Morgunblaðið - 17.01.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2008 41
ÉG er vínylmaður. Þar hafiðþið það. Í mínum huga tek-ur ekkert fram þeirri upp-
lifun að nema tónlist af svörtum
rákunum. Þeir allra hörðustu
sverja og sárt við leggja að með
vínylnum hafi komið fram hið full-
komna form til að hýsa tónlist. Og
toppurinn þar væri hin ómót-
stæðilega sjötomma, hlutur sem
David Gedge, forsprakki bresku
rokksveitarinnar The Wedding
Present, hefur lýst sem kynæsandi.
Sumir kalla þetta snobb, aðrir
fortíðarþrá. Enn aðrir tómt rugl,
enda taki geisladiskurinn og „bætt
stafræn hljómgæði“ sarginu úr
slitnum vínylplötum fram. Þvaður
segi ég og vísa í orð Johns heitins
Peel, þess mikla meistara. Hann
var gagnrýndur fyrir að halda
tryggð við vínylinn, með sitt brak-
andi og suðkennda hljóð. Af hverju
hann skipti ekki yfir í hina „hreinu“
geisladiska og forðaðist þar með
þetta mikla yfirborðshljóð, eða
„surface noise“ eins og geisla-
diskahamparinn kallaði það.
„Listen mate,“ svaraði Peel þá
skorinorður. „Life has surface
noise.“
Í frétt af því að Sprengjuhöllinværi að fara að gefa út plötu
sína, Tímarnir okkar, á vínyl, lýsti
Snorri Helgason félaga sínum í
sveitinni, Atla Bollasyni, sem vín-
ylperra, en Atli var sá sem þrýsti á
þannig útgáfu. Mér verður hugsað
til þessara orða Snorra í tengslum
við dálæti okkar vínylmanna á
þessu elskaða formi, því að ástin
virðist oft taka á sig líkamlegar
myndir. Þetta er kjörið rannsókn-
arefni fyrir bókmennta- og tákn-
fræðinga, jafnvel félags- og mann-
fræðinga. Umslaginu er strokið
varfærnislega, og það borið upp að
kinn. Plötunni er velt ástúðlega á
milli fingurgómana og umgengnin
er nánast eins og við ástkært gælu-
dýr fremur en efnislegan hlut. Það
þarf heldur ekki sérstaklega næmt
eyra til að greina hlýjan hljóm vín-
ylsins samanborið við kalt og hvasst
(eiginlega dautt) hljóð hins staf-
ræna. Vínyllinn er lífrænni á allan
hátt, þetta er svei mér þá eins og að
taka lífið fram yfir dauðann.
Dramatískur, ég?
Ákvörðun Sprengjuhallarinnar,einnar allra vinsælustu sveitar
landsins, að umfaðma vínylformið
markar viss tímamót og er fagn-
aðarefni. Þá bárust fyrir stuttu
fréttir þess efnis að Hjaltalín muni
feta sömu braut. Vínylútgáfa hefur
lifað sæmilegu lífi neðanjarðar
hingað til, en merki hafa verið um
það undanfarin misseri að útgáfan
sé að treystast og jafnvel að aukast.
Þessar tvær útgáfur eru skýr merki
þar um.
Mmmm…vínyll…
» Plötunni er velt ást-úðlega á milli fing-
urgómana og umgengn-
in er nánast eins og við
ástkært gæludýr frem-
ur en efnislegan hlut.
Ljósmynd/Eggert Jóhannesson
Vínylperrar? Sprengjuhöllin hefur gefið út nýju plötuna á vínyl.
arnart@mbl.is
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
EINSTAKT TILBOÐ FYRIR HANDHAFA
MASTERCARD-KREDITKORTA:
MIÐINN Í FORSÖLU Á 1.990 KR.!
(ALMENNT VERÐ 3.500 KR.)
Fim 7/2 kl. 20 UPPSELT
Fös 8/2 kl. 20 UPPSELT
Lau 9/2 kl. 19 UPPSELT
Lau 9/2 kl. 22.30 Ný aukasýn.
Sun 10/2 kl. 20 UPPSELT
Fim 14/2 kl. 20 UPPSELT
Fös 15/2 kl. 19 UPPSELT
Lau 16/2 kl. 19 UPPSELT
Lau 16/2 kl. 22.30 Ný aukasýn.
Sun 17/2 kl. 20 UPPSELT
Fim 21/2 kl. 20 UPPSELT
Fös 22/2 kl. 19 UPPSELT
Lau 23/2 kl. 19 UPPSELT
Lau 23/2 kl. 22.30 Ný aukasýn.
Sun 24/2 kl. 20 UPPSELT
Fim 28/2 kl. 20 UPPSELT
Fös 29/2 kl. 19 UPPSELT
Lau 1/3 kl. 19 UPPSELT
Sun 2/3 kl. 20 örfá sæti laus
SALA Í FULLUM GANGI
Næstu sýn: 6., 7., 8., 9., 13., 14., 15., 16., 19. mars
Miðasölusími 4 600 200
eee
- S.V.
FRÉTTABLAÐIÐ
/ SELFOSSI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
STÆRSTA ÆVINTÝRI VETRARINS ER UM ÞAÐ BIL AÐ HEFJAST.
VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG.
TILNEFND TIL TVEGGJA
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUNA M.A
FYRIR BESTA LEIK,
AMY ADAMS.
PATRICK DEMPSEY
ÚR GRAY'S ANATOMY
ÞÁTTUNUM OG AMY ANDAMS
ERU FRÁBÆR Í SKEMMTILEGUSTU
ÆVINTÝRAMYND ÁRSINS
FRÁ WALT DISNEY.
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 - 10:30 B.i.12 ára
RUN FATBOY RUN kl. 8 LEYFÐ
BUTTERFLY ON A WHEEL kl. 10 B.i.16 ára
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
THE GOLDEN COMPASS kl. 8 B.i. 10 ára
SAW IV kl. 10:20 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA, K INGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
Viðskiptavinir, sem greiða
með korti frá SPRON, fá
20% afslátt
af miðaverði á myndina
SÝND Á SELFOSSI
ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ.
HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU!
Leiðinlegu
skólastelpurnar
-sæta stelpan
og 7 lúðar!
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Á SELFOSSI
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 - 10:20 B.i.12 ára
ENCHANTED m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
I AM LEGEND kl. 10:20 B.i.14 ára
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
BRAD Renfro, sem varð frægur að-
eins tólf ára að aldri fyrir leik sinn í
The Client, lést á heimili sínu á
þriðjudag aðeins 25 ára að aldri. The
Client þótti einna best heppnaða
kvikmyndaaðlögun skáldsagna
Johns Grishams, en þar lék Renfro á
móti Susan Sarandon og Tommy
Lee Jones. Ekki leið á löngu áður en
hann var búinn að leika
sjálfan Stikilsberja-Finn
og hann var eft-
irminnilegur í hlutverki
lærlings gamals nasista,
sem leikinn var af sir Ian
McKellan, í vanmetinni
mynd Bryan Singer, Apt
Pupil.
Dánarorsök er enn
ókunn en vitað var að
Renfro átti við alvarlegt
fíkniefnavandamál að
stríða. Síðasta myndin
sem Renfro lék í var eftir
skáldsögu Bret Easton
Ellis, The Informers, og
auglýsingatexti mynd-
arinnar er forspár:
„Greed is good. Sex is
easy. Youth is forever.“
Barnastjarna deyr