Morgunblaðið - 17.01.2008, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
HJÁ Brunamálastofnun gera menn
ráð fyrir að rannsókn á hvernig
brunavörnum húsanna Austurstræt-
is 22 og Lækjargötu 2 var háttað
ljúki brátt. Það sem helst hefur tafið
skýrslugerðina er óvissa sem ríkir
um hvort eldvarnaveggur á lóðar-
mörkum hafi verið á sínum stað,
hvort hluti hans hafi aldrei verið
reistur, jafnvel þótt slíkur veggur
sjáist á teikningum. Einnig hvort
breytingar, sem gerðar voru á hús-
unum í gegnum tíðina, hafi gert það
að verkum að eldvarnaveggurinn
gegndi ekki hlutverki sínu.
Við rannsóknina hefur þurft að
fara í gegnum þykkan bunka af
skjölum í skjalasafni Reykjavíkur-
borgar en elstu skjölin sem koma við
sögu í málinu eru um aldargömul.
Um níu mánuðir eru síðan elds-
voði gjöreyðilagði Austurstræti 22
og stórskemmdi Lækjargötu 2.
Þegar eignatjón verður mikið, líkt
og varð í þessu tilfelli, rannsakar
Brunamálastofnun hvernig eldvarn-
areftirliti er háttað, hvort kröfur eld-
varnareftirlits hafi verið uppfylltar
og hvernig staðið var að slökkvi-
starfi. Tilgangurinn er sá að komast
að því hvort eitthvað hefði betur
mátt fara og draga lærdóm af því.
Niðurstöðurnar eru síðan kynntar
slökkviliðsstjórum og bygginga-
fulltrúum um allt land.
Veggur á teikningum
Björn Karlsson brunamálastjóri
segir að á teikningum af húsunum
frá árinu 1925 sé sýndur eldvarnar-
veggur á lóðarmörkum húsanna. Síð-
an þá hafi margir tugir erinda borist
byggingafulltrúa Reykjavíkur vegna
þessara húsa og fjölmargar breyt-
ingar gerðar á þeim. „Málið er bara
nokkuð flókið og erfitt að skýra ná-
kvæmlega hvernig þetta þróaðist.
Og það eru gríðarlega margir aðilar
sem hafa komið að þessu máli um
næstum 100 ára skeið,“ segir Björn.
Þótt brunaveggurinn sé á teikning-
um, líka þeim nýjustu sem til eru af
húsunum, eru áhöld um hvort hann
hafi í raun verið á sínum stað. Þá
liggur ekki fyrir með vissu hvort
hann hafi verið fjarlægður að hluta
eða gerð í hann göt sem, eðli málsins
samkvæmt, gera hann nánast gagns-
lausan sem eldvarnavegg. „Eld-
varnaveggur á að vera stór, traustur
og þykkur veggur og það mega ekki
vera á honum göt eða neitt slíkt. En
það virðist vera ljóst að hann hafi
verið nokkuð mikið gallaður, hafi
hann á annað borð verið þarna líkt
og teikningar segja til um,“ segir
Björn.
Deiliskipulag á næsta leiti
Hjá skipulagssviði Reykjavíkur
hefur í haust og vetur verið unnið að
tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðirnar
Austurstræti 22 og Lækjargötu 2 og
einnig fyrir Lækjartorg og nánasta
umhverfi. Tillagan er byggð á verð-
launatillögu fyrir svæðið. Að sögn
Birgis Hlyns Sigurðssonar, sviðs-
stjóra skipulagsstjóra, átti að leggja
þessar hugmyndir fyrir stýrihóp
sem settur var á laggirnar í kjölfar
stórbrunans. Ef tillagan fær braut-
argengi í skipulagsráði og borgar-
ráði verður hún auglýst. Frestur til
athugasemda er sex vikur.
„Málið er bara nokkuð flókið“
Elstu skjölin sem hefur þurft að kanna við rannsókn á brunavörnum Lækjargötu 2 og Austurstrætis
22 eru um aldargömul Óljóst hvort eldvarnaveggur sem sést á teikningum var á sínum stað
VIÐ rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu tókst ekki að leiða í ljós
eldsupptök í Lækjargötu 2 og Austurstræti 22, né hvar eldurinn kviknaði.
Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns réð þar mestu
að brunavettvangurinn var afar illa farinn, bæði sökum þess hve mikið
brann en einnig vegna þess að beita varð stórvirkum vinnuvélum við
slökkvistarfið.
Rannsókn leiddi upptök ekki í ljós
Árvakur/Sverrir
LÖGREGLAN á höfuðborgar-
svæðinu hefur tekið til rannsóknar
kæru vegna nauðgunar í byrjun
þessa árs, en þar er tvítugur karl-
maður grunaður um að hafa nauðg-
að 14 ára stúlku.
Að sögn lögreglunar var mað-
urinn handtekinn og hnepptur í
gæsluvarðhald en hefur verið
sleppt.
Kæra vegna málsins barst lög-
reglu hinn 5. janúar. Að sögn lög-
reglu hefur ekki verið ákært í mál-
inu.
Stúlkan, sem dvelur á meðferð-
arheimili, kynntist manninum í
gegnum spjallsíðu á netinu. Þau
mæltu sér mót og fór maðurinn
með stúlkuna heim til sín þar sem
hann er grunaður um að hafa
nauðgað stúlkunni.
Þar sem um netsamskipti er að
ræða lagði lögreglan hald á allan
tölvubúnað og er unnið að því að
rannsaka hann.
Lögreglan bendir á að netsam-
skipti geti verið afar varasöm og
því sé mikilvægt að foreldrar og
aðrir forráðamenn barna hafi gæt-
ur á netnotkun þeirra.
Grunur um
nauðgun
EKKI er ólíklegt að margir lands-
menn hafi látið sig dreyma um sól
og yl í suðrænum löndum í gær þeg-
ar þeir mokuðu snjónum sem kyngt
hefur niður víða á landinu síðustu
daga.
Þessi dugnaðarforkur lét ekki
snjókomuna og vetrarkuldann á sig
fá þegar hann kepptist við að skafa
snjóinn af tröppum Þjóðleikhússins
fyrir framan skilti þar sem sýn-
ingar á leikritinu Sólarferð eru
auglýstar.
Æfingar á leikritinu eru nú í full-
um gangi í Þjóðleikhúsinu undir
leikstjórn Benedikts Erlingssonar
og verkið verður frumsýnt á Stóra
sviðinu 15. febrúar.
Sólarferð er eftir Guðmund
Steinsson (1925-1996), sem var
meðal fremstu leikskálda Íslend-
inga. Þetta leikrit er eitt af vinsæl-
ustu verkum hans og var frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu árið 1976. Er þar
dregin upp skemmtileg mynd af
sólarlandaferðum Íslendinga.
Ekki er útlit fyrir miklar breyt-
ingar á veðrinu á næstu dögum.
Spáð er éljum og snjókomu víða á
landinu í dag og á morgun. Útlit er
fyrir vestanátt á laugardag og spáð
er bjartviðri að mestu á sunnudag
og fram á mánudag.
Sólarlöndin
freista í
fannferginu
og frostinu
Árvakur/Ómar
FJÓRIR starfsmenn Landspítala í
Fossvogi greindust jákvæðir á
berklaprófi sem haldið var á nokkr-
um svæðum sjúkrahússins í kjölfar
þess að sjúklingur sem þar lá greind-
ist með smitandi berkla í byrjun
vetrar. Engin starfsmannanna hefur
veikst af berklum, en í það minnsta
einn af þeim hefur hafið fyrirbyggj-
andi meðferð til öryggis.
Starfsmennirnir sem um ræðir
eru íslenskir og að sögn Ólafs Guð-
laugssonar, yfirlæknis á sýkinga-
varnardeild Landspítala, er nær
ómögulegt að vita með vissu um ná-
kvæman uppruna smits þeirra, þ.e.
hvort það er komið frá sjúklingnum
eða hefur einungis uppgötvast vegna
berklaprófanna á spítalanum.
Margir Íslendingar bera berkla
frá gamalli tíð, sem geta vaknað upp
aftur. Um 10% þeirra sem smitast
geta fengið berklasýkingu, sem í dag
er í flestum tilvikum auðlæknanleg. Í
tilvikum starfsmannanna er ekki um
að ræða svonefndan ónæman stofn,
sem er sjaldgæfur. Í völdum tilvik-
um eru einstaklingar sem smitast
settir í varnandi meðferð til að
hindra að þeir fái sýkingu eftir smit.
Ólafur segir að berklar séu alls
ekki horfnir á Íslandi og árlega
greinast tíu til tólf einstaklingar með
smitandi lungnaberkla – um helm-
ingur þeirra Íslendingar. Talið er að
þriðjungur til helmingur jarðarbúa
beri í sér berkla, en aðeins um 10%
smitaðra veikjast af völdum sýking-
ar í kjölfar smits.
Fjórir greindust já-
kvæðir á berklaprófi
TILLAGA um að
auglýsa ekki til-
lögu Þyrpingar
hf. um deiliskipu-
lag Bygggarða
var samþykkt á
fundi bæjar-
stjórnar Seltjarn-
arness í gær.
Jónmundur Guð-
marsson bæjar-
stjóri mælti fyrir
tillögunni fyrir
hönd sjálfstæðis-
manna.
Kristín Halla
Jónsdóttir, tals-
maður Íbúahóps
um lágreista
byggð í Byggörð-
um austan Gróttu
var ásamt fleiri
bæjarbúum á
áheyrendabekkj-
um á fundinum í gær. Kristín kvaðst
fagna samþykkt bæjarstjórnar og
sagði að sér þætti það áfangasigur
að málið skyldi ekki hafa verið keyrt
í gegn. Í samþykktinni felist einnig
að lagðir verði fram fleiri og mögu-
lega betri skipulagskostir og að haft
verði samráð við íbúana á mótunar-
stigi nýrra tillagna. Íbúahópurinn
mun funda í dag og ræða hina nýju
stöðu.
Samkvæmt tillögunni og breyt-
ingatillögu minnihluta sem sam-
þykkt var verður unnið áfram að
mótun hugmynda að deiliskipulagi
svæðisins. „Mikilvægt er að vel tak-
ist til um deiliskipulag hinnar nýju
byggðar og að fram fari fagleg um-
ræða um helstu þætti sem m.a. lúta
að nánasta umhverfi, húsagerð, nýt-
ingu, útliti og gæðum fyrirhugaðrar
byggðar. Stefnt skal að því að fjölga
íbúðum í þeim tilgangi að nýta það
þjónustustig sem til staðar er á Sel-
tjarnarnesi en íbúabyggð á þétting-
arsvæðum taki mið af þeirri byggð
sem fyrir er og að byggð verði aðlað-
andi íbúðasvæði og fjölbreytni í
íbúðagerðum,“ segir m.a. í tillögunni
sem var samþykkt. Þá var skipu-
lags- og mannvirkjanefnd falið að
vinna málið áfram af hálfu bæjarins.
Skipulag
endur-
skoðað
Jónmundur
Guðmarsson
Talsmaður íbúa
fagnar samþykkt
Kristín Halla
Jónsdóttir
DAGSBRUN Media hefur selt fjár-
festinum Morten Lund 51% hlut í
danska fríblaðinu Nyhedsavisen.
Baugur Group verður næststærsti
hluthafinn, samkvæmt frétt Bus-
iness.dk, viðskiptafréttavefjar
Berlingske Tidende, í gærkvöldi.
Gert var út um kaupin síðdegis í
gær. Morten Lund átti fyrir hlut í
Nyhedsavisen. Samkvæmt fréttinni
vildu hvorki Baugur né Morten
Lund upplýsa kaupverðið. Kaupin
voru gerð eftir að Baugur hafði
reynt án árangurs að laða nýja fjár-
festa að útgáfu blaðsins.
Business.dk segir að útgáfa Ny-
hedsavisen hafi kostað íslenska eig-
endur sína meira en hálfan milljarð
DKR (6,5 milljarða ÍKR) frá því út-
gáfan hófst í október 2006 og tapið
sé meira en ein milljón DKR (12,9
milljónir ÍKR) á dag. Þetta sýni
gögn sem Berlingske Business hafi
undir höndum.
Morten Lund er 35 ára millj-
arðamæringur og fjárfestir. Hann
efnaðist fyrst á kaupum í Skype-
netsímafélaginu. Síðan hefur hann
eignast hluti í meira en 85 félögum.
Seldi hlut í
Nyhedsavisen