Morgunblaðið - 17.01.2008, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 17.01.2008, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 15 MENNING Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Áfyrirlestri sínum í Listaháskólanum ámánudag lét bandaríska tónskáldið Phil-ip Corner áheyrendur juða stólum sín-um við gólfið og skapa þannig tónlist. Einum nemandanum þótti sem áheyrendur vant- aði, en Corner spurði glettnislega hvað við sem heyrðum hljóðin værum annað en áheyrendur. Áð- ur hafði hann þagað um hríð, rétt eins og aðrir í salnum, svo umhverfishljóðin mögnuðust smám saman upp. Philip Corner er tónskáld sem hefur frá 1961 verið kenndur við Fluxus-listahreyfinguna, en leið- ir hans og annarra úr þeim hópi hafa oft legið sam- an. Corner nam tónlist við Columbia-háskólann og síðar hjá Olivier Messiaen í París. Sjálfur kenndi hann við virta skóla vestanhafs og hefur unnið með ýmsum hljómsveitum og danshópum. Phoebe Neville, eiginkona tónskáldsins, dreifði til viðstaddra á fyrirlestrinum bréfasnifsum og smárusli, sem hún hafði áður stimplað á taktfastan hátt. Corner kallaði þetta „eyrnapappír“ og sagði vera ígildi hljóðfæris; maður átti að nudda honum milli fingranna upp við eyrað og spila fyrir sjálfan sig. Eyrnapappír blaðamanns var rifrildi af munn- þurrku, með brauðmylsnu og sósuklíningi, sem á var stimplað: ÖGN AF ÞVÍ SEM ER. Sum byggjast á gjörningi Magnús Pálsson myndlistarmaður er í för með Corner og hefur verið að skipuleggja uppákomu Nýlókórsins, sem verður í Nýlistasafninu á laug- ardagskvöldið kemur klukkan 20. Hann segir Cor- ner hafa komið hingað til lands sumarið 1981 og tekið þátt í „Mob-Shop,“ sumarvinnustofu fyrir listamenn. Nýlókórinn var stofnaður árið 2003, að undirlagi Magnúsar, starfar innan Nýlistasafnsins og hefur verið lýst sem „skúlptúrískum“ kór, enda ekki raddkór í hefðbundnum skilningi. Hvað skyldi Cor- ner vera með í pípunum fyrir tónleika Nýlókórsins? „Það sem er í hálsinum og raddböndunum á meðlimunum,“ segir hann. „Flestir eru áhuga- menn, svo flest verkin eru einföld, allir geta sungið þau og ég get auðveldlega kennt þau á einni viku. Svo eru önnur verk sem byggjast á eins konar gjörningi, þar sem kórfélagar þrengja að önd- unarveginum meðan þeir syngja og skapa furðuleg hljóð. Þá eru enn önnur verk, ólík nokkru sem ég hef gert áður, og ég vona að ég geti kennt félögun- um að syngja þau. Þau byggjast á flutningi tveggja erinda úr Snorra-Eddu þar sem merking orðanna vísar á hvernig þau eru sögð. Orðið ör fer hratt, ping!“ segir hann og hálf þeytir því út úr sér. „Þessi erindi eru flutt en ekki sungin. Ég hlakka til að heyra hvernig það kemur út. Eftir að ég undirbjó grunnhugmyndina frétti ég að í hópnum væri þjálfað söngfólk og hljóðfæraleik- arar. Ég get því látið syngja ákveðna hluta sem væru of flóknir fyrir þá sem lesa ekki nótur, og þá hlakka ég til að blanda hljóðfærunum inn í rödd- unina, sem er nokkuð sem ég hef ekki gert áður.“ Allt hluti af því sama – Sem tónskáld hefurðu fengist við fjölbreytilega sköpun. „Sumir segja mig hafa gert mjög fjölbreytilega hluti, samið fyrir allrahanda hljóðfæri og raddir, en sjálfum finnst mér ég alltaf hafa verið að gera það sama. Það eru bara víddir í því. Maður hefur sinn stíl. Stíll sumra er þröngur en afar víður hjá öðrum, hjá Monteverdi til dæmis. Innan þessa stíls er sam- ræmi. Jú, ég hef skrifað píanóstykki, kóraverk, tólftónaverk, mínímalísk rödduð verk, þvermenn- ingarleg verk, önnur undir austurlenskum áhrifum, konseptverk, og unnið að verkum með Phoebe kon- unni minni, sem er dansari. Mér finnst þetta allt vera hluti af því sama.“ – Í áratugi kenndir þú tónlistarteóríu og þekkir vel til allra stílbragða. „Já, ég þurfti að læra þetta allt mjög vel áður en ég fór að kenna það sjálfur. En það var áhugavert að kenna. Ég tók flúxustónlist og tólftónana og til- viljunartónlist inní háskólann og tengdi það við hefðbundna klassíska tónlist. Ég réði við það þar sem ég var vel kunnugur hvoru tveggja. Ég reyndi alltaf að kenna þannig að ég gæti opn- að upp gáttir. Þegar ég kenndi kontrapunkt lét ég nemendur gera hefðbundnar æfingar út frá göml- um hugmyndum, en lét þá svo taka það lengra og gera mínímalískar útgáfur af sömu stefjum eða hugmyndum; útleggingar sem krefðust meiri at- hygli af áheyrendum og væru nær okkur í tíma.“ Nýlókórinn flytur verk eftir flúxuslistamanninn Philip Corner Eyrnapappír og þröngur öndunarvegur Árvakur/Einar Falur Kórstjórar Magnús Pálsson myndlistarmaður, stofnandi Nýlókórsins, með tónskáldinu Philip Corner og eiginkonu hans, Phoebe Neville. Corner mun vinna með Nýlókórnum á meðan hann er á landinu. TÓNLIST Bústaðakirkja Kammertónleikar bbbbn Píanókvintettar eftir Schumann og Brahms í Es Op. 44 og f Op. 34. Elfa Rún Kristinsdóttir / Helga Þóra Björgvins- dóttir fiðla, Þórarinn Már Baldursson víóla, Margrét Árnadóttir selló og Vík- ingur Heiðar Ólafsson píanó. Sunnudag- inn 13. janúar kl. 20. SJALDAN þessu vant í fimmtugri sögu Kamm- ermúsíkklúbbs- ins varð forsala að tónleikunum í Bústaðakirkju slík að ákveðið var að endurtaka þá næsta kvöld í Salnum. Urðu hlustendur því óhjákvæmilega fyrir von- brigðum, ekki síður en hinir ungu rísandi hljómlistarmenn, þegar fella varð niður 2. atriði kvöldsins, Cont- rasts fyrir klar- ínett, fiðlu og pí- anó eftir Bartók, þar eð klarínettleikarinn fékk botn- langakast þá verst gegndi, eins og tilkynnt var við leiksupphaf. Hvort sá hrekkur örlaga á 11. stundu hafi haft sálræn áhrif á flytj- endur skal ósagt látið, þó hvarflað hafi að manni í I. þætti hins verðugt vinsæla Kvintetts Schumanns frá 1842. Alltjent einkenndist túlkunin af nokkrum óróleika, jafnvel asa, líkt og fyrir aðkenningu af örvænt- ingu. En hópurinn náði sér þó fljótt á strik, og eftir stemmningsríkan sorgarmars II. geisluðu Scherzóið og Bach-skotinn fínallinn af því ag- aða æskufjöri sem hlustendur bundu einkum vonir við. Enn betur tókst Brahms– kvintettinn frá 1864, m.a. hvað styrksamvægi viðvíkur, því á veik- ari stöðum í Schumann bar stund- um á fullsterku píanói. Ritháttur Brahms var alla jafna þykkari en hjá Schumann og naut fyrrtaldur því ekki sízt góðs af snarpskýrum píanóleik Víkings Heiðars. Eftir heldur njörvaðan I. þátt losaði Jo- hannes um viðjar opinskárri tján- ingar, og fannst mér túlkunin bera af í þjóðlagaleitum draumsöng And- ante-þáttar (II). Slíkt rífur þó sjaldan alla upp úr skónum. Það gerði hins vegar fruntavel spilað Scherzóið er sindr- aði af samtaka innlifun. Í lokaþætti sameinuðust tæknileg færni, mús- íkalskt upplag og áræði í fjöl- breyttri og oft furðudjúpri útlegg- ingu; vafalítið árangur markvissari samæfinga en gengur og gerist í hérlendri tímaþröng, enda varð út- koman myndarleg fjöður í ferilshatt allra. Og vonandi er á engan hallað þó minnzt sé í lokin á hljómfagran en ávallt samvægan sellótón Mar- grétar Árnadóttur. Annað hvort meistarahljóðfæri eða meistaralega vel á leikið – nema hvort tveggja sé. Ríkarður Ö. Pálsson Færni, upplag og áræði Elfa Rún Kristinsdóttir Margrét Árnadóttir MYNDLIST Fótógrafí Trílógía/Friðþjófur Helgason Til 1. febrúar. Opið 12–18 virka daga og 10–16 um helgar. Aðgangur ókeypis. HINN margreyndi ljósmyndari Friðþjófur Helgason sýnir nú ljós- myndaverk undir yfirskriftinni „Trílógía“ í sýningarsal Fótógrafís á Skólavörðustíg 4a. Verkin eru ýmist svarthvít eða í lit og er hvert þeirra samsett úr þremur ljós- myndum. Slík samsetning þriggja mynda kveikir formrænt samspil, ekki síst í verkum sem draga fram óhlutbundna þætti í annars hlut- lægum veruleika. Gott dæmi um það eru myndir af viðarpöllum á grasflöt og nærmyndir af regn- dropum og af stályfirborði borho- luskúrs. Kontrastar í síðastnefnda verkinu eru svo sterkir að verkið virðist í fyrstu vera afstrakt teikn- ing eða grafíkmynd. Þetta skapar áhugaverða spennu í verkinu. Í tveimur verkanna beitir ljósmynd- arinn myndvinnsluaðferðum til að bjaga myndina af veruleikanum og kalla fram samhverf form í mynst- urkenndum leik. Verk sem sýnir þokukennt Klambratún hefur öllu mýkra og „fígúratífara“ yfirbragð og skír- skotar til evrópskrar landslags- hefðar í ljósmyndun og málverki. Sum verkin hafa áberandi frásagn- arkennda eiginleika, svo sem verk af „millilendingu“ spóa nokkurs og í verki af gaddavírsrúllum ræðst frá- sögnin af samsetningu myndanna. Í dálítið dularfullum myndum í anda film noir, af skuggum á gangstétt, birtist vel spennan – sem undir- strikuð er með skálínum í mynd- byggingu – milli þess eiginleika ljósmyndarinnar að frysta augna- blikið og svo hreyfingar í tíma, og er sú spenna raunar helsta við- fangsefni Friðþjófs á sýningunni. Það tengist hugsanlega reynslu hans sem kvikmyndatökumanns. Í landslagsmynd frá Veiðivötnum er líkt og hann hafi klippt panóram- íska ljósmynd í þrennt – og um leið brotið eitt augnablik upp í þríþætta myndræna frásögn. Þessi sýning endurspeglar leit- andi og frjóan huga myndasmiðsins. Sýningin í heild er ögn sundurleit en hún hefur skemmtilega til- raunakennt yfirbragð. Anna Jóa Kyrrstaða og hreyfing Trílógía „Slík samsetning þriggja mynda kveikir formrænt samspil, ekki síst í verkum sem draga fram óhlutbundna þætti í annars hlutlægum veruleika.“ Þjófur Sæll! Björn heiti ég og bý í Reynihlíð. Þú áttir leið hjá mér á föstudaginn og hafðir á brott með þér ýmsan smávarning sem ég sakna. Nú veit ég að fæst af þessum hlutum hafa mikið verðgildi utan fjölskyldu minnar og því velti ég fyrir mér hvort ekki sé hægt að komast að samkomulagi sem allir hafa hag af. Til að ræða málin bið ég þig vinsamlega að hafa samband við mig í síma 669 1174.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.