Morgunblaðið - 19.02.2008, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SKIPULAGSNEFND Akureyrar
líst vel á þá hugmynd eigenda Hag-
kaups að ný verslun fyrirtækisins
verði á lóð Sjafnar við Austursíðu.
Þetta er í nyrsta hverfi bæjarins,
hinum megin Hörgárbrautar er
stórverslun Byko og Húsasmiðjan
steinsnar norðar, í Hörgárbyggð.
Eigandi Sjafnarhússins og lóð-
arinnar er fasteignafélagið Landic
Property, sem er að hluta til í eigu
Baugs. Þyrping er þróunarfélag
Landic Property og segir fram-
kvæmdastjóri þess, G. Oddur Víð-
isson, að félagið hafi sent inn fyr-
irspurn til skipulagsnefndar vegna
þessa, í þeim tilgangi að fá úr því
skorið hvort það borgaði sig að
halda áfram vinnu við hugmyndina.
„Skipulagsnefnd tekur undir
áform fyrirtækisins um uppbygg-
ingu matvöruverslunar á reitnum
og felur skipulagsstjóra að gera að-
alskipulagsbreytingu í samræmi
við tillöguna. Umsækjanda er heim-
ilt í framhaldi af því að gera tillögu
að deiliskipulagi reitsins,“ segir í
nýjustu fundargerð nefndarinnar.
G. Oddur segir að ef af fram-
kvæmdum verði muni Sjafnarhúsið
standa áfram óbreytt en mikið rými
er á lóðinni, vestan og norðan við
húsið. Framkvæmdir gætu hafist á
haustdögum.
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Hagkaup
gæti byggt á
lóð Sjafnar
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra segist ekki búinn
að mynda sér skoðun á því hvort
staðsetja eigi eina af fjórum björg-
unarþyrlum Landhelgisgæslunnar
á Akureyri og það eru Sigrúnu
Björk Jakobsdóttur, bæjarstjóra á
Akureyri og flokkssystur Guðlaugs,
mikil vonbrigði.
Á opnum fundi sjálfstæðismanna
á Akureyri fyrir helgi spurði Þor-
valdur Ingvarsson ráðherrann um
þyrlumálið en þess má geta að Þor-
valdur er framkvæmdastjóri lækn-
inga við Sjúkrahúsið á Akureyri og
varaþingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðausturkjördæmi.
Níu af tíu þingmönnum í kjör-
dæminu og úr öllum flokkum lögðu
nýverið fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um þyrlubjörgunar-
sveit á Akureyri og bæjarráð Ak-
ureyrar tók undir þá ályktun í bók-
un á dögunum.
„Í skýrslu dómsmálaráðherra í
hittifyrra var einblínt á Reykjavík
og að það væri meginhlutverk þyrlu
að flytja fólk á sjúkrahús í höfuð-
borginni. Mér finnst hins vegar að
við eigum að horfa á málin eins og
gert er á hinum Norðurlöndunum
og á Nýja-Sjálandi, og staðsetja
þyrlu sem best fyrir alla lands-
menn. Akureyri er óumdeilanlega
nær miðju landsins en suðvestur-
hornið og þyrla hér gæti því annað
töluvert stærra svæði landsins á
skömmum tíma en þyrla í Reykja-
vík,“ sagði Sigrún Björk við Morg-
unblaðið í gær og segist vilja
ákveðna framtíðarsýn. „Það er oft
talað um að fjölga opinberum störf-
um úti á landi og vitað mál að það
er auðveldara ef störfin eru ný en
að þau séu flutt.“ Það segir hún að
hafa beri í huga nú vegna þess að
„mín tilfinning er sú að færa eigi
allar þyrlurnar til Keflavíkur og þá
yrði leiðin norður í land enn lengri
en ef þær væru í Reykjavík“. Og ef
byrjað væri á því að staðsetja þyrl-
urnar í Keflavík yrði, miðað við
reynsluna, erfiðara að færa eina
norður í land síðar.
„Mér finnst brýnt að núna, þegar
verið er að hugsa þyrlumálin alveg
upp á nýtt á Íslandi, verði frá upp-
hafi miðað við þarfir landsins og
legu,“ sagði Sigrún Björk í samtali
við Morgunblaðið. Hún segir Ak-
ureyrarbæ hafa sent ráðherra og
ríkisstjórn frábærlega unnar
skýrslur af Sveinbirni Dúasyni,
varðstjóra hjá Slökkviliði Akureyr-
ar, og Birni Gunnarssyni lækni og í
raun bent á öll nauðsynleg rök fyrir
því að ein þyrlan verði á Akureyri.
„Ég kaupi einfaldlega ekki þau rök
að allar fjórar verði að vera í Kefla-
vík,“ sagði Sigrún Björk.
Sigrún vonsvikin með
svar Guðlaugs Þórs
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Á vettvangi Þyrla Landhelgisgæslunnar var stödd á Sauðárkróki þegar
slys varð í Hlíðarfjalli fyrir nokkrum misserum og því fljót á vettvang.
Í HNOTSKURN
»Það að hafa björgunarþyrlustaðsetta á Akureyri styttir
útkallstímann þar til björgun
berst um einn og hálfan klukku-
tíma fyrir þá sem eru norðan og
austan við Akureyri, sagði Svein-
björn Dúason, varðstjóri í
Slökkviliðinu á Akureyri, í Morg-
unblaðinu í fyrra.
SKIPULAGSSTOFNUN hefur
ákveðið að framkvæmdir vegna
lengingar flugbrautar til suðurs á
Akureyrarflugvelli þurfi ekki í um-
hverfismat.
Í frétt á heimasíðu stofnunarinnar
í gærkvöldi segir að lenging braut-
arinnar ásamt gerð vegslóða, upp-
setningu aðflugsljósa og gerð örygg-
issvæða meðfram braut,
öryggissvæðis við suðurenda flug-
brautar auk byggingar flughlaðs
norðan flugstöðvarbyggingar sé ekki
líkleg til að hafa í för með sér umtals-
verð umhverfisáhrif og skuli því ekki
háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun vekur athygli á
að framkvæmdirnar eru háðar fram-
kvæmdaleyfi Akureyrar og Eyja-
fjarðarsveitar og starfsleyfi Heil-
brigðiseftirlits Norðurlands eystra
skv. reglugerð um starfsleyfi fyrir
starfsemi sem getur haft í för með
sér mengun.
Um er að ræða lengingu flug-
brautarinnar um 460 m til suðurs.
Kæra má ákvörðun Skipulags-
stofnunar til umhverfisráðherra.
Kærufrestur er til 25. mars.
Umhverfis-
mat óþarft
Á LÖGFRÆÐITORGI Háskólans á
Akureyri í dag halda fyrirlestur
nemendur sem keppa fyrir hönd
skólans í undankeppni alþjóðlegrar
málflutningskeppni sem kennd er
við Philip C. Jessup. HA sigraði í ís-
lensku undankeppninni 2005 og tók
þátt í úrslitakeppninni í Washington
árið eftir. HA mætir HÍ og HR um
helgina. Lögfræðitorg dagsins hefst
kl. 12 í stofu L 201 á Sólborg.
Lið HA á Lög-
fræðitorgi
♦♦♦
Höfn | Þrjú erlend og sex íslensk
blúsbönd koma fram á Blúshátíð-
inni Norðurljósablús 2008. Hún
verður haldin í þriðja sinn á Höfn
29. febrúar til 2. mars nk. Að þessu
sinni var ákveðið að gefa ungu ís-
lensku blústónlistarfólki tækifæri
til að koma fram og jafnframt að
kynna tónlistarmenn frá Norður-
löndunum fyrir landsmönnum.
Hljómsveitirnar sem koma er-
lendis frá eru Øernes blues band
frá Danmörku, Street Cowboys frá
Smálöndunum í Svíþjóð og Emil &
the Ecstatics frá Svíþjóð. Íslensku
sveitirnar eru Grasrætur frá Hafn-
arfirði, Johnny and the rest frá
Reykjavík, Blúsbrot frá Stöðv-
arfirði og Vax frá Egilsstöðum.
Tvö hornfirsk bönd leika á hátíð-
inni, Mæðusveitin Sigurbjörn og
Hulda Rós og rökkurtríóið frá
Hornafirði.
Endasprettur í
undirbúningi
Norðurljósablúss
Egilsstaðir | Héraðsskjalasafn Aust-
urlands hyggst ráða í tvö störf tím-
bundið vegna verkefnis um að
koma manntali á tölvutækt form.
Þjóðskjalasafn hefur gert samning
við héraðsskjalasöfn á Austurlandi,
Sauðárkróki og Vestmannaeyjum
sem munu annast tölvuskráningu
tíu íslenskra manntala frá 19. og
20. öld, svo að þau verði aðgengileg
almenningi. Er verkefnið tengt
mótvægisaðgerðum stjórnvalda
vegna kvótaniðurskurðar og veitt-
ar 240 milljónir alls til þess út árið
2009. Alls verða til 22 ársverk á
landsbyggðinni vegna skráningar
manntalanna. Manntal hefur ekki
verið tekið á Íslandi frá árinu 1981.
Manntöl frá 19. og
20. öld tölvuskráð
í skjalasöfnum
Eftir Kristínu Ágústsdóttur
NORÐFIRÐINGAR vilja hafa nýjan
veg að Norðfjarðargöngum sunnan
Norðfjarðarár. Á íbúafundi sem
haldinn var 13. febrúar sl. í
tengslum við gerð aðalskipulags
fyrir Fjarðabyggð, kom fram skýr
vilji þeirra íbúa sem mættu á fund-
inn til að hafa veg að Norðfjarð-
argöngum sunnan Norðfjarðarár.
Báru fundarmenn fram ýmis rök
máli sínu til stuðnings, s.s. veð-
urfar, vegtæknileg atriði, útivist-
argildi og annað slíkt.
Tveir kostir tiltækir
Vegagerðin hefur í matsáætlun
sinni kynnt tvo kosti um legu veg-
arins í Norðfirði, annars vegar
norðan og hins vegar sunnan Norð-
fjarðarár. Enn er þó verið að vinna
að frekari útfærslu veglína auk
þess sem ekki er búið að staðsetja
gangamunnann. Ýmislegt annað
var rætt á fundinum, m.a. hvernig
íbúar í Neskaupstað sæju fyrir sér
verndun sögunnar og þéttingu
byggðar og uppbyggingu útivist-
arstíga. Fundurinn var sæmilega
sóttur og tókst mjög vel.
Vilja veg sunnan
Norðfjarðarár
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Sammála Best þykir að hafa veg að
göngum sunnan Norðfjarðarár.
!
"
#
$
$%
&
'
Veglína Vegagerðin hefur í matsáætlun kynnt tvo kosti um legu vegar í
Norðfirði að Norðfjarðargöngum. Staðsetning gangamunna er óákveðin.
Eftir Kristínu Ágústsdóttur
Neskaupstaður | Fyrir
skemmstu stóðu starfs-
menn Nesskóla í Neskaup-
stað fyrir styrktar- og upp-
byggingarkvöldi fyrir
Matthildi Matthíasdóttir,
sem nýlega greindist með
alvarlegan og sjaldgæfan
erfðasjúkdóm sem leggst á
lifrina.
Með þessu vildu Norð-
firðingar sýna samkennd
sína í verki og styðja Matt-
hildi og fjölskyldu hennar í þeirra
erfiðu baráttu.
Skemmtileg dagskrá var borin
uppi af ungu fólki sem söng og lék við
hvern sinn fingur. Óhætt að segja að
samkennd og hlýhugur hafi einkennt
samkomuna sem var vel sótt, en fullt
var út úr dyrum í sal Nesskóla og
hlýhugur í garð Matthildar og fjöl-
skyldu hennar auðsær hjá gestum.
Matthildur, sem er 24 ára gömul,
greindist með svokallaðan Wilson-
sjúkdóm fyrir fjórum mánuðum og
var í snatri flutt á Ríkissjúkrahúsið í
Kaupmannahöfn til meðferðar, þar
sem hún hefur dvalist síðan ásamt
foreldrum sínum. Nauðsynlegt var
að skipta um lifur í Matthildi og fékk
hún nýja lifur í lok október sl. Bati
hefur gengið hægt eftir lifrar-
ígræðsluna og bíður Matthildur þess
nú að fá aðra lifur.
Fylgjast má með Matthildi á
blogginu: http://matta.xblogg.is/.
Veikri stúlku sýndur
samhugur í verki
Hlýja Norðfirðingar sýna veikri stúlku sam-
hug á styrktarsamkomu.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Egilsstaðir | Minjasafn Austur-
lands, Museum Nord í Vesterålen og
Donegal County Museum á Írlandi
vinna nú að sameiginlegri sýningu
sem opna á samtímis á stöðunum
þremur í sumarbyrjun. Þema sýn-
ingarinnar verður að skoða hvað líkt
er og ólíkt með hefðbundinni miðlun
menningararfsins á svæðunum og á
að nota sauðkindina og ullina til að
varpa ljósi á þessa þætti. M.a. með
því að skoða kindina í landslagi,
hefðbundna ullarvinnslu, muni úr ull
sem notaðir eru sem tákn fyrir
sjálfsmynd viðkomandi svæðis og
jafnvel þjóðarinnar allrar og nútíma-
hönnun og list sem notast við ull og
kindina sjálfa. Minjasafn og Menn-
ingarráð Austurlands leita nú aust-
firskra samstarfsaðila til þátttöku í
undirbúningshóp að verkefninu og
er Elfa Hlín Pétursdóttir tengiliður.
Sauðkindur þriggja landa
sameinast í menningunni
AUSTURLAND