Morgunblaðið - 19.02.2008, Page 19
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 19
Gunnar Kr. Sigurjónsson hefurbarið saman limrur á bloggi
sínu gunnarkr.blog.is.
„Þær urðu til af ýmsu tilefni,
sumar vegna ákveðinna frétta í
Morgunblaðinu, aðrar bara út í
loftið, sérstaklega ef ég datt
niður á góð þríliða rímorð.“ Hann
yrkir:
Vinur minn, Vilhjálmur Jósafat
veitingamaður, hjá Rósa sat:
„Paprikupasta,
já punktur og basta,
ég dýrka - og allskonar dósamat.“
Það getur verið erfið glíma að
ríma:
Eins og Páll löngu mér lofaði,
er létti í hans kolli og rofaði.
(Skelfileg glíma
er glíman að ríma.)
En hann svaf ekki neitt, heldur
„sofaði“.
Loks yrkir Gunnar:
Það var eitt sinn háttsettur hr.
sem hamslaust var nebbann að þr.
Hann úðaði í nefið,
mjög alvörugefið,
en hélt síðan áfram að hnr.
Jón Gissurarson hefur gaman
af því að skensast í bundnu máli:
Margt er nú í veröld valt
við þó svara megum hér.
Hið góða þökkum þúsundfalt,
en þolum hitt sem verra er.
Magnús Ólafsson frá
Sveinsstöðum yrkir um
borgarmálin:
Gengi hans er voða valt
vilja ánn margir grilla.
Vinir ættu að setja salt
á svellið fyrir Villa.
Allt er gengi Villa valt
og voða lítið traust.
Félagarnir setja salt
í sárin frá í haust.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af pasta
og limrum
ELSKAR hann mig, elskar hann
mig ekki … Það getur stundum
verið erfitt að átta sig á því hvaða
hug kærastinn/an ber til manns
og þá er ekki verra að geta leitað
á náðir tækninnar.
Kóreanska símafyrirtækið
KFT setti nýlega á markað far-
síma sem á að geta dregið fram í
dagsljósið þann huga sem elsk-
huginn ber raunverulega til
manns.
„Farsíminn getur greint hvort
sá sem maður talar við í símann
talar með nægri ástúð,“ segir
fréttastofa Reuters.
„Við þróuðum þessa tækni af
því að við töldum að fólk vildi
gjarnan vita hverjar tilfinningar
annarra í þess garð væru,“ hefur
fréttastofan eftir Ahn Hee-jung,
talsmanni KFT.
Á meðan talað er í símann
getur maður fylgst með ástar-
mæli sem slær út, þegar ástin
leynist í loftinu. Eftir að sam-
talinu lýkur er síðan hægt að
skoða nákvæmlega, hversu mikil
væntumþykja, undrun, einbeiting
og heiðarleiki leynist í röddinni á
hinum enda línunnar.
Morgunblaðið/ÞÖK
Elskar hann mig? Það er ekki slæmt að nota símann til að mæla ástina.
Ástar-
tónninn
mældur
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Aðalmiðlarar með ríkisverðbréf eru:
Fjármálaráðuneytið
Arnarhvoli við Lindargötu • 150 Reykjavík
sími 545 9200 • bréfasími 562 8280 • postur@fjr.stjr.is
Sölufyrirkomulag:
Nýr flokkur
óverðtryggðra
ríkisbréfa til
ellefu ára
Ný leið
til ávöxtunar
Ríkissjóður gefur út nýjan flokk ríkisbréfa til ellefu ára.
Ríkisbréfin eru óverðtryggð og bera ársvexti sem
greiðast eftir á, 26. febrúar ár hvert. Árlegir nafnvextir
ákvarðast í kjölfar fyrsta útboðs. Auðkenni flokksins er
RIKB 19 0226. Flokkurinn verður skráður í kerfi OMX
Nordic Exchange Iceland og verður viðskiptavakt í
höndum aðalmiðlara ríkisverðbréfa sem mun tryggja
seljanleika á eftirmarkaði.
Fyrsta útboð RIKB 19 0226 verður haldið 21. febrúar
klukkan 14.00. Til að taka þátt í útboðinu þarf að hafa
samband við einhvern af eftirtöldum aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa en þeir hafa einir heimild til að leggja
fram tilboð fyrir hönd fjárfesta.
Glitnir
Icebank
Kaupþing banki
Landsbanki Íslands
MP Fjárfestingarbanki
Saga Capital Fjárfestingarbanki
Straumur Fjárfestingarbanki
Ánægðustu viðskiptavinir
farsímafyrirtækja
Samkvæmt Íslensku
ánægjuvoginni 2007