Morgunblaðið - 17.01.2008, Page 8

Morgunblaðið - 17.01.2008, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR RANNSÓKNARSTOFNUN Háskól- ans á Akureyri, Ferðamálasetur Ís- lands og Umhverfisstofnun hafa fengið styrk frá Evrópusamband- inu vegna þátttöku í verkefni sem er hluti af nýrri Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Verkefnið er samstarfsverkefni Íslands, Finn- lands, Skotlands og Kanada (Labra- dor og Nýfundnaland). Markmið þess er að styðja við þróun sjálf- bærra veiða til eflingar atvinnulífs og búsetu með áherslu á veiðimenn- ingu. Heildarfjárhæð íslenska hluta verkefnisins er 25,3 milljónir sem skiptist niður á þrjú ár og fékkst styrkur frá Evrópusambandinu fyr- ir 50% af þeirri fjárhæð eða rúmar 12 milljónir. Rannsókna- og þróun- armiðstöð Háskólans Akureyri er yfirumsjónaraðili yfir verkefninu. Styrkur vegna sjálfbærra veiða TOYOTA-skákmót eldri borgara fer fram í Ásgarði, Stangarhyl 4, á morgun, föstudag. Mótið hefst kl. 13 og er öllum opið eldri en 60 ára. Skráning hefst kl. 11.30 en hægt er að skrá þátttöku í síma 553-2346 eða 659-2346. Magnús Kristinsson athafnamaður mun leika fyrsta leikinn. Tefldar verða níu umferðir og er umhugsunartíminn 10 mín- útur á mann á hverja skák. Mótið verður haldið á ári hverju og er bú- ist við þátttöku fjölmargra kunnra kappa. Toyota-skákmót HÆSTU almennu styrkir menntaráðs Reykjavíkur á árinu 2008 renna til list- náms og fræðslu- starfs um samkyn- hneigð. Myndlistaskólinn í Reykjavík fær tveggja milljóna króna styrk til verkefnisins List- búða í myndlistaskóla og Samtökin ’78 fá 1,7 milljónir kr. til að byggja upp fræðslustarf um samkynhneigð í grunnskólum Reykjavíkur. Bandalag íslenska listamanna (BÍL) fær einnar milljónar króna styrk til verkefnisins Litróf listanna sem miðar að því að efla listuppeldi og samstarf listamanna og skóla. Þá fær Kennaraháskóli Íslands eina milljón kr. í styrk til að rannsaka lífsstíl 7-9 ára barna með það að markmiði að bæta heilsufar þeirra. Menntaráð Reykjavíkur afgreiddi styrki til 24 verkefna á fundi sínum 14. janúar og nema þeir alls 11,4 milljónum króna. Nánar á heima- síðu menntasviðs. Fjöldi styrkja frá menntasviði STUTT RÍKISKAUP hafa óskað eftir til- boðum í stóðhestastöð og sæðis- tökuhús í Gunnarsholti, Rangár- þingi ytra, ásamt 87 hekturum lands. Stóðhestastöðin var byggð árið 1989 og sæðistökuhúsið árið 1997. Brunabótamat húsanna er kr. 96.350.000 og fasteignamat 28.215.000 krónur. Fyrirvari við söluna er um að væntanlegur kaupandi skuldbindi sig til að girða gripahelda girðingu fyrir 1. ágúst í sumar í samráði og samvinnu við Landgræðslu ríkisins og aðra landeigendur. Stóðhestastöð í Gunnarsholti Árvakur/Kristinn Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÉG get lofað því að þetta verður mjög spennandi, við munum fara nýj- ar leiðir í matargerðinni,“ segir Þór- arinn Eggertsson matreiðslumaður. Þórarinn festi nýverið kaup á veit- ingastaðnum Tveimur fiskum við Geirsgötu og opnar þar nýjan stað í lok febrúar. „Við verðum léttir og poppaðir í hádeginu, en í fínni mat- argerð á kvöldin,“ segir Þórarinn. Talsverðar hræringar hafa verið á veitingahúsamarkaðnum undanfarna mánuði og hafa eigendaskipti verið nokkuð ör. Fyrirtækið FoodCo hf. hefur verið áberandi á markaðnum og keypti m.a. nýverið Lækjarbrekku og Sjávarkjallarann. Framandi kokteilar „Áherslan verður á íslenskt- franskt eldhús og við munum leika okkur mikið með allskyns nýjungar,“ segir Þórarinn Eggertsson um nýja staðinn við Geirsgötu. Megináherslan verði á fisk enda staðurinn staðsettur við höfnina, „kjötið verður þó ekki út- undan og það ættu allir að finna eitt- hvað við sitt hæfi,“ segir Þórarinn. Nú er unnið að umfangsmiklum út- litsbreytingum á staðnum innanverð- um, „við verðum með stóran bar með framandi kokteilagerð. Unnið verður með köfnunarefni, drykkir hverfa og birtast aftur og mikil ævintýri sköp- uð,“ segir Þórarinn. Í kjölfar opnunarinnar í lok febr- úar verða opnaðir salir í kjallara hússins, útbúnir fullkominni fundar- og veisluaðstöðu. Guðvarður Gíslason veitingamaður seldi nýverið veitingastaðinn Apótek í Austurstræti og hefur nú tekið að sér rekstur veitingastaðar Hótels Radisson SAS 1919, sem áður hét Salt, en hefur nú fengið nafnið Gull- foss. „Það er opnunarhátíð á morgun [í dag] með nýjum matseðlum,“ segir Guðvarður. Franskur yfirkokkur Við erum með nýjar áherslur, höf- um breytt staðnum töluvert og fengið til okkar franskan yfirkokk, Nicolas Vergnaut, sem hefur starfað á 5 stjörnu veitingastöðum í Mónakó, Mallorka og Barselóna,“ segir Guð- varður. Hann segir áhersluna verða á mat frá Miðjarðarhafinu, spænskt og franskt, „við verðum mikið með tapas uppsetningu á mat og m.a. með ta- pashlaðborð í hádeginu,“ segir Guð- varður. Auk Apóteks rak Guðvarður áður veitingastaðinn Maru í Aðal- stræti 12, sem ber nú heitið Fisk- markaðurinn og er rekinn af þeim Hrefnu Rósu Sætran matreiðslu- manni og Ágústi Reynissyni fram- reiðslumanni. Eins og komið hefur fram í Morg- unblaðinu er Siggi Hall meðal þeirra sem eru að breyta til. Hann hefur hætt rekstri veitingastaðar síns á Óð- insvéum, en hyggst opna aftur í öðru húsnæði í haust. Töluverðar hræringar á veitingahúsamarkaðnum Árvakur/Golli Notalegt Margir sækja á veitingahús í skammdeginu og er um auðugan garð að gresja í Reykjavík. Tíð eigendaskipti hafa verið að undanförnu. Nýr staður opn- aður í stað Tveggja fiska við Geirsgötu Eftir Andra Karl andri@mbl.is „EF EITTHVAÐ hljómar of vel til að vera satt er það áreiðanlega lygi,“ hefur verið nefnd gullna reglan þeg- ar kemur að því að meta gylliboð sem berast tölvunotendum dag hvern í gegnum tölvubréf. En þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir í gegnum árin eru ávallt einhverjir sem hugsa sér gott til glóðarinnar og stökkva á fljótfenginn gróða. Þeim er nær und- antekningalaust refsað. Enn á ný varar embætti ríkislög- reglustjóra við fjársvikabréfum sem berast í gegnum netið. Þrátt fyrir að enginn Íslendingur hafi enn látið glepjast af tilboðinu er samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra um að ræða mjög vandað tölvubréf. Sendandinn kveðst vera endur- skoðandi við Prime Bank í Lundún- um og leitar að samstarfi við heið- arlegan aðila í því skyni að flytja úr landi rúmar 8,5 milljónir punda. Því er heitið að upphæðinni verði skipt til helminga. Þar sem á milli 90-95% tölvubréfa sem send voru á síðasta ári voru svo- nefndur ruslpóstur, að því er Barra- cuda Networks Inc. fullyrti í síðasta mánuði, má gera ráð fyrir að sérhver einstaklingur fái þónokkurt magn af bréfum þar sem um gylliboð er að ræða. Önnur leið er að senda hót- unarbréf þar sem viðkomandi er hótað lífláti ef hann ekki greiðir háa upphæð á bankareikning erlendis. Fjölmargar leiðir eru til að sann- reyna slík bréf. Til að mynda er hægt að fletta upp nafni viðkomandi sendanda, eða hluta af innihaldi bréfsins, á leitarvef Google. Líkurn- ar á að einhver hafi fengið sama bréf í hendurnar eru yfirgnæfandi. Einn- ig er hægt að hafa samband við lög- reglu. Lögregla varar við gylliboðum Í HNOTSKURN »Fjölmargar tegundir af fjár-svikapósti eru sendar út á degi hverjum, með tölvupósti og bréfleiðis. »Þrátt fyrir að landsmenn séufarnir að þekkja svikin eru ætíð einhverjir sem láta glepjast. Talið er að 1% viðtakenda láti blekkjast. »Dæmi eru um að Íslendingurhafi tapað um 1,5 milljónum króna í slíku svindli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.