Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 14
„ÞAÐ er öruggt
að það verða
breytingar [á ut-
anríkisstefnunni]
sama hver vinn-
ur,“ segir Michael
T. Corgan, pró-
fessor við Boston
University og tíð-
ur gistikennari við
stjórnmálafræði-
skor Háskóla Íslands, en hann heldur
í dag fyrirlestur um möguleg úrslit
forsetakosninganna í Bandaríkjunum
í haust.
Eins og sakir standa er líklegast að
repúblikaninn John McCain bítist um
forsetaembættið við Hillary Clinton
eða Barack Obama, sem berjast um
útnefningu Demókrataflokksins.
Baráttan milli Obama og Clinton er
hörð og Corgan segir ljóst að Hillary
eigi á brattann að sækja „Á morgun [í
dag] verður kosið í tveimur ríkjum
[Hawaii og Wisconsin] og það er
næstum ljóst að Barack Obama mun
vinna þau. Þá verður hann búinn að
vinna í forkosningum í tíu ríkjum í
röð,“ segir Corgan.
Hann segir að meðal repúblikana
sé McCain næsta öruggur um útnefn-
ingu sem forsetaframbjóðandi flokks-
ins. Hann þurfi þó enn að glíma við
Mike Huckabee en fylgjendur
Huckabee hafi margir hverjir mjög
eindregnar skoðanir, t.a.m. í trúmál-
um. Þeir myndu ekki leggja lag sitt
við hvaða frambjóðanda flokksins
sem væri, ef viðkomandi aðhylltist
ekki þessi sjónarmið þeirra.
Corgan þykir kosningabaráttan í
ár sérlega spennandi, en hann kveðst
hafa fylgst vel með forsetakosningum
í Bandaríkjunum frá því að hann var
ellefu ára, árið 1952. Hann bendir á að
kosningarnar í ár séu þær fyrstu frá
árinu 1952 þar sem enginn frambjóð-
enda sé annaðhvort sitjandi forseti,
varaforseti eða gegni embætti ríkis-
stjóra, en þau Clinton, Obama og
McCain eru öll öldungadeildarþing-
menn. Corgan bendir ennfremur á að
sjaldgæft sé að gengið sé til forseta-
kosninga í Bandaríkjunum með sitj-
andi forseta sem nýtur jafnlítilla vin-
sælda og Bush gerir um þessar
mundir.
Vilja aukið samráð
Corgan segir að þegar kemur að
utanríkisstefnu séu nokkur atriði sem
öruggt sé að breytist eftir kosning-
arnar.
„Þetta eru atriði sem snúast til
dæmis um hlutverk bandalagsríkja
Bandaríkjanna og um hegðun Banda-
ríkjanna innan alþjóðastofnana,“ seg-
ir hann. Allir frambjóðendurnir tali
um að auka þurfi samráð við banda-
lagsríki og endurskoða utanríkis-
stefnu Bandaríkjamanna. „Ég held að
þetta þýði að stefna Bush sé á fall-
anda fæti,“ segir hann og vísar til ein-
hliða ákvarðana Bush-stjórnarinnar í
alþjóðamálum.
„Ég býst við að nýr forseti muni
hafa annan stíl á utanríkisstefnu
sinni. Sá stíll sem hefur viðgengist
hefur farið fyrir brjóstið á mörgum,
en óhætt er að fullyrða að hann hafi
verið yfirlætislegur. Þá hefur ekki
verið mikið um samráð, heldur hafa
ákvarðanir bara verið tilkynntar.“
Af frambjóðendunum þremur segir
Corgan Clinton leggja mesta áherslu
á samstarf við Evrópuríki. Það þjóni
hagsmunum Evrópuríkja því best að
hún fari með sigur af hólmi í forseta-
kosningunum. Obama leggi áherslu á
að betrumbæta Sameinuðu þjóðirnar
„en hann horfir ekkert sérstaklega til
Evrópu“. McCain segist vilja „banda-
lag lýðræðisríkja“ en hann vilji jafn-
framt áfram leggja krafta og fjár-
magn í Íraksstríðið.
En vill Corgan spá um hver verður
útnefndur forsetaframbjóðandi
Demókrataflokksins? „Ertu að grín-
ast,“ segir hann hlæjandi. Enn sé
langt í landsfund Demókrataflokksins
þar sem frambjóðandi flokksins verð-
ur útnefndur, en hann fer fram í
ágúst. Eins og mál standi í dag virðist
Obama geta náð naumum sigri, en
ýmislegt geti breyst.
Ný utanríkisstefna
með nýjum forseta
Bandarísku forsetakosningarnar sérlega spennandi að
mati Michael T. Corgan Á brattann að sækja hjá Clinton
Michael T. Corgan
Í HNOTSKURN
»Corgan telur að ímyndBandaríkjanna breytist með
nýjum forseta, einkum ef Barack
Obama nær kjöri.
»Vinni Obama fái Bandaríkinekki aðeins svartan forseta
heldur líka mann sem ber milli-
nafnið Hussein.
»John McCain skortir aðeinsnokkra tugi kjörmanna til að
tryggja sér útnefninguna á
landsfundi repúblikana í sept-
ember.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
KJÖRSÓKN var dræm í þingkosn-
ingunum í Pakistan í gær enda ótt-
uðust margir kjósendur að ofstæk-
ismenn íslamista myndu efna til
árása í tilefni dagsins. Vitað er að 14
manns féllu í átökum í aðdraganda
kosninganna á sunnudagskvöld en
allt gekk hins vegar tiltölulega frið-
samlega í gær, að sögn heimildar-
manna. Benda þeir á að oft hafi mun
fleiri látið lífið í tengslum við síður
mikilvægar kosningar.
Búist var við bráðabirgðatölum úr
einhverjum kjördæmum seint í gær-
kvöldi. Öldungaráð í Peshawar í
norðausturhluta landsins ákvað að
það bryti í bága við fornar hefðir að
konur kysu og var þeim víða meinað
að mæta á kjörstað. Helstu stjórn-
arandstöðuflokkarnir eru annars
vegar Þjóðarflokkur Pakistans
(PPP), sem lýtur nú forystu Asifs Ali
Zardars, eiginmanns Benazirs
Bhutto, hins fallna leiðtoga flokksins
og Múslímasamband Pakistans-N
(PML-N) undir forystu Nawaz Shar-
ifs, fyrrverandi forsætisráðherra. Er
talið líklegt að þeir vinni mjög á
vegna óvinsælda forseta landsins,
Pervez Musharrafs, sem lét þingið
kjósa sig í embættið í fyrra.
Stjórnarandstaðan hefur sakað
Musharraf um að ætla að standa fyr-
ir kosningasvikum og er líkleg til að
bera brigður á niðurstöðurnar ef þær
verða í ósamræmi við væntingarnar.
Má þá gera ráð fyrir fjölmennum
mótmælum á götum úti og átökum.
Kannanir gáfu til kynna að flokkur
sem Musharraf styðst við, Múslíma-
samband Pakistans-Q (PML-Q),
fengi þriðja mesta stuðninginn.
Gangi það eftir eru mestar líkur tald-
ar á að mynduð verði samsteypu-
stjórn PPP og PML-Q.
Reuters
Sigur? Liðsmenn Nawaz Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, fagna fyrstu tölum í Lahore í gær.
Tiltölulega friðsamlegt
Öfgamenn efndu ekki til tilræða í Pakistan í gær en
þátttaka í þingkosningunum virðist hafa verið lítil
14 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Los Angeles. AP. | Um 65.000 tonn
af frosnu nautakjöti frá sláturhúsi
Westland/Hallmark Meat Co. í
Kaliforníu hafa verið innkölluð að
fyrirmælum bandaríska landbún-
aðarráðuneytisins.
Landbúnaðarráðherra Banda-
ríkjanna segir sannanir liggja fyr-
ir um að ekki hafi verið haft sam-
band við dýralækni þegar einhver
hluti dýranna var orðinn ógöngu-
fær vegna sjúkleika. Þeim hafi
verið, í trássi við bandarísk heil-
brigðislög, slátrað og kjötið unnið
til neyslu. Yfirvöld sögðu mynd-
bandsupptökur að auki sýna
starfsfólk sláturhússins veita sjúk-
um nautgripunum illa meðferð á
leið til slátrunar.
Óleyfilegt er að selja kjöt til
neyslu í Bandaríkjunum af naut-
gripum sem eru ógöngufærir
vegna veikinda. Meiri hætta er
talin á því að
dýrin beri bakt-
eríur eða séu
veik af kúariðu
þar sem ónæm-
iskerfi þeirra er
oft veikt. Engir
sjúkdómar hafa
enn verið raktir
til kjötsins og er
áhættan talin
óveruleg. Kjötið
var m.a. selt til
grunnskóla og hafa 150 skóla-
umdæmi auk tveggja skyndibita-
keðja hætt við kaup á nautakjöti
frá fyrirtækinu.
Landbúnaðarráðuneytið hefur
sætt gagnrýni vegna málsins.
Þrýstihópar segja að ef dýra-
verndunarsinna hefði ekki notið
við hefði málið aldrei verið af-
hjúpað.
Gífurlegt magn nautakjöts
innkallað vegna sjúkdóma
Nautgripir sættu
illri meðferð.
HUGO Chavez,
forseti Venes-
úela, hefur mild-
að mjög hótanir
sínar í garð
Bandaríkja-
manna. „Við
munum ekki
stöðva flutninga
á olíu til Banda-
ríkjanna, höfum
ekki gert áætlanir um það,“ sagði
forsetinn í hefðbundnum sunnu-
dagsþætti sínum í sjónvarpi, „Halló,
forseti“,
en bætti við að ef Bandaríkja-
menn gerðu árás á landið myndi
það geta gerst.
„Þá verðum við að taka ákvörðun
um að láta Bandaríkin ekki fá
dropa af olíu. En sem stendur vilj-
um við halda áfram að aðstoða
bandarísku þjóðina.“
Bandaríska olíufyrirtækið Exx-
onMobil segist hafa fengið úrskurð
dómara í nokkrum ríkjum um að
frystar verði um 12 þúsund millj-
ónir dollara af innstæðum ríkisol-
íufélagsins í Venesúela, PDVSA, í
umræddum ríkjum. ExxonMobil vill
bætur fyrir þjóðnýtingu Venesúela
á olíulindum á Orinoco-svæðinu, en
þar hefur ExxonMobil lengi haft
mikil umsvif.
Mildari tónn
hjá Chavez
Hugo Chavez
MÖRG hundruð lögreglumenn í
París tóku í gær þátt í áhlaupi gegn
meintum leiðtogum óeirðanna í
hverfinu Villiers-le-Bel í borginni í
fyrra. Segist lögreglan hafa hand-
tekið 33 af alls 38 manns á leit-
arlista sínum.
Leiðtogar teknir
TALSMENN Sameinuðu þjóðanna
saka Erítreumenn um að hindra
hundruð friðargæsluliða samtak-
anna í að komast frá landinu yfir til
Eþíópíu. Gæsluliðarnir eiga að
koma í veg fyrir átök á landamær-
unum.
Gæslulið hindrað
VIÐAMIKIL sænsk rannsókn sýnir
að börn hegða sér betur og ná betri
árangri í lífinu taki faðirinn virkan
þátt í uppeldi þeirra. Börnin byrji
síður að reykja, fremji síður afbrot,
fái betri menntun og líði almennt
betur, andlega sem líkamlega.
Feður bæta börnin
STJÓRNVÖLD í Alsír vilja skila
Rússum 15 orrustuþotum af gerð-
inni MiG-29 vegna galla í vélunum,
að sögn blaðsins Kommersant í gær
en Rússar vilja að þeir kaupi þá í
staðinn vélar af nýrri gerð. Vopn
eru ein helsta útflutningsvara
Rússa fyrir utan olíu og gas.
Skila MiG-þotum
MINNST 35 óbreyttir borgarar létu lífið í
sjálfsmorðstilræði talíbana í Spin Boldak í
suðaustanverðu Afganistan í gær. Nú er
ljóst að yfir 100 manns féllu í öðru
sjálfsmorðstilræði nálægt Kandahar á
sunnudag. Tilræðinu í gær var beint gegn
bílalest kanadískra hermanna í alþjóðlega
gæsluliðinu í landinu og munu þrír þeirra
hafa særst.
Asadullah Khalid, héraðsstjóri í Kandah-
ar, sagði að skotmark hryðjuverkamanna á
sunnudag hefði verið Abdul Hakim Jan,
harður andstæðingur talíbana. Hann var
meðal áhorfenda á hundaslag þar sem
sjálfsmorðinginn sprengdi sig í mannþröng-
inni.
Mannskæð tilræði
í Afganistan
Á verði Bandarískur hermað-
ur í austanverðu Afganistan.
STUTT
Alltaf í sambandi
erlendis