Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 29 verðlaun fyrir bestu leikmennina í okkar stöðum. Það var síðan ekki fyrr en í 8. bekk sem hið magnaða þríeyki varð til. Ég gleymi aldrei fimmtudagshefðinni okkar í 8. bekk. Þegar skólinn var búinn var alltaf farið í billjard í Árseli áður en ferm- ingarfræðslan hófst. Síðan þegar henni var lokið var farið beint upp í strætó og brunað niður í Kringlu til þess eins að fara niður í Kringlu. Fengum okkur að borða, prófuðum tölvuleiki og sitthvað fleira. Þetta gerðum við í heila önn á hverjum fimmtudegi og þótt það standi ekki einhver sérstakur dagur upp úr þá eru þetta minningar sem við höldum alltaf í og metum mikils. Já, þessi þrjú eða fjögur ár sem við vorum allir þrír hvað mest sam- an met ég (Kristján) meir en nokk- urn fjarsjóð og geymi á stað þar sem ekkert fær hreyft við þeim. Það virðist alveg sama hvað var uppi á teningnum, aldrei hvarf okkur bros af vör. Hvort sem við höfðum verið áminntir í skólanum fyrir endalaus- an kjaftagang, þrætt bæinn á enda á línuskautum eða öll þau skipti sem við fórum saman á snjóbretti. Aldrei gleymist atvikið þegar skrifborðið hans Kobba stóð í ljósum logum. Þá hvarf brosið reyndar eitt augnablik þegar Alley, mamma Kobba, greip okkur glóðvolga og talaði rækilega yfir hausamótunum á okkur. Kærleikur og hlýja, ímyndunarafl og hugmyndaflug, bros og fjöl- skylda sem varð sem okkar eigin. Hvað meira getur maður beðið um hjá vinum sínum? Vinir eins og Jak- ob, sannir vinir, eru það besta og verðmætasta sem nokkur getur óskað sér að eignast í lífinu. Við er- um svo heppnir að eiga Jakob og marga fleiri. Þótt leiðir okkar kunni að hafa skilið um stund, vitum við vel að stundir okkar saman eru langt í frá taldar. Á sama tíma og við söknum þín sárt, raunar svo sárt að orð fá ekki lýst, byggist sá sökn- uður einatt á því að við vitum að við munum sjást og sameinast aftur. Þá tekur þú á móti okkur og kynnir okkur fyrir þeirri veröld sem þú nú tilheyrir. Þangað til huggum við okkur við að vita af þér á góðum stað og að þú yfirgefur okkur aldrei í anda. Þótt þú gangir ei lengur á meðal okkar áttu alltaf stað í hjarta okkar. Þínir vinir Guðjón Örn og Kristján Pétur. Fyrstu kynni mín af Kobba, eins og við strákarnir kölluðum hann alltaf, voru í gegnum sameiginlega vini fyrir um þremur árum. Þá voru samskipti okkar frekar lítil og að- allega í gegnum tölvuna. Seinna meir lágu leiðir okkar oftar saman og ég kynntist honum sem vini, en það var eftir að hann var búinn að samþykkja mann, enda frekar feim- inn svona í fyrstu. Þegar maður var tekinn í sátt hjá honum var ekki aft- ur snúið og alltaf gátum við fundið eitthvað að bralla, annaðhvort bara við tveir eða með strákunum. Á þessum tímapunkti var hann kom- inn með bílpróf og oftar en ekki var tekinn rúntur, hvort sem við vorum að fara eitthvað eða bara njóta sam- vista og spjalla um daginn og veg- inn. Þegar við tókum okkur til og gerðum eitthvað, var yfirleitt kíkt í keilu, bíó, pool eða spilað spil með félögunum. Í fyrstu gat hann nú ekki mikið í keilu né pool og var sig- ur minn nánast öruggur, en það sem hann tók sér fyrir hendur gerði hann af heilum hug og fljótlega var hann byrjaður að vinna mig. Á sumrin vorum við annaðhvort uppi á golfvelli og spiluðum nokkra hringi, eða á Básum að æfa sveifluna auk þess sem við fórum í nokkrar ógleymanlegar ferðir. Erfitt er að þurfa að kveðja besta vin sinn en margar góðar minningar geymi ég í hjarta mínu, eins og á síðasta afmæli hans, þar sem við tveir félagarnir eyddum kvöldinu saman og hann talaði um hversu mikið hann hlakkaði til að verða tví- tugur. Það er svo sárt að horfa á eft- ir því sem búið var að plana, eins og komandi sumar ætluðum við vina- hópurinn að skella okkur til útlanda, strákarnir allir í annað skiptið en ég í fyrsta. Kobbi talaði um að ég þyrfti að koma með núna, það var svo gaman seinasta sumar, en hann hringdi í mig reglulega að utan til að athuga hvað ég hefði fyrir stafni. Við strákarnir gerðum allt saman og ef einhver ákvað að byrja að hitta stelpu, þurfti Jakob að samþykkja hana í einu og öllu, annars gæti aldrei orðið neitt úr því sambandi. Hann var límið sem hélt hópnum saman og viðhorf hans og framkoma mótaði svo marga í kringum hann, þ.á.m. mig. Stórt skarð er höggvið í líf okkar sem þekktum Kobba, sem kvaddi okkur langt fyrir aldur fram. Elsku Höskuldur, Aðalheiður, Rakel og Lea, ég sendi ykkur mínar einlægu samúðarkveðjur, þið eruð í bænum mínum. Minning um góðan dreng mun lifa. Þinn vinur, Gunnar Óli Gústafsson. Góður vinur okkar Jakob, eða Kobbi eins og við kölluðum hann, er látinn, langt fyrir aldur fram. Það eru ekki nema fimm ár síðan við kynntumst honum. Saman gerðum við ófáar vitleysurnar og var sjaldan dauð stund þegar við vorum saman, við sáum ekki fram á að neitt myndi koma í veg fyrir ævilanga vináttu. Það er því vart hægt að lýsa líðan okkar á nýársdag þegar við fréttum að Kobbi hefði ekki skilað sér heim eftir skemmtun sem við allir vorum saman á. Kobbi sem var svo áreið- anlegur og vanur að skila sér á rétt- um tíma. Leit var hafin og við tók- um allir þátt í henni. Öllu var umturnað, allir möguleikar kannað- ir og leitað og leitað. Daginn eftir fundu björgunarsveitarmenn Kobba. Okkur var öllum lokið. Það er ótrúlega erfitt að missa jafn góðan vin og Kobbi var. Við skiljum ekki af hverju þetta þurfti að fara svona. Strákur sem var svo rólegur og virkilega góður vinur. Það eru sjálfsagt ýmsar leiðir til að kljást við sorgina og reiðina sem kemur upp þegar svona gerist. Við vinirnir höfum verið mikið saman og haft stuðning hver af öðrum. Stund- um rætt mikið um alla góðu tímana sem við áttum saman, stundum bara þagað, grátið. Það eru ófáar minningar um Kobba sem við eigum aldrei eftir að gleyma. Þegar við minnumst Kobba þá munum við eftir öllum góðu stundunum saman í bílnum hans en Kobbi elskaði bíla og eyddi ófáum stundunum bakvið stýrið. Oftar en ekki var Kobbi ökumaður hvort sem við vorum á leiðinni á bretti í Blá- fjöllum eða í útilegu. Allar bíóferð- irnar eða bara rúnta. Okkur er það minnisstætt þegar Indriði keypti sér sína fyrstu druslu, Hyundai Ac- cent og við fórum saman og ætluð- um að sýna Kobba bílinn. Hann tók á móti okkur með þeim fréttum að hann hefði líka keypt bíl, splunku- nýjan Legacy Spec B. „Eigum við ekki frekar að fara á mínum,“ sagði Kobbi sem við auðvitað gerðum. Þetta sýndi hversu mikið hann elsk- aði bíla og að hann myndi nú ekki setjast upp í alla bíla, sérstaklega ekki Volvo sem hann hafði sérstaka óbeit á. Það er erfitt að setjast niður og skrifa miningargrein um góðan vin. Sorgin er sár en þegar við höfum setið saman um stund og rætt um Kobba og allt það skemmtilega sem við höfðum brallað saman er stutt í hláturinn. Við eigum svo margar góðar minningar sem munu lifa með okkur alla tíð. Foreldrum, systrum og öðrum skyldmennum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Elsku vinur, hvíldu í friði. Jón Viðar og Indriði Már. Háttvísi, hógværð, hlédrægni og heiðarleiki voru einkunnarorð Jak- obs Hrafns, þessa ljúfa drengs, sem lagði í ferðina löngu, miklu fyrr en nokkur átti von á. Við stærstu spurningunum fást sjaldnast skýr svör. En það er mannlegt og eðlilegt að spyrja: Hvers vegna er ungur maður í sól- arupprás lífs síns hrifinn burtu úr heimi? Hvers vegna? Svörin eru óræð og við stöndum frammi fyrir lífsgátunni stóru sem enginn kann skil á. Í smæð okkar og rökþrotum leitum við trúarinnar og væntum þess að hún veiti líkn þeim sem sárt syrgja, gefi þeim þrek til að sættast við torráðna tilveru og hjálpi þeim að finna á ný leið til að lifa lífinu. Á samleið okkar Jakobs árin hans í Ártúnsskóla var öllum ljóst að þar var góður drengur á ferð sem auðg- aði skólasamfélagið með ljúfri fram- komu sinni. Í hópi skólafélaga var hann hvers manns hugljúfi og sam- skipti hans við starfsfólk voru öll á jákvæðum og góðum nótum. Já, Jakob Hrafn auðgaði okkur öll með því að vera sá sem hann var. Einlægur lagði hann gott eitt til í öllu sem hann kom að. Kæru vinir Lea Ösp, Rakel Sara, Aðalheiður og Höskuldur. Við vott- um ykkur dýpstu samúð. Við ótíma- bært fráfall Jakobs Hrafns, kærs bróður og sonar, er söknuðurinn ykkur þungbærastur. Megi algóður Guð halda sinni kærleiksríku vernd- arhendi yfir ykkur og gefa ykkur þrek til að takast á við sorgina. Við öll sem sjáum á eftir Jakobi Hrafni syrgjum sárt en minningin um hann er vörðuð hugsunum um góðan dreng, einlægni hans og hóg- værð. Við trúum því að hann njóti skjóls í náðarfaðmi Guðs. Erna og Ellert Borgar. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚST BJARNASON bifreiðarstjóri, sem lést þriðjudaginn 1. janúar á hjúkrunarheimilinu Víðinesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. janúar kl. 13.00. Guðjón Ágústsson, Hrönn Valentínusdóttir, Bjarni Ágústsson, Ingibjörg Hafsteinsdóttir, Hrönn Ágústsdóttir, Ágúst Eiríksson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, JÓNÍNA Á. BJARNADÓTTIR (Nína), Strandvegi 9, Garðabæ, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 18. janúar kl. 15.00. Áki Jónsson, Bjarni Ákason, Eva Sigurgeirsdóttir, Jón G. Ákason, Fariba Salemi Seifeddin, Andri Ákason, Áróra Bjarnadóttir, Sædís Bjarnadóttir, Hekla Bjarnadóttir, Bergljót Busk Jónsdóttir, Baldur Jónsson. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR, Akureyri, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð þriðju- daginn 15. janúar. Benedikt Ólafsson, Bergþóra Ingólfsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Brynja Sigurmundsdóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Ingvi Jón Einarsson, Margrét Ólafsdóttir, Gunnar Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Flatey á Skjálfanda, andaðist á Hjúkrunarheimilinu í Sunnuhlíð þriðjudaginn 15. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 25. janúar kl. 13:00. Hjördís Ásberg, Hjörleifur Jakobsson, Guðmundur Gauti Sveinsson, Elísa Björg Sveinsdóttir. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, ELÍN ODDNÝ HALLDÓRSDÓTTIR, Einilundi 10a, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 15. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 21. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarkort Öldrunarheimila Akureyrar eða önnur líknarfélög. Svanhvít Jónsdóttir, Herbert Herbertsson, Elín Anna Guðmundsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Brynja Guðmundsdóttir, Jóhann Pétur Herbertsson, Guðrún Elín Herbertsdóttir og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, AGNAR SIGURBJÖRNSSON frá Hænuvík, Gullsmára 10, Kópavogi, lést á Gran Canaria föstudaginn 4. janúar. Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 18. janúar klukkan 13.00. Herdís Agnarsdóttir, Guðfinnur Pálsson, Sigursveinn Agnarsson, Baldvin Agnarsson, Björk Leifsdóttir, Björgvin Sigurbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA HALLDÓRSDÓTTIR, Höfðagrund 25, Akranesi, er lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 13. janúar, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 18. janúar kl. 14.00. Ólafur Ólafsson, Halldór Ólafsson, Guðlaug Sigurjónsdóttir, Jóhannes S. Ólafsson, Herdís H. Þórðardóttir, Ólafur Ólafsson, Ingiríður B. Kristjánsdóttir, Þráinn Ólafsson, Helga Jóna Ársælsdóttir, Lárus Þór Ólafsson, Valgerður Sveinbjörnsdóttir, Steinunn H. Ólafsdóttir, Halldór Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.