Morgunblaðið - 17.01.2008, Page 20

Morgunblaðið - 17.01.2008, Page 20
ferðalög 20 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Ég hef alltaf verið svolítiðspenntur fyrir Síberíu-raðlestinni og ákvað þvíað láta gamlan draum rætast með því að taka mér far með henni. Því fer þó fjarri að Síberíu- hraðlestin sé einhver hraðlest því meðalgangurinn er sjötíu til áttatíu kílómetrar á klukkustund. Fyrstu hugmyndir gengu út á eins mánaðar langt ferðalag, en svo hugsaði ég með mér að úr því ég væri kominn alla leið til Peking, væri ekki úr vegi að nota tækifærið og skoða meira af þessum hluta heimsins. Því bættist við einn og hálfur mánuður til viðbótar í Suð- austur-Asíu,“ segir Björn Helgason, tæplega þrítugur tölvunarfræðingur, sem ákvað að fylgja ævintýraþránni eftir með því að leggja lönd undir fót á haustmánuðum. Ferðalagið hófst þann 14. sept- ember síðastliðinn með því að Björn flaug frá Íslandi til Helsinki í Finn- landi og hoppaði síðan upp í Síberíu- hraðlestina í St. Pétursborg í Rúss- landi, þaðan sem hún skreið af stað áleiðis til Peking með viðkomu í Moskvu í Rússlandi, Tashkent, Sam- arkand og Bukhara í Úsbekistan, Al- maty í Kasakhstan, Novosibirsk, Ir- kutsk og Listvyanka við Baikal- vatnið í Rússlandi og Ulan-Bator í Mongólíu. Björn bendir á að Síberíu- hraðlestin samanstandi í raun af mörgum lestum, sem falli undir hatt rússneska lestarkerfisins. Ósnortnar perlur í austrinu Þennan fyrri legg ferðarinnar með Síberíuhraðlestinni frá St. Péturs- borg til Peking bókaði Björn í gegn- um ferðaskrifstofuna Sundowners Travel sem hefur heimasíðuna www.sundownersoverland.com. Hún sá að öllu leyti um bókanir á lestar- ferðum og gistingu þennan fyrsta mánuð ferðarinnar. „Það er margt sem stendur upp úr í þessum fyrri áfanga. Það var t.d. spennandi að koma til St. Pétursborgar, Moskvu, Mongolíu og Peking auk þess sem Úsbekistan og Kasakhstan, sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum en eru nú sjálfstæð ríki, eru afskaplega eftir- minnilegar ósnortnar perlur, sem er- lendir ferðamenn hafa enn ekki upp- götvað í stórum stíl.“ Þegar Björn var búin að skoða Peking tók við seinni helmingur far- arinnar og þá þurfti að halda vel á spöðunum til að komast yfir sem mest. Þarna sagði hann skilið við Síb- eríuhraðlestina og þurfti nú að fara að skipuleggja ferðir og gistingu sjálfur. Hann notaði yfirleitt Netið til að bóka gistingu, oftast á farfugla- heimilum með nokkrum ókunnum ferðalöngum í herbergi sem miðluðu svo hver öðrum úr eigin reynslu- heimi. Lestir og rútur voru notaðar til að koma sér frá einum stað til annars og á lengri leiðum var gripið til flugs- ins til að spara tíma, sem orðinn var ansi knappur í restina. Kínamúrinn var sóttur heim frá Peking og síðan haldið til kínversku borganna Xian, Chengdu, Shanghai, Yangshuo, Kun- ming, Lijiang og Jinghong auk Hong Kong. „Og í Tiger Leaping Gorge, sem er stórt gil í Kína þar sem ég fór í tveggja daga gönguferð, hitti ég fyrir fjóra Íslendinga, þá einu landa mína sem ég sá í allri ferðinni,“ segir Björn. Því næst lá leiðin til Luang Namtha og Luang Prabang í Laos, svo til Hanoi, Sapa og Hoh Chi Minh borgar í Víetnam og síðan til Phnom Penh, Siem Reap og Angor Wat í Kambódíu. Loks kom Björn sér til Bangkok í Taílandi þaðan sem hann hafði ákveðið að fljúga til Kaup- mannahafnar og síðan heim á full- veldisdaginn 1. desember. Bakpokar, áritanir og sprautur Björn gerir lítið úr undirbúningi ferðalagsins enda hafi hann bara kastað því nauðsynlegasta í bakpok- ann fyrir brottför og í annan minni bakpoka hafi verðmæti á borð við myndavél, upptökuvél, peninga og vegabréf farið. Og þann bakpoka hafi hann aldrei skilið við sig. „Ég þurfti þó að hugsa fyrir sprautum og vega- bréfsáritunum fyrir brottför. Ég fékk bæði kínverska og rússneska áritun í viðkomandi sendiráðum hér heima, en þurfti að senda vegabréfið mitt til Lundúna til að fá áritanir fyrir Ús- bekistan, Kasakhstan og Mongolíu. Óhætt er þó að segja að Kambódíu- menn hafi tekið tæknina í sína þjón- ustu því þeir bjóða upp á rafrænar áritanir í formi e-visa rétt eins og flugfélög bjóða upp á e-miða í formi flugfarseðla. Rétt áður en förinni var heitið til Kambódíu fyllti ég einfald- lega út form á Netinu og sendi mynd af mér með og innan klukkutíma barst mér áritunin, sem ég prentaði út og sýndi á landamærunum.“ Pakkaferðir ekki í myndinni Björn segist hingað til hafa slegið á ferðaþrána með Evrópureisum nær einvörðungu og því hafi þetta nýaf- staðna ferðalag á ókunnar slóðir í nýja menningarheima verið mikil prófraun á sig. „Þetta áhugamál mitt snýst mikið til um að ferðast og bjarga sér í ókunnum aðstæðum, þefa af mannlífinu og reyna sig í framandi aðstæðum. Á vegi manns verður svo fólk, sem er líka að ferðast, sem mað- ur fær svo innblástur frá. Ég hef hinsvegar ekkert brennandi áhuga á sögunni eða söfnunum þó ég reyni auðvitað að innibyrða ýmsan fróðleik í leiðinni. Þrátt fyrir fortölur og hræðsluáróður ýmsa vina og kunn- ingja fyrir brottför, kom ekkert hættulegt upp á í ferðinni og ég hvorki týndist eða var rændur, sem betur fer. Ég náði að bjarga mér nokkuð vel í aðstæðum, sem ég kann- aðist ekki við og það þrátt fyrir að bæði rússneska og kínverska séu á öðru ritmáli en við eigum að venjast. Stundum þurfti ég að taka sólarstöð- una til að fatta að ég væri á réttri leið, en óhætt er að segja að sjálfsöryggið hafi dafnað samfara vaxandi reynslu- banka,“ segir Björn og bætir að lok- um við að sér myndi aldrei detta til hugar að kaupa pakkaferð til útlanda til þess eins að fá að elta fararstjóra með prik yfir hausnum sem rausar út úr sér endalausum ártölum. „Ég og tveir félagar mínir keyptum okkur einu sinni vikulanga pakkaferð til Rómar og ég uppgötvaði þá fljótt að „Gaman að reyna sig við framandi aðstæður“ Björn Helgason pakk- aði nauðsynjum niður í bakpoka og hélt nýver- ið einn síns liðs í tveggja og hálfs mán- aðar langt ferðalag um Asíu. Hann sagði Jó- hönnu Ingvarsdóttur að hann væri nú reynsl- unni ríkari eftir viðdvöl á 32 stöðum í tíu ólíkum löndum. Sölukona Babúskur í miklu úrvali á sölubás á markaði nokkrum í Rússlandi. Ferðalangurinn Björn Helgason á Torgi hins himneska friðar í Peking, höfuðborg Kína. Göngutúrinn Kínamúrinn er minnismerki sem fæstir ferðamenn til Kína láta framhjá sér fara. Víetnam Sólsetrið var fallegt á Halong Bay í Víetnam, einum af fjölmörgum áfangastöðum Björns. Kyrrðin Angkor Wat hofið í Kambódíu dregur að sér fjölda ferðamanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.