Morgunblaðið - 17.01.2008, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 17.01.2008, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 17 AUSTURLAND Eftir Atla Vigfússon Aðaldalur | Myndlistarsýning var haldin í tengslum við fjölskyldu- messu í kirkjunni í Nesi í Aðaldal um helgina. Þar mættu margir nemend- ur Hafralækjarskóla ásamt foreldr- um og ættingjum til þess að sjá af- raksturinn af því starfi sem börnin inntu af hendi í desember sl. þar sem fjallað var um aðventu og jól. Sóknarpresturinn, Þorgrímur G. Daníelsson, sýndi fólki myndirnar og fór yfir þær hugmyndir sem sett- ar voru á blað og kom þar margt fróðlegt og nýstárlegt fram sem tengist hugmyndum krakkanna um hátíðirnar. Margar góðar hugmyndir Hann sagði að mjög gaman væri að sjá hve jólaskynjun fólks væri mismunandi og upplifunin með ýmsu móti enda mjög margt sem gerist í mannlífinu í mánuðinum og mikil sköpunargleði fengi að njóta sín. Dómnefnd með sóknarpresti skip- uðu þau Arnþrúður Dagsdóttir myndlistarkona og Árni Pétur Hilm- arsson sem er grafískur hönnuður. Þau afhentu nemendum verðlaun í tveimur flokkum, það er að segja fyrir bestu myndina og bestu hug- myndina. Þá voru veitt viðurkenn- ingarskjöl fyrir 2. til 3. sæti í báðum flokkum. Verðlaunin voru pizzu- veisla fyrir fjóra í báðum flokkum og var unga fólkið mjög ánægt með þessa skemmtilegu tilbreytingu í kirkjustarfinu. Bestu myndina samkvæmt niður- stöðum dómnefndar átti Kaj Anton Larsen sem teiknaði jólasvein, en bestu hugmyndina átti Sigríður Atladóttir, en hún var tré sem hafði vaxið og dafnað af litlu fræi og borið mikinn ávöxt. Séra Þorgrímur hafði á orði í messunni að margar myndir hefðu átt skilið að vera verðlaunaðar því hugmyndaflugið væri mikið. Börnin upplifa jólin hvert með sínum hætti Morgunblaðið/Atli Vigfússon Vinningshafar og dómnefnd Arnþrúður Dagsdóttir, Árni Pétur Hilm- arsson, sr. Þorgrímur G. Daníelsson og Kaj Anton Larsen eru í aftari röð og fyrir framan eru Tístran Blær Karlsson, Hulda Ósk Jónsdóttir, Sigríður Atladóttir, Jana Valborg Bjarnadóttir og Hermann Hólmgeirsson. Í HNOTSKURN »Myndlistarkennsla hefur ver-ið í miklum blóma í Hafra- lækjarskóla í Aðaldal um árabil undir stjórn Hólmfríðar Bjart- marsdóttur myndlistarkennara. »Þetta er annað árið í röð semefnt er til myndlistarsýn- ingar í Neskirkju í Aðaldal þar sem nemendur tjá hugmyndir sínar um aðventu og jól. ÍSLAND tekur þátt nýrri Norður- slóðaáætlun Evrópusambandsins fyrir tímabilið 2007-2013. Þátt- tökulöndin auk Íslands eru Finn- land, Svíþjóð, Skotland, Norður- Írland, Írland, Noregur, Grænland og Færeyjar. Ísland er með í fjórum verkefnum að þessu sinni. Eitt þeirra miðar að aukinni hagnýtingu á timbri og öðr- um lífrænum efnum af litlum gæð- um, sem endurnýjanlegum orkugjöf- um. Héraðs- og Austurlandsskógar og Skógrækt ríkisins taka þátt ásamt Finnlandi, Skotlandi og Sví- þjóð. Verkefnið nýtist beint í skóg- ræktarverkefnum og gefur frum- kvöðlum tækifæri til að hasla sér völl á sviði timburnýtingar. Nýta á aldagamlar aðferðir Annað þátttökuverkefni Íslend- inga sameinar menningu, handverk og ferðamennsku til að mynda grundvöll fyrir handverksfólk sem notar að stærstum hluta aldagamlar aðferðir til að skapa ný störf. Er það samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Færeyja, Norður-Írlands, Írlands og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru Nýheimar á Höfn og Fræðslu- net Austurlands. Þá fer nú í gang verkefni um um- hverfiskennslu og nýsköpun á sviði fræðandi ferðaþjónustu. Þátttak- endur eru, auk Noregs og Írlands, Rannsóknasetur HÍ á Höfn, Há- skólasetrið Húsavík, Þjóðgarðurinn Jökulsárgljúfrum, Þróunarstofa Austurlands, Kirkjubæjarstofa, Þjóðgarðurinn Skaftafelli og sveit- arfélögin Hornafjörður, Skaftár- hreppur, Fljótsdalshérað og Norð- urþing. Fjórða verkefnið fjallar um þróun sjálfbærra veiða til eflingar atvinnu- lífs og búsetu og eru veiðistjórn- unarsvið Umhverfisstofnunar, Rannsóknasetur ferðaþjónustunnar og Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri m.a. þátttakendur ásamt Finnum, Skotum og aðilum á Labra- dor og Nýfundnalandi. Framlag íslenskra stjórnvalda til áætlunarinnar verður samtals 1.200.000 kr. árin 2007 til 2009. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Vöxtur Skógrækt ríkisins og Héraðs- og Austurlandsskógar taka þátt í verkefni um hagnýtingu timburs og annarra lífrænna efna sem orkugjafa. Austurland í nýrri Norðurslóðaáætlun Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is IMPREGILO vinnur að heilborun hluta Jökulsárganga austan Snæ- fells. Borinn lenti í lausu millilagi í berglagastaflanum undir Laugafelli og hefur talsvert þurft af bergstyrk- ingum, auk þess sem viðhald á færi- bandakerfi fyrir bergmulning hefur tafið. Búið er að heilbora um 6,5 km og 2 km eftir. Arnarfell hefur enn ekki hafið framkvæmdir á svæðinu eftir ára- mót og erlendir starfsmenn fyrir- tækisins eru ekki komnir til lands- ins. Sigurður Arnalds hjá Landsvirkjun segir málefni Arnar- fells í biðstöðu. „Það tekur einhvern tíma enn að fá niðurstöðu í þau mál og koma verkinu af stað aftur eftir fríið um hátíðarnar. Verkstaðan var góð við áramót þannig að við erum ekki mjög trekkt yfir því að þessi mán- uður nýtist illa. Þetta er reyndar líka erfiðasti tími ársins hvað varðar veð- urfar og hægt að vinna þetta upp með hækkandi sól,“ segir Sigurður. Pípir út á vitlausum stöðum Athygli vekur að vatn virðist þrengja sér í nokkru magni úr hinum stóru aðrennslisgöngum Kára- hnjúkavirkjunar á tveimur óvæntum stöðum. Annars vegar rennur upp um rannsóknarholu sem boruð var sl. sumar skammt frá aðgöngum 1 á Teigsbjargi. Rennur töluvert vatn úr holunni áleiðis niður Valþjófsstaða- fjall. Sigurður segir umrædda holu liggja niður í sveiflugöng í Miðfelli og neðan á henni sé tækjabúnaður til að fylgjast með þrýstingi þegar sveiflur verði. Það gerist ef eitthvað slær út og vél eða vélar stöðva skyndilega í stöðinni. Upp um hol- una liggi mælikaplar. „Holunni er lokað að neðan með miklum hlemmi en samt hefur vatn fundið sér einhverja leið inn í hana, þannig að úr henni kemur vatn. Við bíðum vorsins með að laga þetta, þá verður þrýstingurinn í lágmarki og auðveldara viðfangs er að steypa upp í holuna ofan frá. Það mun vera í góðu lagi að fylla hana með steypu umhverfis kaplana. Mér skilst að vatnið renni í nálægt dý eða mýri og sé ekki til ama, en þetta rennsli verð- ur ekki til langframa.“ Í Glúmsstaðadal, þar sem tals- verðs leka hefur einnig orðið vart, er einnig beðið vorsins. Þar dregur úr rennslinu með lægri lónhæð og þrýstingurinn er minni nú þegar vatnið rennur eftir göngunum. „Þar verður farið í aðgerðir á yfirborðinu, t.d. við borholur og með því að leggja síumöl yfir lindir. Annars er reiknað með að sjálfþétting verði nokkuð hröð með aurnum í jökulvatninu eins og reynslan sýnir við Tungnaá, Þjórsá og Blöndu,“ segir Sigurður. Ekki áhyggjur af töfum ennþá Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Gangafóðring Búið er að heilbora um 6,5 km Jökulsárveituganga. Heilborað austan Snæfells en Arn- arfells enn beðið Nýr skólameistari | Komið er að skólameistaraskiptum hjá Verk- menntaskóla Austurlands. Helga Steinsson hefur gegnt stöðunni undangengin tólf ár en flytur sig nú um set og verður verkefnastjóri hjá Fjölmenningarsetri. Staðan hefur verið auglýst og gert ráð fyrir að skipað verði í hana í byrjun mars nk. Ókeypis námskeið | Fljótsdals- hérað styrkir Þekkingarnet Aust- urlands til að halda tölvunámskeið fyrir erlenda íbúa sveitarfélagsins þeim að kostnaðarlausu. Á námskeiðinu er leitast við að aðstoða þátttakendur við að afla sér upplýsinga um ýmis atriði sem geta verið hjálpleg til að aðlagast íslensku samfélagi, sem og að geta fylgst með því sem gerist í þeirra heimalandi. Alls verður boðið upp á námskeið með 12 þátttakendum í hverju. Sveitarfélagið hefur einnig kom- ið upp tölvu á Bókasafni Hér- aðsbúa sem sérstaklega er ætlað erlendum íbúum til upplýs- ingaleitar. Þjóðgarðsmiðstöð | Stefnt er að fyrstu skóflustungu að nýrri þjóðgarðsmiðstöð fyrir Vatnajök- ulsþjóðgarð á Skriðuklaustri nk. haust. Hafa umhverfisráðuneyti og þjóðgarðsnefnd auglýst samkeppni um hönnun á húsnæði hinnar nýju miðstöðvar. Reiknað er með að hún verði fullbúin og hefji starfsemi um mitt ár 2009. Undirbúningur að þjóðgarðinum gengur vel og er vinna við form- lega stofnun hans langt komin. Samningagerð við ábúendur og landeigendur innan þjóðgarðs- marka stendur yfir og jafnframt er unnið að reglugerð fyrir þjóðgarð- inn. Sveitarstjóri hættir | Ráðning- arsamningur sveitarstjóra Borgar- fjarðarhrepps rann út um áramót. Steinn Eiríksson, sem gegnt hef- ur starfinu undanfarin misseri, sagði stöðu sinni lausri í öndverð- um þessum mánuði og mun hætta störfum sem sveitarstjóri að áliðn- um vetri. Steinn er jafnframt fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Álfa- steins á Borgarfirði eystri. LANDIÐ Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.