Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.02.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÝLEG úttekt Vísbendingar um stöðu sveitarfélaga varðandi bú- setugæði er mjög athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Í úttektinni eru gefnar einkunnir fyrir fimm efna- hagslega þætti sem gilda hver um sig fimmtung í lokaeinkunn. Í fyrsta lagi vöktu athygli mína þau sveitarfélög sem lenda í fyrstu þrem sætunum, Garðabær, Seltjarn- arnes og Mosfellsbær, þessi þrjú sveitarfélög sem hafa boðið íbúum sínum upp á meiri þjón- ustu, gæði og stöð- ugleika en víðast ann- ars staðar. Á þessum stöðum hafa sjálfstæð- ismenn, ýmist einir eða í samstarfi við aðra, haldið um stjórn- artaumana og m.a er eitt af einkennum þeirra traust og trú- verðug fjármálastjórn. Framþróun stöðvuð En það var ekki allt sem gladdi á þessum lista. Sveitarfélagið mitt, Álftanes, hafði fallið um 31 sæti á list- anum, eða úr 5. í það 36. Þetta mikla fall hlýtur að vekja talsverða athygli þótt okkur íbúum komi þetta ekki svo ýkjamikið á óvart. Við síðustu kosn- ingar urðu þáttaskil í stjórnun sveit- arfélagsins, D-listinn, listi Sjálfs- stæðisfélagsins, lét af völdum og við tók Á-listinn sem leiddur er af flokki bæjarstjórans, Vinstri grænum. Nýju valdhafarnir tóku strax til óspilltra málanna og stöðvuðu það framþróunarferli sem D-listinn hafði leitt, fyrst og fremst með því að stöðva uppbyggingu miðsvæðisins. Að glopra tækifærunum þar úr hönd- um sveitarfélagsins hlýtur að teljast meiri háttar mistök ef ekki hreint klúður. Því til viðbótar hafa fasteignir verið seldar fasteignafyrirtækjum og því skuldbindið sveitarfélagið til a.m.k. 150 milljóna leigugreiðslna til þeirra næstu 30 árin. Tugum milljóna hefur verið eytt í arkitekta og hönn- unarferli miðsvæðisins sem af bæjarstjóra hef- ur verið kallaður grænn miðbær. Staðan er orðin mjög alvarleg og á síðasta reikn- ingsári var halli bæj- arsjóðs þriðjungur af rekstrartekjum. Bæj- arstjórn hefur nú þegar fengið aðvörun frá eft- irlitsstofnun með fjár- málum sveitarfélaga vegna bágrar fjár- málastöðu. Pattstaða Það dæmalausa klúð- ur í hönnun og und- irbúningi miðsvæðisins hefur orðið þess valdandi að ekkert hef- ur gerst í uppbyggingu þess auk þess sem gíf- urleg óánægja er með hönnun þess, sbr. að helmingur atkvæð- isbærra íbúa sá ástæðu til skriflegra athugasemda við skipu- lagið. Nú er staðan þannig að mikill samdráttur er fyrirsjáanlegur á byggingamarkaði sökum fjárskorts og valda því tafirnar enn meiri vand- ræðum en ella. Ekki verður því séð að verktakar stökkvi til þegar og ef áætlanir um uppbyggingu svæðisins komast á koppinn. Málið er því komið í pattstöðu sem erfitt verður að sjá hvernig bæjarstjórn ætlar að vinna sig út úr. Ástæður fjárhagsvandræða Hvað varðar fall Álftaness á lista draumasveitafélaganna kennir bæj- arstjóri því um D-listinn hafi skilið illa við fjármálin. Ef staðreyndir málsins eru skoðaðar þá lá tilbúið og samþykkt skipulag miðsvæðisins fyr- ir á árinu 2006. Búið var að gera víð- tæka, hagstæða samninga um upp- bygginguna. Síðan gerist það að meirihluti D-listans lét af völdum á miðju ári 2006. Síðan þá hefur Sig- urður og hans félagar í Á-listanum haldið um stjórnartaumana og köst- uðu þeir allri þeirri vinnu og samn- ingum sem gerðir höfðu verið fyrir róða með tilheyrandi fjárútlátum og settu því uppbygginguna aftur á byrjunarreit. Það er í hnotskurn sá vandi sem bæjarstjórn glímir við í dag. Í síðustu könnun Vísbendingar fyrir árið 2006 var Álftanes í 5. sæti. Hvers vegna? Hafði D-listinn ekki verið við stjórn árin þar á undan? Eins og bæjarstjórans er vandi býður hann almenningi upp á rangfærslur, orðhengilshátt og útúrsnúninga þeg- ar hann er spurður um óþægileg mál sem þetta. Útsvar Álftnesinga er í toppi auk þess sem fasteignagjöld eru með því hæsta sem gerist. Einnota bæjarstjórn Könnun Vísbendingar segir okkur sögu. Sögu um fjármálaóstjórn, rang- ar, vanhugsaðar framkvæmdir og tál- sýnir um atvinnuuppbyggingu, hót- elturn, grænan miðbæ (hvað sem það annars táknar). Þetta ævintýri Á- listans er komið út í mýri og bregðast þarf skjótt við og stöðva sem fyrst ef ekki á að fara verr en orðið er. Bæj- arstjórinn og hans fólk hagar sér eins og fílar í postulínsverslun, virða ekki skoðanir og vilja bæjarbúa og engu líkara en þau hafi ekki hug á trausti og velvild þeirra. Það á að demba yfir íbúana eins miklu af draumsýnum bæjarstjórans á kjörtímabilinu eins og mögulegt er. Hann veit sem er. Með þessu áframhaldi mun þessi meirihluti sem hann styðst við ekki ná endurkjöri. Því sitjum við uppi með einnota bæjarstjórn. Er bæjarstjórn Álftaness einnota? Sveinn Ingi Lýðsson skrifar um sveitarstjórnarmál á Álftanesi »Eins og bæj- arstjórans er vandi býður hann almenningi upp á rang- færslur, orð- hengilshátt og útúrsnúninga … Sveinn Ingi Lýðsson Höfundur er íbúi á Álftanesi. ástæðu til að gera at- hugasemdir við þenn- an boðskap og tel raunar að það ætti að vera mikið áhyggju- efni fyrir meðlimi stærsta trúarsafnaðar landsins hvernig leið- toginn hefur hagað málflutningi sínum. Sem málsvari kristninnar lýsir bisk- up eðlilega dásemdum trúar á Guð og Jesú Krist. Slík málsvörn getur þó verið með ýmsu móti, en til grundvallar henni liggur vanalega hin „helga“ bók, Biblían. Öflugustu málsvara „helgra“ rita köllum við bókstafs- trúarmenn. Það er síðan háð viðkom- andi samfélagi hverjar afleiðingar trúarvissu eru: menn drepnir fyrir að trúa ekki á „réttan“ guð eða meinað um full réttindi vegna „rangrar“ kyn- hneigðar. Það kann að vera langur vegur þarna á milli, en rótin er sú sama – vissan um sannleika þess sem ritað er í „bók bókanna“ – „grundvöll hins góða samfélags“. Biskup er viss. Trúin er grundvöll- ur siðferðis, en trúleysi mann- skemmandi. Það er ekki ætlun mín hér að rökræða gildi trúar. Menn deila um hvort trúarbrögðin hafi ver- ið mikill orsakavaldur styrjalda og hamlað þróun mannréttinda eða ver- ið okkar helsta framfaraafl og sá áhrifahvati sem gerði raunvísindin yfirhöfuð möguleg, eins og biskup hélt nýlega fram4). Ég læt hér nægja að fullyrða að jákvæð áhrif trúar eru umdeilanleg. Trúarbrögð hafa flest þróast í já- kvæða átt, þótt þau séu misjafnlega stödd á þeirri vegferð, sbr. það of- * Grein þessi er endurbirt vegna mistaka í tæknivinnslu. FELST hætta í því að viðurkenna að það eitt að líta í augu barna okkar eða faðma ástvini geti fyllt okkur kærleika, án þess að trúa á fórn- ardauða og upprisu Jesú? Er náungakærleikurinn sprottinn úr jarðvegi trúar á guð, en trúleysi sál- ardeyðandi og mannskemmandi?1) Þetta virðist skoðun æðsta manns þjóðkirkjunnar, biskups Íslands. Samkvæmt því er trú á Guð upp- spretta alls hins besta í samfélaginu. Trúleysi hins vegar ógn við mannlegt samfélag og uppeldi barna2), ávísun á helsi, hatur og dauða3). Þetta eru skilaboð biskups til okkar sem höfum „úthýst“ Guði úr lífi okkar. Ég sé stæki sem íslam getur af sér. Hin vestræna lút- erska kirkja er kannski lengst komin í að losa sig við bábiljur sem áður voru bjargföst trú. Fljótt á litið mætti álykta að hún hefði sam- þykkt flestar nið- urstöður vísindanna. Biskup lofar vísindin og treystir væntanlega að miklu leyti á það sem þau segja okkur. Þegar hins vegar kemur að kenningum um þróun siðferðiskenndar er hann ekki bara efins – biskup hafnar þeim möguleika að náunga- kærleikurinn sé okkur eðlislægur. Aðeins trúin á Guð geri okkur siðuð. Hvers vegna rígheldur biskup í þá vissu að gott siðferði sé háð trú á æðri máttarvöld? Ætti hann ekki að geta fallist á að gott siðferði sé eft- irsóknarvert í sjálfu sér? Er það hættulegt fyrir kirkjuna að sam- þykkja að hvert og eitt okkar geti komist að þeirri niðurstöðu að heið- arleiki, umhyggja og umburðarlyndi sé það sem við viljum standa fyrir í þessu eina lífi okkar? Varla er eftirsjá að slíkri vantrú á manngildi sem telur loforð og hótanir um hvað tekur við í öðru lífi nauðsynleg til að við hegðum okkur skikkanlega í þessu. Það sem ég tel alvarlegast við boð- skap biskups er hvaða kenndir hann vekur. Biskup átelur alla menn sem ekki trúa á guð. Hann notar orðið hatrammur um félaga í samtökunum Siðmennt, sem vilja efla almennt sið- ferði og ábyrgð hvers einstaklings gagnvart náunga sínum. Þetta eru hatursfullir trúleysingjar samkvæmt biskupi. Trúleysi er „mannskemm- andi“. Trúlausir menn eru þar með vondir menn. Hvað gerum við við slíka? Drepum? Bannfærum? Útilok- um frá embættum og athöfnum? Fyrirlítum? Það hefur auðvitað breyst með tímanum og er háð því í hvaða samfélagi við lifum. Við mann- skemmandi trúleysingjar getum prísað okkur sæl fyrir að vera uppi á Íslandi í dag, en ég verð því miður að segja að málflutningur biskups hefur auðveldað mér skilning á ofstæki trú- ar og kirkju fyrr á öldum. Gæti verið að fleirum hugnist ekki að þessi kær- leiksboðskapur biskups hafi greiðan aðgang að skólum barna okkar? Grein minni er ekki ætlað að vera árás á kirkjuna. Trú er staðreynd í lífi fjölmargra og kirkjan hefur hlut- verki að gegna. Það er ekki þar með sagt að forsvarsmenn hennar séu hafnir yfir gagnrýni. Ég leyfi mér að efast um að boðskapur biskups sé til þess fallinn að efla kirkjuna. Gæti ekki verið að styrkur hennar fælist frekar í að opna fyrir öllum sem með- taka kærleiksboðskap, trúuðum jafnt sem trúlausum? Ætti þjóðkirkjan, sem nýtur sérstakra forréttinda á meðal trúfélaga, ekki að gæta þess sérstaklega að vera auðmjúk og um- burðarlynd í stað þess að vera hroka- full og viss? Það er mín trú að þjóð- kirkjan muni ekki dafna nema hún leggi áherslu á jafnrétti og umburð- arlyndi. Að hún opni dyr sínar fyrir öllum sem telja hana geta gegnt mik- ilvægu hlutverki í samfélaginu, veitt styrk í erfiðleikum og sorg og verið vettvangur til að stuðla að góðu sið- ferði. Einnig þeim sem ekki meðtaka trú á hið yfirnáttúrulega eða bókstaf fornra handrita. 1) Karl Sigurbjörnsson (KS), flutt í Ás- kirkju, 6. mars 2005 2) KS, flutt í Dómkirkjunni, 1. jan. 2003 3) KS, flutt í Hvalsneskirkju, 9. des. 2007 4) KS, flutt í Dómkirkjunni, 1. jan. 2008 Biskup Íslands, trúleysi og kærleikur Viktor J. Vigfússon skrifar um trúmál Viktor J. Vigfússon »Er trúleysi ávísun á helsi, hatur og dauða? Höfundur er verkfræðingur. JÓN Bjarnason þingmaður VG ritar um Ólaf F. Magnússon, D- listann og flugið í Morgunblaðið 1. febrúar sl. líkt og hann hafi hvorki frétt að 2001 kusu Reykvíkingar Vatnsmýrarflugvöll burt né að 14 af 15 núverandi borg- arfulltrúum vilja hann burt fyrir 2016. Ekki skal fjölyrt um heilsufar, ímynd- aðar höfuðborg- arskyldur og meint svik D-lista við Ólaf F., en um skipulags- umræðu, kosninga- sigur F-lista, mál- efnaplagg og Vatnsmýri er þetta að segja: Umræðusiðferðis gætir vart í íslenskri pólitík þó í tugþús- undir ára hafi vís- indi, samskipti og samfélög manna byggst á tölulegri greiningu hagsmuna, áhættu, ábata o.s.fr.v., fyrst með að telja tær og fingur en nú með tölvum. Jöfnuður, réttlæti og lýðræði byggjast á jöfnunni 2x2=4, sem alheimssátt er um. Hér er þetta öðruvísi. Ójöfnuði, ranglæti og lýðræðishindrunum gegn 63% landsmanna í höf- uðborginni er viðhaldið með for- dæmalausu misvægi atkvæða, sem er innmúrað í 129. gr. laga um kosningar til Alþingis. Úr skugga þessara aðstæðna geta Jón Bjarnason þingmaður og kumpánar hans talað niður til borgarbúa, sópað af borðinu rök- semdum þeirra og rannsóknum með rökleysur, tilvistarangist og annað bull að vopni. Og þeir geta hoppað hæð sína af kæti með nýja borgarstjórann og málefnaplaggið hans. En misvægi atkvæða afbak- ar umræður, gildismat og ákvarð- anir og brenglar störf stjórnmálaflokka, Al- þingis og sveitar- stjórna. Háar lýðræð- ishindranir tryggja völd landsbyggð- arstýrðra lands- málaflokka á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur og verja þá gegn borgaralegri samkeppni úr gras- rótinni. Afleiðingar eru þaulseta, fáræði, samfelld fórn mikilla almannahagsmuna, handstýring, sóun tækifæra og ógagnsæ- ir stjórnunarhættir. Kosningasigur F- lista 2006 varð við þessar skuggalegu að- stæður. Ólafur F. borgarfulltrúi, sem hafði áralangan að- gang að vel rök- studdum, hlutlægum og gagnsæjum upplýs- ingum og tillögum um borgarskipulag og borgarhag- fræði, hafði enga afsökun en þó vann hann þvert gegn brýnustu hagsmunum borgarbúa með því að gera út á örugg atkvæðamið flugvallarsinna í borginni, sem hafa að sjálfsögðu níðþrönga einkahagsmuni að leiðarljósi. Ólafi F. hefði í síðasta lagi átt að verða ljóst hvar brýnustu hags- munir borgarbúa liggja þegar Enn um umræðusiðferði Örn Sigurðsson skrifar um flugvallar- og borgarstjórnarmál » Ójöfnuði, ranglæti og lýðræðishindr- unum gegn höf- uðborgarbúum er viðhaldið með fordæmalausu misvægi at- kvæða... Örn Sigurðsson Meira á mbl.is/greinar Glæsilegt verslunarhúsnæði á jarðhæð, allt að 1285 fm. Möguleiki á að skipta niður í smærri einingar. Góð aðkoma að verslun, í alfaraleið við stóra íbúaabyggð. Aðgengileg vörumóttaka, góð lofthæð og mikið af bílastæðum. Húsnæðið er vel sýnilegt frá Reykjanesbraut og með mikið auglýsingagildi. Ný Europris verslun opnar fljótlega í sama húsnæði. Tilbúið til afhendingar c.a 15. apríl. Upplýsingar í síma: 898 7510 TIL LEIGU Tjarnarvellir 11, Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.