Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 13
AP Fögnuður Stuðningsmenn Demetris Christofias fagna niðurstöðum fyrri umferðar forsetakosninganna með tilheyrandi látum sl. sunnudag. NÚVERANDI forseti Kýpur, Tassos Papadopoulos, beið ósigur í fyrri um- ferð forsetakosninganna á Kýpur sem fram fóru síðastliðinn sunnudag. Keppinautar hans, Demetris Christofias, formaður Kommúnista- flokksins og Ioannis Kasoulides, úr hægri flokknum DISY, komust áfram í seinni umferð kosninganna sem fram fer nk. sunnudag. Kosningarnar voru æsispennandi allt að lokum talningar og munaði að- eins tæpum 1.000 atkvæðum á efstu mönnum. Úrslitin þykja áfellisdómur yfir Papadopoulos sem hefur gegnt emb- ætti forseta frá árinu 2003. Kýpur hefur verið tvískipt allt frá árinu 1974, er Kýpur-Grikkir hugðust ræna völdum á eynni í því skyni að samein- ast Grikklandi. Papadopoulos hefur sett sig gegn sáttaumleitunum við Tyrki og var leiðandi þegar Kýpur-Grikkir höfn- uðu sáttatillögu Sameinuðu þjóðanna árið 2004, en Kýpur-Tyrkir sam- þykktu tillöguna í atkvæðagreiðslu sama ár. Niðurstaðan hafði í för með sér að gríski hluti eyjarinnar gekk inn í Evrópusambandið, en sá tyrk- neski stóð fyrir utan. Forsetaframbjóðendurnir sem eft- ir standa, Christofias og Kasoulides, hafa þrátt fyrir andstæðan hug- myndafræðilegan bakgrunn, báðir talað fyrir sáttaviðræðum við Kýpur- Tyrki. Kasoulides, fulltrúi hægrimanna, kom á óvart er hann hafnaði í efsta sæti að loknum kosningunum á sunnudag, en hann hafði staðið höll- um fæti í skoðanakönnunum síðustu vikurnar fyrir kosningar. „Við verðum að minnast alls þess sem sameinar okkur og koma landi okkar á veg sjálfsöryggis og bjart- sýni,“ sagði hann eftir að úrslitin voru ljós. Hann hóf strax að styrkja stöðu sína með því að höfða til liðsmanna hægri miðjumannsins Papadopoulos. Andstæðingur hans lagði áherslu á að Kýpverjar horfðu fram á veginn. „Næstkomandi sunnudag segjum við skilið við allt sem hefur aðskilið okkur, sjálfhelduna og fortíðarhyggj- una. Við mótum friðsamlega og ham- ingjuríkja framtíð fyrir alla Kýp- verja,“ sagði Christofias. Forsetaskipti verða á Kýpur MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 13 ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á ÁTTUNDA tug ríkja ýmist viður- kenndu eða sögðust myndu viður- kenna sjálfstæði Kosovo í gær, dag- inn eftir að þing hins nýstofnaða ríkis lýsti yfir fullveldi. Eftir sjálfstæðisyfirlýsinguna tek- ur nú við 120 daga umbreytingaferli í Kosovo þar sem 2.000 manna lög- regluliði Evrópusambandsins, ESB, og hópi lögfræðinga er ætlað að tryggja að allt gangi eftir áætlun og að leikreglur lýðræðisins verði virtar. Serbar eru afar mótfallnir sjálf- stæðinu en hyggjast ekki grípa til efnahagsþvingana gegn Kosovo. Á hinn bóginn hyggst Serbíustjórn reyna að koma í veg fyrir að Kosovo verði aðildarríki Sameinuðu þjóðanna og taki þátt í alþjóðasamstarfi. Þá lagði lögreglan í Serbíu fram ákærur gegn leiðtogum Kosovo fyrir að stofna ólögmætt ríki á yfirráðasvæði Serba. Utanríkisráðherrum 27 aðildar- ríkja ESB tókst ekki að ná einhuga samkomulagi um að viðurkenna sjálf- stæði Kosovo á fundi í Brussel í gær. Á hinn bóginn sagði David Mili- band, utanríkisráðherra Bretlands, að a.m.k. helmingur ESB-ríkjanna 27 myndi viðurkenna sjálfstæðið og má þar nefna Pólland, Lettland, Litháen og Eistland. Verulega fjölgaði í gær ríkjunum sem styðja sjálfstæðið þegar samtök 57 íslamskra ríkja viðurkenndu það, en meirihluti Albana í Kosovo er múslímar. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við NBC-sjónvarpsstöð- ina að íbúar Kosovo væru nú sjálf- stæðir og að formleg viðurkenning á sjálfstæðinu myndi taka mið af áætl- un SÞ, sem Martti Ahtisaari, fulltrúi SÞ, hefur lagt fram. Stjórnvöld í Rússlandi, Spáni, Rúmeníu og Kína eru hins vegar and- víg sjálfstæðinu og sögðust yfirvöld í Moskvu myndu endurskoða stefnu sína í garð héraða innan landamæra fyrrum Sovétlýðvelda sem sæktust eftir sjálfstæði. Segja má að leiðin fyrir viðurkenn- ingu ESB-ríkjanna hafi orðið greið eftir að utanríkisráðherrar þeirra samþykktu ályktun á fundinum í Brussel, þar sem sagði að saga „átaka, þjóðernishreinsana og mannlegra hörmunga“ á síðasta áratug af hálfu Serba gerðu Kosovo undanþegið þeirri reglu að ekki væri hægt að breyta alþjóðlegum landamærum án samþykkis allra ríkja. Andstæðingar sjálfstæðisins telja það skapa hættulegt fordæmi, en Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði slíkar áhyggjur ekki á rökum reistar, sjónarmið sem hún deilir með Condoleezzu Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna. Flokkur Karadzic vill sjálfstæði Á sama tíma krafðist helsti stjórn- arandstöðuflokkur Bosníu-Serba í Bosníu þess að serbneski hlutinn, Serbneska lýðveldið, sem hefur eigin stjórn, þing og lögreglu, fengi sjálf- stæði, með vísun til Kosovo-Albana. Flokkurinn sem um ræðir var stofnaður af Radovan Karadzic, fyrr- um leiðtoga Bosníu-Serba og eftir- lýstum stríðsglæpamanni, og fara talsmenn hans fram á að afstaða al- mennings til sjálfstæðis verði könn- uð í atkvæðagreiðslu. Mótmælin í Belgrad héldu áfram í gær þegar á sjötta þúsund manns, þar af margir námsmenn, söfnuðust saman í friðsamlegum mótmælum í miðborginni. „Kosovo er Serbía“ hrópaði fólkið og bar serbneska fána um göturnar. Að sögn AFP-fréttastofunnar gengu námsmenn til liðs við mót- mælendur eftir áskorun frá félagi laganema, en einnig bar á þjóðern- issinum, mörgum hverjum úr hópi áhangenda serbneskra knattspyrnu- liða sem gerðu aðsúg að vestrænum sendiráðum í borginni í fyrradag. Hátt í 50 manns, þar af nokkrir óeirðalögreglumenn, slösuðust í óeirðunum í Belgrad eftir að Kosovo lýsti yfir sjálfstæði á sunnudag. Viðurkenna sjálfstæðið  Á áttunda tug ríkja hafa þegar eða hyggjast viðurkenna sjálfstæði Kosovo  Bandaríkjaforseti lýsir yfir stuðningi við sjálfstæðið  Sama gera hátt í sextíu múslímaríki og mörg fjölmennustu ESB-ríkjanna AP Mótmæli Ungir Bosníu-Serbar mótmæla sjálfstæðinu í Banja Luka í Bosníu í gær. Fjölmörg ríki, þ.m.t. Ísland, hyggjast íhuga afstöðuna til sjálfstæðis. Stjórnvöld í yfir 70 ríkjum hafa tilkynnt að þau hafi eða hyggist við- urkenna það. Sendiherra Serbíu í Washington var snúið heim í mótmælaskyni við stuðning Bandaríkjastjórnar. www.toyota.is RAV4 SPORT – með aukahlutapakka að verðmæti 235.000 kr. Fullbúinn RAV4 tryggir þér fleiri möguleika og færri hindranir á veginum. Nú bjóðum við RAV4 SPORT með veglegum aukahlutapakka, heilsársdekkjum, dráttarbeisli, krómgrilli, aurhlífum og skyggðum rúðum, að verðmæti 235.000 kr. Verð frá 3.120.000 kr.* Fáðu meira, komdu og reynsluaktu RAV4 SPORT Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 *Bíll á mynd er RAV4 GX og kostar 3.400.000 kr. ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 4 09 40 0 2/ 08

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.