Morgunblaðið - 17.01.2008, Síða 4
ÍSLENSKA krónan veiktist um 1% í
gær og hefur frá áramótum veikst um
rösklega 5%.
„Krónan hefur látið undan síga í
frekar slæmri stemningu,“ segir Jón
Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá
Greiningu Glitnis. „Sér í lagi eftir að
einhver hluti markaðsaðila setti fram
væntingar um hraða lækkun stýri-
vaxta á næstu mánuðum. Hjá Glitni
teljum við þær væntingar ekki raun-
hæfar. En ef raunin verður sú að
vextir fara að lækka hratt þá mun það
vissulega grafa undan krónunni,“
segir Jón Bjarki.
Hann segir Seðlabankann hins veg-
ar fylgjast grannt með þróun krón-
unnar vegna þess hve gengisbreyt-
ingar skila sér fljótt út í verðlagið.
„Veikingin nú er fjarri því sem Seðla-
bankinn vill sjá á meðan verðbólgan
er eins mikil og raun ber vitni. Ef eitt-
hvað er, þá er þessi hreyfing til þess
fallin að letja hann í að lækka vexti á
næstu vikum og jafnvel mánuðum.“
Jón Bjarki segir fleira búa að baki.
„Við þetta bætist að aðrar hávaxta-
myntir, s.s. tyrkneska líran og suður-
afríska randið, lækkuðu líka töluvert
frá opnun [í gær].“ Hann segir horfur
enn vera að versna á mörkuðum og að
breiðast út. Stemningin sé neikvæð
og væntingar litlar.
Krónan
veikst um
5% í ár
4 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
MEIRIHLUTI borgarstjórnar hef-
ur náð sameiginlegri niðurstöðu um
næsta skref í REI-málinu og verður
það kynnt á stjórnarfundi Orkuveitu
Reykjavíkur sem boðaður er á föstu-
daginn kemur, en fundurinn gæti þó
frestast um nokkra daga.
„Það má segja að niðurstaða sé að
fæðast,“ segir heimildarmaður og
annar sagði ekki hægt að tala um nið-
urstöðu heldur skref – þetta væri við-
varandi verkefni sem lyki aldrei.
Til stendur að halda eigendafund
og taka upp þráðurinn frá því eig-
endafundi var frestað 23. nóvember
sl., en því er fleygt að þetta sé að
OR, þá sé það með fyrirvara um sam-
þykki eigenda. Starf stýrihópsins
verði því einskorðað við að pakka
saman lærdómum af uppákomunni í
haust.
Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnar-
formaður OR, hefur átt í viðræðum
við meðeigendur OR í Hitaveitu Suð-
urnesja, þar með talið Geysir Green
Energy, en hún fékk heimild til þess
á eigendafundi OR 16. nóvember sl.
Þá leitaði borgarstjóri eftir fundi
með Geir H. Haarde forsætisráð-
herra, en hann hefur ekki svarað er-
indinu. Innan úr meirihlutanum má
heyra að slíkur „dónaskapur“ sé
„með ólíkindum“, enda hafi verið
samþykkt einróma í borgarráði að
leita eftir slíkum viðræðum.
verða einn lengsti eigendafundur
sem sögur fara af. Þá er stefnt að því,
samkvæmt heimildarmanni, að stýri-
hópur um málefni OR skili af sér í
næstu viku. Sjálfstæðismenn hafa
lagt áherslu á að hluti af niðurstöðu
stýrihópsins verði úttekt á því hvort
stjórnsýslureglum hafi verið fylgt og
hverjir eigi að sæta ábyrgð hafi verið
brotið gegn þeim. Þeir segja þá vinnu
enn á byrjunarreit.
Samkvæmt heimildum er stefnt að
því að flytja stefnumótun OR frá
stýrihópnum inn í stjórn OR og er
það rökstutt með því að þar liggi öll
gögn fyrir. Þá hljóti ákvarðanir um
framtíð REI fyrst og fremst að vera
eigendamál. Þótt teknar verði
ákvarðanir um skref á stjórnarfundi
Niðurstaða í REI-
málinu að fæðast
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„AÐ vissu leyti
eru þetta straum-
hvörf í lækning-
um MS-sjúkra,
þetta er öflugasta
lyfið sem fram
hefur komið
hingað til og get-
ur breytt veru-
lega gangi sjúk-
dómsins,“ segir
Elías Ólafsson, yfirlæknir á tauga-
deild Landspítala, en í gær fengu
fyrstu sjúklingarnir meðferð með
lyfinu Tysabri. Rannsóknir hafa
sýnt að köstum, sem einkenni MS-
sjúkdóminn, geti fækkað um allt að
70% við meðferð lyfsins, en sam-
bærilegur árangur hefur ekki náðst
með eldri lyfjum.
Mikil umræða var um lyfið í þjóð-
félaginu síðari hluta síðasta árs, en
samkvæmt ákvörðun heilbrigðisyf-
irvalda frá því í desember sl. fá 50
sjúklingar lyfið á þessu ári. Kostn-
aðurinn er yfir 100 milljónir króna á
ári.
Fyrirbyggjandi lyf
MS er langvinnur sjúkdómur sem
leggst á miðtaugakerfi fólks. Sjúk-
dómurinn einkennist af bólgum í
miðtaugakerfinu sem kemur fram
sem köst í formi ákveðinna ein-
kenna á borð við lamanir í útlimum,
sjóntap eða svimaköst. Endurtekin
köst geta valdið varanlegum
skemmdum á miðtaugakerfinu. Þró-
un sjúkdómsins er misjöfn hjá
hverjum og einum og köstin koma
misoft. Lyfið Tysabri dregur veru-
lega úr bólguköstunum og er því
fyrirbyggjandi.
„Það er vandinn með þennan
sjúkdóm að það er mjög erfitt að
spá fyrir um það hvernig hann
þróast,“ segir Elías.
Með tilliti til fjölmargra þátta er
tekin ákvörðun um hvort lyfið Ty-
sabri henti viðkomandi sjúklingi eða
hvort meðferð með öðrum lyfjum sé
betri.
„Meðferð með Tysabri hentar
þegar virkni sjúkdómsins er mikil
og viðkomandi hefur ekki svarað
annarri lyfjameðferð,“ segir Hauk-
ur Hjaltason, sérfræðingur á tauga-
deild LSH. „Þetta eru fyrst og
fremst þeir sem fá endurtekin köst
þrátt fyrir aðra meðferð.“
Haukur bendir á að það muni
taka næstu mánuði að hefja meðferð
hjá öllum sem eiga að fá lyfið, þar
sem ekki sé hægt að sinna öllum
samtímis. „Þessi nýja meðferð
þarfnast ákveðinnar aðlögunar á
starfsemi taugalækningadeildar,“
bendir Elías á. Önnur lyf verða
einnig áfram gefin við MS-sjúk-
dómnum, þar sem viss hluti sjúk-
linga bregst vel við þeim og því er
ástæðulaust að breyta þeirri með-
ferð.
Meðferð með Tysabri fer þannig
fram að sjúklingur kemur á fjög-
urra vikna fresti inn á sjúkrahúsið
og fær lyfið í æð. Það tekur um
klukkustund. Viðkomandi dvelur þó
á sjúkrahúsinu í nokkra tíma í senn
undir eftirliti hjúkrunarfræðinga og
lækna vegna hugsanlegra aukaverk-
ana. Lyfið verður aðeins gefið á
Landspítalanum.
Elías segir að stundum geti tekið
langan tíma þar til meðferðin með
Tysabri sýni árangur þar sem gang-
ur MS-sjúkdómsins sé mjög breyti-
legur.
MS-sjúkdómurinn er afar breyti-
legur og þótt hann valdi stundum
mikilli fötlun er það alls ekki algilt
og sumir fá aðeins væg einkenni. Til
skamms tíma var tilhneiging hjá
sjúklingum til að líta á greiningu
MS-sjúkdómsins sem reiðarslag,
þar sem ekkert var hægt að gera til
að halda honum í skefjum. Þetta
breyttist með tilkomu lyfja við MS-
sjúkdómnum fyrir rúmum áratug.
„Nú er komið nýtt og enn öflugra
lyf, sem gefur fólki með MS-sjúk-
dóminn nýja von um minni fötlun og
betra líf,“ segir Elías. „En reynslan
mun endanlega skera úr um hver
árangur notkunar þess verður.“
Árvakur/Árni Sæberg
Fyrstur Ólafur Örn Karlsson fékk nýja MS-lyfið í gær með aðstoð Jónínu Hallsdóttur hjúkrunarfræðings.
„Ég bind miklar vonir við þetta lyf en ekki of mikl-
ar, ég geri mér grein fyrir að það er ekkert sem
getur læknað sjúkdóminn að fullu,“ segir Ólafur
Örn Karlsson, rúmlega tvítugur menntaskólanemi,
sem var fyrstur til að fá Tysabri í gær. Ólafur fékk
MS fyrir tveimur árum og ágerðist sjúkdómurinn
mjög hratt. Var það m.a. ástæðan fyrir því að hann
var tekinn snemma inn í meðferðina. Ólafur segist
oft hafa orðið fyrir fordómum vegna sjúkdómsins.
Einkennum hans geti svipað til ölvunarástands, t.d.
reikult göngulag og þvoglumæli. „Ég hef verið
stimplaður alkóhólisti og fíkniefnaneytandi,“ segir
Ólafur. „Fólk ætti að passa sig á því að vera ekki
með svoleiðis fordóma.“
Vongóður en raunsær
MS-lyfið Tysabri er nú
komið í notkun hér á
landi og hófu fyrstu sjúk-
lingarnir meðferð á
taugadeild Landspítala í
gær. „Straumhvörf,“ seg-
ir yfirlæknir deildarinnar
um meðferðina.
Elías Ólafsson
Straumhvörf í lækn-
ingu MS-sjúkra
♦♦♦
ÁL- og námufyrirtækið Rio Tinto,
sem keypti Alcan, móðurfélag ál-
versins í Straumsvík, hefur tilkynnt
að hugsanlegt sé að það selji eina af
deildum Alcan, Engineering Pro-
ducts, að því er fram kom í frétt á vef
breska dagblaðsins The Daily Tele-
graph í gær.
Blaðið segir að búist sé við að fjár-
losun Rio Tonto, eða salan á hluta
fyrirtækisins, nemi tíu milljörðum
dollara, sem svarar rúmum 650 millj-
örðum króna.
The Daily Telegraph hafði eftir
heimildarmanni í London að fjár-
festar hefðu sýnt verulegan áhuga á
deildum Alcan. Hann bætti þó við að
Rio Tinto væri ekki að flýta sér að
selja og erfitt væri fyrir fjárfesta að
tryggja sér nægilegt fjármagn til
kaupanna vegna minna framboðs á
ódýru lánsfé. Rio Tinto hefur einnig
rætt við fjárfestingarfélög um hugs-
anlega sölu á hluta Alcan.
Rio Tinto hefur snúist til varnar
gegn yfirtökutilboði keppinautarins
BHP Billiton. Financial Times
skýrði frá því í lok nóvember að
stjórn Rio Tinto hefði lofað fjárfest-
um að eignir yrðu seldar og arð-
greiðslur auknar. Blaðið sagði Tom
Albanese, forstjóra Rio Tinto, hafa
sagt fjárfestum að eftir kaup félags-
ins á Alcan væri möguleiki á að selja
eignir fyrir á bilinu 15-30 milljarða
dollara.
The Daily Telegraph sagði að Rio
Tinto hefði styrkt stöðu sína frekar í
baráttunni við BHP Billiton með
metframleiðslu á síðasta fjórðungi
liðins árs. Blaðið hafði einnig eftir
Albanese að minnkandi hagvöxtur í
heiminum myndi ekki hafa veruleg
áhrif á rekstrarafkomu Rio Tinto.
Rio Tinto íhugar að
selja hluta Alcan
FIMM sóttu um embætti forstjóra
Tryggingastofnunar ríkisins.
Umsækjendur eru: Arnþór
Helgason blaðamaður, Guðmundur
Kjartansson viðskiptafræðingur,
MBA, Jón Sæmundur Sigurjónsson
skrifstofustjóri, Sigríður Lillý Bald-
ursdóttir, settur forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins, Þórey S.
Þórðardóttir forstöðumaður.
Félags- og tryggingamálaráð-
herra skipar í stöðuna að fenginni
tillögu stjórnar TR.
Sóttu um starf
forstjóra TR