur
heimilis-
bragur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
L I S T V I N A F É L AG H A L LG R Í M S K I R K J U - 26. S TA R F S Á R
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju
1. DESEMBER
laugardagur
12.00
Orgelandakt við upphaf
aðventu
Björn Steinar Sólbergsson leikur
orgelverk tengd aðventu.
Sr. Birgir Ásgeirsson flytur bæn.
Ókeypis aðgangur.
9. DESEMBER
sunnudagur
17.00
Bach og jólin
Björn Steinar Sólbergsson
organisti og Schola cantorum
undir stjórn Harðar Áskelssonar
flytja jólatónlist eftir J. S. Bach.
Miðaverð: kr. 2000.-
6. DESEMBER
fimmtudagur
20.00
Jólatónleikar Drengjakórs
Reykjavíkur í Hallgrímskirkju
Með kórnum syngja félagar úr
Karlakór Reykjavíkur ásamt
Gunnari Guðbjörnssyni
óperusöngvara.
Orgelleikari: Lenka Máteova.
Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson.
Miðaverð: kr. 1500.-
2. DESEMBER
sunnudagur
17.00
Jólatónleikar Mótettukórs
Hallgrímskirkju
Frönsk jólatónlist og
Betlehemssöngvar.
Miðaverð: kr. 3000.-
Flytjendur:
Mótettukór Hallgrímskirkju,
Gissur Páll Gissurarson tenór,
Strengjasveit - konsertmeistari
Guðný Guðmundsdóttir, Björn
Steinar Sólbergsson orgel.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
14. 00
Opnun aðventusýningar
...LAND ÉG SÁ...
Arngunnur Ýr Gylfadóttir sýnir
ný olíumálverk í forkirkju
Hallgrímskirkju. Við opnunina
syngur Berglind Björgólfsdóttir
forna aðventusöngva.
8. DESEMBER
laugardagur
12.00- 17.00
Söngur og orgeltónlist á
Klaisorgelið 15 ára
Fjöldi kóra og orgelleikara koma
fram með KLAIS orgelinu og
viðstaddir syngja jólasöngva með!
AÐGANGUR ÓKEYPIS en tekið
verður á móti framlögum til
Hjálparstarfs kirkjunnar.
1.– 9. DESEMBER 2007
jólaföstu
GUÐMUNDUR FRÁ MIÐDAL
MIÐASALA Í HALLGRÍMSKIRKJU S. 510 1000
JÓLAÞRENNA: VERÐ KR. 4000 (FULLT VERÐ KR. 6500)
HALLGR ÍMSK IRK JAMENNINGAR- OG FERÐAMÁLARÁÐ Sjá nánar: listvinafelag.is