Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 36
Umgengnin er nánast eins og við ástkært gæludýr … 41 » reykjavíkreykjavík  Litrík ullarkápa (t.v), hönnuð af Védísi Jónsdóttur, prýðir forsíðu janúareintaks tískuprjónablaðsins Vogue Knitting. Kápan er ein af fjöl- mörgum flíkum sem Védís hefur hannað úr íslenskum lopa. Hönnun Védísar er Íslendingum að góðu kunn, en hún er hönnuður margra vinsælla prjónauppskrifta sem ÍS- TEX gefur út. Hún hefur áður hann- að fyrir Vogue Knitting og hafa verk hennar m.a. birst á forsíðum í bókaseríunni Knitting on the Go sem gefin er út af sama fyrirtæki. Íslensk hönnun á for- síðu Vogue Knitting  Heyrst hefur að grínistinn Þorsteinn Guð- mundsson fari bráðlega af stað með nýjan sjón- varpsþátt á Skjá- Einum. Ef af líkum lætur verður um sprenghlægilegan þátt að ræða í anda Þorsteins, sem er í uppáhaldi hjá mörgum hláturmildum Íslend- ingnum. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Þorsteinn birtist á Skjá- Einum, því árið 2003 var hann þar með þættina Atvinnumaðurinn. Þorsteinn á SkjáEinum Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is JÚLÍA er tvítug stúlka sem leitar á netinu að einhverjum sem vill svipta sig lífi með henni. Hún kemst í kynni við 19 ára strák á spjallrás, Ágúst, og saman halda þau í langferð upp á himinháa bjargbrún í Noregi, með samlokur, bjór og myndbandsupptökuvél. Hvorugt virðist hafa nokkra ástæðu til að svipta sig lífi. Þannig er söguþráður leikritsins norway.today í stuttu máli, en verkið verður frumsýnt fram- haldsskólanemum í dag kl. 10.45 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Verkið byggði höfundurinn, Igor Bauerisma, á sannsögulegum atburði, tveimur norskum tán- ingum sem hittust á spjallrás árið 2000 og ákváðu að svipta sig lífi, stukku á endanum fram af kletti og létu lífið. María Kristjánsdóttir þýddi verkið fyrir uppsetningu farandleikhúss Þjóðleikhússins, sem mun heimsækja sex fram- haldsskóla á Suður- og Vest- urlandi á næstu vikum og bjóða þeim á sýninguna. Á næsta ári verða skólar á Norður- og Austur- landi heimsóttir. No way to die Leikstjóri verksins er Vigdís Jakobsdóttir en með hlutverk Júl- íu og Ágústs fara Sara Marti Guð- mundsdóttir og Þórir Sæmunds- son. Norway.today er margverðlaunað verk, hefur verið þýtt á 25 tungumál og notið al- þjóðlegrar hylli. Vigdís er sam- mála því að yrkisefnið sé við- kvæmt en segir verkið snúast fyrst og fremst um gildi lífsins, þegar fólk sé svo djúpt sokkið í óraun- verulegan tölvuheim að það sjái sér ekki framtíð í þeim raunveru- lega. Titillinn er orðaleikur með setninguna „no way to die,“ eða „svona á ekki að deyja.“ „Þetta er í raun og veru verk um hvað það er sem gerir lífið þess virði að lifa því,“ segir Vigdís. Þó sé höfundurinn ekki að mata fólk eða troða skoðunum sínum upp á það. Umræðurnar í verkinu einkennist af svörtum húmor og tilvistarspurningum. „Það er svo- lítið mikið um pælingar í þá veru hvað sé veruleiki og hvað sé plat, hvað sé ekta og hvað ekki. Tilvist- arspurningar fyrir nútímafólk.“ Fjallað sé um andstæður tölvu- heims og hins raunverulega, en hluti af leikritinu gerist á netinu. Júlía og Ágúst eru með mynd- bandsupptökuvél í farteskinu og á hana taka þau upp skilaboð til ættingjanna, en það gerðu einmitt norsku táningarnir sem verkið byggist á. Í sýningunni er þessum upptökum varpað á skjá og það er stór hluti af uppfærslunni. Léku í Bugsy Malone Sara Marti útskrifaðist í fyrra frá leiklistardeild Listaháskóla Ís- lands. Hún lék m.a. einstæða móð- ur í kvikmyndinni Astrópíu, en hefur einnig getið sér gott orð sem söngkona, gaf meðal annars út disk með hljómsveitinni Lhooq og var tilnefnd sem besta söng- konan á Íslensku tónlistarverð- laununum árið 1999. Þórir er öllu reyndari leikari, útskrifaðist frá Leiklistarskóla Noregs árið 2002 og hefur leikið í fjölmörgum norskum leikhúsum og ýmis hlut- verk bæði í norskum kvikmyndum og sjónvarpi. Þórir leikur nú í fyrsta sinn í Þjóðleikhúsinu. Þau Sara og Þórir hafa leikið saman á sviði áður sem börn, í uppfærslu á Bugsy Malone í áhugaleikhúsi í Hafnarfirði árið 1993. Frekari upplýsingar um sýning- una norway.today má finna á vef Þjóðleikhússins, leikhusid.is. Svona á ekki að deyja Farandleikhús Þjóðleikhússins frumsýnir í dag verðlaunaverkið norway.today Norway.today Þórir Sæmundsson og Sara Marti Guðmundsdóttir sem Ágúst og Júlía, á bjargbrún í sjálfsvígshug í leikritinu norway.today.  Það virðast flestir hafa skoðun á örlög- um húsanna við Laugarveg 4 og 6. Umboðsmað- urinn Kári Sturluson hef- ur bloggað um þetta hitamál sem og aðrir. Er hann sammála mörgum um að hótel eigi ekkert erindi á þennan stað og kveðst vera með góðar hugmyndir að menningartengd- um rekstri í húsunum. „Get reyndar ekki hent í þetta mörg hundruð miljónum einsog ungfrú Toyota en get hinsvegar komið fram með ansi skemmti- lega hugmynd að menning- artengdum rekstri í húsunum. Það vantar ekkert hótel á þessum stað og hvur heldurðu að nenni að gista þarna hvort sem er. Við vitum alveg að þetta er eitt mesta átakasvæði Laugavegarins um helgar . . .“ Nokkuð til í því hjá Kára. Hugmyndaríkur Kári ■ Í kvöld kl. 19.30 Söngvar ástar og trega Rannveig Fríða Bragadóttir syngur hina óviðjafnanlegu Rückert- söngva Mahlers. Frábær sinfónía eftir Vaughan-Williams verður einnig flutt, svo og fiðluverk Þorkels Sigurbjörnssonar, Ljósbogar. Stjórnandi: Rumon Gamba Einsöngvari: Rannveig Fríða Bragadóttir ■ Fim. 24. janúar kl. 20.00 Tónleikar á Ísafirði í tilefni af 60 ára afmæli tónlistarskólans. ■ Fim. 31. janúar kl. 19.30 Ættgeng snilligáfa Natasha Korsakova, ungur rússneskur fiðlusnillingur, flytur hinn rómaða fiðlukonsert Brahms. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.